Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1972, Blaðsíða 169
I'INNBOGI GUÐMUNDSSON
MERK GJÖF VESTAN UM HAF
MÉr ER það mikil ánægja að veita viðtöku til varðveizlu í Landsbókasafni íslands
filmum þeim, er Skúli Jóhannsson, forseti Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi,
hefur í dag afhent dr. Kristjáni Eldjárn, forseta íslands, sem gjöf frá félaginu til
íslenzku þjóðarinnar.
Þjóðræknisfélagið hefur fyrir atbeina Grettis Jóhannssonar aðalræðismanns í
Winnipeg og í samvinnu við Fylkisskjalasafn Manitoba og bókasafn Manitobaháskóla
stofnað til þessarar gjafar í minningu þess, að senn - eða árið 1975 - verður liðin
öld frá því er Islendingar settust varanlega að í Manitoba.
A spólum þeim, 71 að tölu, sem hér hafa verið afhentar og eru einungis upphaf,
því að von er á framhaldi síðar, eru (eins og fram hefur komið) blöðin:
Framfari, 1.-2. árg., Lundi 1877-80
Leifur, 1.-3. árg., Winnipeg 1883-86
Heimskringla, 1.-73. árg., Winnipeg 1886-1959
Lögberg, 1.-72. árg., Winnipeg 1888-1959
Öldin, 1. árg. (5.-21. tbl.), Winnipeg 1891-92
Almanak Ólafs Thorgeirssonar, 1.-60. árg., Winnipeg 1894-1954
Baldur, 1.-3. árg., Gimli 1903-10
Gimlungur, 1.-2. árg., Gimli 1910-11
Voröld, 1.-4. árg., Winnipeg 1918-21
Tímarit Þjóðræknisfélags Islendinga, 1.—50. árg.,
Winnipeg 1919—1969
Lögberg-Heimskringla, 74.-84. árg.
(Framhald af Heimskringlu og Lögbergi), Winnipeg 1959-1970
I fyrsta eintaki hins merka blaðs Framfara, er hóf göngu sína að Lundi í Fljóts-
byggð á vegum Prentfélags Nýja íslands 10. september 1877, segir í ávarpi til kaup-
enda og lesenda blaðsins svo m. a.:
„Strax og íslendingar fóru að flytja til heimsálfu þessarar að mun, fór að hreyfa
sér meðal þeirra ótti fyrir því, að þeir mundu týna tungu sinni og þjóðerni hér, nema
þeir gjörðu eitthvað sérstakt til að viðhalda því. Heíir þeim ætíð komið saman um,
að tvennt væri nauðsynlegt til að viðhalda þessu dýrmæta erfða fé sínu. Annað var,
að íslendingar mynduðu nýlendu útaf fyrir sig, en hitt, að hér í Ameríku væri gefið út