Þjóðviljinn - 07.04.1977, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 07.04.1977, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. april 1977 Myndir Þorbjargar eru stórkostlegar. Unnið aö uppsetningu sýningarinnar. „Innlegg í sögu...ekki of ljósa” Áttræð á páskadag Attræð verður á páskadag, 10 april, Sigríður Jónsdóttir frá Villingaholti, Álandsgade 24, Kaupmannahöfn. Sigriður dvelst nú á Islandi hjá dóttur sinni og tengdasyni, en verður utan. Reykjavikur á afmælisdaginn. Þorbjörg Höskuldsdóttir opnar mál- verkasýningu á Kjarvalsstöö- um n.k. laugardag Á laugardaginn opna tveir listamenn mál- verkasýningar á Kjar- valsstöðum. Þetta eru þau Haukur Dór og Þorbjörg Höskulds- dóttir. Einn morgun núna i vikunni skaut okkur Þjóðviljamönn- um þar upp og gripum Þorbjörgu þar sem hún var að bera myndirnar Stjörnusalur (Grillið) opinn alla daga. Súlnasalur Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi tilkl. 1 á 2. f Pásk- um. Simar: 2 50 33 Grillið 2 02 21 Súlnasalur HOTEL SAGA „Þetta eru nú ekki beint upp' byggileg málverk hjá mér” „£g vil ekki leggja spilin alveg á borð” „Ætli það sé ekki frekar egg og bacon?” „Ég er ekki slður undir áhrifum frá gömlum málurum” »**« m ! C ill Myndir: GEL Texti: GFr sinar inn i húsið og tók- um hana tali. Haukur Dór var hvergi sjáanlegur. Þegar Þor- björg opnaði sina fyrstu sýningu i Galleri SÚM fyrir 5 árum sló hún i gegn ef svo mætti segja og hefur siðan verið talin i hópi bestu myndlistarmanna af yngri kynslóðinni. Það er þvi forvitnilegt að lita á nýja sýningu. Fyrst spyrjum við af hverju Þorbjörg hafi gerst myndlistar- kona og um námsferil hennar. — Ég hef ekki getað neitt annað en aö mála, segir hún, ég reyndi að láta þaö vera, en það tókst ekki. Svo fór ég i Mynd- listarskólann við Freyjugötu 1%2 og aðalkennarar mlnir þar voru Ragnar Kjartansson og Hringur Jóhannesson. og enn- fremur kenndu mér Jóhannes Jóhannesson og Hafsteinn Aust- mann. Ég hef lagt aðaláherslu á teikningu. Frá 1967 til 1971 var ég við nám á Konunglegu lista- akademiunni i Kaupmanna- höfn. — Hvernig likaði þér dvölin i Höfn? — Hún haföi mikil áhrif á framhaldið hjá mér ogútkomune eins og hún er i dag og það var fyrst og fremst því aö þakka að ég hafði aðstæöur til að vinna þarna alla daga og haföi góða kennara. Þarna var hægt að teikna módel stanslaust, bæöi fyrir og eftir hádegi. Svo átti maður kost á aukatimum td. i grafik. 1 Kaupmannahöfn eru lika ágæt söfn og góðar farand- sýningar. Þaö er ekki litill skóli að vera á svona stað. — Akademian hefur þá ekki veriö þunglamaleg og gamal- dags? — Nei, þaö var komið mikið lif i hana þegar ég kem utanen hún hafði lengi veriö i föstum skorð- um áður. — Telur þú teikningu vera aðalatriði i sambandi við mál- verkið? — Hún er undirstaða en ekki aðalatriði. Sumir geta lagt út i þetta án þess að leggja mikla áherslu á teikningu. — Hefur þú eingöngu málað siðan þú komst heim 1971? — Já, og kennt smávegis með. Svo hef ég unnið i leikhúsum. Það hefur verið gott fyrir mig. Þegar maður er búinn aö vera svona einn að pæla I sjálfum sér er gott að vinna að leiksýningu sem byggist á samvinnu fólks. Einnig hef ég gert eina og eina bókaskreytingu. — Hvað ert þú að tjá i mál- verkinu? — Ætli það sé ekki mitt við- horf til lifsins og hvernig ég nota litina á léreftiö. — Það sjást iðulega I myndum hjá þér forn rómversk bogagöng og fleira i þeim dúr? — Já þetta er svona afgangur af húsum. Ég nota þetta sem falleg form. Þaö kemur af sjálf- u sér af þvi að ég nota mikið perspektif. Þetta eru nú ekki beint uppbyggileg málverk hjá mér. — Svo er eins og allt sé að hrynja i sumum myndunum og prúðbúið fólk á ferli? — Hálfþokukennt fólk, já. Segja má að myndirnar séu innlegg I sögu sem ég reyni að gera ekki of ljósa. Ég vil ekki leggja spilin alveg á borö til að málverkin komi á móti fólki. Þaö tekst misjafnlega. — Ert þú undir áhrifum frá Francis Bacon? — Sumir hafa nefnt það,en ég get ekki flækt mér i samband við Bacon. Ætli það sé ekki frek- ar egg og bacon? — Þú vilt ekki nefna neina sérstaka meistara sem hafa haft áhrif á þig. — Það eru svo mörg timabil og mörg nöfn aö það er erfitt að segja en ég er ekki siður undir áhrifum frá gömlum evrópsk- um málurum en málurum frá þessari öld. —GFr. Sigriður Jónsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.