Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 55
HUGDILLA GUNNARS PÁLSSONAR
55
Árið 1757 var prentað á Hólum dálítið kver með ógnar löngum
titli: Ein Lijtil Psalma og Visna Book. Fyrre Parturenn Innehelldur
Gooda og Gudrekelega Psalma, Sem brwkast kunna aa Imsum Arsens
Tijdum og i Adskiliannlegum Tilfellum Mannlegra Lijfs-Stunda, Hveri-
er til Uppvakningar, Lcerdooms og Huggunar af betstu Skaaldum
flestaller Ordter eru, og hijngad til Opriktir, Enn nu i Eitt samanntekner
Christenndoome Lands pessa Til HEilla EBlingar og Sldboota. Auð-
kenndu stafirnir þrír, HES, eru upphafsstafirnir í nafni útgefand-
ans, Hálfdanar Einarssonar. Þarna birti hann kvæði án höfundar-
nafns, 8 dróttkveðnar vísur, og nefndist Varúðarvísa. Hún er hörð ádeila
á ýmsa lesti í fari samtímafólks. Prestarnir fá sinn skammt vel úti
látinn, enda reiddust þeir margir og einkum vegna þriðju vísunnar, er
svo hljóðar: _ .
Prestar í pening þyrstir
prangandi lofs-tír fanga,
fæða á frugga og moði
frelsarans sauði kannske;
illum hug heimta tollinn,
hvatvísir, en auglýsa
æðru, þá úlfurinn hraður
að ganar, þeir burt flana.8
Margir prestar tóku það ráð að svara í sömu mynt. Þannig varð
þetta kvæði Hálfdanar til þess að hrinda af stað einhverri um-
fangsmestu og hatrömmustu kvæðadeilu, sem um getur á Islandi.
Þessi deilukvæði eru ýmist nefnd Varúðarvísukveðskapur eða
Skólagælukveðskapur. Hann er mjög misjafn að gæðum, sem við
má búast, og gæti fyllt vænt bindi, ef allt yrði tínt til, rösklega 6500
braglínur. Höfundur þessa greinarkorns gluggaði einhverju sinni
nokkuð í þetta kraðak og taldist þá svo til, að upphöf kvæða og
vísna væru samtals 44 og væri að finna í 22 handritum. Þegar
einstökum vísum hafði verið sleppt, virtist sem 20 af kvæðunum
væru ort gegn Varúðarvísu, 12 til styrktar henni og 2 væru
hlutlaus.
Aðeins einn fræðimaður, Hannes Þorsteinsson þjóðskjalavörð-
ur, hefur kannað deilukveðskap þennan og ritað um hann.9 Þó er
sá hængur á, að hann hefur ekki þekkt fyllsta og merkasta
handritið, sem hefur að geyma kveðskapinn, JS 107 8vo. Auk þess
eru sumar fullyrðingar hans í djarfara lagi. T.a.m. eignar hann
Hálfdani Einarssyni eitt þekktasta kvæðið, Skólagelu frá Hólumf
en samtímamaður, sr. Hallgrímur Eldjárnsson á Bægisá, eignar