Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2000, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 DV €_______ Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára_________________________________ Vilhelmína Sigurjónsdóttir, Gagnvegi, Hjúkrh. Eir, Reykjavlk. *75_ára________________________________ Jón Þórarinn Sveinsson, Smáraflöt 8, Garöabæ. Kristrún Bjarnadóttir, Skúlagötu 20, Reykjavlk. Vaidemar Nielsen, Sogavegi 54, Reykjavík. 70,ára_________________________________ Helga Þorgrímsdóttir, Karfavogi 37, Reykjavík. Sigurdís Alda Jónsdóttir, Stóragerði 28, Reykjavlk. Sigurður K. Benediktsson, Sólheimum 23, Reykjavík. 60 ára_________________________________ Hannes Lárusson, Óspaksstööum, Staðarhr., V-Hún. Haukur Aóalsteinsson, Krosshömrum 8, Reykjavík. Jón Reynir Einarsson, Efri-Steinsmýri, Kirkjubæjarklaustri. Sveinbjörn Hallsson, Hallkelsstaöahllö, Borgarnesi. 50 ára_________________________________ Björk Bjarkadóttir, Brekkutanga 31, Mosfellsbæ. Brynja Hannesdóttir, Grænahrauni 2, Höfn. Sesselja Jóhannsdóttir, Suðurgötu 23a, Keflavík. Siguröur Jónsson, Skipholti 8, Ólafsvík. 40 ára_________________________________ Ásta Björg Tómasdóttir, Reynihvammi 24, Kópavogi. Einar Guömundsson, Unufelli 20, Reykjavlk. Hermann Eyjólfsson, Brautarlandi 16, Reykjavík. Hjalti Egilsson, Seljavöllum, Höfn. Jónas Magnús Andrésson, Aðaltjörn 7, Selfossi. Kristinn Örn Torfason, Iðufelli 6, Reykjavík. Magnús Ingi Óskarsson, _ Blómvangi 20, Hafnarfirði. ' Marteinn Steinar Jónsson, Kópalind 8, Kópavogi. Sigfríöur Hallgrímsdóttir, Skipagötu 15, ísafirði. Sigurður Stefánsson, Nesvegi 117, Seltjarnarnesi. Sóldís Stefánsdóttir, Spítalavegi 15, Akureyri. Þorsteinn Sæberg Sigurösson, Álfaheiði 15, Kópavogi. s IJrval - 960 síður á ári - íróðleikur og skemmtun sem lifir mánuðum og árumsaman 8 Smáauglýsinga deild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Skilafrestur smáauglýsinga er fyrir kl. 22 kvölaiö fyrir birtingu. Attl. Smáauglýsing í Helgarblaö DV verður þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. o\\t mllll hlmins^ QJ'c % Smáauglýsingar 550 5000 mnmmsL Flosi Ólafsson leikari, rithöfundur og hrossabóndi Rosi Olafsson, leikari, leikstjóri, rithöfundur og hrossabóndi. Þaö væri hægt aö segja margt skemmtilegt um Flosa. En þaö er óþarfi. Hann er svo sjálfsagöur partur mannlífsins aö hann segir sig sjálfur. Flosi Gunnlaugur Ólafsson, leik- ari, rithöfundur og hrossabóndi að Bergi, Reykholtsdal, leikstýrir Galdra-Lofti sem frumsýndur verð- ur hjá Ungmennafélagi Reykdæla í Logalandi á morgun. Auk þess er Flosi pistlahöfundur helgarblaðs DV. Starfsferill Flosi fæddist í Reykjavík 27.10. 1929 og ólst upp í og við Kvosina. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1953, prófi í leiklist frá Leiklistar- skóla Þjóðleikhússins 1958, og stundaði nám í leikstjórn og þátta- gerð hjá BBC í Lundúnum 1960-62. Flosi var leikari og leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu frá 1958, stofnaði Nýtt leikhús 1959 og starfrækti það, var fastráðinn leikari hjá Þjóðleik- húsinu 1960-98 en hlutverk hans þar eru orðin talsvert á annað hundrað. Flosi samdi, stjórnaði og leik- stýrði fjölda þátta í revíuformi fyrir útvarp og síðar sjónvarp, m.a. fimm áramótaskaupum og fjölmörgum öðrum þáttum 1962-70. Þá hefur hann leikið í fjölda kvikmynda. Flosi flutti að Bergi í Reykholts- dal 1989 og hefur búið þar síöan. Bækur eftir Flosa: Slett úr klauf- unum, 1973; Hneggjað á bókfell, 1974; Leikið lausum hala, 1974, og í Kvosinni, 1982. Leikrit eftir Flosa: Bakkabræður, bamaleikrit í útvarpi 1957; Prívat- auga, sakamálaleikrit í útvarpi, ílutt 1958; Þorskhallarundrin, gam- anópera í útvarpi 1959; Ringulreið, gamanóperetta í Þjóðleikhúsinu 1957, sýnd í sjónvarpi 1976; Örlaga- hárið, í sjónvarpi 1967; Slúðrið, hjá Leiklistarskóla ríkisins 1978. Hann skrifaði vikulega pistla í helgarblað Þjóðviljans, í Helgarpóst- inn og Alþýðublaðið, í Pressuna, í Skessuhorn og nú í DV og strik.is. Flosi þýddi skáldsöguna Bjarg- vætturinn í grasinu eftir J.D. Salin- ger, 1975. Fyrir Þjóðleikhúsið hefur hann þýtt söngleikina Prinsessan á bauninni; Gæjar og píur; Chicago; Oliver Twist, og Söngvaseið, og leik- ritin Hallæristenór; Verið ekki nakin á vappi, og Himneskt er að lifa. Þá þýddi hann Sardasfurstaynj- una og Kátu ekkjuna fyrir íslensku óperuna og auk þess talsvert af sönglagatextum og líbrettóum og einnig fjölda útvarpsleikrita. Flosi var formaður Leikarafélags Þjóðleikhússins og sat í stjórn Fé- lags íslenskra leikara. Fjölskylda Kona Flosa er Lilja Margeirsdótt- ir, f. 5.5. 1936, fulltrúi og húsfreyja. Hún er dóttir Margeirs Sigurjóns- sonar, f. 22.11. 1907, d. 1.11.1988, for- stjóra í Reykjavík, og k.h., Kristínar Laufeyjar Ingólfsdóttur, f. 2.7. 1910, húsfreyju. Sonur Flosa og Lilju er Ólafur Flosason, f. 13.10. 1956, hljóðfæra- leikari og tónlistarkennari, kvænt- ur Elisabetu Halldórsdóttur kenn- ara en börn þeirra Anna og Flosi. Dóttir Flosa og Veru Fannberg Kristjánsdóttur er Anna, f. 21.12. 1951, handmenntakennari, gift Bjarna Hjartarsyni landslagsarki- tekt og eru börn þeirra Flosi, Hjört- ur, Ólöf Halla og Ævar. Hálfsystkini Flosa, samfeðra: Guðmundur, f. 1933, fyrrv. sóknar- prestur i Neskirkju; Sverrir Ólafs- son, f. 1938, fyrrv. framkvæmda- stjóri; Sigríður J. Ólafsdóttir, f. 1943, nú í Ástralíu. Hálfsystkini Flosa, sammæðra: Þuríður Friðjónsdóttir Stephensen, f. 1946, leikskólakennari; Ólafur Stephensen, kennari i Svíþjóð; Guð- laug Stephensen, hjúkrunarfræðing- ur í Danmörku. Foreldrar Flosa: Ólafur Jónsson, f. 31.1. 1905, d. 10.1. 1989, verslunar- maður í Reykjavík, og Anna Odds- dóttir, síðar Stephensen, f. 20.10. 1908, d. 19.6. 1980, kaupkona i Reykjavík. Ætt Kjörforeldrar Ólafs voru Flosi for- stjóri í Reykjavík, og Jónína verka- kvennaforingja. Systir Ólafs var Margrét, móðir Jónasar Gislasonar prófessors. Faðir Ólafs var Jón tré- smíðameistari, bróðir Jónínu. Jón var sonur Jónatans, b. í Miðengi, bróður Guðrúnar, langömmu Sveins R. Eyjólfssonar, stjórnarfor- manns Frjálsrar fjölmiðlunar, fóður Eyjólfs, framkvæmdastjóra þar. Jónatan var sonur Gísla, b. á Norð- ur-Reykjum Helgasonar, og Arndís- ar Jónsdóttir. Móðir Arndísar var Katrín Pétursdóttur, systir Sigurð- ar, föður Bjama riddara. Móðursystir Flosa var Ingibjörg, móðir Þórðar Harðarsonar prófess- ors. Anna var dóttir Odds, skósmiðs Bjamasonar. Móðir Odds var Ingi- björg Oddsdóttir, b. á Brennistöðum Bjamasonar, b. í Vatnshorni Her- mannssonar. Móðir Odds var Ingi- björg Jónsdóttir. Móðir Ingibjargar var Guðrún Sigurðardóttur, systir Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Ingi- bjargar var Helga Böðvarsdóttir, b. í Skáney Sigurðssonar, af Deild- artunguætt. Móðir Önnu var Guðlaug Krist- jánsdóttir, trésmiðs á Eyrarbakka Teissonar, b. í Vatnahjáleigu Jóns- sonar, b. á Hamri, bróður Guðríðar, langömmu Eyjólfs, langafa Guð- laugs Tryggva. Jón var sonur Árna, pr. í Steinsholti, bróður Ögmundar, afa Tómasar Fjölnismanns. Bróðir Árna var Böðvar, afi Þuríðar, langömmu Vigdísar Finnbogadótt- ur, en systir Þuríðar var Sigríður, langamma Önnu, móður Matthíasar Johannessen. Árni var sonur Högna prestafóður Sigurðssonar. Helga Björnsdóttir fyrrv. húsfreyja á Brunnavöllum Helga Björnsdóttir, fyrrv. hús- freyja að Brunnavöllum í Suður- sveit, er níræð í dag. Starfsferill Helga fæddist að Brunnum og hef- ur átt þar heima og á Brunnavöll- um, alla tíð. Hún lauk bamaskóla- námi í farskóla og prófi frá Ljós- mæðraskóla íslands 1929. Helga stundaði ljósmóðurstörf frá 1929-70 en síðast tók hún á móti bami 1974. Auk þess sinnti hún oft sjúklingum í heimahúsum. Helga var heiðmð af sveitungum sínum á fimmtugsafmælinu og aftur er hún varð sjötug. Hún er heilsu- góð og mjög ern og sinnir enn heim- ilisstörfum af fullum krafti. Fjölskylda Helga giftist 14.6. 1943 Sigfúsi Jónssyni, f. 9.1. 1904, d. 19.1. 1970, bónda. Foreldrar hans voru Jón Sig- fússon, bóndi í Snjóholti, og Þor- gerður Einarsdóttir húsfreyja. Böm Helgu og Sigfúsar eru Bjöm, f. 2.10. 1943, vörubílstjóri á Brunna- völlum en sonur Bjöms og Sigríðar Magnúsdóttur frá Svínafelli í Öræf- um er Ásgeir, búsettur á Höfn, kvæntur Kristbjörgu Eiríksdóttur og eru synir þeirra Sævar Ingi og Tómas Leó; Sigríður Jó- hanna, f. 30.1. 1945, deildarstjóri við tannlæknadeild HÍ; Jón, f. 22.5.1946, bóndi á Brunnavöllum en sambýlis- kona hans er Linda María Fredrik- sen og eru böm þeirra Helga, búsett í Noregi, í sambúð með Borgari Baldurssyni, Sigfús, og Emil en dóttir Lindu er Inga Helga Baldurs dóttir, í sambúð með Róbert Elvars syni og eru böm þeirra Kristján Sól vin og Linda Margrét. Systkini Helgu: Björg Björnsdótt ir, f. 13.11. 1896, d. 18.1. 1983; Sigríð ur Bjömsdóttir, f. 1.8. 1898, d. 25.8. 1946, húsfreyja í Hestgerði; Jóhann Klemens Bjömsson, f. 29.8. 1900, d 4.1. 1996, bóndi á Brunnum; Jó hanna Dagmar Bjömsdóttir, f. 25.11 1906, saumakona i Reykjavik. Foreldrar Helgu voru Björn Klemensson, f. 27.11. 1869, d. 19.11. 1911, oddviti og bóndi að Bmnnum, og k.h., Jóhanna Jóhannsdóttir, f. 23.11. 1863, d. 14.4.1955, húsfreyja að Brunnum. Magnús Kolbeinsson fyrrv. vörubílstjóri í Keflavík Magnús Kolbeinsson, Eyjavöllum 13, Keflavík, varð fimmtugur í gær. Starfsferill Magnús fæddist á Auðnum á Vatnsleysuströnd. Hann vann við landbúnað, jarðvinnu, vörubílakst- ur og útgerð fram yfir tvítugt og fiskvinnslu og beitningu hjá Vogum hf. Þá ók hann vörubíl hjá Sjöstjörn- unni í Keflavík 1971 og 1972 og ók hópferðabílum fyrir Steindór Sig- urðsson, 1973 og 1978. Magnús ók eigin vörubíl á Vöru- bílstöð Keílavíkur 1973-93 en hefur síðan verið símavaktmaður, fyrst hjá Húsun sf. og síðar Keflavíkur- verktökum hf., og jafnframt sinnt viðhaldsverkefnum. Magnús var ritari stjómar VBK 1979-93, fulltrúi VBK í stjóm Flutn- ingafélagsins Suðurleið sf. og ritari 1988-93, hefur félagi í Karlakór Keflavíkur frá 1991 og var ritari í stjóm kórsins í eitt ár. Fjölskylda Kona Magnúsar frá 1972 var Hall- fríður Maggý Júlíusdóttir, f. 4.10. 1947, d. 27.9. 1977. Dóttir Magnúsar og Hallfríðar er Gréta, f. 27.8. 1974 en mað- ur hennar er Lárus Fjeld- sted og börn þeirra Hjörtur Steinn, f. 9.5. 1991, Lárus Hafsteinn, f. 26.7. 1992, Kristbjörg Maggý, f. 25.4. 1994, Róbert Magnús, f. 27.11. 1996. Áður átti Hallfríður börnin Guðfinnu Björg, Ragnar Kristin, Júlíus Sig- mar, og Jóhönnu Kristínu Jóhanns- börn Berthelsen. Kona Magnúsar frá 1979 var Mar- grét Haraldsdóttir, f. 28.2. 1944, d. 31.12. 1996. Dóttir Magnúsar og Margrétar er Magnea Brynja, f. 12.9.1980, en áður átti Margrét tvær dætur, Kristínu Viktoríu Sigurðardóttur Rose og Kolbrúnu Hildi Sigurðardóttur. Systkini Magnúsar: Árný, f. 8.9. 1930; Rósa, f. 3.4. 1932, d. 11.3. 1989; Engilbert, f. 7.9. 1938, d. 11.2. 1973. Foreldrar Magnúsar voru Kol- beinn Guðmundsson, f. 2.6. 1906, d. 8.12. 1989, útvegsbóndi á Auðnum, og Kapitola Sigurjónsdóttir, f. 21.10. 1909, d. 16.2. 1984, húsfreyja. Magnús tekur á móti gestum í Fé- lagsh. Karlakórs Keflavíkur, Vest- urbraut 17, föstud. 14.4. frá kl. 20.00. Merkir Islendingar Erlingur Davíðsson, ritstjóri Dags og rit- höfundur á Akureyri, fæddist á Há- mundarstöðum á Árskógsströnd þennan dag árið 1912. Hann var sonur Davíðs Sigurðssonar, hreppstjóra þar, og k.h., Maríu Jónsdóttur. Davíð var af Hvassa- fellsætt, þeirra skáldanna Jónasar Hallgrímssonar, Jóhanns Sigurjóns- sonar og Káins. María var dóttir Jóns Ólafssonar á Hallgilsstööum, bróður önnu, ömmu Hermanns Jónassonar forsætisráðherra, fóður Steingrims, fyrrv. forsætisráðherra. Erlingur stundaði nám við Laugaskóla 1931-33, lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1935 og stundaði nám við Garðyrkjuskólann að Reykjum. Erlingur Davíðsson Erlingur hóf störf hjá Degi á Akureyri 1950 og var ritstjóri blaðsins 1956-79. Hann var ritstjóri og höfundur bókaflokksins Aldn- ir hafa orðið á árunum 1972-79. Þá sendi hann frá sér bækurnar Jói norski, 1972; Konan frá Vínarborg, 1975; Nói báta- smiður, 1978; Mióilshendur Einars á Einarsstöðum, 1979. Auk þess kom hann að útgáfu tímaritsins Súlna og flutti fjölda útvarpserinda. Erlingur var bróðir Haralds, bónda á Stóru-Hámundarstöðum, og bróðir hins merka grasafræðings Ingólfs Dav- íðssonar sem var kennari og sérfræðing- ur við Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Erlingur lést 17. júlí 1990. Jarðarfarir Útför Önnu Sigrúnar Wiium Kjartansdóttur, Övre Holmegade 9a, Stavanger I Noregi, fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 12.4. kl. 13.30. Bjarni Guðmundsson, bifreiðastjóri frá Túni, Skarphéðinsgötu 20, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12.4. kl. 15. Ingimundur Kristjánsson frá Svignaskaröi lést föstudaginn 7.4. á Sjúkrahúsi Akraness. Ámi Hjörtur Rósason andaðist að heimili slnu Lindargötu 62, aðfaranótt fimmtudagins 6.4.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.