Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1998, Blaðsíða 10
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 XlV 10 yiðtdl Helgarblað DV í heimsókn hjá íslenskum knattspyrnuköppum í Lilleström í Noregi: Betra á bekknum en heima DV, Lilleström: Er betra fyrir íslenskan knatt- spymumann að sitja á bekknum í útlöndum en að spila heima? Betra á bekknum. Það er einróma álit Rúnars Kristinssonar og Heiðars Helgusonar, knattspymukappa hjá Liileström í Noregi. Og þeir geta svo sem trútt um talað því hvomg- ur hefur mátt verma bekkinn í sumar. „Þetta er einstakt tækifæri til að læra og þroskast sem knattspymu- maður og til að kynnast nýjum löndum og læra tungumál,“ segir Heiðar sem varð liðsmaður Lil- leström 1. janúar i ár og hefur vak- ið verðskuldaða athygli í Noregi, aðeins tvítugur og kom beint úr annarri deildinni á íslandi. „Fyrir Heiðar hefur þetta verið alveg kjörin leið. Hann hefur lært mikið héma og ungir og efnilegir strákar eiga miklu meiri mögu- leika á að komast áfram ef þeir leika í Noregi en á íslandi. Stóm liðin i Evrópu fylgjast einfaldlega betur með boltanum hér en á ís- landi,” segir Rúnar sem er eldri og reyndari og kom til Lilleström frá Svíþjóð I fyrra. Tækifæri til að sjá heiminn Þetta em rökin fyrir því að freista gæfunnar á völlunum í út- löndum og hætta þá á að verða bara að sitja á bekknum hjá ein- hverju liði í Noregi. Á þessu verða menn betri knattspyrnumenn; auka möguleikana á að vekja at- hygli stóm og ríku liðanna í Evr- ópu og fá að sjá heiminn í kaup- bæti. Já, og ekki má gleyma laimun- um. Þau em auðvitað orsök þess að ungir menn fara til útlanda og gerast atvinnumenn í íþróttum. Rúnar hristir bara höfuðið þegar ég spyr hvað hann hafi í laun. Laun em einkamál og Rúnar segir að hann þurfi ekki að kvarta. Heið- ar kvartar ekki heldur vegna laun- anna. „Við höfum nóg fyrir okkur,” er svarið og það er staðreynd að knattspymumenn í Noregi fá laun eins og þeir væm í góðum stöðum á íslenskum vinnumarkaði. Ailt að hálf milljón islenskra króna á mánuði. Það er taxtinn. Smábæjarstemning Lilleström er friðsæll smábær rétt austan við Ósló og DV hefur mælt sér mót við alla íslensku „knattspymunýlenduna” í bænum á litlu kaffihúsi í miðbænum. Það era þau Rúnar og Ema María Jónsdóttir, kona hans, og Heiðar og Eik Gísladóttir, sam- býliskona hans. Ema er að læra innanhússhönnun en Eik vinnur í líkamsrækt eins og hún gerði heima. Minnstur í hópnum er svo Rúnar Alex Rúnarsson, þriggja ára leikskólapjakkur. Lilleström hefur álíka stöðu gagnvart Ósló eins og Mosfellsbær gagnvart Reykjavík - úthverfl og svefhbær sem samt vill standa á eigin fótum og vera bær með bæj- um. Frami í íþróttum er ein af leið- um bæjarbúa til að undirstrika sjálfstæði sitt. Þannig getrn: Lilleström státað af knattspymu- liði sem á fast sæti í norsku úrvals- deildinni meðan stóribróðir í Ósló á ekkert lið í fremstu röð. Þetta þykir íbúum Lilleström gott og þeir Rúnar og Heiðar geta staðfest að stuðningur bæjarbúa við liðið er ósvikinn og afdráttar- laus. Liðið er stolt bæjarbúa. Stökkpallur út í heim Við höldum áfram að tala um at- vinnumennskuna í Noregi. Þeir Rúnar og Heiðar hafa ekki orðið fyrir vonbrigðum; félagið er traust og gerir vel við sitt fólk og þeir em báðir fastamenn í liðinu. Stað- reyndin ,er engu að síður sú að bara 6 /af 12 íslenskum knatt- spymumönnum í Noregi hafa spil- að reglulega í sumar. Hinir em á varamannabekknum og sumir ekki einu sinni það. Og af nær 60 íslenskum atvinnumönnum í út- löndum bíða flestir eftir að komast að hjá sinum liðrnn. Rúnar Kristinsson og Heiðar Helguson ásamt konum sínum sem dvelja með þeim í Lilleström. Erna María Jónsdótt- ir, kona Rúnars, er að læra innanhússhönnun og Eik Gísladóttir, unnusta Heiðars, vinnur í líkamsrækt. DV-myndir GK „Það er auðvitað niðurdrepandi að fá ekki að spila en þetta er áhættan sem menn taka. Aðalat- riðið er að trúa á sjálfan sig og að mínu viti er sjálfsagt mál að taka þessa áhættu og reyna að komast áfram,” segir Rúnar. Auðtrúa þjálfarar Rúnar gagnrýnir engu að síður umboðsmennina sem hafa atvinnu af að fmna efnilega knattspymu- menn og koma þeim á framfæri í útlöndum. „Umboðsmennimir em oft mikl- ir sölumenn og þeim tekst stund- um að sannfæraþjáifarana um að þessi eða hinn strákurinn sé einmitt maðurinn sem vanti í lið- ið. Svo kemur á daginn að svo er ekki og það eina sem bíður er seta á bekknum. Þjáifaramir em líka stundum of auötrúa og... kaupa menn óséð,” held- V' ^ iir Rúnar áfram. Mörg lið í Noregi eiga líka í vanda vegna þess að þau em búin að kaupa of marga leikmenn. í nokkrum tilvikum era miili 20 og 30 leikmenn á launum og Lil- leström verður nú líka að selja leikmenn vegna þess að útgjöldin em of mikil. Hvorki Rúnar né Heiðar hafa þó heyrt að þeir séu á sölulistanum. Enskir njósnarar Heiúar Helguson Kennir sig við móður sína „vegna þess að hún á það skilið eftir allan stuðninginn í gegnum árin". Aldur: 20 ara. Maki: Eik Gísladóttir Fyrsta fþróttafélag: Ungmennafélag Svarfdæla, UMFS. Ferill: Kom i meistaraflokk UMFS 15 ára og lék í þriðju deild; Þróttur í Reykjavík frá 1995 til ársloka 1997; Lilleström frá 1998. Rúnar og Heiðar ná vel saman hjá Lilleström og hér bregður KR-ingurinn á leik. DV-mynd GK Draumurinn er engu að síður að komast áfram og fara til stærra liðs en Lilleström. Og þá eru mögu- leikamir miklu meiri í Noregi en á íslandi. Enskir þjálfarar em tíðir gestir á leikjum í Noregi og eftir góða frammistöðu norska lands- liðsins á heimsmeistaramótinu í Frakklandi hefur áhugi Englend- inganna vaxið enn. „Leikstíllinn hér í Noregi veldur því að Englendingamir hafa áhuga á að fá leikmenn héðan. Þeir em að leita að ódýrum mönnum sem era vanir að spila sama boltann og í Englandi,” segir Heiðar og nú er það svo að Norðmenn em fjöl- mennastir af útlendingum I ensku knattspymunni. Fyrir skömmu vom t.d. bæði Ge- orge Graham og David Basset með- al áhorfenda á leik Lilleström og Rosenborg og það er ekkert leynd- armál að þeir vom á höttunum eft- ir nýjum leikmönnum. Og þeir sáu bæði Rúnar og Heiðar sem báðir líta á atvinnumennsk- una í Noregi sem eins konar stökkpall lengra út í heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.