Þjóðviljinn - 23.06.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 23.06.1978, Blaðsíða 11
Föstudaguv 23. júni 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Gestkvæmt í Fjalakettinum Nýkjörinni borgarstjörn var i fyrradag boðiö til slðdegis- drykkju I Fjalaköttinn við Aðal- stræti. Var borgarfulltrúunum sýnt þetta mikla hús, sem árum saman hefur verið i megnustu niðurniðslu sökum skorts á við- haldi. Kom fram hjá gestgjöfum, sem eru eigendur hússins og fleiri húsa i Grjótaþorpi að i meira en 40 ár hefur staðið til að húsið yrði rifið, ýmist sökum nýs eða breytts skipulags. t eina tið stóð t.d. til að breikka Aðalstrætið, en þá var Morgunblaðshöllin reist og var þá horfið frá þvi ráði. Þá bjuggust menn við að öll húsa- lengjan við Aðalstræti yrði rifin og ný hús i hallarstilnum reist i staðinn, en ekkert hefur orðið af þvi. Sökum vafa um hvaö gera mætti á lóðinni öll þessi ár hefur engu verið kostað til viðhalds hússins, og er ljóst að ekki má lengur við svo búið standa, ef Reykvikingar vilja á annað borð halda i þessa merku byggingu, þarsem t.d. fyrsta bióið i Reykja- vik var rekið. 1 gær lét Þorkell Valdimarsson þau orð falla við borgarfulltrúa að hann hefði hug á að gefa borg- inni húsið, en þó með þeim skil- málum að það yrði flutt af lóðinni fyrir áramót. Þeim borgarfulltrúum sem Þjóðviljinn náði tali af i gær bar saman um að nauðsynlegt væri að taka framtið Fjalakattarins fyrir hið fyrsta og reyndar framtið Grjótaþorpsins i heild. —AI Fjalakötturinn, — húsið sem hefur verið dauðadæmt áratugum saman vegna sifelldra breytinga á skipulagi Reykjavikur. Tekst að bjarga þvi? Ljósm. Leifur Séð niður i portið með glerþakinu, en það er i miðju hússins. Ljósm. Leifur Sjúkra- liðar hjá ríkinu óánægð ir með kjör sín Sjúkraliðar á rikisstofnunum héldu fund i fyrrakvöld, þar sem fjallað var um kjaramál. Kom fram mikil óánægja með það hversu mjög sjúkraliðar hafa dregist afturúr öðrum hliðstæð- um stéttum i launum. Var sam- þykkt að krefjast þess að kjara- nefnd féllist á að sjúkraliðar á sérdeildum væru i hærra launa- flokki en aðrir sjúkraliðar, en nú- verandi skilgreining kjaranefnd- ar er mjög loðin. Fer þetta mál væntanlega fyrir kjaranefnd nú þegar. Banka- blað Ot er komið Bankablaðiö, 1. tbi., 1978. Af efni þess skal nefnt: Visitöluskerðingin og vinnu- friðurinn, eftir Solon R. Sigurðs- son, Bjarni G. Magnússon skrifar um 50 ára afmæli Félags starfs- manna Landsbankans og minningargrein um Orn Arnljóts- son, bankaútibússtjóra. Grein er um ráðstefnu NBU I Bergen. Sagt er frá ráðstefnu SIB um vinnu- staðinn, birt erindi, sem þar voru flutt og niðurstöður starfshópa ráðstefnunnar. Guðjón Reynisson ritar um námskeið norska banka- mannasambandsins. Auk þessa eru i ritinu fréttir o.fl. Abyrgðarmaður blaðsins er Sólon R. Sigurðsson, en það er unnið af Gunnari Eydal og Björgu Arnadóttur. —mhg. Þingholtsstrœti 27: Lyftu húsinu af grunni og fluttu það yfir götuna Litið er eftir annaö en grindin, en húsið verður gert upp i sinni upprunalegu mynd að utapverður. Nýi grunnurinn er fremst til vinstri á myndinni. Ljósm. Leifur. Það er þó liklega ofmælt að kalla þetta „hús”, þvi litið er eftir af þvi annað en grindin eftir brun- ann i hitteðfyrra. Eigandi hússins Björn Traustason fékk leyfi til að byggja á ný á þessari lóð, með þvi skilyrði að húsið yrði ekki rifið heldur flutt yfir á lóð borgarinnar hinum megin götunnar. Nanna Hermannsson borgar- minjavörður kannaði húsið á ár- inu 1975, þegar fjallað var um byggingaleyfi og taldi hún i skýrslu sinni til umhverfismála- ráðs aö húsið hefði mikið varð- veislugildi, bæði eitt sér og sem hluti af litt. spilltri götumynd Þingholtsstrætis. Það var fyrsta tilhöggna timb- urhúsið sem flutt var til Reykja- vikur frá Noregi árið 1897 og gerði það Jón Jensson háyfirdómari, sem bjó i húsinu árum saman. Siðan keypti það Davíð Scheving læknir við Farsóttarhúsið sem er næsta hús númer 25 við Þing- holtsstræti. Húsið mun verða gert upp i sinni upprunalegu mynd að utan, en engin ákvæði um verndun inn- volsins voru I skilmálum bygg- ingaleyfisins. —AI. S.l. mánudagskvöld var húsið grunni sinum yfir á nýjan grunn við Þingholtsstræti 27 flutt af hinum megin götunnar. og kran- Fjögur bönd I stoðir, sem reknar voru þvert i gegnum húsið, inn lyftir húsinu léttilega. Ljósm. Leifur. Veiðitil- raunir á kol- munna í sumar A s.l. tveimur árum hefur sjáv- arútvegsráðuneytið beitt sér fyrir tilraunaveiðum á kol- munna, bæði fyrir Austurlandi og Dohrnbanka, en til þessara tilraunaveiða leigði ráðuneytiö b/v Runólf SH og Guömund Jónsson Gk. Nú hefur sjávarútvegsráöu- neytið ákveðið að gerðar verði i sumar eftirfarandi tilraunir til veiða á kolmunna. 1. Um næstu helgi munu hefj- ast tilraunir til kolmunnaveiðar með tveggja báta vörpu. Hefur ráðuneytið fengið tvo 300 lesta báta til þessarra tilrauna. Til þess að þessar tilraunir megi takast sem .best, hafa skipin verið búin ýmsum tækjum svo sem höfuölinumæli og sérstakri vindu fyrir flotvörpu. Ennfrem- ur hefur ráðuneytið fengið frá Danmörku skipstjóra, sem van- ur er veiðum með tveggja báta vörpu og veröur hann skipstjór- um bátanna til aðstoðar. Til- raunir þessar eiga að fara fram á Dohrnbanka i 2 vikur, en fáist ekki reynsla á þetta veiðarfæri þar, munu skipin reyna það fyr- ir Austurlandi. 2. I byrjun júli mun rann- sóknaskipið Baldur halda til kolmunnaveiða með flotvörpu fyrir Austurlandi, en á þessum tima var mjög góð veiði s.l. tvö ár á kolmunna fyrir Austur- landi. Mun Magni Kristjánsson, sem er skipstjóri á m/b Berki NK 122 stjórna þessum veiðitilraunum. Til flutnings á afla hefur ráðu- neytið tekið á leigu tvo báta, sem hvor um sig ber u.þ.b. 500 lestir af kolmunna. Eiga þessir bátar að dæla afla úr poka r/s Baldurs og flytja aflann siðan til hafnar. Eru slikar veiðar stund- aðar með góðum árangri t.d. i Norðursjó og viðar. Er það von ráðuneytisins að þessar tilraunir verði til þess að sanna að hægt sé fyrir fiskiskip almennt að stunda þessar veið- ar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.