Þjóðviljinn - 09.04.1983, Blaðsíða 17
Helgin 9.-10. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Óvenjulegur skírnarfontur úr Oddakirkju á Rangárvöllum. Fonturinn er í
rókokóstíl eftir Ámunda smið Jónsson, gerður 1804.
unnar. Þrátt fyrir einangrun og
niðurlægingu, fátækt og rýran efn-
iskost, stendur alþýðulist okkar frá
16. til 19. aldar fyllilega jafnfætis
alþýðulist annarra þjóða. Það væri
út í hött að bera hana saman við
opinbera list Evrópu, sem prýddi
ríkustu kirkjur álfunnar. Hér var
hvorki keisari né konungur, kar-
dínáli eða páfi til að panta slíka list
eða styðja við bakið á hagleiks-
mönnum, svo þeir mættu læra gerð
slíkrar listar. En þrátt fyrir það að
við eignuðumst aldrei neinn Ru-
bens, voru í þrengingum liðinna
alda sköpuð listaverk sem miðuð
við aðstæður eru meðal þess besta
sem gert hefur verið í íslenskri list.
UL______________________________
Það þarf vart að tíunda dæmi
þessu til sönnunar. Á sýningunni
eru þau ófá, svo sem skírnarfontur-
inn úr Oddeyrarkirkju eftir
Ámunda Jónsson, predikunarstóll
síra Hjalta Þorsteinssonar í Vatns-
firði, legsteinarnir úr hinum ýmsu
kirkjugörðum og altarisklæðin úr
Berufjarðarkirkju og Staðarkirkju
í Súgandafirði. Þetta eru lifandi
dæmi um listfengi sem aldrei var
drepið, þótt oft lægi við að illa færi.
Þessum alþýðuvölundum verður
heldur ekki borinn á brýn skortur á
trúarjegri sannfæringu. Þar hafa
þeir vissulega vinninginn umfram
margan listamann nútímans, en
innlifun í þá átt hlýtur að vera for-
senda góðrar trúarlegrar listar.
Hitt d.ylst engum að meðal þeirra
listamanna lifandi sem sýna verk
sín á kirkjulistarsýningunni eru
margir afbragðsgóðir fulltrúar
kirkjulegrar listar og hjá nokkrum
örlar á sannverðugri, trúarlegri
innlifun.
Einhver helsti fulltrúi hins fyrr-
nefnda, eða kirkjulegrar listar, er
Leifur Breiðfjörð. Varla þarf að
rápa lengi um salina til að uppgötva
þann kraft og stórhug sem felst í
undirbúningsteikningum og upp-
dráttum hans að hinum ýmsu
steindu gluggum í kirkjum hér
heima og erlendis. Leifur er sann-
kallaður meistari glerlistarinnar
hér á landi.
í síðarnefnda hópnum á Bjami
Þórarinsson væntanlega sterkasta
framlagið. Hið risastóra málverk
hans „Teikn", tveir metrar á hæð
og fjórir metrar á lengd, er í senn
tilþrifamikið og þrungið spennu.
Bjarni fer ekki auðveldustu leiðina
að trúarverkinu. í stað þess að leita
í lífi og pínu Krists að viðfangi, eins
og flestir listamannanna að Kjarv-
alsstöðum gera, kafar hann í list
miðalda og finnur þar mun
óræðara yrkisefni. Verkið er nefni-
lega fullt af dulúð (mystik) sem allt
of sjaldan finnst í trúarverkum nú-
tímans.
IV.
Annars er fullt um fínan drátt á
þessari sýningu og margt kemur
skemmtilega á óvart sakir óvenju-
legrar túlkunar. „Handhæga sett-
ið“ eftir Magnús Tómasson er nap-
urt í einfaldleik sínum og minnir
okkur á grimmdina gegn mannkyn-
inu fyrr og síðar. „Myndflokkur
um Mannssoninn“ eftir Hörð Ág-
ústsson, sex mynda röð, er býsna
áleitið verk og „Á Va!húsahæð“
Einars Hákonarsonar er eitt hans
besta pródúkt í seinni tíð. Þá eru
báðar myndir Gunnars Arnar
Gunnarssonar stórgóð verk unnin
' af miklu næmi. „An titils“, vefur
Ásgerðar Búadóttur er sinár en
kröftugur og meðfylgjandi vinnu-
teikning er einkar upplýsandi um
persónuleg einkenni listar hennar
og tilurð.
Auðvitað er hér enginn kostur á
að gera þeim 242 verkum sýningar-
innar fullnægjandi skil, en óhætt er
að hvetja fólk til að líta inn að
Kjarvalsstöðum og sjá með eigin
augum þetta merkilega safn trúar-
og kirkjulegra verka. Þótt alltaf
megi finna eitthvað sem betur
hefði mátt fara, gripi og listaverk
sem gagnlegt hefði verið að sýna
þar almenningi, er þetta lofsvert og
tímabært framtak. Án efa mun sýn-
ingin verða mönnum lengi minnis-
stæð sem einhver skilmerkilegasta
þemasýning sem hér hefur verið
haldin.
Sveit Þórarins Sigþórssonar íslandsmeistari
Glæsilegur sigur
Sveit Þórarins Sigþórssonar varð
Islandsmeistari í sveitakeppni
1983. Hún sigraði sveit Sævars Þor-
björnssonar í hreinum úrslitaleik,
með miklum og eftirminnilegum
glæsibrag.
Með Þórarni eru í sveitinni:
Björn Eysteinsson, Guðmundur
Páll Arnarson, Guðmundur
Sveinn Hermannsson, Guðmund-
ur Sveinsson og Þorgeir Pétur
Eyjólfsson.
Þetta er í þriðja skiptið sem Þór-
arinn sigrar þetta mót, en í fyrsta
skiptið hjá öllum hinum. Sannar-
lega menn framtíðarinnar í þessari
sveit.
Til úrslita kepptu 8 sveitir, 7 úr
Reykjavík og 1 frá Akranesi (vísast
í leikjatöflu).
Sveit Þórarins fékk 128 stig út úr
þessum 7 leikjum af 140 stigum
mögulegum. Og nýtt met þar stað-
fest, hvað varðar vinningshlutfall.
Til hamingju með það, strákar.
Ef við rekjum gang þessa ísland-
smóts, sem var svolítið sérstætt að
því leytinu að spiluð voru sömu spil
í öllum leikjum, tölvugefin.
Eitthvað hefur farið úrskeiðið í
mötun á prógrammi þessarar
tölvu, því spilin sem sáu dagsins
ljós í þessu móti voru flest efni í
brandara. Og 224 brandarar í einu
er fullmikið af því góða. Jafnvel þó
Þórarinn eigi í hlut.
Utkoma sveitanna átta varð
nokkuð eins og við var búist. Fjór-
ar í sérflokki og hinar áþekkar.
Alla vega eru mörg ár síðan fjórar
neðri sveitirnar fá eins fá stig útúr
leikjunum og raun bar vitni, eða
aðeins 135 stig af 440 mögulegum.
í 1. umferð bar það helst til
tíðinda að Sævar tapaði fyrir Þórði
og héldu menn þá að eitthvað væri í
uppsiglingu sem í annála yrði
skráð. En annað kom á daginn.
Úrslit í öðrum leikjum voru nokk-
uð eðlileg þó Þórarinn „gæfi“ út 6
vinningsstig. Ekki svo gott að sjá
fyrir endinn þar.
í 2. umferð var nokkuð ljóst að
Þórarinn yrði skeinuhættur í mót-
inu eftir 16-4 sigur á sveit Jóns Hj.
Sveit Karls fékk óskabyrjun, vann
aftur hreint og var með 40 stig af 40
mögulegum.
í 3. umferð vann Karl aftur
hreint og var nú kominn með 60
stig af 60 mögulegum. Þórarinn
vann Aðaistein einnig hreint og
Sævars-menn tóku Óðalsbændur í
tíma með 19-1 sigri. Staðan var þá
þessi:
Sveit Karls 60 stig.
Sveit Þórarins 50 stig.
Sveit Sævars 48 stig.
Og ljóst að þessar þrjár sveitir
börðust um sigur.
í 4. umferð mættust svo Þórarinn
og Karl. Og Þórarinn innbyrti 19-1
sigur örugglega, á meðan Sævar
fékk öll stigin á móti Aðalsteini.
Og staðan orðin þessi:
Sveit Þórarins 69 stig.
Sveit Sævars 68 stig.
Sveit Karls 61 stig.
í 5. umferð varð ljóst að Þórar-
inn og Sævar yrðu einir um hituna í
lokin um sigurinn. Sævar vann Karl
með 18-2 og Þórarinn vann Ólaf
með 19-1. Tóti átti því 2 stig á Sæv-
ar eftir 5 umferðir.
í 6. umferðir rústaði Þórarinn
svo Þórði hreint og Sævar fékk sinn
skammt á móti Ólafi, einnig 19-1.
Staðan var þá þessi fyrir síðasta
leik:
Þórarinn 108 stig.
Sævar 105 stig.
Karl 73 sitg.
Jón Hj. 69 stig.
Og svo skemmtilega vildi til (það
var dregið um röð sveita) að tvær
efstu sveitirnar kepptu innbyrðis í
síðasta leik og sveitir no. 3 og 4
einnig innbyrðis.
í baráttunni um 3. sætið hafði
Karl betur og sigraði með 12-8.
Úrslitaleikurinn var sýndur á
MÓTSTA FLA FYRIK ÚRSLIT ISLA(SII>SMÓTS 1 SVEITAKEPPNI
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. Stig Róö
1. SiVwn l}()il)j(")insson * 2o 19 20 12 /9 ±3 9 loZ 2b.
2. Bragi Hauksson ¥ ~5 /3 /d (0 (d 0o HZ 5.
2. jón Hjaltason 1 20 ♦ U 8 /3 y 2C 77 •f
4. Aö.ilsU'mn lörgensi'ii *H 7 9 0 7 X 35 7
5. Karl Sigurlijartarson X (0 IZ 2D * 20 1 20 85 3.
(). Olatur Lárusson 1 /V 7 /3 0 ¥ í O 3 lo (o.
7. Þórarinn Sigþorsson 20 H ((o 70 19 19 ♦ 20 /2$ i
8. Þórður Elíasson H V +3 r2 20 * ZZ 8.
Sveit Þórarins Sigþórssonar, íslandsmeistari í sveitakeppni 1983. F.v. eru
Guðmundur Páll Arnarson, Þórarinn Sigþórsson fyrirliði, Björn Eysteins-
son, Guðmundur Sveinsson, Guðmundur Sv. Hermannsson og Þorgeir P.
Eyjólfsson.
sýningartöflu á Loftleiðum að
viðstöddu miklu fjölmenni. Jakob
R. Mölíer og Stefán Guðjohnsen
skiptust á gáfulegum athuga-
semdum um leikinn (í stíl Hemma
Gunn.). Þórarinn-Guðm. Páll og
Björn-Guðm. Herm., spiluðu
leikinn fyrir sveit Þórarins og er
skemmst frá því að segja, að þessir
fjórir sýndu mikla yfirvegun og
mjög góða spilamennsku á sýning-
artöflunni. Það góða, að sennilega
hefðu fáir staðist þeim snúning í
þessum leik. Það má segja að sveit
Sævars var óheppin að mæta fjór-
menningunum í þessu banastuði,
einmitt í síðustu umferð, því sveit
Þórarins var einfaldlega betri í
þessum leik. Miklu betur, því úrs-
litin urðu 20-3 Þórarni í vil, eða
109-30 í imp-stigum. í hálfleik var
staðan 51-17. Að gefa út aðeins 30
stig í leik, þykir mjög góð spila-
mennska. En að gefa út 30 stig í
þessum leik, eru úrslit allra tíma.
Umsjón
Ólafur
Lárusson
Ekki verður lagður neinn dómur
á það, hver hafi verið bestur eða
lakastur. Þó gerir þátturinn þá
undantekningu að geta þess sem
var álit margra sem horfðu á allt
mótið, að einn spilari hafi staðið sig
það vel að athygli vakti. Það er sá
gamalreyndi spilari úr Hafnarfirði,
Björn Eysteinsson. Og kemur lík-
lega fáum á óvart, því Björn hefur
einn ljúfasta rnakker í okkar bri-
dge, sem er Guðmundur Sv. Her-
mannsson.
Árangur annarra sveita í mótinu
var lélegur. Nema sveit Braga
Haukssonar, sem náði 5. sætinu í
mótinu, sent er dulítill sigur fyrir
unga fólkið í þeirri sveit og ár-
eiðanlega mun betra en þau
reiknuðu með.
Sveitir Jón Hj., Ólafs og Aðal-
steins ollu allar vonbrigðum, svo
ekki sé meira sagt. Sveit Þórðar
lofaði góðu í upphafi, en sennilega
hefur tölvan komið þeim úr jafn-
vægi líkt og fleirum. Að sögn Al-
freðs Viktorssonar úr sveit Þórðs,
segist hann ekki eiga erindi aftur í
svona mót, eigi þessi tölvuvitleysa
að ráða einhverju í framtíðinn.
Með sanni er hægt að taka undir
þetta, því öllu má nú ofgera. Eða
hvað segja menn um það, að spila
32 spila leik og í þeim leik standa
6-7 hálfslemmur, 1-2 alslemma, 7-8
„villt“ game og restin af spilunum
alla vega skiptingar, með alls konar
„fórnarmöguleikum" sem raunar
flestir stóðust eða slefuðust einn
niður á öfugum hættum?
Ef einhver hefur gaman af þessu,
þá er það áhorfandinn sem situr við
hliðina á spilaranum og glottir að
ping ponginu.
Röggsamur keppnisstjóri á móti
var Agnar Jörgensen. Aðstaða var
öll til fyrirmyndar, svo og frá-
gangur og skipulagning mótshalds.
Vert er að geta fréttaflutnings af
mótinu, sem var með eindæmum
góður og til mikillar fyrirmyndar.
Þó hefði verið gaman að sjá „lif-
andi“ mynd í sjónvarpinu okkar af
mótinu og sigurvegurum þess, í
stað vangamyndar af Þórarni rúm-
leg tvítugum, þó myndarlegur sé.
Þátturinn óskar þeim félögum
innilega til hamingju með þennan
glæsilega sigur.
Frá Bridgesambandi
Vesturlands
Helgina 9. og 10. apríl n.k. verð-
ur Vesturlandsmótið í tvímenning
haldið í Hóteli Stykkishólmi. Spil-
aður verður Barómeter og keppn-
isstjóri verður Guðmundur Her-
mannsson. Mótið er opið öllum
bridgespilurum á Vesturlandi.
Keppnisgjald verður kr. 800 á
mann og er innifalið í því gisting,
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Eftir 1. kvöldið a 3 í Butler
keppni félagsins, sem 32 pör taka
þátt í, er staða efstu para þessi:
Sigurður Sverrisson
- Valur Sigurðsson 77.
Ágúst Helgason
- Ólafur Valgeirsson 74.
Guðni Þorsteinsson
- Sigurður B. Þorsteinsson 73.
Jón Baldursson
- Hörður Blöndal 70.
Guðmundur P. Arnarson
- Þórarinn Sigþórsson 64.
Bragi Erlendsson
- Ríkharður Steinbergsson 63.
Aðalsteinn Jörgensen
- Stefán Pálsson 61.
Hjalti Elíasson
- Guðmundur Pétursson 60.
Meðalskor er 50.
Frá Bridgefélagi
Suðurnesja
Forkeppni meistarmóts Suður-
nesja hófst mánudag 14. mars ’83.
Spilaðireru 16 spila leikir 13 sveita.
Fjórir fyrstu spila til úrslita inn-
byrðis.
Staðan eftir fjórðu umferð er
þessi:
1. Haraldur Brynjólfss.
61 stig 4 leikir
2. Grethe Iversen...59 stig 4 leikir
3. Alfreð Alfreðsson.. 56 stig 4 leikir
4. Sigurður Brynjólfss.
47 stig 4 leikir
5. Guðmundur Ingólfsson
37 stig 3 leikir
6. Jóhannes Ellertsson36 stig 3 leikir
Næst er spilað á mánudag. Fé-
lagar eru minntir á æfingar á
fimmtudögum í Framsóknarhús-
inu.