Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAl 1981. II Myndlist NýlögfráAlþingi: LOKAÐ FYRIR KEÐJUTÉKKA —og 2425 milljón króna skattur á verzlunar- og skrifstofu- húsnæði Þrjú frurnvörp voru í gær afgreidd sem lög frá Alþingi. Var þar í fyrsta lagi um þreytingu á lögum um tékka að ræða, í öðru lagi frumvarp um sérstak- an skatt á verzlunar- og skrifstofuhús- næði og í þriðja lagi frumvarp um Norðurlandasamning um félagslegt öryggi. Breytingin á tékkalögunum kveðurá um lögleiðingu skjalalausra greiðslu- skipta. Skjalalaus greiðsluskipti hafa mjög rutt sér til rúms m.a. í Dan- mörku. í hugtakinu felst, að banki eða sparisjóður, sem tekur við tékka á annan banka eða sparisjóð, sendir greiðslujöfnunarstöð (hér Reiknistofn- "un bankanna) símleiðis færslu í vél- tæku formi til þess að stöðin geti bókað tékkann á viðskiptareikning viðkom- andi reikningshafa. Tékkinn sjálfur er hins vegar geymdur á afgreiðslustað ásamt öðrum bókhaldsgögnum. Samkvæmt áður gildandi lögum þurfti reiknistofnunin að fá tékkana senda til að lögleg bókun færi fram. Var það mikið óhagræði fyrir fjarlæga banka. Með hinum nýju lögum er loku fyrir það skotið að hægt sé að stunda ákveðna tékkakeðjumyndum, sém um árabil hafði verið reynt að uppræta. Skattur á skrifstofu- og verzlunar- húsnæði er nú framlengdur þriðja árið í röð. Er frumvarpið efnislega sam- hljóða samskonar frumvarpi frá í Þjóðhagsstofnun spáir að þjóðar- framleiðslan vaxi ekkert í ár frá fyrra ári. Horfur eru á, að þjóðartekjur standi nokkurn veginn í stað þriðja árið i röð. , ,Áhrif af þessu gætu farið að koma í ljós í minnkandi umsvifum í ýmsum at- vinnugreinum, þótt það yrði líklega ekki fyrr en seint á árinu,” segir í spánni. Viðskiptakjör við útlönd gætu orðið lítilsháttar'lakari í ár en á síðasta ári. Miðað við, að einkaneyzla aukist sem nemur fólksfjölgun og fjármunamynd- un dragist saman um rúmlega 4 pró- sent, má gera ráð fyrir, að halli á fyrra. Á fjárlögum er gert ráð fyrir að skattur þessi nemi í álagningu 2425 milljónum króna. -A.St. viðskiptum við útlönd verði svipaður og á árinu 1980 sem hlutfall af fram- leiðslunni. Atvinnuástand gæti slakn- að nokkuð, sem meðal annars gæti komið fram í styttri vinnutíma en áður, segir stofnunin, en einnig má gera ráð fyrir, að ýmis svæðisbundin vandamál muni gera vart við sig í auknum mæli. Eins og nú horfir er þó ekki útlit fyrir, að almennt muni draga úr atvinnu á næstumánuðum. Þjóðhagsstofnun segir, að án frekari aðgerða sé ljóst, að verðbólgan í ár verði vart minni en sem svarar 45—50 prósentum. -HH Spá Þjóðhagsstof nunar: Enn standa þjóðar- tekjumar í stað Eiríkur Smith - í myndlistargrein um Eirfk Smith listmálara sem birtist i gær, virðist allt umbrot hafa farið úrskeiðis og greinin þvi litt skiijanleg. Umræddur kafli á að hljóða svona: Mér sýnist þó að svarið sé að finna í verkunum sjálfum. í þeim fara nefni- lega saman ýmsir þeir þættir sem við íslendingar höfum löngum verið veikir fyrir. Við leggjum mikið upp úr tiltölu- lega raunsæjum staðarlýsingum en kunnum þó vel að meta ljóðræna innlifun listamannsins og alla dulúð tengda landslagi — enda segir barna- trúin okkur að álfar og vættir búi í hverjum hól. Þar að auki finnunj við stðku sinnum fyrir sektarkennd varð- andi fortíðina sem við svo skyndilega hristum af okkur til að gerast þátt- takendur í tuttugustu öldinni. Því er eins og öll gömul minni úr sveitum eða af sjávarsíðunni hitti okkur beint í hjartastað, gamlir' bátar, gömul amboð, hús að falli komin. Og þessu tekst Eiríki að koma til skila með þeirri fáguðu tækni sem hann hefur verið að þróa með sér undanfarinn áratug. Hér er ekki verið að gefa í skyn að Eiríkur hafi komið sér upp óbrigðuli sölufor- múlu. Sem væri út af fyrir sig talsvert afrek. Þau verk sem hann sýnir nú eru afleiðing margra ára tilrauna og heilabrota, bæði um tækni og inntak, eftir rúman áratug úti í kulda afstrak- sjónarinnar. Efist nokkur um heil- indi listamannsins skal honum bent á nýlegt viðtal í Lesbók Mbl. Björn Hermannsson flugvirki vill ekki nafngreina „grunaðan” starfsmann Sjálfstæðisf lokksins: „Fullyrðing Bjðrns rakalaus ósannindi” — nema hann tilgreini við hverja hann áf segir Kjartan Gunnarsson f ramkvæmdastjóri sjálfstæðismanna „Ég veit ekki til þess að fastráðnir starfsmenn flokksins hafi á neinn hátt misnotað aðstöðu sína vegna for- mannskosninga í Heimdalli,” sagði Kjartan Gunnarsson framkvæmda- Jón Magnússon formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna vill koma á framfæri athugasemd vegna „ummæla í Dagblaðinu um formannskjör í Heim- dalli, þar sem vitnað er til mín sérstak- lega.” Ummælin sem Jón vitnar til eru í viðtali við Árna Sigfússon blaðamann í briðiudagsblaðinu: stjóri Sjálfstæðisflokksins um ummæli sem höfð eru eftir Birni Hermannssyni flugvirkja í Dagblaðinu á þriðju- daginn. Björn er frambjóðandi til for- mannskjörs í Heimdalli á aðalfundi „Lengi vel var ekki vitað um önnur framboð til formanns (þ.e. framboð Árna til formanns í Heimdalli og Gunnlaugs Snædals til varaformanns; athugasemd DB) og Jón Magnússon formaður SUS sagði að við Gunnlaug- ur værum þeir sem hann teldi að hægt væri að násamkomulagi um.” Athugasemd Jóns Magnússonar er svohljóðandi: næstkomandi sunnudag. ! DB-við- talinu segir hann orðrétt: „Þvi er ekki að neita að framboðið mitt hefur vakið hörð viðbrögð. Sögur eru settar af stað sem ég m.a. gruna ákveðinn starfsmann Sjálfstæðis- flokksins um að hafa komið á kreik. ” „Ef Björn tilgreinir ekki við hvern eða hverja hann á þá ber að taka full- yrðingu hans sem rakalaus ósannindi. Átta til tíu starfsmenn flokksins liggja þá undir grun á meðan,” sagði Kjartan Gunnarsson. Þá hafði blaðið samband við Björn Hermannsson flugvirkja og innti hann nánar eftir við hvern hann ætti af starfsmönnum sjálfstæðismanna I fyrr- greindum ummælum. „Ég tel ekki rétt að upplýsa það enn sem komið er en til þess kann að koma fljótlega,” sagði Björn. -ARH. Jón Magnússon formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna: HEF HEITIÐ HVORUGUM FRAMBJÓDANDA STUDNINGI — íformannskosningum f Heimdalli t.d. þessir tveir, sem hér roga fiskkössunum i land. DB-mynd: RagnarSig., Vestm. Vestmannaeyjar: Mjög góður af li í öll veiðarfæri — þorskveiðibann tekur gildi hjá vertíðarbátum á morgun í gær var landlega hjá Eyjabátum og hefur svo verið frá því á sunnu- dag. Nokkrir netabátar hafa rétt skotizt út en ekki fengið næði vegna brælu. Annars hafa gæftir verið mjög góðar frá því í endaðan marz og vart fallið út dagur; mjög góður afli i öll veiðarfæri. Aflahæstur netabáta er Þórunn Sveinsdóttir með 1435 tonn. Suðurey er næst með 1392 tonn og Glófaxi í þriðja sæti með 1220 tonn. Valdimar Sveinsson, Álfsey, Gjafar og Gandí eru allir komnir með yfir þúsund tonn. Þá hafa trollbátar einnig aflað mjög vel og er Freyja þeirra afla- hæstur með yfir 800 tonn. Mikil atvinna hefur verið i landi við vinnslu aflans. Fjölmargir sem ekki hafa fiskinn að aðalatvinnu, hafa brugðið sér í slorið, bæði til að bjarga verðmætum og eins til að ná sér í skjótfenginn gróða. Nú sér fyrir endann á þessari hrotu því þorskveiðibann tekur gildi á morgun, föstudag, hjá vertíðarbát- um. -FÓV, Vestmannaeyjum. leiðrétting 1 leit sinni hefur Eiríkur borið niður víða, t.d. í ljóðrænu raunsæi Wyeths, kannski í súrrealisma og nýju bandarísku raunsæi, en þar sem honum tekst bezt upp, í myndum eins og Farfuglar (nr. 48), Að kvöldi skal dag lofa (nr. 35) og Á sandinum (nr. 42), — svo nefndar séu nokkrar metnaðarfyllstu myndir Eiriks, — er tónninn hans eigin og jafnframt islenzkastur. „Ég hef ekki hvatt þá frambjóð- endur sem nú eru í kjöri til að gefa kost á sér né heitið öðrum stuðningi fram undir þetta. Mér fannst æskilegt að náð yrði sam- komulagi um formannsmál í Heimdalli með tilliti til þess ástands sem ríkir í Sjálfstæðisflokknum. í því skyni átti ég viðræður við ýmsa Heimdellinga fyrr í vetur og nú upp á síðkastið þá Árna Sigfússon og Björn Hermanns- son. f formannskosningum í Heimdalli getur aðeins annar sigrað. Óumdeilan- lega eru tveir mjög hæfír menn í fram- boði og ungliðahreyfing Sjálfstæðis- flokksins þarf á starfskröftum þeirra Jón Magnússon: Tveir mjög færir aðhalda.” menn f framboði i Heimdalli. -ARH. Kjartan Gunnarsson: Átta til tiu starfs- menn flokksins liggja undir grun. ATLI RUNAR HALLDÓRSSOIV

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.