Þjóðviljinn - 19.02.1987, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 19.02.1987, Blaðsíða 22
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Anker Jörgensen, formaður danskra sósíaldemókrata. Gro Harlem Brundtland, forsætisráð- herra Noregs. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins. Kosningamál Kj arnorku vopnalaus 1987: Norðurlönd Akvördun verður tekin á næsta kjörtímabili Um margra ára skeið hefur verið í gangi lífleg umræða um kjarnorkuvopnalaus svæði. Litið erá svæðin sem lið í alls- herjarbanni við kjarnorku- vopnum. Þegarhafa verið ák veðin kjarnorkuvopnalaus svæði - í Mið- og Suður- Ameríku og á Kyrrahafi auk þess sem Suðurskautslandið hefur veriðlýst kjarnorku- vopnalaust fyrir mörgum árum. Á N/ESTA KJÖRTÍMABILI Á Norðurlöndum hefur verið fjallað um þetta mál um margra ára skeið. Má segja að þessar um- ræður séu nú komnar á það stig að senn verði tekin ákvörðun um yfirlýsingu Norðurlandanna um kjarnorkuvopnalaust svæði. Þegar umræðurnar hófust á Norðurlöndunum urðum við fljótlega vör við tilhneigingu til þess á öðrum Norðurlöndum að einangra íslendinga þannig að þeir tækju ekki þátt í umræðunni. Hver ráðstefna af annarri byggð- ist á þeim grundvelli af hálfu frænda okkar á Norðurlöndum. Á ráðstefnu sem haldin var í þinghúsinu í Kaupmannahöfn tókst okkur að fá samstöðu á Norðurlöndum um þetta grund- vallaratriði: íslendingar verða þátttakend- ur í umræðunni á undirbúnings- stigi að minnsta kosti. Það er síð- an ákvörðun íslendinga sjálfra hvort þeir verða með eða ekki. Það er ekki hlutverk annarra Norðurlanda að útiloka íslend- inga þrátt fyrir bandarísku her- stöðina hér á landi. En auðvitað er það bandaríska herstöðin sem er þyrnir í augum granna okkar, enda þótt sumir þeirra - Norð- menn aðallega - hafi lagt áherslu á að íslendingar hafi hér banda- ríska herstöð þó að Norðmenn hafi neitað að taka við slíkri her- stöð í landi sínu. ALLSHERJARFUNDUR ALLRA NORRÆNNA ÞINGFLOKKA Eftir fundinn í landsþingssaln- um í danska þinghúsinu var sett á laggirnar undirbúningsnefnd á vegum þjóðþinganna á Norður- löndum þar sem voru tveir full- trúar frá hverju Norðurland- anna. Ákveðið var að undirbúa allsherjarfund fulltrúa allra þing- flokka á Norðurlöndum um mál- ið. Sá fundur var haldinn í danska þinghúsinu snemma í desember 1985. Þessa ráðstefnu sóttu fulltrúar allra íslensku stjórnmálaflokk- anna og fulltrúar flestra flokka á Norðurlöndum annars staðar. Þar var það samdóma álit allra flokkanna á íslandi á þessari ráð- stefnu að íslendingar ættu að taka þátt í umræðum um málið til þess auðvitað að koma í veg fyrir að íslendingar yrðu einangraðir á frumstigi málsins, enda þýði það aukinn þrýsting á íslendinga til þess að taka við kjarnorkuvopn- um. Verða íslendingar einangraðir? MEIRIHLUTI Á ALÞINGI FYRIR KJARNORKUVOPNALAUSUM NORÐURLÖNDUM! í lok fundarins í Kaupmanna- höfn lýstu fulltrúar sósíaldemó- krataflokkanna á Norðurlöndum nema á íslandi því yfir að þeir vildu halda undirbúningnum áfram. Undir þessa yfirlýsingu tóku fulltrúar annarra vinstri- flokka og síðan miðflokkanna. í þeim hópi voru fulltrúar Alþýðu- bandalagsins, Kvennalistans, Framsóknarflokksins og Banda- Iags jafnaðarmanna (Kristín S. Kvaran). Þar með virtist vera hreinn meirihluti á íslenska þing- inu fyrir kjarnorkuvopnalausum Norðurlöndum og fyrir því að vinna að málinu áfram. í beinu framhaldi fundarins í Kaupmannahöfn varð nú til undirbúningsnefnd um kjarnorkuvopnalaus Norður- lönd. Þar var ákveðið að leggja til við ríkisstjórnirnar að skipuð yrði á vegum utanríkisráðherranna norræn embættismannanefnd. Þessi tillaga hefur verið að vel- kjast fyrir embættisliði utanríkisráðuneytanna allt frá því í fyrrasumar, en hún á að koma til afgreiðslu í lok næsta mánaðar. Og hver er afstaðan til hennar í þjóðþingum Norður- landanna? MINNIHLUTI Á ALÞINGI FYRIR KJARNORKUVOPNALAUSUM NORÐURLÖNDUM! Allir flokkar í finnska þinginu styðja tillöguna. Ekki er vitað um neina andstöðu í sænska þinginu. Meirihluti sósíaldemókrata, sósí- alíska þjóðarflokksins og róttæka vinstriflokksins í danska þinginu styðja tillöguna. Meirihluti í norska stórþinginu styður til- löguna. Vitað er að þjóðþing Grænlendinga og Færeyinga styðja þessa afstöðu. En meirih- lutinn á alþingi íslendinga er á móti því að skipa norræna emb- ættismannanefnd. Það er meiri- hluti Alþýðuflokksins og Sjálf- stæðisflokksins. Þar með hefur myndast nýr meirihluti á íslenska þinginu - annar en virtist vera til staðar í byrjun desember 1985. Þetta gerðist með því að þingmenn Bandalags jafnaðarmanna gengu til liðs við krata og íhald. Þetta kom fram í umræðum um tillögu á alþingi í vikunni. Álþýðuflokkurinn mun að vísu Úr umræðum á alþingi 28. janúar 28. janúar kom til umræðu á alþingi tillaga Guðrúnar Agnars- dóttur, Haralds Ólafssonar og Svavars Gestssonar um skipan norrænnar embættismannanefn- dar til að fjalla um kjamorku- vopnalaus svæði á Norður- löndum. Tillagan - sem nú liggur fyrir utanríkismálanefnd alþingis - er á þessa leið: „Um leið og alþingi áréttar þá stefnu íslenskra stjómvalda að kjarnorkuvopn skuli aldrei leyfð í íslenskri lögsögu felur það utan- ríkisráðherra að beita sér fyrir því á fundi utanríkisráðherra Norð- urlanda að sett verði á laggirnar embættismannanefnd á vegum Norðurlanda sem kanni mögu- leika á og geri tillögur um kjarn- orkuvopnalaust svæði á Norður- löndum.“ UTANRÍKISRÁÐHERRA Matthías Á. Mathiesen lagðist ekki beinlínis gegn skipun nefnd- arinnar, en reyndi að drepa um- ræðunni á dreif með setningu eins og þessari: „Flestir hljóta að vera sam- mála um það að verr væri af stað farið en heima setið ef hafsvæð- unum umhverfis Norðurlönd, svo og kjarnorkuvopnabúrum í nágrenni þeirra, svo sem Kola- skaga, yrði sleppt úr allri umfjöll- un um þetta efni á vettvangi nor- ræns samstarfs." Svar við röksemd ráðherrans: Auðvitað hefur aldrei staðið til að sleppa Kolaskaganum „úr allri umfjöllun" um málið. Það mál hefur sérstaklega verið rætt í þingmannanefnd norrænna þing- manna að um þessi mál verði fjallað bæði með viðræðum við stórveldin og hernaðarbanda- lögin í austri og vestri. Jón Baldvin: „... við höfum efasemdir um að það séu góð vinnubrögð eða skynsamleg að þessi fimm ríki setji niður sameiginlega embætti- smannanefnd. Ástæðurnar eru ýmsar og þessar helstar: 1. Þetta er auðvitað hápólitískt mál... Þar af leiðir að það er ekki á færi embættismannanefndar að fjalla um málið fyrr en búið er að taka veigamiklar pólitískar á- kvarðanir. 2. Öryggishagsmunum þessara fimm ríkja er ákaflega misjafn- lega fyrir komið.“ Svör: Nauðsynlegt er að full- trúar ríkisstjórna Norðurlanda starfi að málinu strax samhliða starfi þingmannanefndarinnar sem er undir forystu Ankers Jörgensens. Þó að öryggismálum ríkjanna fimm sé misjafnlega fyrir komið er ekki víst að svo hljóti að verða um aldur og ævi. Ennfremur er ljóst að sem Norðurlönd eiga rík- in sameiginlega hagsmuni ekki aðeins inn á við heldur einnig útá- við.“ Svavar Gestsson: „Það talaði áðan einn af leið- togum jafnaðarmanna á Norður- löndum. Hann er sá eini af nor- rænu jafnaðarmannaleiðtogun- um sem fylgir stefnu hinna hörðu hauka í Washington í þessu máli. Ég hef undir höndum bréf frá Anker Jörgensen, formanni jafn- aðarmannaflokksins í Dan- mörku, frá Ingvar Carlsson, for- sætisráðherra Svíþjóðar, for- manni jafnaðarmannaflokksins þar í landi og Gro Harlem 22 SfÐA - ÞJÓÐViLJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.