Þjóðviljinn - 19.09.1979, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 19.09.1979, Blaðsíða 6
6 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 19. september 1979 Módel (íynrsæta) óskast til starfa við Myndlista- og hand- iðaskóla íslands. Upplýsingar á skrifstofu skólans, simi 19821. Sendill/Vélhjól Óskum að ráða sendil á vélhjóli til starfa allan daginn eða fyrir hádegi. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra. — starfsmannahald. $ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Aðalbókari — Reykjaiundi Aðalbókari óskast til starfa, staðgóð þekk- ing og reynsla i bókhaldi áskilin. Nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri i sima 66200. Vinnuheimilið Reykjalundi Verkfræðingur M.Sc sem lauk námi i Englandi i ár með sér- grein: Exploitation of Materials, oghefur auk þess sveinspróf i vélvirkjun, óskar eftir atvinnutilboði til lengri eða skemmri tima. Vinsamlega sendið uppl. til auglýsinga- deildar Þjóðviljans merkt: „Vélaverk- fræðingur”. RAÐHERRANEFND NORÐURLANDA Norræna menningarmálaskrifstofan i Kaupmannahöfn 1 norrænu menningarmáiaskrifstofunni er laus til um- sóknarstaöa deildarstjóra ideild þeirri er fjallarumsam- starf á sviöi almennra menningarmála, svo og staöa full- trúa. Nánari upplýsingar um stööuna má fá I menntamálaráöu- neytinu, sbr. og auglýsingu i Lögbirtingablaöi nr. 75/1979. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. og ber aö senda um- sóknir til Nordisk ministerrad, Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbejde, Snaregade 10, DK-1205 Köbenhavn K- Menntamálaráðuneytið, 13. september 1979. Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar 1 ',A< VISTlN BAKNA' KORNHAGA 8 SlMl 27277 Staða forstöðumanns við leikskólann Árborg er laus til uhisókn- ar. Fóstrumenntun áskilin. Laun samkvæmt kjarasamningi borgarstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til 1. október. Umsóknir sendist til skrifstofu Dagvistun- ar, Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari upplýsingar. Einn af sýnendum I Norræna húsinu, Valgeröur Bergsdóttir, vinnur aö uppsetningu hinnar bráö- skemmtilegu sýningar grafikiistamanna. Sleikipinni úr tré ogplasti eftir Stefán Geir Karls- son á góifi Kjarvalsstaöa. A veggjum hanga merkingalitlar klippimyndir. Húrra fyrir konunum Um þessar mundir standa yfir tvær yfirlits- sýningar myndlistar- manna, önnur að Kjarvals- stöðum, hin í Norræna hús- inu. Og það er ekki nema rétt mátulegt á allan þann aragrúa menntaðra mynd- listarmanna, sem þar sýnir verk sin, að ófag- lærður maðurinn gangi þar um og skýri frá því sem honum finnst að göngu lok- inni. Sú umsögn verður þó hvorki vísindaleg né fræði- leg, og ekki þurfa lista- mennirnir að óttast að þessu verði fram haldið í hvert sinn, sem þeir sýna afrakstur vinnu sínnar. Haustsýning FÍM er aö Kjar- valsstööum. 1 heildina er sýningin ófrjósemdarleg og leiöinleg. bó eru þar undantekningar frá. Þar er framlag kvenna. Þarna á Sig- rún Guöjónsdóttir— Búna — sex gullfallegar og skemmtilegar myndir unnar i steinleir og Guöný Magnúsdóttir fjórar myndir listi- lega unnar i steinleir og postulin og Matthea Jónsdóttir tvær oliu- myndir, finlegar og hrífandi. En þarna eru 44 sýnendur, og margir nýir. Af verkum þeirra, sem undirritaður minnist ekki aö hafa séö myndir eftir áöur á sýningum, bar af mynd númer 48, ,,45 ár sem skipasmiöur”, rauö- bjarma oliumynd, eftir Guömund Armann Sigurjónsson. Olfu- myndir annarra nýliöa voru litt eftirtektarveröar. Þaö voru gömlu jaxlarnir Jóhannes Jó- hannesson og Eiríkur Smith sem hins vegar skiluöu sinu. Af verkum annarra nýliöa þótti mér ágæt pastelmynd Gubmundar Björgvinssonar, „Eldur I sinu”, svo og tvær myndir Arnars Herbertssonar unnar i tré. Gylfi Gislason átti þarna tveggja mynda samstæöu, túss- myndir, smelina hugmynd. Olfupastelmyndir eftir Hring Jó- hannesson verö ég aö viöurkenna aö hafa ekki fyrr séö og þótti mér skemmtilegar, sérstaklega myndin „Finnungur”. Þarna voru tveir steindir gluggar eftir Leif Breiöfjörö og ullarmyndir eftir Leif og Sigriöi Jóhannesdótt- ur. Þetta hvort tveggja staldraöi ég viö. Nokkrar skúlptúrmyndir voru á strjálingi um sýningarsalinn. Fáar eöa engar athygliveröar nema „Stiklur” Guömundar Eliassonar, unnin f járn, eir og polyester. Og er þá komiö aö þvf sem verra var. Klippimyndir viröast eiga vin- sældum aö fagna meöal mynd- listamanna; kanski f kjölfar heimsóknar Errós fyrir rúmu ári. En hjálpi mér Þór og Oöinn; fjandi voru þær lélegar, merk- ingarlitlar og ljótar. Þó var þar undantekning: „Þversögn” Sigurjóns Jóhannssonar I 9 myndum, býsna smelliö verk. Ekki kann ég aö teikna mann, fjandinn fjarri mér. En margir læra þetta. Fáir geta þaö. Ein- hvernveginn heföi ég 1 fáfræöi minni haldiö aö sá sem ætlaöi aö teikna nakinn mannslikama eöa likamshluta þyrfti aö kunna býsnin öll i likamsbyggingar- fræöum, svo sem vöövafræöi (ef til er) og beinafræöi. Þeir sem aö Kjarvalsstööum eru aö sýsla viö likamshlutamyndir eiga þessar lexiur ólesnar. Þvi miöur. Og sumt sýnir maöur ekki. Þaö væri ótugtarlegt aö nefna til alla þá, sem mér finnst aö heföu átt aö geyma myndirnar sinar heima þessa haustdaga. En sumir þeirra hafa haröan skráp, og þaö sem meira er: þeir eru komnir á þann aldur i listsköpun aö þeim væri aöeins greiöi geröur meö þvi aö sagt yröi frá. Auk þess sem þar eru og menn, sem læröir listgagnrýnendur hafa hampaö i áravis. Þetta eru sum sé þeir tveir Sveinn Björnsson, leynilögreglu- maöur úr Hafnarfiröi, sem heföi Leik- manns þankar um tvær listsýningar átt aö leyna öllum þremur mynd- unum sem hann þess i staö fór meö á Kjarvalsstaöi, og hitt er skólameistarasonurinn aö norö- an, hann örlygur Sigurösson. Hann heföi aö skaölausu mátt halda annarri myndinni I felum. Mannamyndin hans er skamm- laus, enda fyrirsætan alklædd og örlygur kemur þvi ekki upp um þaö hvort hann kann eitthvaö i llkamsfræöunum eöa ekki. En sem sagt. Þaö sem mest nýjabrumiö var aö, mestur fersk- leikinn og mesta nautnin á aö horfa og koma viö f þessari sýningu var frá konunum komiö. Húrra fyrir þeim! I Norræna húsinu 17 grafiklistamenn sýna I Norræna húsinu, og þótt nafn sýningarinnar sé ekki hug- kvæmnislegt —i Islensk grafik ’79 — þá er sýningin bráöskemmti- leg: fullt af skemmtilegum hug- myndum, prýöilega útfæröum. Ég sé enga ástæöu til þess aö ti- unda allt þaö ágæti, sem fyrir augun bar I Norræna húsinu; þar er hver hagleiksmaöurinn öörum betri. Og þó! Hlutur kvennanna er aftur á- berandi. Húrra fyrir þeim. Og af minnisstæöustu myndum, tæpum sólarhring eftir aö hafa litiö þær allar 112 talsins, eru myndir Lisu K. Guöjónsdóttur. Sérstaklega tvær: „Vér byggjum borgir” og „Burt, burt”. Tröllsterkar sam- timalýsingar unnar á svo finlegan og nostursamlegan hátt orka ó- trúlega sterkt og kannski fyrst og fremst sannfærandi. En engar upptalningar. Þessi sýning er afspyrnu góö. Sýningarskrár fylgdu á báöum stööum. Kjarvalsstaöaskráin er alsver sýningarskrá kostuö meö auglýsingum frá tveimur versl- unarfyrirtækjum. I Norræna hús- inu er sýningarskráin vegleg og eiguleg bók, snyrtilega og fag- niannlega unnin. Kannski segir þetta tvennt allt um muninn á þessum tveimur sýningum. Aö lokum: Sýningu grafiker- anna á aö setja upp vitt og breitt um Noröurlönd. Þaö er góö uppá- finning. Fyrir útflutning á þessari graffklist þarf enginn Islendingur aö skammast sfn. Til hamingju, grafikerar! -úþ P.S. 1 anddyri kjallarans aö Norræna húsinu eru vel fram settar upplýsingar um grafik og graffska vinnu. Fyrir þess lags upplýsingar þökkum vér fáfróöir. —Sami.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.