Þjóðviljinn - 03.07.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 03.07.1985, Blaðsíða 8
MENNING Að blása lífi í kulnaðar glœður Elías B. Halldórsson sýnir að Kjarvalsstöðum Á undanförnum árum hafa ófá- ir listmálarar reynt að gæða hina svonefndu lýrísku abstraksjón, eða Ijóðrænu huglægju, nýju lífi, eftir að stefnan beið skipbrot fyrir hartnær tveimur áratugum. Þessi iist hefur oft verið kennd við París, því á áratugnum eftir stríð stóð hún með hvað mestum blóma í þeirri borg. En þegar vindar tóku að blása frá vestri og New York stal glæpnum sem mið- stöð heimslistarinnar tók að hrikta i stoðum Ijóðrænunnar, enda var hún þá orðin svo fáguð og átakalítil að hún lognaðist hljóðlaust útaf. Restarnar dög- uðu uppi sem skraut á konung- legu dönsku postulíni, eða sem verðlaunagripir á kvenfélagsbas- ar. Vandi ljóðrænunnar var inni- haldsleysið sem sífellt gerðist ágengara og nagaði alla náttúru úr málverkinu. E.t.v. er hægt að segja svipaða sögu um sjálfa ljóðlistina, en um það skal ég ekki fullyrða. Eitt er víst að telji menn sig hafa höndlað fegurðina í eitt skipti fyrir öll, þá líður ekki á löngu þar til þeir falla kylliflatir fyrir pjattinu. Þannig fór fyrir mörgum málaranum sem hélt hann gæti að eilífu ræktað sömu ávextina. Málverk Elíasar B. Halldórs- sonar eru undantekningar sem sanna regluna. Þau eru nú til sýn- is í vestursal Kjarvalsstaða, 79 að tölu, ef með eru taldar nokkrar smámyndir. Flest eru verkin stór í sniðum og þeirra á meðal er risa- stór mynd sem nefnist „Blóðnæt- ur“. Hún er 9 metrar að lengd og 2 á hæð. Sýnir myndin að Elías er hvergi banginn við að hella sér út í tröllaukin verkefni hafi hann til þess áhuga. Það er einmitt sú hugsun að gangafeti framar; sýna aukið áræði, en láta ekki staðar numið við eitthvað sem gæti virk- að laglegt, sem gefur þessari sýn- ingu þann þunga slagkraft sem hún hefur. Listamanninum hefur m.ö.o. tekist að blása lífi í kuln- aðar glæður hinnar lýrísku ab- straksjónar og það hefur hann gert með því að nálgast hana á næsta epískan hátt. Vissulega kemur þetta ekki al- gjörlega á óvart. Hingað til hefur mátt sjá hvernig þessi borgfirski Skagfirðingur sækir í sig veðrið með hverri sýningu, hvort heldur sér,- eða samsýningu. Ég man ekki betur en hann hafi verið í hópi þeirra fáu sém áttu verulega góð verk á sýningu Listmálarafé- lagsins. Það getur verið og ætti að vera hverjum manni íhugunarefni hvers vegna Elíasi B. Hall- dórssyni hefur orðið svo vel ágen- gt í málaralistinni sem raun ber vitni. Svarsins er eflaust að leyta í afstöðu hans til listarinnar. Þar er ekkert pláss fyrir sýndarmennsku né sjálfumgleði, heldur gerir listamaðurinn sér grein fyrir því, eins og reyndar Cézanne forðum, að myndlistin er nær 100% þrot- laus vinna. Sýningu Elísar lýkur næstkom- andi helgi og ættu Reykvíkingar að sjá sóma sinn í að líta þangað inn. Það gæti hresst okkur höfu- ðborgarbúa að sjá eitthvað sem ekki er tilbúið og pakkað í plast og jafnvel fyrirfram melt svo úr því sé allur safi. HBR Nýju útvarpslögin dagskrárgerð í tiltekinni útvarps- stöð, bara einstaka þætti. Fram- hjá þessu ætti að vera auðvelt að ganga. Við getum td. búið til það dæmi að KEA fjármagni einn þátt, þann næsta kosti SÍS, svo kemur röðin að Bragakaffi osfrv. Síðasta skilyrðið fyrir veitingu útvarpsleyfis er á þann veg að gerður skuli samningur milli útvarpsréttarnefndar og viðkom- andi stöðvar þar sem kveðið er á um „hver sé handhafi útvarps- leyfis, reglur, samningstíma og leyfisgjald. Þar skal enn fremur kveða á um fjárhagslega ábyrgð, svo og eftirlit með fjárreiðum og dagskrárefni.” Auglýsinga- frelsi í 4. grein segir að stöðvunum sé heimilt að afla tekna „með aug- lýsingum, afnotagjaldi eða sér- stöku gjaldi vegna útsendingar fræðslu- og skýringarefnis. Auglýsingar skulu vera skýrt af- markaðar frá öðrum dag- skrárliðum.” Um þetta atriði urðu hvað harðastar deilur á þingi og lá við borð að stjórnin spryngi þegar Friðrik Sophusson bar fram breytingartillögu um að stöðvarnar mættu bæði afla tekna með auglýsingum og áskriftum. Niðurstaðan varð sú að allt skal frjálst en þó ber stöðvunum að afla samþykkis útvarpsréttar- nefndar við gjaldskrám. í 5. grein er að finna sérstakar reglur sem gilda um útvarp um þráð. Þar segir að leyfi til slíkra útsendinga sé háð því að sveitar- stjórnir heimili lagningu þráðar um lönd sín. Einnig segir þar að útvarp um þráð sem takmarkast við íbúðarblokk með 36 íbúðum eða færri og stofnanir eins og sjúkrahús, skóla eða vinnustað sé undanþegið áðurnefndum al- mennum skilyrðum um eflingu menningarinnar og tungunnar, óhlutdrægni osfrv. Islíkum tilvik- um þarf heldur ekki að gera nefndinni grein fyrir dagskrárefni né gera samning við nefndina. Gervihnatta- sjónvarp í 6. grein kveður á um gervi- hnattasjónvarp. Þar segir ma. að öllum sé heimil „móttaka dag- skrár sem send er um gervihnetti gagngert til dreifingar til almenn- ings.” Vilji menn svo senda þessa dagskrá áfram um þráð verða þeir að gera um það samning við stöðina sem sendi dagskrána og leita samþykkis Pósts og síma. Auglýsingar sem fylgja dag- skránni eru heimilar „brjóti þær ekki í bága við íslensk lög.” Semsé engar tóbaks- né áfengis- auglýsingar. r 7. grein er stöðvunum veitt heimild til að eiga þau tæki sem þarf til útvarpssendinga enda séu þau samþykkt af Pósti og síma. Loks er í 8. grein heimild til ráðherra um að setja nánari regl- ur um framkvæmd 3.-7. greinar og þar segir einnig að útvarps- réttarnefnd geti afturkallað leyfi til útvarps „séu reglur brotnar, enda sé um alvarleg og ítrekuð brot að ræða.” Mikið veltur á reglugerðinni Þetta er kjarni þess sem segir um „frjálst” útvarp í nýju út- varpslögunum. Eins og sjá má af þessu eru mörg ákvæði laganna ansi laus í reipunum og óskýr. Ráðherra á eftir að semja reglu- gerð samkvæmt lögunum og útvarpsréttarnefnd á eftir að setja sér nánari starfsreglur. Á þeim reglum veltur mikið hvernig til tekst um framtíð útvarps- rekstrar í landinu. í nýju útvarpslögunum eru ýmis fleiri ákvæði sem ekki verða tíunduð hér. Þau fjalla um fjár- mál Ríkisútvarpsins, dreifingu og réttindi sem lúta að henni og nán- ari ákvæði um ábyrgð á útvarps- efni sem eru mjög svipuð og í gömlu útvarpslögunum. Loks eru ákvæði til bráðabirgða og meðal þeirra er að finna fyrirmæli um að þessi lög skuli endurskoða innan þriggja ára frá því þau voru sett, þe. fyrir þinglok árið 1988. -ÞH Menningarsjóður útvarpsstöðva í 2. kaflaútvarpslagannaer að finna ákvæði um Menning- arsjóð útvarpsstöðva en hlut- verk hans á að vera að „veita framlög til eflingar innlendri dagskrárgerð, þeirri erverða má til menningarauka og fræðslu." Tekjur sjóðsins eru sérstakt gjald „sem skal vera 10% og leggjast á allar auglýsingar í út- varpi.“ Áður en til úthlutunar kemur skal þó fyrst taka úr sjóðn- um hlut Ríkisútvarpsins af rekstr- arkostnaði Sinfóníuhljómsveitar íslands. í sömu grein segir að Sin- fónían megi gera samning við Ríkisútvarpið um réttindi þess og varðandi flutning á tónlistarefni sveitarinnar gegn eðlilegu gjaldi. Ekkert segir um hugsanlega samninga Sinfóníunnar við aðrar útvarpsstöðvar. Ætli löggjafinn gangi út frá því sem gefnu að aðr- ar stöðvar hafi ekki áhuga á að flytja efni sveitarinnar? Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur mönnum, „einn tilnefnd- ur af útvarpsráði, einn sameigin- lega af öðrum útvarpsstöðvum en Ríkisútvarpinu eða af útvarps- réttarnefnd, ef þær koma sér ekki saman, og einn af menntamála- ráðherra og skal hann vera for- maður nefndarinnar." Skal nefndin skipuð til tveggja ára í senn. Þessi stjórnarskipan er merki- leg fyrir tvennt. í fyrsta lagi virð- ist vera tryggt að ríkjandi þing- meirihluti hverju sinni eigi alltaf meirihluta í stjórninni. í öðru lagi að engir skapandi listamenn, dagskrárgerðarmenn eða aðrir þeir sem koma til með að leggja stöðvunum til efni skuli eiga sæti í stjórninni. Af þessari stjórn leggur ramman flokkspólitískan fnyk. Annars hefur Eiður Guðnason vakið athygli á þeirri lögfræði- legu þversögn að í bráðabirgðaá- kvæði í Iögunum segir að þessa stjórn skuli vera búið að skipa í fyrsta sinn áður en lögin taka gildi. -ÞH 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. júlí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.