Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Blaðsíða 14
14 Menning Fyrst á dagskránni á 15:15 tónleikum Caput-hópsins og slagverkshópsins Benda síðastliðinn laugardag var Flæði eftir Rík- harð H. Friðriksson. Ríkharður spOaði þar á rafmagnsgítar sem var tengdur við tölvu og voru hljóðin úr henni einhvers konar úr- vinnsla gítarhljóðanna. Var það allt mjög þægilegt áheyrnar, tónsmíðin var á lágu nót- unum og minnti útkoman á ambient-tónlist Brians Eno þó gjörningur Ríkharðs væri mun flóknari að gerð. Næst á dagskránni var alger andstæða, stórt og hávaðasamt verk eftir Þorstein Hauksson sem her nafnið Are We? Það var samið árið 1980 en samt var þetta frumflutn- ingur verksins á íslandi. Tölvuhljóð spiluðu nokkra rullu í tónlistinni en leikur tveggja trompetleikara, tveggja básúnuleikara og tveggja slagverksleikara voru talsvert meira áberandi. Tónsmíðin byggðist aðallega á ógn- arlegum barsmíðum og djúpum, löngum og feiknarlega sterkum tónum frá blásurunum. Datt manni í hug samlíking við tíbetska bön pa tónlist, sem einnig samanstendur af trumbuleik og djúpum tónum er munkar með ofvaxin raddbönd kyrja. Eða var kannski ver- ið að tilkynna dómsdag? Básúnuhljóðin voru svo rosaleg að það var eins og Gabríel erki- engill væri að kalla hina dauðu til upprisu á hinum efsta degi. Tónlist_________________ Leikur hljóðfæraleikaranna var nákvæmur og samtaka og sú skelfing sem tónskáldinu var greinilega ofarlega í huga komst vel til skila í markvissri túlkuninni. Er þetta frá- bært tónverk sem að sjálfsögðu hefði átt að flytja hér miklu fyrr. Eftir hlé var frumfluttur Caputkonsert nr. 2 eftir Snorra Sigfús Birgisson. Verkið er fyr- ir þrjá slagverksleikara sem jafnframt eru einleikarar, einnig píanó og eliefu manna Dómsdagur í nánd Trompetar og básúnur þanin Skelfingin komst vel tit skila í markvissri túlkuninni. DV-MYND SIG. JOKULL kammerhóp. Tónskáldið stjórnaði sjálfur og hófst tónlistin á skemmtilega fönkuðum inn- gangi sem slagverksleikararnir Eggert Páls- son, Steef van Oosterhout og Pétur Grétars- son spiluðu af mikilli list. Næsti kafli bar nafnið Hugleiðsla og þar minntu síendurteknar hendingar upp á við, langar trillur og almennt alsælukennt and- rúmsloft óneitanlega á tónlist Scriabins, sér- staklega síðustu tvær sinfóníur hans. Það er sko hól! Hugleiðsla Snorra var þó flngerðari en þrátt fyrir það sérlega áhrifamikil og var tónlistin mögnuð andstæða þriðja kafla konsertsins, Vikivaka. Það var dans eins og nafnið gefur til kynna, skemmtilega villi- mannslegur - slagverkið fékk að njóta sín óá- reitt og var maður nánast farinn að slá takt- inn með, alveg ósjálfrátt. Konsertinn endaði á hægu eftirspili, háif- gerðu næturljóði þar sem Snorri settist við píanóið og lék fallega impressjóníska hljóma. Þeir bergmáluðu í ýmsum hljóðfærasamsetn- ingum og kom það prýðilega út, allt á lágu nótunum og afslappað eftir ballið á undan. í heild er Caputkonsert Snorra margbrotin og litrík tónsmíð og er þetta án efa með því besta sem ég hef heyrt eftir tónskáldið. Jónas Sen Patrick Huse aftur á íslandi mannctfaman Penetration er heiti sýningar norska lista- mannsins Patricks Huse sem var opnuð í Lista- safni Reykjavíkur - Hafnarhúsi um helgina. Þetta er lokaþáttur þríleiksins sem listamaður- inn hefur unnið að undanfarin níu ár. Tvær fyrri sýningamar voru Norrænt landslag (Hafn- arborg 1995) og Rift (Kjarvalsstaðir 1999). Viðfangsefni Patricks í þessu langtima sýn- ingarverkefni eru vangaveltur um hvað náttúr- an er í reynd, hvernig hugtakið er notað í ýmsu samhengi og hvemig það tengist „landslagi". Patrick hefur leitað fanga á einni breiddargráðu nokkurra landa á norðlægum slóðum, aðallega í Noregi, Svíþjóð og á íslandi. Hingaö hefur hann komið oft og málað mikið. í viðtali við DV í til- efni af Rift 1999 sagði hann meðal annars: „Eitt- hvað í íslenskri náttúru fær endurhljóm innra með mér, það eru tilfinningaleg tengsl milli hennar og mín. Ég get ekki útskýrt hvernig eða hvers vegna - ekki fremur en maður getur út- skýrt hvers vegna manni líður eins og heima hjá sér á einum stað en ekki öðrum og tekur eft- ir sumu fólki í fjölmenni en ekki öðru. Ég held að þetta hafi eitthvað meö það að gera að þekkja sjálfan sig.“ í texta Gunnars Sörensen í sýningarskrá með sýningunni segir m.a. um trílógíu Patricks: „Norrænt landslag var útsýn frá óvistlegum svæðum sem lítill vegur virtist að lifa sig inn í eða þekkja, þar vottaði ekki fyrir mannlegri ná- vist. Rift sýndi nærgöngular úrklippumyndir af Eitt verka Patricks Huse á Penetratlon Verkin eru sjálf landslagsbrot, ofurseld sömu þróun myndunar og rofs og sjá má í náttúrunni. sams konar náttúru en Penetration má líta á sem kjarnaborun í efni og formgerð þessara úr- klippna. Verkin eru þannig fjarri því að vera „landslagslýsingar"; kannski er nær að líta á þau sem klókindalegan milliveg þess að vera náttúrumyndir og náttúruform í sjálfum sér. Því að í vissum skilningi vísa þau ekki til lands- lagsþátta heldur eru sjálf landslagsbrot, ofurseld sömu þróun myndunar og rofs og sjá má í nátt- úrunni.“ Á sýningunni í Hafnarhúsinu gefur einnig að líta minningarbrot frá Norrænu landslagi og Rift. Penetration var fyrst opnuð í Noregi. Hér stendur hún til 27. apríl en fer héðan til Banda- ríkjanna. Hafnarhús er opiö daglega frá kl. 10-17. Myndin af sýningunni MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 DV Umsjón: Silja A&aisteinsdóttir silja@dv.is Svandís sýnir Svandís Egilsdóttir myndlistarmaður opnaði sýningu á olíumálverkum og sér- stæðum skúlptúr í Galleríi Sævars Karls á laugardaginn. Svandís útskrifaðist frá Seminariet for Kunst og Handverk i Ker- teminde í Danmörku 1999. Þetta er fyrsta einkasýning hennar í Reykjavík og hún stendur til 3. apríl. Skáldaöar borgir Bí hádeginu á morgun, kl. 12.05, flytur Ástráður Eysteinsson bókmennta- fræðingur fyrirlestur í Norræna húsinu í hádeg- isfundaröð Sagnfræðinga- félags íslands sem haldin er í samstarfi við Borgar- fræðasetur. Erindið nefn- ist „Skáldaðar borgir". Fundurinn er op- inn öllu áhugafólki um sögu og skipulags- mál. Borgir leika mikið hlutverk sem staðir og sögusvið í nútímabókmenntum og í fyrirlestrinum verður athugað hvernig nútímaborgin er sett fram, endursköpuð eða „búin til“ í tungumáli bókmennt- anna; hvemig unnið er með táknheim borgarinnar og hvernig tekist er á við borgina sem hugarásiand, sem ummótað- an eða ímyndaðan veruleika, sem kann að skipta sköpum um reynslu hvers og eins af borginni. Hliðsjón verður höfð af nokkrum skáldverkum og fræðilegri um- fjöllun um borgarmenningu. Málþing um Þórberg Málþing um Þórberg Þórðarson verður haldið að Hrollaugsstöðum í Suðursveit 29.-30. maí í vor. Þingið hefst á heim- sókn að gamla bænum á Hala í Suðursveit og verður sett við minnis- varðann ofan við bæinn. Síðan verður haldið að Hrollaugsstöðum þar sem Soffia Auður Birgisdóttir, Pétur Gunnarsson, Helga Jóna Ásbjömsdóttir, Vésteinn Óla- son, Svavar Sigmundsson og fleiri halda erindi. Um kvöldið verður Hjörleifur Guttormsson með kynningu á Suðursveit og dagskrá tengd Þórbergi. Daginn eftir geta þeir sem vilja farið „söguferð með Þórbergi" og síðan að fomleifauppgreftri á Steinadal og e.t.v. í Staðarfjall. Stjórnandi málþingsins verður Gísli Sverrir Árnason, forstöðumaður Menn- ingarmiðstöðvar Hornafjarðar. Hægt er að panta gistingu að Smyrlabjörgmn, 478 1074, eða Hrollaugsstöðum, 478 1905. Stríö og konur Vegna ástands heimsmála standa Rannsóknastofa í kvennafræðum og UNI- FEM á íslandi fyrir málstofu um konur og stríð kl. 16.15 i dag i stofu 101 í Lög- bergi, Háskóla íslands. Meðal frummæl- enda eru Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræð- ingur og framkvæmdastjóri Mannrétt- indaskrifstofu íslands og Lilja Hjartar- dóttir stjórnmálafræðingur. Sýnt verður brot úr heimildarmynd Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska: Women, the forgotten face of war. Á yfirlitssýningu nýlistamannsins hafði verið komið fyrir margvíslegum hlutum sem gestir voru ekki vissir um að væru listaverk. Fólk gekk í kringum þessa hluti með efa- þrunginn svip og þorði ekki að yrða á næsta mann af ótta við að segja vitleysu. Svona gekk þetta um hríð. Listamaðurinn stóð úti í horni og hellti ljósgulu freyðivíni í glösin gestanna sem drukku mikið og höfðu æ meira gaman af þessu eftir því sem fleiri flöskur tæmdust. Þeim var raðað út í horn, flöskunum. Og smám saman varð til nokkur stafli af þeim. Undir lokin lullaði góðlegur maður í mokkafrakka inn í galleríið. Hann smokraði sér í gegnum þessa drukknu gestafjöld og fór að taka myndir. Það heyrðist í vélinni hans eins og þar færi atvinnumaður. Og það kom á daginn. Degi seinna. Þá birtust nokkrar ljósmyndir af yfirlitssýningunni í víðlesnu dagblaði og virtist glatt á hjalla í galleriinu. Flestar myndanna voru af fólki með glas í hendi. Tvær myndir voru eins og teknar ofan í gólfið. Önnur var af viðurkenndu listaverki, sýndist mér, upprúlluðum gaddavír með brúðum í miðjunni. Hin var af stafla af freyðivínsflöskum. -SER. Teikning og glersteypa Námskeið í módelteikningu fyrir byrj- endur og lengra komna hefst í LHÍ, Skip- holti 1, á morgun kl. 18. Kennari er Haf- dís Ólafsdóttir myndlistarmaður. Námskeið fyrir byrjendur í glersteypu hefst á vinnustofu Brynhildar Þorgeirs- dóttur myndhöggvara, Bakkastöðum 113 í Reykjavík, 27. mars. Kennd verður grunnaðferð við að ofnsteypa gler.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.