Dagblaðið - 21.05.1979, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR21. MAÍ 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Sigurður Grétarsson var vörn ísfirðinga hættulegur. Hér er hann í góðu færi, en ekki tókst að skora i þetta sinn.
DB-mynd Bjarnleifur
Þrenna Toshack
sökkti Skotunum
Wales vann Skotland 3-0 á laugardag
— Þrenna mín var sæt hefnd fyrir
okkur Walesbúa eftir hið sárgrætilcga
tap fyrir Skotunum á Anfield 1977,
þegar við töpuðum 0—2 fyrir þeim og
þeir komust í úrslit heimsmeistara-
keppninnar í Argentínu. — Við vorum
staðráðnir í að þurfa ekki að verða
fyrir vonbrigðum að nýju, sagði John
Toshack eftir hinn stórkostlega sigur
Walesbúanna yfir Skotunum í Cardiff
Englendingar þurftu ekki mikið að
hafa fyrir sigri sínum gegn N-Irum í
Belfast á laugardag í meistarakeppni
landsliða Bretlandseyja. Sigur þeirra
var allan tímann mjög öruggur þó
aðeins skoruðu þeir tvö mörk gegn
engu Iranna.
Englendingarnir, sem voru án sins
bezta manns, Kevin Keegan, keyrðu
hraðann strax upp í byrjun og á 9.
mínútu skoraði David Watson eftir
fyrirgjöf Steve Coppell. Á 16. mínútu
á laugardag. Sigur Wales er einn allra
bezti sigur velska landsliðsins frá upp-
hafi og framkvæmdastjóri liðsins,
Mike Smith, var i sjöunda himni.
Framkvæmdastjóri Skotanna, Jock
Stein, var þó ekki eins ánægður með
sína menn, eins og gefur að skilja, og
sagði: — Við vorum með mjög ungt og
óreynt lið og það kom okkur í koll. —
lék Terry McDermott, sem var í liðinu
fyrir Trevor Brooking, vörn N-lranna
sundur og saman áður en hann gaf á
Steve Coppell, sem þurfti aðeins að ýta
knettinum yftr marklinuna.
Englendingarnir réðu lögum og
lofum á vellinum og áttu að skora fleiri
mörk. í síðustu 14 leikjum hefur liðið
aðeins tapað einu sinni — fyrir
Hollandi 0—2 í fyrra og greinilegt er á
öllu að Ron Greenwood er að byggja
upp mjögsterkt lið.
Byrjunin í leiknum hjá okkur var slæm
og við náðum aldrei að komast yftr
hana.
Þetta eru vissulega orð að sönnu hjá
Stein því á meðal nýliðanna var Paul
Hegarty, miðvörður frá Hearts. Hann
réð bókstaflega ekkert við hinn
sispræka John Toshack og var grimmi-
lega refsað fyrir vikið.
Leikurinn var annars ekki svo ójafn,
en leikmenn Wales — öllu heldur
Toshack — nýttu tækifæri sin betur.
Það var Swansea-tríóið Toshack,
James og Curtis (sem reyndar er nú
kominn til Leeds fyrir 400.000
sterlingspund) sem átti allan heiður af
sigrinum.
Á 30. mínútu gaf James mjög laglega
á Toshack, sem skoraði fallegt mark.
Átta mínútum síðar bætti Toshack
öðru marki við og staðan var 2—0 í
hálfleik.
Rúmum tiu mínútum fyrir leikslok
fullkomnaði Toshack siðan þrennu
sina er hann skoraði gott mark með
skalla eftir góða fyrirgjöf Alan Curtis.
Þetta var fyrsta þrenna Toshack fyrir
Wales, en hann hefur leikið með liðinu
sl. 10 ár og skorað mikið, en aldrei
tekizt að skora þrennu fyrr en nú.
LETTUR SIGUR ENG-
LENDINGA YFIR ÍRUM
Ódýrir amerískir hjólbarðar
Sendum ípóstkröfu um allt land
E78x15 KR. 19.500 BR 78x13 KR. 16.600
G 78x15 KR. 21.500 615x13 KR. 16.500
H 78x15 KR. 23.600 700x13 KR. 15.600
L78x15 KR. 27.600 BR78x14 KR. 17.900
LRx15 KR. 31.500 GR 78x14 KR. 19.800
HR 70x15 KR. 29.200 H78x14 KR. 22.300
JRx15 KR. 29.800 B 78x14 KR. 16.900
GR 78 x 15 KR. 26.500 P205/70Rx14 KR. 22.800
HR 78x15 KR. 27.400 P205/75Rx14 KR. 21.800
SAMYANG HJÓLBARÐAR
615x13 KR. 13.750 135x14 KR. 22.950
560x13 KR. 14.350 E 78x14 KR. 23.650
590x13 KR. 15.450 560x15 KR. 17.750
A78x13 KR. 16.550 700x15 jeppa KR. 35.800
B 78x13 640x13 KR. 19.300 KR. 17.200 700x16 jeppa KR. 36.600
• Sólaðir hjólbarðar ávallt fyrirliggjandi
• Einnig margar aðrar gerðir hjólbarða
• Sannfærist með þvíað /eita tH okkar
Gúmmívinnustofan Skipholti35 Sími 31055
Marktækifæri
á færibandi
- þegar Breiðablik vann ísafjörð 3-0 í gær
Breiðablik vann í gær sinn fyrsta
sigur í 2. deildinni í ár er þeir lögðu
ísfirðinga að velli 3—0 á grasvellinum í
Kópavogi í góðu veðri. Breiðablik
hafði yfirhöndina allan leikinn og eftir
þvi sem á hann leið urðu yfirburðir
liðsins meiri og ekki hefði verið ósann-
gjarnt að lokatölur hefðu orðið a.m.k.
6—0.
Það var aðeins fyrri hluta fyrri hálf-
leiksins að eitthvert jafnræði var með
liðunum. Litið var um tækifæri og loks
þegar einhver hætta skapaðist i leikn-
um kom mark. Vignir Baldursson,
bezti maður vallarins, lék á fimm
ísfirðinga áður en hann gaf knöttinn
laglega inn í teiginn til Sigurðar
Grétarssonar. Sigurði tókst ekki betur
en svo að skot hans stefndi út af vellin-
um og í innkast þegar samherja hans
tókst að ná í knöttinn og senda hann
fyrir markið á ný og þá tókst Sigurði að
skora, 1—0 á 24. mínútu.
Fram undir lok hálfleiksins fengu
Blikarnir a.m.k. fimm færi til að skora
en tókst ekki. Þeim tókst reyndar að
skora eitt mark á lokasekúndu fyrri
hálfleiksins — Sigurjón Rannversson
skoraði þá gott mark, en ágætur
dómari leiksins Róbert Jónsson, var
búinn að flauta til leikhlés sekúndu
áður.
í síðari hálfleik var um nær stöðuga
sókn Blikanna að ræða. Þeir fengu ótal
tækifæri til að skora en tókst aðeins
tvívegis að nýta þau. Á 62. minútu gaf
Hákon Gunnarsson fallega sendingu
frá hægri inn i vítateiginn þar sem Þór
Hreiðarsson kom á fullri ferð, drap
boltann niður og sendi hann síðan með
þrumuskoti í netið, 2—0.
Síðasta mark Blikanna gerði
Sigurjón Rannversson á 78. minútu
með máttlausum skalla af örusttu færi
eftir gullfallega fyrirgjöf Sigurðar
Grétarssonar. Eftir þetta fengu Blik-
arnir enn færi til að auka muninn, en
tókst ekki.
ísfirðing^rnir eru nú ekki svipur hjá
sjón miðað við síðasta sumar, enda
hafa þeir misst mikinn mannskap —
5—6 fastamenn úr liðinu frá í fyrra.
Bezti maður liðsins var Örnólfur Odds-
son, en í heildina virkaði liðið úthalds-
lítið.
Blikarnir voru mjög sprækir, en
verða að nýta tækifæri sín betur en þeir
gerðu í þessum leik. Slík nýting getur
orðið þeim dýr er þeir lenda gegn sterk-
ari andstæðingum. í gær var Vignir
Baldursson yfirburðamaður i liðinu og
hefur geysilega skemmtilegt auga fyrir
spili. Þá var Sigurður Grétarsson stór-
hættulegur í sókninni en er dálítið villt-
ur. Annars virkaði liðið jafnt en vörnin
var ekki alltaf nógu sannfærandi.
-SSv-
Fernandez
PGA-meistari
Argentinumaðurinn Vicente Fern-
andez vann í gær brezku PGA
(Professional Golf Association) keppn-
ina, sem haldin var á St. Andrews vell-
inum í Skotlandi. Fernandez hefur
hingað til verið tiltölulega litt þekktur,
en hann lék 72 holurnar á pari vallarins
— 288 höggum.
í öðru sæti var einnig annar óþekkt-
ur kylfingur, Italinn Baldo Dassu, sem
lék á 289 höggum, og slikt hið sama
gerði einnig Gary Player frá S-Afríku.
Brian Barnes frá Englandi varð í 3.—4.
sæti ásamt Gordon Brand, samlanda
sínum, á 290 höggum.
Ray Floyd og Andy North, báðir frá
USA, komu næstir á 291 höggi og slíkt
hið sama gerðu Pip Elson ogDes Smyth
frá írlandi. Spánverjinn Sveriana Balle-
steros frá Spáni og Greg Norman frá
Ástralíu léku báðir á 292 höggum og á
eftir þessum komu margir frægir, t.d.
Peter OOsterhuis, Nick Faldo, Brian
Huggett og John Fourie frá S-Afriku.
SIGURINN K0M Á
ELLEFTU STUNDU
Fylkir skoraöi tvö mörk á þremur
mínútum og vann Þrótt NK. 2-1
Fylkismenn héldu áhangendum
sínum svo sannarlega á milli vonar og
ótta eins lengi og þeir gátu í leiknum
gegn Þrótti, Neskaupsstað á laugar-
daginn á Melavellinum. Þeim tókst að
vísu að sigra í leiknum — 2—1, en ekki
var sá sigur með neinum glæsibrag.
Þróttur leiddi I—0 í hálfleik.
Þróttur lék á móti vindinum í fyrri
hálfleik og tókst þá að skora eina mark
sitt. Var þar Sigurður Friðjónsson að
verki eftir laglegan undirbúning.
Þróttarar, með Sigurberg Sigsteinsson í
vörninni, voru betri aðilinn í fyrri hálf-
leiknum og þá fór Sigurður illa með
upplagt færi, sem hefði fært liði hans
dýrmæta tveggja marka forystu.
í síðari hálfleik sóttu Fylkismenn
gegn vindinum og höfðu tögl og hagldir
án þess að geta skapað sér nokkur veru-
leg færi. Bezta færi hálfleiksins — ef
ekki í öllum leiknum — fékk hins vegar
einn framherja Þróttar, sem komst í
algert dauðafæri á 62. mínútu. Skot
hans var eins fjarri þvi að hitta markið
og mögulegt var. Fylkismenn komu æ
meira inn í myndina en gekk illa að
skapa sér færi. Loks á 83. mínútu tók
Kristinn Guðmundsson aukaspymu og
gaf vel fyrir markið þar sem Ómar
Egilsson skallaði í netið. Þar átti mark-
vörðurinn að gripa inn í.
Réttum tveimur mínútum siðar
skoraði Grettir Gíslason sigurmark
Fylkis, eftir mikinn darraðardans í
markteignum. Fylkismenn fögnuðu að
vonum mjög í leikslok, en Þróttarar
voru vonsviknir eftir að hafa gloprað
sigrinum úr höndum sér á lokaminút-
unum.
Fylkisliðið hefur valdið miklum von-
brigðum í fyrstu tveimur leikjum sinum
og liðið virðist allt annað en liklegt til
afreka i sumar.
Þróttur verður heldur ekki neitt
afrekslið, en þeir berjast vel strákarnir
og á meðan svo er halar liðið alltaf inn
stig.
SSv.
ÖRUGGUR SIGUR
FHYFIRREYNI
FH vann afar sannfærandi sigur á
Reyni, Sandgerði, er liðin mættust á
föstudagskvöldið i Sandgerði. Loka-
tölur urðu 2—0 eftir að staðan í hálf-
leik hafði veriö 1—0.
FH hafði undirtökin lengst af í leikn-
um og sigurinn var fyllilega verðskuld-
aður. Fyrra markið skoraði Þórir Jóns-
son með miklu skoti af um 25—30
metra færi, sem söng í netmöskvum
Reynismarksins.
I síðari hálfleiknum bætti FH öðru
marki við. Janus Guðlaugsson skoraði
þá með gullfallegri hjólhestaspyrnu í
vítateignum eftir að knötturinn hafði
þvælzt um teiginn.
Reynismenn virkuðu frekar daufir í
þessum leik og greinilegt er að liðið er
ekki eins sterkt og það var i fyrra. Þá
lék liðið mjög góða knattspyrnu —
einkum síðari hluta sumarsins. FH-ing-
arnir verða greinilega í toppformi í
sumar og eru ákaflega líklegir sigur-
vegarar í 2. deildinni.