Þjóðviljinn - 18.04.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 18.04.1991, Blaðsíða 15
Þrjár kvikmyndahátíðir Vattstungna hefðin Kvikmyndaunnendur eru í sjöunda himnasal um þessar mundir, því úrval danskra, sviss- neskra og franskra kvikmynda hefur streymt til landsins undan- farið. Vegna mikillar aðsóknar hefur danska kvikmyndavikan í Háskólabíói verið framlengd, og auka þess má geta þess að Laug- arásbíó sýnir einnig um þessar myndir nýja, danska verðlauna- mynd, Dansað við Regitze. Svissneska kvikmyndavikan er á vegum Kvikmyndaklúbbs Is- lands í Regnboganum og þar renna sex fúllræmur (kvikmyndir í fúllri lengd) milli ljóss og linsu, auk þess sem jafnmargar stuttræmur eru sýndar í sjónbæti á undan. Á laugardaginn hefjast svo í Regnboganum franskir kvik- myndadagar 1991, Joumees du Ci- nema Francais 1991, á vegum Alli- ance Francaise og Unifrance Films Intemational. Myndimar em fjórar, þrjár ffá 1990 og ein ffá 1989. Auk þess sýnir svo Regnboginn þrjár franskar myndir sem bíóið hefúr sýningarrétt á, „Litla þjófrnn" og „Skúrka“, sem þar hafa notið mik- illa og verðskuldaðra vinsælda, en skrautblómið er þó sú umtalaða ^T^enning Gerard Depardieu og Anne Broc- het í „Cyrano de Bergerac". „Cyrano de Bergerac" um nefstóra og uppstökka greifann sem Gerard Depardieu leikur. Nú stendur yfir á Kjarvals- stöðum sýningin „Contempor- ary Quilts“, sem farið hefur um Evrópulönd og Sovétríkin, á bandarískum, vattstungnum teppum, en gerð þeirra er sterk og lifandi hefð í Bandaríkjun- um. Hefð vattstungnu teppanna (quilts) er rakin til landnematím- ans og teppagerðin er ríkur þáttur í alþýðumenningu, ekki síst list- hefð kvenna. Á sjöunda áratugn- um átti sér stað mikil endurvakn- ing í bandarískri teppagerð. Þótt enn sé stuðst við sögulegar fyrir- myndir hafa teppin einnig tekið á sig ný form og hlutverk og nýtt forsendur listiðnarinnar og sköp- unargleði myndlistarinnar. Teppin á sýningunni em flest ffá síðasta áratug og endurspegla nýsköpun- ina. Það em Menningarmálanefnd Reykjavíkur og Menningarstofn- im Bandaríkjanna sem standa fyr- ir sýningunni í samvinnu við Há- skólann í Boston. Sýningin er op- in daglega kl. 11-18 til 21. apríl. FLÓAMARKABTJR ÞíTÓÐYILTANS Ýmisiegt Til sölu v/búferlaflutninga Technics segulband M 240 X á kr 15.000.-, Marantz magnari PM 510 á kr. 10.000.-, 2 stk. JBL há- talarar L 40 á kr 20.000.- og þriggja ára BO sjónvarp LX 2500 á kr. 95.000.- (kostar nýtt 170.000.-kr.). Einnig þrjár rúm- dýnurá 1.000.- kr. stykkið. Uppl. í síma 32228. Óska eftir sófa sem hægt er að nýta sem rúm. Einnig vantar mig lítinn isskáp, ódýrt eða gefins. Uppl. í síma 23649 á kvöldin og 27022 á dag- inn. Nanna. Skóli óskar eftir notuðum árabát. Uppl. í síma 98- 74884. Gamalt og gott pönk Vantar eldri plötur með Tappa tí- karrass, Kuklinu ofl. Sími 672463, Ingi.e. kl. 18. Garðsláttuvél ofl Til sölu garðsláttuvél og ýmislegt fleira úr gömlu innbúi. Sími 689651, Anna. Hjálp Mig vantar sáriega bolla inn í settið mitt sem er frá Bing og Gröndal og heitir „Saxneska blórnið". Er heima í síma 671190 e. kl. 18. Herbergi Herbergi óskast leigt á rólegum stað í miðbænum til eins mánað- ar. Aðgangur aö síma æskilegur. Uppl. gefnar í síma 671353 e. kl. 22. fbúðaskipti Rvk-Uppsala (slensk fjölskylda búsett í Uppsöl- um í Svíþjóð óskar eftir að hafa íbúðaskipti við fjölskyldu í Reykjavík eða nágrenni frá miðj- um maí til júníloka eða hluta þess tíma. Bílaskipti einnig æskileg. Gerður Steinþórsdóttir, Frödings- gatan 10, 25421 Uppsala, simi 9046-18-238127. fbúð óskast Þriggja til fjögurra herbergja íbúð óskast til leigu. Staðsetning helst í Vesturbergi eða Hólahverfi. Uppl. í síma 72490. fbúö Óska eftir að taka á leigu litla íbúð. Uppl. í síma 678689. íbúð óskast Óska eftir tveggja herbergja íbúð til leigu frá og með 1. júní. Uppl. í síma 16465. Inga. fbúð í Vesturbæ Óska eftir þriggja herbergja íbúð í vesturbæ Reykjavíkur frá 1. ág- úst n.k. Skilvísum greiðslum heit- ið. Uppl. fsíma 40591. Hjónarúm Óska eftir antik-hjónarúmi með eða án dýnu. Sfmi 674506. Vegna flutnings Til sölu bambusrúm, br. 90 sm., hvítt hjónarúm, br. 120 sm., 2 bambusborð með gleri, bast- hengiróla, útskorinn ruggustóll, barnarúm (stál og tekk) og ferða- nuddbekkur. Sími 72529 e. kl. 17. Helmilis- og raftæki Eldavél Þriggja hellu Grepa eldavél til sölu fyrir litið fé. Ein hella frekar hæg, annars i góðu lagi. Sími 35899. Vantar fyrir tölvu Vantar diskadrif og tengi fyrir MSX tölvu. Sími 34417. Lítill ísskápur Óska eftir litlum ísskáp gefins eða mjög ódýrum. Sími 36204. Commador 64 Til sölu Commador 64 leikjatölva. Innifalið skjár, lyklaborð, segul- band, fjarstýringar og 40 leikir. Verð kr. 20.000. Uppl. gefur Jök- ull í síma 14304. Hjói Reiðhjól til sölu Til sölu 16“ BMX reiðhiól á breið- um dekkjum. Verð kr. 6000. Uppl. í síma 675550 á kvöldin. Dýrahaid Töpuð læða Grá og svartbröndótt læða tapað- ist í Hlíðunum. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 24456. Kettlingur Kassavanur, 12 vikna kettlingur fæst gefins. Sími 22613. Bíiar og varahiutir Skoda Til sölu Skoda 120 árgerð 1977. Ekinn aðeins 40 þús. km. Upplýs- ingar í síma 83018, laugardag og sunnudag. Citroen GSA Til sölu er fólksbíll, Citroen GSA, C-MATIC, árgerð 1982, ekinn 90.000 km. Nýskoðaður og vand- aður bíll. Verð aðeins kr. 150.000 Sími 28412 e. kl. 18. Þjönusta Garðeigendur Nú er rétti tíminn til að klippa tré og runna. Vönduö vinna. Guð- laugur Þór Ásgeirsson, sími 28006. Málningarþjónusta Við erum tveir málaranemar og tökum að okkur alhliða málning- arvinnu. Uppl. í síma 75543. Viðgerðir Tek að mér smáviðgerðir á hús- munum. Hef rennibekk. Uppl. í síma 32941. Garðeigendur Bjóðum húsdýraáburð, trjáklipp- ingar, hellulagnir, garðúðun og fleira. Uppl. í símum 13322 (Sig- urjón) og 12203 (Sverrir) Atvinna óskast Atvinna óskast Við erum 2 hressar og duglegar 17 ára stelpur sem bráðvantar sumarvinnu. Kvöld og helgar- vinna kemur einnig til greina. Getum hafið störf í maí. Simi 611786. Sumarvinna óskast Tvær norskar stelpur, 17 ára, óska eftir vinnu í 4-5 vikur frá júnílokum. Til dæmis í landbún- aði, garðyrkju, barnagæslu eða heilsugæslu, en allt kemurtil greina. Svarið gjarna á íslensku. Mona Langerak og Sunniva Landmark N 4684 Bygland, Noregur. Leöurfrakki Gamall lítið notaður kvenmanns leðurfrakki til sölu. Uppl. f síma 17087. Sumarbústaðaeigendur Til sölu gaseldavéT og 12 volta vindrafstöð fyrir sumarbústað ásamt rafgeymi, Ijósum og raf- lagnaefni. Allir hlutir nýyfirfarnir. Uppl. í síma 42906 eftir kl. 20.00. Húsnæöi Húsnæði Óska eftir stúlku sem meöleigj- anda i þriggja herb. íbúð í Reykjavík sem fyrst. Þarf að vera reglusöm. Uppl. I síma 98-21159. íbúð óskast Ungt par með bam óska eftir að taka á leigu 3 herb. íbúð frá 1. sept. í Reykjavík eða Kópavogi. Góð fyrirframgreiðsla og reglu- semi heitið. Sími 96-23706 Bílskúr óskast Óska eftir að taka á leigu bílskúr í tvær vikur. Helst i vesturbæ. Sími 17363 e. kl. 19. íbúð óskast Bráðvantar einstaklingsíbúð til leigu frá 1.,maí. Má þarfnast lag- færingar. Öruggum greiðslum heitið. Sími 679317. Til leigu Ibúð til leigu í miðbæ Lundúna í júli og ágúst. Um er að ræða 3 herb. ibúð á horninu hjá Kings Cross. Leigist með húsgögnum og öllum búnaði. Leiga 725 pund á mánuöi. Uppl. í síma 21428 á kvöldin. Húsgögn Rúmbekkur Unglingabekkur með rúmfata- geymslu til sölu. Selst ódýrt. Sími 12747. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gísli Ólafsson bakarameistari Dalbraut 21, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 19. apríl kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Kristín Einarsdóttir, Anna Gísladóttir, Einar Ó. Gíslason, Friðgerður Samúelsdóttir, Erlingur Gíslason, Brynja Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Flokkspólitík og fagrar listir Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi eystra heldur stórfund í Alþýðuhúsinu á Akureyri í kvöld kl. 2030 til 22. Sjö efstu menn framboðslistans flytja ávörp, lesa upp, syngja og spila. Ungir hljóðfæraleikarar flytja tónlist af ýmsu tagi. Fundarstjóri: Sigríður Stefánsdóttir bæjarfulltrúi. Steingrímur Stefanía Sigriður Síða 15 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.