Dagblaðið - 16.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 16.08.1976, Blaðsíða 1
frjálst, aháð dagUað RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 2. ARG. — MANUDAGUR 16. AGÚST 1976 — 179 TBL. Náttfari stal gjaldeyri Útsýnar — hefur nú játað ncer 20 innbrot þar sem hann stai nœr 2 milljónum Náttfari, sá er situr í gæzlu- varðhaldi hjá rannsóknarlög- reglunni, hefur nú viðurkennt að hafa fariðtnn i skrifstofur Útsýnar i Austurstræti, þar sem hann stal mikilli fjárupp- hæð aðallega í gjaldeyri. Viður- kenning hans á þessu innbroti fékkst á laugardaginn, sagði Haukur Bjarnason rannsóknar- lögreglumaður í viðtali við DB í morgun. ' ‘ f Náttfari hafði engu eytt af gjaldeyrinum sem hann hafði á brott með sér í Útsýn. Skilaði hann þykkum seðlabunka á laugardagskvöldið og komu rannsóknarlögreglumenn fúlg- unni fyrir í bankahólfi í Landsbankanum. Peningarnir verða taldir í dag og kemur þá í ljós hvort upphæðin stemmir við þá upphæð, sem sögð var stolin Náttfari hefur nú játað nær 20 innbrot og heildarráns- fengurinn er nú ekki langt frá tveimur milljónum. Ekkert bendir til þess að nokkur annar tengist innbrotum þessa Nátt- fara. Hins vegar er annar kominn á kreik. Fór sá í íbúð að næturlagi yfir helgina, en hafði ekki erindi sem erfiði. Haukur Bjarnason sagði að áfram yrði látlaust unnið að rannsóknum á málum Náttfara. Þó ekki lægi játning fyrir teldi lögreglan sig hafa sannanir fyrir því, að þegar hann fór inn í Útsýn hafði hann áður þá nótt heimsótt skrifstofur Krabba- meinsfélagsins og SlBS i Suðurgötu 10 og 24. —AST. r;: < — Þannig lá hjólaskóflan uían vegar er að var komið. DB-mynd Agústa Tómasdóttir. Vegagerðarmoður beíð bana — undir vinnuvél Ein af vélskóflum Vega- gerðar ríkisins valt út af vegi skammt utan við Ölafsvíkur- enni síðla laugardags. Stjórnandi vélskóflunnar varð undir vélinni og beið bana. Sá er lézt var Þorgeir Guðmunds- son, 52 ára Kópavogsbúi, Digranesvegi 38. Þorgeir var við vinnu á vél- inni á áttunda tímanum á laugardagskvöldið. Enginn sjónarvottur var að slysinu, en að slysstað var komið örstuttu eftir að slysið varð. Er það vitað því bílar fóru fram úr vélskóflunni og mættu henni fáum mínútum áður en slysið varð. Af verksummerkjum er ráðið að vélin hafi verið á leið niður brekku og í slakkanum hafi stjórnandinn misst stjórn á henni. Féll hún út af vegin- um, fyrst á hlið, en lagðist síðan á húsið með hjólin upp. Þorgeir var látinn er að var komið. Öryggiseftirlitið skoðaði vélina síðar en ekkert hefur fundizt sem skýrt getur orsak- ir slyssins. — ASt. Geirfinnsmólið — Unnið nótt sem nýtan dag að rannsókn: Schutz leitar að f élags- legum skýringum Karl Schutz, rannsóknar- maðurinn þýzki, vinnur nú langan vinnudag við rannsókn á Geirfinnsmálinu og málum sem eru tengd því. Segja má að hann leggi nótt við dag. Eru honum til aðstoðar rannsóknarlögregluþjónar, sem hann velur sjálfur. Er það mál manna að Schutz hafi þar sýnt glöggskyggni, sem komi nokkuð á óvart, þar sem um er að ræða erlendan mann, sem fyrirfram er ókunnugur mönnum og málefnum hér. Auk þess sem hann kannar málsskjöl og málavöxtu, sem þar er að finna, hefur rannsókn hans einnig verið á miklu breiðari grundvelli en hingað til hefur verið byggt á við rannsókn þessa máls. Beinist hún ekki hvað sízt að félagslegum skýringum á pessu sakamáli og þá fyrst og fremst ástæðum, sem hljóta að liggja á bak við afbrotið, sem talið er víst að framið hafi verið. Að svo miklu leyti sem vitað er um rannsóknaraðferðir i Geirfinnsmálinu til þessa hefur ekki verið nægileg áherzla á að kanna ,,mótívið,“ það er að segja þær hvatir, eða þá hagsmuni, sem knúið hafa menn til óhæfuverka eins og morðs, eða jafnvel morða. Schutz er viðurkenndur kunnáttumaður, sem hefur átt hlut að því að upplýsa saka- mál, sem hafa vakið heimsat- hygli. Þykja vinnubrögð hans benda til þekkingar, sem okkar rannsóknarmenn hafa ekki haft aðstöðu til að afla sér, og miklar vonir bundnar við að skipulegar aðferðir þessa kunnáttumanns leiði til þess, að málin verði upplýsl BS Róðherra œtlar að ráðast gegn ranglœtinu í skattamálum — sjá bls. 9 HH_ Hvaða skattar eru lagðir á „uppmœlinga- aðalinn?" — sjá bls. 8 ÍÉggg Alþingi verður að taka tillit til réttlátrar reiði almenningsálits- ins — sjá kjallaragrein Ellerts B. Schram bls. 11 Veizlan á verbúðar- bryggju — sjá baksíðu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.