Dagblaðið - 24.04.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 24.04.1981, Blaðsíða 3
Messur. l.sstasötn Sýningar DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1981. SIGRUN JÓNSDÓTTIR Sýninghelgarínnar: PÚLIÐ MÁ ALLS EKKISIÁST segir Eiríkur Smith sem opnaði sýningu að Kjarvalsstöðum á sumardaginn fyrsta Það var ekki á Eiríki Smith listmál- ara að sjá að hann væri i þann mund að ganga i gegnum hinn mikla hreins- unareld myndlistarmanna, einkasýn- inguna, og það sina fyrstu í fimm ár. Hann hringaði sig makindalega i stól á kaffistofu Kjarvalsstaða, saug pípustert og sleikti sólskinið. Þó voru ekki nema tveir dagar til stefnu og enn var eftir að mála veggi í sýningar- salnum. 1 ofanálag viðurkenndi Eiríkur að hann vissi ekki hve margar myndir yrðu til sýnis, það yrði upp- hengingin að skera úr um.'En sumar- daginn fyrsta (i gær) áttí að opna hvað sem tautaði og raulaði. En þótt Eiríkur Smith mundi örugglega teljast meöal hinna fleg- matisku i lifínu þá hefur hann alla tið unnið af mikilli seiglu og stefnufestu, er i sifelldri sókn i þeirri gerð mál- verks sem hann hefur komið sér niður á. En hefur hann engar áhyggj- ur af sýningum? Engan skjálfta yf ir sýningum „Veistu það,” segir Eiríkur og virðist eiginlega undrandi á sjálfum sér, „ég hef eiginlega aldrei verið með skjálfta yfir sýningarstússi, svo lengi sem ég man eftir mér i þessum bransa. Og nú er ég lika kominn yfir það að hafa áhyggjur af gagnrýni. Það er dáldið merltílegur áfangi.” Um stund er listamaðurinn hulinn reykskýi. ,,Það þýðir ekki að ég sé ekki glaður ef einhverjir kunna aö meta það sem ég er að gera. Hins vegar hafa menn fullt leyfi til að láta sér mislika min handverk. Það er alveg þeirra mál og angrar mig ekki. Ætli þettamundi ekki flokkast undir sjálfs traust? Jú, auðvitað er ég sáttur við Ein stór og mikil mynd, táknræn fyrir hinn nýja stil Eirfks. (DB-myndir Sig. Þorri). það sem ég er að gera þótt ég sé aldrei fullkomlega ánægður með neina mynd. Samt held ég öllum undan- komuleiðum opnum. Ég vil ekki sitja blýfastur og heilaþveginn á sömu hill- unni, eins og i afstraktínu hér i gamla daga.” Landslagið kallaði Eirikur dæsir og hristir höfuðið. „Drottínn minn dýri, það var nú ljóta ástandið á manni. Þegar ég söðlaði um, úr afstrakti yfir í ein- hvers konar raunsæi, þá fann ég að ég var búinn að missa alla tíifinningu fyrir dýpt í málverki. Þó vil ég ekki áfellast afstraktið eins og það leggur sig. Ég gætí ve) trúað að margar myndir mínar I þeim dúr standi enn fyrir sínu. En menn verða að vinna að þv! heilshugar. Landslagið kallaði alltaf á mig og þaö kemur lika fram I afstraktverkunum. ” Við minnum listamanninn á vel- gengni hans undanfarin ár og þá staðreynd að margar sýningar hans hafa næstum því selst upp. „Jú, auðvitað er ég ánægður. Siðastliðin tiu ár eöa svo hef ég getað lifað alveg á málverkinu. Upphaflega lærði ég prentiðn þar sem ég hélt að listamenn yrðu alltaf að vinna fyrir sér með öðrum hættí en með list- inni.” Létt og leikandi Vatnslitamyndir Eiriks hafa átt sérstökum vinsældum að fagna og það er eins og léttleiki þeirra og fin- gerðir tónar hafi haft áhrif á oliumál- verk listamannsins. „Jahá,” segir hann og klórar sér i kollinum. „Það er sennilega talsvert til i þessu. Áður var maður með það á heilanum aö hlaða nógu andskoti miklum lit á strigann. Nú finnst mér Eirikur Smith — „Held öllum undan- komuleiðum opnum.” að myndir eigi helst að vera léttar og leikandi i útliti þótt þær hafi kannski kostað mikið púl. Púlið má alls ekki sjást. Þetta þýðir alls ekki að inntak- ið þurfi að vera léttvægt.” Eirikur og nokkrir aðrir listmálar- 'ar úr Hafnarfirði eru gjarnan spyrtir saman undir samheitinu „Hafnar- fjarðarraunsæið”. Finnst honum þetta réttmætt? „Þetta eru nú ýkjur. Ég lít t.d. alls ekki á sjálfan mig sem harðan raun- sæismálara. Ég hef nefnilega gaman af vissum tviskinnungi, að tefla saman raunsæinu og einhverjum annarlegum fyrirbærum, svona tíl að stinga á öllu saman. Ætli þetta sé dulið vantraust á raunsæið? Það skyldi þó aldrei vera.” Og Eiriki Smith er skemmt yfir þeim möguleika. -Al. GALLERl LANGBRÓK, Amtmannsstíg 1: Edda Jónsdóttir, ný grafík og teikningar. Opnar laugardag. Opið 12— 18 alla daga. ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74: Ný sýning á verkum Ásgrims. Opið fimmtud., laugard. og þriðjud. kl. 13.30-16. GALLERÍ KIRKJUMUNIR; Kírkjustræti 10: Sigrún Jónsdóttir, batík, kirkjumunir o.fl. Opið 9—18 virka daga, 9—16 um helgar. HÖGGMYNDASAFN Ásmundar Sveinssonan Opið þríðjud., fimmtud., laugard. ogsunnud. kl. 13.30—16. Eirlkur Smith listmálarí er vtðkunnur fyrir myndir sinar. Sýning hans stendur nú yfir að Kjarvalsstöðum. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna- og fjölskyldu- samkoma i safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10:301 árd. Altarisgönguathöfn fyrir fermingarbörn og vandamenn þeirra i safnaöarheimilinu sunnudags- kvöld kl. hálfniu. Sr. Guðmundur Þorteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1 kl. 2.1 Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Messa i Bústaða- kirkju kl. 10.30 árd. Ferming og altarisganga. Organisti Daníel Jónasson. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guösþjónusta kl. 2. Dr. Esra Pétursson flytur stólræðu og leiðir umræður eftir messu. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma kl. 11 i Safnaðarheimili við Bjarnhólastíg. Fermingarguðs- þjónustur kl. 11 árd. og kl. 2 siðd. Sr. Þorbergui Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Kl. 11 og kl. 2 eru fermingarmess- ur og altarisgöngur úr Fella- og Hólasókn. Sr. Hreinn Hjartarson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl. 10 i umsjá sr. Áma Bcrgs Sigurbjörnssonar. FELLA- OG HOLAPRESTAKALL: Uugard.: Bamasamkoma i Hólabrekkuskóla kl. 2. Sunnud.:: Bamasamkoma i Fellaskóla kl. 11 árd. Ferming og altarisganga i Dómkirkjunni kl. 11 f.h. og kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Guösþjónusta kl. 2. Organ- leikarí Jón G. Þórarínsson. Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrímsklrkja: Messa kl. 11. Ferming. Sóknar- prestar. Þriðjud. 28. april: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Kirkjuskóli bamanna er á laugardag kl. 2 i gömlu kirkjunni. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigur- bjömsson. HÁTEIGSKIRKJA: Bamaguðsþjónusta kl. 11 árd. Sr. Arngrímur Jónsson. Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma i Kárs- nesskólakl. 11 árd. Sr. Ámi Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Söngur, sögur, myndir. Veriö velkomin. Guösþjón- ustan kl. 2 fellur niður. Sóknamefndin. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugard. 25. aprU: Guðsþjónusta að Hátúni lOb, niundu hæð kl. 11 árd. Sunnud. 26. april: Barnaguösþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Þríöjud. 28. april. Bænaguðsþjónusta kl. 18. Sóknarprestur: NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjón- usta kl. 2. Gisli Helgason leikur á flautu. Kirkju- kaffi. Sr. Guðmundur óskar Ólafsson. SELJASÓKN: Barnaguðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 10.30. Bamaguösþjónusta i ölduselsskóla ld. 10.30. Guðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 2. Sóknar- prestur. SELTJARNARNESSÓKN: Barnasamkoma kl. 11 árd. í Félagshcimilinu. Sr. Frank M. Halldórsson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Messa kl. 2. Organ- leikar Sigurður ísólfsson. Prestur dr. Einar Sigur- björnsson prófessor. Einar Þorlákssoa opnar sýningu i kjaHara Norræna hússins i laugardaginn. Hér er eitt af eldri máiverkum Einars: SVNÍNG A ÍSAHRGII HÓVEMföR !). Edda Jónsdóttir c laugardag. r sýningu f Gallerí Langbrók á Edda opnar sýningu Um helgina opnar Edda Jónsdóttir litla sýningu i |Gallerí Langbrók við Amtmannsstíg i Reykjavík. Sýningin samanstendur af collagc myndum og klipptri og fléttaðri graflk. i Edda stundaði nám viö báða myndlistarskólana i Reykjavik og Rikisakademiuna i Amsterdam. Hún hefur haldiö tvær einkasýnignar og tekiö þátt í fjöl- mörgum sýningum viða um heim. Sýningin veröur opin virka daga frá kl. 12—18 og umhelgar frákl. 14—18. Sýningunni lýkur ll.maí. Háskólafyrirlestur Heimir Áskelsson, dósent i ensku, flytur opinberan fyrirlestur á vegum heimspekideildar Háskóla íslands laugardaginn 25. april 1981 kl. 15.00 i stofu 101 i Lögbergi. Fyrírlesturínn nefnist „Um ensk-islenzka orða- bók” og er hinn siðasti af fjórum fyrírlestrum sem kennarar heimspekideildar flytja nú á vormisseri um rannsóknir og fræði i dcildinni. ÖOum cr heimill aögangur. Málþing Félag sálfræðinema við Háskóla íslands heldur mál- þing laugardaginn 25. apríl kl. 14 i Norræna húsinu. Umræðuefni þingsins verður Sjúkdómshugtakið: Merking þess, notkun og takmarkanir i geðlæknis- og sálarfræöi. Frummælendur eru dr. Eiríkur örn Arnarson sálfræðingur, Jakob Jónasson geð- læknir, Oddur Bjarnason læknir, dr. PáU Skúlason prófcssor og Sigurjón Björnsson prófessor. Að loknum erindum verða frjálsar umræöur. Ungur myndnstarmaóar, Asgeir Einarsson, slna fyrstu sýningu i Djápinu þessa dagana. DJÚPIÐ, Hafnarstrcti (Horniðh Ásgeir Einarsson. málverk og teikningar. Opiö 11 —23.30 alla daga. GALLERÍ SUÐURGATA 7: Kanal 2,danskir mynd listarmenn. Opnar laugardag. Opiö 16—20 virka daga, 14—20 um helgar. LISTMUNAHÚSIÐ, Lækjargötu 2: Engin sýning um helgina. ÁRBÆJARSAFN: Opið samkv. umtali. Slmi 84412 frá 9—10 alla virka daga. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ v. Suðurgötu: Opiö þriöjud., fimmtud. laugard. og sunnud. kl. 13.30—16. Boga- salur: Sigurður Þorsteinsson gullsmiður. Opið apríl- sept. á sama tima og safniö. TORFAN, veitingahús: Messíana Tómasdóttir, leik- myndir. GALLERÍ GUÐMUNDAR; Bergstaðastræti 15: iKristján Guðmundsson, ný málverk. Weissauer, ný grafík. Opið 14—18 alla virka daga. MOKKA-KAFFI, Skólavörðustíg: Gunnlaugur John- son, teikningar. Opið 9—23.30, alla daga. LISTASAFN Einars Jónssonar, Skólavörðuholti: Opið miðvikud. og laugard. kl. 13.30—16. LISTASAFN Íslands: Málverk, teikningar, skúlptúr og grafík eftir innlenda og erlenda listamenn. Anddyri: Grafíkgjafir til Listasafnsins. LISTASAFN alþýðu, Grcnsásvegi 16: Textílfélagið, félagssýning. Opin 14—22 alla daga til 26. april. KJARVALSSTAÐIR: Vestursalun Myndlist nor- rænna kvenna. Lýkur 26. apríl. Austursalur: Eiríkur Smith, ný málverk. Opnaði fyrsta sumardag. Opið 14—22 alla daga (Sjá viðtal). ÁSMUNDARSALUR v. Freyjugötu: Sýning á kúbönskum Ijósmyndum, plakötum o.fl Opið 16—22. KRISTJÁN SIGGEIRSSON, verzlun, Laugavegi 13: Sigrún Gisladóttir, klippimyndir. Opið á venjul.vcrzl- unartíma til 25. april. STÚDENTAKJALLARINN v. Hringbraut: Ingibjörg V. Friðbjörnsdóttir, vatnslitamyndir og olíu- málverk. Opin alla daga kl. 11—23.30. Lýkur 30. april. NÝLISTARSAFNIÐ, Vatnsstíg 3b: Birgir Andrés- son, ný verk. Opið 20—22 virka daga, 14—20 um helgar. Lýkur 2. mai. FRÍKIRKJUVEGUR 11: KetiU Larsen, stef frá öðrum heimi. Lýkur 25. april. Opið 14—22 alla daga. EDEN, Hveragerðl: Magnús Guðnason, oliu- málverk. Sýning Textílfélagsins 1 Listasafni alþýðu hefur vakið mikla athygtt. Hér er einn sýnenda, Steinunn Pálsdótt- ir, ásamt einu verkL NORRÆNA HÚSID: Einar Þorláksson, málverk. Opnar laugardag kl. 15. Opin 14—22 alla daga. STÚDÍÓ 5, Skólastræti: Ingi Hrafn, teikningar og skúlptúrar. Opið virka daga kl. 16—22, 14—22 um helgar. Lýkur 26. apríl. EDDA JÓNSDÓTTIR Fyrirlestrar

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.