Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001 DV 9 Fréttir Mæðrastyrksnefnd og ferðalög á kostnað gefenda: Formaöurinn skammaöi ríkið fyrir ferðabruðl Enn liggur. ekki fyrir hvort Ásgerður Jóna Flosadóttir, for- maður Mæðra- styrksnefndar, muni sitja áfram í embætti eða segja af sér vegna þeirrar hörðu gagnrýni sem nefndin hlaut fyr- ir sólarferð sína til Portúgals. Ferð- in kostaði um 400 þúsund krónur og var greidd af Mæðrastyrksnefnd. Á aðalfundi í fyrradag náðist engin niðurstaða og var boðað til fram- haldsaðalfundar í næstu viku. Fjölmargir hafa orðið til að gagn- rýna nefndina fyrir bruðl og sið- leysi. Meðal annars hafa fyrrver- andi stjórnarmenn lýst því að Ás- gerður Jóna segi ósatt þar sem hún hélt því fram að viðtekin venja hafi verið hjá nefndarmönnum að umb- una sjálfum sér með árlegri ferð á hótel innanlands. Ljóst er að for- maðurinn berst vonlítilli baráttu fyrir því að sitja áfram í skugga sól- arferðarinnar. Ásgeröur Jóna Flosadóttir. Ríkið skammað í apríl 1997 ritaði Ásgerður Jóna harðorða kjallaragrein i DV þar sem hún gagnrýnir ríkið fyrir að halda úti tiðum utanlandsferðum starfsmanna með tilheyrandi fjárút- látum. Núverandi formaður Mæðra- styrksnefndar benti í grein sinni á að íslenska ríkið eyddi hátt í 3000 Bióröð Margir þeirra sem betur mega sín hafa átt skjól hjá Mæörastyrksnefnd. Gjaf- ir hafa streymt til þeirra fátæku frá hinum efnameiri. Sjálfboðaliðarnir hjá Mæðrastyrksnefnd ákváðu að taka sinn toll og skelltu sér í sólina. milljónum króna ár- lega í ferðakostnað. ..og dæmi eru um að embættismenn fari í nokkurra daga ferðir og komi heim með á milli 60 og 70 þúsund krónur í vasanum...," sagði Ásgerður Jóna og spyr hvort þetta sé sú spegilmynd sem við viljum hafa. „Getur þetta ástand talist eðlilegt þegar verkafólk í landinu er aö berjast fyrir því að fá 70 þúsund krónur i lágmarkslaun á mán- uði?“ spurði Ásgerður í grein sinni. -rt Ríkift: 30(10 m.kr. ferðakostnaöur. Getum við sparað með nýrri tækni? Kiallannn Stjórníytla ríkbÍKf «t ott * tiö- um óstjótBfuef •ngna tlór* ut*n- feróa ttarftmmna og aigengt *r atmarn fmgt m» kaUla fumtl f krlngum þÍRgsiórfiu vagna Uröa- Ríkisstarfsmenn skammaöir Ásgerður J. Flosadóttir var harðorð í grein sinni um ferðabruðl ríkisins. í: Ný könnun PricewaterhouseCoopers: Efnaðir vilja evru - hátekjufólk vill henda krónunni Meira en 2/3 íslenskra hátekju- manna vilja að viðræður verði hafn- ar um aðild að Evrópusambandinu og 55% eru fylgjandi því að ísland kasti krómmni og taki upp evruna sem gjaldmiðil hér á landi en aðeins um 1/3 lágtekjufólks var sama sinnis, sam- kvæmt nýrri könnun Pricewaterhou- seCoopers slembiúr- taks 18-75 ára íslend- inga. Álit fólks með millitekjur var þar á milli, svo tekj- ur fólks virðast hafa afgerandi áhrif á skoðanir þess á ESB-aðild og evru. Fjórðungur svarenda taldist lág- tekjufólk en 3/4 skiptust næstum jafnt í millitekju- og hátekjufólk. Einnig kom í ljós að höfuðstaðar- búar eru mun hlynntari ESB-aðild og evrunni (58% og 46%) heldur en landsbyggðarfólk (48% og 30%) og karlar fremur en konur. Og ESB-aðild og evran eiga líka áberandi flesta fylgj- endur í hópi fólks milli þrítugs og fimmtugs (60% og 44%) en fæsta í elsta hópnum (47% og 35%). Af öllum sem svöruðu vildu 54% heíja ESB- viðræður en 40% skipta krónunni út fyrir evru. -hei J. R. BILASALAN www.jrbilar.is MMC SPACE WAGON 4WD 2.01 fýrst skráður desember 1998,7 manna, ekinn aðeins 31.000 km, sjálfskiptur, rafmagn í rúðum, samlæsing. Bílalán getur fylgt. Til sölu og sýnis á JR Bílasölu, Bíldshöfða 3, 567-0333, 897-2444. ATH.I Geium hætt á okkur húsbilum, hjól- og fellihýsum, á svæðið og á skrá. Visa/Euro raðgreiðslur. lcstivol" vcrður holdið í lougardolshöll dogono 2. og 3. júní kl. 2O.D0. oldurstoknork 16 óro m ollor Irckori upplýslnijor I HUÖnALIVID lougovcgl 21. olnl: 552 4717 rcijkjovík nini BL0V1DE HEDHEAD Ú HAUS plötusnúðar kvöldaina undirtónahr S441SKÍPTí>5C prentiausnír markaðsiausnír ® SKJÁREINN V e ir ös If ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.