Dagblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 1
3. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1977— 137. TBL. glTÍSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12, AjUGLÝSINGAR ÞVpRHOLTl 11, AFGRE1Ð$LA ÞVERHOLTl 2 — AilALSlMl 2702$.
Allt útflutningsverð-
mæti Suðurlandssfldar
í niðurgreiðslu kjöts og osta? — baksída
ReykviKingar geta farið að dæmi þessarar ungu stúlku í dag og Veðurstofunnar verður iéttskýjað við Faxaflóa og hæg norðaustlæg
dregið fram vindsængina og farið i sólbað. En lánið leikur ekki eins átt. Gert er ráð fyrir um 12 stiga hita í Reykjavik í dag en um 7 stiga
við Norðlendinga, því þar er svalt í veðri. Samkvæmt upplýsingum hita fyrir norðan. Likur eru á óbreyttu veðri fram yfir helgi. -JH.
Hand-
tökurí
hass-
mál-
unum:
Sífelldar handtökur eru í
fikniefnamálunum þessa dag-
ana. Niu ungir menn sitja nú i
gæzluvarðhaldi vegna rann-
sókna á fíkniefnamálum sem
skipta má í þrennt.
Hálfþrítugur Keflvíkingur
var handtekinn á Keflavíkur-
Gripinn við komuna
til landsins með
hass í farangrinum
flugvelli i fyrradag við kom-
una til landsins og fannst
nokkurt magn af1 fíkniefnum í
fórum hans, að sögn Ásgeirs
Friðjónssonar, sakadómara í
ávana- og fikniefnamálum. í
gær var annar maður hand-
tekinn í tengslum við það mál.
Annar þessara manna hefur
áður komið við sögu ísienzkra
fíkniefnamála.
Starfsmenn fíkniefnadeild-
ar lögreglunnar í Reykjavík og
Sakadóms í ávana- og fíkni-
efnamálum unna sér nú vart
hvildar vegna rannsókna þess-
ara mála sem erfiðara verður
að skilja á milli.
Talsvert- magn fíkniefna
hefur verið gert upptækt að
undanförnu. Framboð á þeim í
Reykjavík er nú nær ekkert
eftir því sem DB hefur komizt
næst. -ÖV.
í kvöld er það ÁFRAM ÍSLAND! — sjá íþróttir