Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 28
28 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979. Það skemmtilegas ta sem ég veit, er: Að spinna hörá rokk útiísólinni —segir Barbo Gardberg, sem sýnir skuggavef og skrautbönd í Norræna húsinu til áramóta Veljið vandað „Níu rauðir mynsturþræðir, tvo upp!” Geturðu bjargað mér, ég er búin að slita. . . ” ,,Det er lidt mere besvSrligt. . . ” í litlum sal í Norræna húsinu sitja nokkrar konur og hamast við að þræða garn í vefgrindur. Þær eru svo niður- sokknar í iðju sína að þær taka litið eftir því þótt blaðamaður og Ijósmynd- ari séu aðsniglast kringum þær. Smávaxin sænskumælandi kona gengur á milli þeirra og segir þeim til. Til að hægara sé að halda þráðunum fóstum notar hún óspart krep-límband, líkt því sem málarar brúka. Þótti þeim íslensku það hálfgert guðlast í fyrstu, en það reyndist mjög þægilegt. „Þetta getur maður kallað klistrað!” hrópar ein. Hittast með rokka og kamba Það eru vefnaðarkennarar sem hér eru i læri hjá finnskri vcfkonu, Barbro Gardberg. Hún er nteð sýningu á skuggavefnaði úr hör og ofnum skraut- böndunt i Norræna húsinu út þennan mánuð og úr því hún var hingað komin datt Sigríði Halldórsdóltur, formanni vefnaðarkcnnarafélagsins, í hug að fá hana til að halda námskeið i banda- vefnaði og væri synd að segja að það hefði ekki lukkast vel. Áhuginn á vefnaði, þessari fornu kvennalist, hefur aukist mikið upp á siðkastið. Það er nánast komið i tísku Skartgriposkrín í úrvalifrú kr. 4.750.- Silfurplett bakkar frú kr. 8.300,- KORNELiUS JÖNSSON Skólavörðustíg 8, stmi 18588 ÚROSKART Bankastræti 6, Sími 18600 komst hún að því að í þessum grindum höfðu verið ofin skrautbönd með mynstrum sem virtust hafa geymst aftan úr forneskju. En þessi list var nú að mestu týnd en Barbro tókst að finna út hvernig grindunum hafði verið beitt — og er nú að verða vinsæll fyrirlesari á þessu sviði (og verður til dæmis hægt að hlusta á hana í Norræna húsinu á þriðjudaginn kemur kl. fimm). Skuggavefnaður úr hör í laugardagsblaði DB 8. des. skrifar Aðalsteinn Ingólfsson um bönd Barbro Gardberg en því má bæta við að áþekk bönd hafa þekkst hér á landi en líklega verið fótofin. Vefarinn notaði þá engin áhöld nema fingurna og brá uppistöðunni undir il sér. „Bandavefnaður er einmitt svo þægilegur því hann tekur svo litið pláss,” sagði Barbro. „Hann hentar vel við sjúkrasæng.” Barbro Gardberg með fléttu af hör i höndunum en kríngum hana hanga hespur af hör. En mest þykir henni gaman að vefa stærri myndir úr hör og eru margar þeirra til sýnis í Norræna húsinu nú. Þær hanga ofan úr loftinu og þegar blærinn andar þeim til og frá leika Ijós og skuggar í þessu grófgerða neti sem minnir á kóngulóarvef. Það er unun á að horfa. íslensku vefnaðarkennararn- ir voru fljótir að finna nafn á fyrir- bærið og kalla það „skuggavefnað” sem er vel við hæfi. Mikið af hörnum spinnur hún sjálf. „Ég veit ekkert skemmtilegra en sitja úti á sumrin og spinna hör á rokk,” segir hún. Við hörmum að íslenska veðráttan kemur í veg fyrir að það geti orðið algeng sjón hér á landi að konur sitji utandyra við að spinna ull! Eins og það mundi nú lífga upp á landslagið. Var f yrst matvælafræðingur Í nútímnþjóðfélagi, þar sem lifað er á leifturhraða — hvað sem segja má um sóknina — eru það ekki nema einstaka manneskjur sem hafa tima til að grúska i gömlum vinnubrögðum. Barbro Gardberg er ein af þessum fáu og lenti í því fyrir slysni. Hún hafði fram að fertugu verið matvælaefnafræðingur en svo óheppilega vildi til að atvinnu- rekandi. hennar framkvæmdi meiri- háttar hagræðingu á fyrirtækinu og Vefnaðarkennarar aö vefa rósabönd meö fornri aðferð. Fremst á myndinni sitja Steinunn Pálsdóttir (Lv.) og Sigurlaug Jóhannsdóttir en kríngum þær standa frá vinstrí Svanborg Sæmundsdóttir, Dagný Sighvatsdóttir, Elinbjört Jónsdóttir og Jakobina Guðmundsdóttir. að fá sér vefstól, og meira en það, margar konur eru farnar að æfa sig i gömlum tóvinnubrögðum. Sigríður segir að vefnaðarkennarar hittist nú annan hvern laugardagsmorgun með rokka, kamba og uöarreyfi til að spinna. Þær vandlátustu nota ekki nema kviðarull sem til dæmis má finna á gaddavir þar sem blessaðar skepnurnar hafa misst hana af sér við að skriða yfir! henni var sagt upp. Um sama leyti veiktust foreldrar hennar og hún sneri sér alfarið að því að hjúkra þeim. En faðir hennar hafði verið sagn- fræðingur og á rannsóknarferðum sínum hafði hann fundið sérkennilega vefgrind sem enginn vissi hvernig átti að nota. Barbro hafði gaman af að fást við vefnað, þótt hún hefði aldrei lært hann nema af sjálfri sér, og nú fór hún að grúska í þessu. Og eftir langa mæðu NÝ LEIKFANGAVERSLUN k)K) AUSTURSTRÆTI 8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.