Dagblaðið - 02.04.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 02.04.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 1976 — 75. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022. Gengi krónunnar „sígur" með ofsahraða Yfir 18 prósent gengisf elling gagnvart dollar ó einu óri ** W Sjá baksíðufrétt I ljós hefur komið að við ögur f ísafjarðardjúpi er enn i dag starfrækt vatnsaflsvirkjun sem reist var þar ekki seinna en árið 1926. Rafstöð þessi var reist af Bjarna frá Hólmi, sem búsettur var í Vík í Mýrdal og mun hafa reist margar slikar stöðvar, aðallega þó sunnan- lands. Virkjunin 1 Ögri var reist á árum þeirra Ogursystra, Ragnhildar og Halldóru Jakobs- dætra, sem fengu Bjarna frá Hólmi til að virkja ögurá til rafmangsframleiðslu fyrir bæinn í Ögri. Að sögn Halldórs Hafliðasonar bónda í ögri dugir rafsliið þessi honum til lýsingar hæjarins, en viðbótar- rafmagn fær hann úr disilraf- stöð flugmálastjórnar, sem er þarna skammt frá og framleiðir rafmagn i radar vegna flugsins til ísafjarðar. Þar með hlýtur það svar sem Sunnlendingar svöruðu i sjón- varpsþættinum Kjördæmin keppa að verða ómerkt, þar sem þeirra svar var álitið rétt þegar merking orðsins „el/.tur" er álitin það sem enn er í gangi. Breytir þetta þá niðurstiiðum þátlarins á þann veg að Suður- Dagblöðin sóttu um hækk- un á verðlagi sínu frá fyrsta marz. sl. að telja. Hefur sú hækkun nú verið samþykkt þannig að áskriftarverðið er kr. 1.000 fyrir hvern manuð. Dag- blaðið mun þó innheimta gamla áskriftarverðið fyrir marz- mánuð, kr. 800. Er það meðal annars gert til að jafna áskrifendum þann mismun er fram kom í innheimtu áskriftar fyrir febrúarmánuð, þegar ekk- ert var dregið frá vegna verk- fallsins, en þá höfðu kvittanir þegar verið útbúnar áður en verkfallið leystist. Lausasölu- verð er kr. 50 pr. eintak og grunnverð auglýsinga er kr. 600 pr. dálksentimetra. I' Urriöafoss kom til landsins gærdag fré Rotterdam f»r ndi vaminginn langþróöa heim, — mexikönsku kartöfl- urnar frægu. Dagblaöiö fékk þær upp- lýsingar frá Hollandi í vik- íunni, aö kartöfiur þessar heföu komiö til Rotterdam ímánudaginn 22. marz, eöa jsama dag og Grænmetisverzl- iun ríkisíns segist hafa pantað Iþær, aö undangenginni athug- un heilbrigðisyfirvalda. Kartöflurnar voru afgreiddar í verzlanir i gær, en reyndust ekki eins vel utlítandi og vonazt haföi veriö. DB-mynd: Björgvin Palsson - Sjá bls. 8 KART0FLURNAR K0MNA „í REYND ER SAMIÐ TIL EINS ÁRS" segir Kristján Thorlacius „1 reynd er aðeins samið til eins árs, ef við viljum,” sagði Kristján Thorlacíus, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja , í morgun. Hann taldi enga hættu felast í samningi, sem að nafninu til er til tveggja ára, þar sem segja má honum upp frá 1. júlí næstaárs, eða einu ári eftir að hann tekur gildi. Þess vegna telur Kristján, að ekki hafi verið vafasamt að semja um litla kauphækkun, 4 prösent, 1. júlí 1978. Kauphækkanir fara að öðru leyti eftir samningi Alþýðusam- bandsins og vinnuveitenda. 1 samningi BSRB eru ákvæði um vísitölubætur í júni 1977 og síðan ársfjórðungslega, til viðbótar vísitölubótunum, sem ASl samdi um, en ASl samdi aðeins til maímánaðar 1977. BSRB varð því að semja til mun lengri tíma, en tryggði sig með framangreindum hætti. Kristján sagði, að vel mætti semja til tveggja ára með því að hafa fyrirvara og vísitöluákvæði. Verkfallsrétturinn getur komið til 1. júlí 1977, ef samningnum verður sagt upp þá. -HH. FÍKNIEFNASMYGLARI TEKINN Ungur piltur, sem var að koma með flugvél frá Norðurlöndunum í gær, var tekinn og skoðaður á leið sinni gegnum tollvörzlu. Kom þá í ljós að í hljómplötuhulstri, sem hann hafði meðferðis, hafði hann í stað hljómplötunnar hvorki meira ne minna en eitt kíló og tvö hundruð grömm af fíkniefni, sennilega hassi. Þegar gengið er í gegnum „græna hliðið’’ við komu til landsins um Keflavíkurflugvöll eru stundum gerðar skyndi- athuganir og þa eftir sérstöku skilningarviti tollvarða. í gær brást þetta tollvarðaskilningar- vit ekki og komu fíkniefnin í ljós. „Stikkprufur” þessar eru gerðar daglega og í gær sem oftar kom í ljós að ekki er vanþörf á því. Piltinn, sem handtekinn var, sendi tollgæzlan á Keflavíkur- flugvelli beint til fíkniefna- dómstólsins sem tók drenginn og málið í sínar hendur. -BH. „Þetta er svívirði- legt" sögðu sjómenn um landhelgisbrotin Sjá bls. 4 „Við erum að éta útsœðið" - Sjá bls. 8 Kreppa i bruggun heimagerðs öls Þetta er svivirði sjómenn um landhelgisbrotin Sjá bls Nýtt sönnunargagn um rangan dóm svara Sjá bls. 4 1. april Dagblaðið bra a leik t gær, eins og aðrir fjölmiðlar í til- efni 1. apríl. Við létum kín- verskan hraðbát sigla inn á ytri höfnina og sögðum hann tilbúinn til leigu eða kaups fyrir Islendinga. Ýmsir ætluðu að skoða og við feng- um áskorun um að hefja söfnun til að létta undir kaup bátsins. Þá var auglýsing á bls. 15 einnig 1. apríl spaug. Þar brá Iðnþróunarstofnunin á leik eins og oft áður. Virkjun í Ögri í gangi frá 1926 landskjördæmi og Re.vkjanes- kjördæmi koma jöfn út úr spurningaþæltinuin Kjör- dæmin keppa, i stað þess að Suðurlandskjördæmi var dæmt rétt svar fyrir virkjun, sem ekki er reist fyrr en 1937. þ.e. a.m.k. ellefu árum eftir að virkjunin í ögri, sem enn er í gangi. var reist. —EI/BH „Kjördœmin keppa" enn i sviðsljósinu: DAGBLÖDIN HÆKKA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.