Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 40
44
Heígarblacf H>"Vr
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Jólastemning í
Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn var höfuðborq íslands
um aldir og þar liqqja qróin spor söqunnar
um steinlöqð stræti. Fáir kunna betur að
„hqqqe sig“ íaðdraqanda jólanna en íbúar
Kaupmannahafnar oq DV brá sér yfir poll-
inn íglöqq oq piparkökur oq tilbúna
stemninqu.
Þaö er margt sem skapar jólastemningu og líklega er
það beintengt í minnisbanka hvers og eins hvað það
er. Sennilega eru kynslóðirnar sem þurftu hrein vaö-
málsnærfót og tólgarkerti tii að komast í jólastuð að
mestu horfnar og eflaust eru það grenigreinar,
smákökur og jólalög sem hafa komið í staðinn.
Kaupmannahöfn er forn höfuðborg íslands um aldir
Þessi glaðbeitti Afgani var að selja vettlinga á jöla-
inarkaðnum í Kristjaníu og veitti ekki af í vetrarkuld-
anum. Hann sagðist gjarnan vilja koma til íslands því
það væri gott land og fóllt vantaði vettlinga.
Það voru ekki allt gamlir hippar sem leituðu á niark-
aðinn í Kristjaníu því það er mjög vinsælt meðal ungs
fólks í Kaupmannahöfn að fara þangað í leit að
óvenjulegum jólagjöfum. Þarna heldur Lars
Östergaard-Christensen á dóttur sinni Silju Björk sem
varð eins árs þennan dag.
Jólastemningin nær líka niður í Nyhavn þar sem sölu-
hásum er raðað upp og kolastampar kyntir fyrir veg-
farendur að ylja sér á. Þarna var lögð áhersla á glögg
og piparkökur og svo var gott að stinga sér inn
Hyttefadet og fá sér smörrebröd og einn kaldan.
Gamlir hippar breytast skammlaust í kaupahéðna á aðventunni og reyna að selja kapítalískum smáborgurum
meðvitað handverk. Þessi virðist ekki vita til þess að hártískan hafi mikið breyst síðan 1970.
DV-myndir Rósa Sigrún Jónsdóttir/PÁA
og þangað sækja íslendingar flest þaö sem þeir hafa til-
einkað sér í matarmenningu og siðum sem tengjast
jólahaldi i nútímanum. Það búa um 4000 íslendingar í
Kaupmannahöfn og heimsóknir þangað á aöventunni
eru gríöarlega vinsælar.
Stemning í boði Illunis
Strikið, fallegasta göngugata heimsins, að sumra
áliti, liðast frá Ráðhústorginu niður í gegnum nokkur
torg áður en hún endar á Kongens Nytorv. Við Strikið
er að finna margar verslanir og á aðventunni er þar
stöðugur straumur fólks upp og niður, flestir eru prúð-
búnir í augljósum jólahugleiðingum með fangið fullt af
pinklum en aðrir sýnast vera kaupahéðnar á hraðferð.
Verslanir eru skreyttar, gatan er skreytt og götu-
listamenn lífga upp á stemninguna með afriskum
trumbuslætti eða hefðbundum fjórradda söng jóla-
sálma. Fyrir vitin slær ef til vill angandi kaffilykt eða
ilminum af ristuðum hnetum sem verið er að selja í
bréfpokum. Þetta er svo mikil jólastemning að það
gæti fengið hvaða heiðingja sem er til að fallast á til-
urð Jesúbarnsins og taka þátt í afmælishátíð þess. Það
eina sem vantar til að fullkomna stemninguna er svo-
lítill jólasnjór. Og þegar við göngum fram hjá vöruhús-
inu Illums, sem margir íslendingar kannast vel við, fer
að snjóa og það er einmitt þessi jólalegi jólasnjór sem
svífur í geðþekkum flygsum niður í logninu og sest í
loðkragana og í hárið á rjóðum viðskiptavinum.
Þetta er fullkomið þangað til manni verður ljóst að
þetta er froðujólasnjór í boði Illums og það eru vélar
uppi á þakinu sem blása úr sér hæfilegum skammti
með reglulegu millibili. Bara til að skapa stemningu
svo ekki þurfi lengur að reiða sig á duttlungafulla nátt-
úru. Við forðum okkur inn á Café Norden og fáum
kókó og eplapæ. Seinna um kvöldið sjáum viö eitthvað
sem sýnist vera norðurljós á kyrrum kvöldhimni yfir
Nyhavn. í ljós kemur að þetta reynast vera leysigeisl-
ar sem min vegna geta verið í boði Hlums. Enn seinna
um kvöldið hangir hálfur máni á heiðum næturhimni
yfir Kristjánsborgarhöll og hann er svo fallega formað-
ur aö maður fer ósjálfrátt að skima eftir vörumerki 111-
ums eða þess sem kostar uppsetninguna. En tunglið er
ekta.
Glögg kaup og góður matur
Það er hægt að gera góð kaup í jólagjöfum í Kaup-
mannahöfn, sérstaklega með því að leita rétt út fyrir
Strikið í ögn kyrrlátari hliðargötur þar sem verðlag er
þegar tekið að síga. Ég sá sérstakt froðuáhald til þess
að framleiða skúm á kaffibolla. Sérlega óþarft og geð-
þekkt áhald. Það mátti kaupa fyrir 50 krónur danskar.
Hér heima er þessi sami „froðusnakkur“ á sérlegu jóla-
verði sem er nálægt 2000 krónum.
En það er líka hægt að njóta þess að horfa á fjöl-
breytt mannlíf, skoða fallega danska hönnun í gjafa-
vörubúðum og láta sig dreyma. Það er líka hægt að
setjast inn á Hviids Vinstue og fá sér heitt jólaglögg og
piparkökur og hugsa um endalok Jónasar Hallgríms-
sonar og alla þá sem hafa eytt hæfileikum sínum í
slímusetur á krám í þessari borg í stað þess að vinna
landi og þjóð eitthvert gagn. Reyndar gerði Jónas
hvort tveggja.
Það er líka hægt að róla niöur í Nyhavn og setjast
þar á veitingahús eins og Told og Snaps eða Hyttefadet
og fá sér ærlegt danskt smörrebröd með öli og snafsi.
Það er hægt að boröa margt skemmtilegt í þessari
heimsborg en ekkert er eins danskt og smörrebröd.
Nema ef vera skyldi pylsurnar í vögnunum sem er enn
þá leyft að selja þótt þær séu rauðar á litinn og ég fékk
mér „pölse í svöb“ sem er innpökkuð í svínsflesk og
dándisgóður matur.
Það er líka hægt að skella sér á skauta á Kongens
Nytorv og róla þar í virðulega hringi og ef maður er
ekki með skautana með sér þá eru þeir leigðir á spott-
prís.
Viltu slást?
Allt er þetta hægt og fiest gengur eftir hefðinni í
Kaupmannahöfn í aðdraganda jólanna nema í þetta
skiptið því nú halda pótintátar Evrópubandalagsins
sinn stærsta fund frá upphafi í Bella Center og flest
stórmenni álfunnar eru mætt. Það eru líka komnir
mótmælendur alls staðar að úr heiminum og hóta öllu
illu og til mótvægis hafa verið fluttir sex þúsund lög-
reglumenn utan af landi til borgarinnar til að allt fari
nú fram eins og vera ber. Ég heyri þrekinn lögreglu-
þjón segja vinkonu sinni að þetta sé fint jólafrí því
víða um borgina má sjá þessa rassbreiðu laganna verði
biða í hópum eftir því að eitthvað gerist. Alþjóðlegar
keðjur eins og Burger King og McDonald bíða ekki
heldur negla þykkar krossviðarplötur fyrir alla glugga
enda orðnir seinþreyttir á því að vera skotspónn
þeirra sem hafa mótmæli að meginstarfi. Reyndar þarf
ekki aðkomumenn til því McDonalds er að hrekjast úr
miðbæ Kaupmannahafnar rétt eins og Reykjavíkur og
Strikið er án efa ein lekkerasta göngugata heimsins og
iðar af lífi alla aðventuna enda víða hægt að gera af-
bragðs kaup.
Það voru fluttir sex þúsund lögreglunienn til borgar-
innar vegna yfirvofandi mótmæla í tengsliim við fund
Evrópubandalagsins. Það mátti sjá þá standa í hópum
víðsvegar um borgina þar sem þeir reyndu að lialda á
sér hita.