Þjóðviljinn - 10.05.1985, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 10.05.1985, Blaðsíða 13
Kjarvalsstaðir Gler, olía, teikningar Prjár sýningar opnaðar um helgina og sú fjórða í Norrcena húsinu Á morgun, laugardag kl. 14, verða opnaðar þrjár sýningar aðKjarvalsstöðum. Þargefst fólki tækifæri til að skoða gler- list, skúlptúra, teikningar, olíu- málverk, vatnslitamyndir, málaðar Ijósmyndir og fleira. Þegar blaðamann bar að garði í gær var mikið umstang á Kjar- valsstöðum og verið að hengja eða stilla upp listaverkum um allt hús. í vestursal var Kjartan Guð- jónsson að störfum. Hann ætlar að sýna 71 verk, mest olíumál- verk en einnig vatnslitamyndir. „Þetta er fimmta einkasýning- in mín, ég hef verið heldur tregur við að sýna en þó hef ég færst í aukana í ellinni. Undanfarin ár hef ég mest sýnt grafík en nú sleppi ég henni alveg. Hvað ég er að fást við? Aðallega sjávarlíf og kvenfólk. Ég er ekki bestur til að dæma um hvort eitthvað hefur breyst hjá mér, það er hlutverk gagnrýnenda. Og þó, ég er ekki frá þvf að litirnir hafi breyst. Það fylgir kvenfólkinu, það hefur heitari liti“, sagði Kjartan Guð- jónsson. í hinum endanum, þe. austur- sal eða Kjarvalssal, var Ólafur Lárusson búinn að breiða út á gólf aragrúa af litlum myndum. „Ég sýni um 240 verk, langmest teikningar en líka geysistórar ljósmyndir sem ég mála inn á.“ Ólafur segist hafa verið í eitt ár að vinna upp í þessa sýningu. „Mestu afkastaði ég á tveimur mánuðum í fyrrasumar þegar ég dvaldi í listamiðstöðinni Svea- borg í Finnlandi. Sveaborg er eyja skammt frá Helsinki og þar er þjóðtrúin mjög lifandi, fólk segir mikið af draugasögum og það er nokkuð almennt að fólk hafi séð drauga. Ég fór oft út á nóttinni til að leita að draugum en fann enga. Hins vegar frétti ég af sænskri listakonu sem var þarna á undan mér og varð að fara heim því draugarnir gáfu henni engan frið, hún var hætt að geta sofið fyrir þeim. Þessar Björg Orvar í Nýlistasafni I kvöld, föstudag kl. 20, opnar Björg Örvar sýningu á mál- verkum í Nýlistasafninu viö Vatnsstíg. Að loknu námi viö Myndlista- og handíða- skólann hélt Björg til Davis í Kaliforníu þar sem hún nam við listadeild Kaliforníuhá- skóla á árunum 1981 -83. Þetta er önnur einkasýning Bjargar hér á landi en í haust sýndi hún mónóþrykk á Galleríi Borg. Að þessu sinni ræður olían ríkjum en flest málverkin eru máluð á þessu ári. Sýning Bjargar verður opin frá kl. 16 - 22 daglega fram til 19. maí. - ÞH draugasögur höfðu mikil áhrif á mig og þeirra sér stað í mörgum teikningum sem hér eru.“ Blaðamaður setur sig í listræn- ar stellingar og þykist eygja ýmis áhrif frá nýja málverkinu í mynd- um Ólafs. „Já, það er ekkert undarlegt, ég hef orðið fyrir ýms- um áhrifum. Þó má segja að þess- ar myndir séu í rökréttu sam- hengi við það sem ég hef verið að fást við, ég var td. mikið í gjörn- ingum á sínum tíma og þessar myndir eru flestar gerðar í augna- bliksupplifunum", sagði Ólafur. Á göngunum á milli þeirra Ólafs og Kjartans voru glerlistar- menn að störfum. Glerbrot 85 nefnist sýning níu íslenskra gler- listarmanna og er þetta fyrsta ís- lenska samsýningin á verkum sem unnin eru úr gleri. Þarna eru allskonar verk, gluggar, skálar, veggmyndir, skúlptúrar og í það minnsta einn regnbogi. Þeir sem sýna eru Brynhildur Þorgeirsdóttir, Leifur Breið- fjörð, Lísbet Sveinsdóttir, Pía Rakel Sverrisdóttir, Rúrí, Sigríð- ur Ásgeirsdóttir, Sigrún Ólöf Einarsdóttir, Steinunn Þórarins- dóttir og Sören Staunsager Lar- sen sem raunar er danskur en bú- settur á Kjalarnesinu. Vafalaust má greina áhrif víða að því að listamennirnir eru menntaðir víða um lönd, bæði austan hafs og vestan. Þessi sýning á Kjarvalsstöðum tengist annarri glerlistarsýningu sem opnuð verður í Norræna hús- inu í dag. Þar gefur að líta um 200 glermuni eftir uþb. 50 glerlistar- menn frá öllum Norðurlöndun- um. Báðar eru svo þessar sýningar tengdar fimmtu norrænu glerlist- arráðstefnunni sem hófst í gær hér í Reykjavík en hún stendur til 15. maí. Svona ráðstefnur og sýn- ingar í tengslum við þær hafa áður verið haldnar á hinum Norðurlöndunum en þetta er í fyrsta sinn sem Reykjavík hýsir slíka starfsemi. Sýningarnar á Kjarvalsstöðum verða opnar frá kl. 14 - 22 daglega fram til 27. maí en sýningin í Nor- ræna húsinu er opin daglega frá kl. 14 - 19 fram til 26. maí. - ÞH Kjartan Guðjónsson: Litirnir verða heitari með tilkomu kvenfólksins. Mynd: Valdís. Rúrí var að fást eitthvað við láróttan regnboga úr gleri. Mynd: Valdís. Ólafur Lárusson: Leitaði að draugum, fann enga en setti þá samt á pappír. Mynd: Valdís. Kristján Fr. GuAmundsson opnaði í síðustu viku málverkasýningu í Innrömmun Sigurjóns, Ármúla 22 hér i borg. Þetta er önnur einkasýning Kristjáns en hann var um árabil málverkasali við Týsqötuna Sýninqin verður opm virka daga frá kl. 9 - 18 fram til 15. maí. Mynd: Valdís Föstudagur 10. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.