Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 106
106
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
og nú sem stendur engan tíma til neins nema að þumbaldast í
gegnum „examen“. Langar þó til að eignast ýmislegt, helzt íslenzkt
og norskt (því dönsku get ég stafað mig fram úr með harmkvælum
samt!). Ég er búinn að fá meira en nóg af bannsettri látínunni; hef
strengt þess heit að líta ekki framar í bók á því máli. Skólinn hefur
ekki veitt mér nema hrasl úr þýzkum bókmenntum, glætu, sem
ekkert er í varið. Um Schiller og Goethe veit ég því ekkert nema
það sem ég hef snapað úr þýðingum. Um franskar bókmenntir
veit ég nægilega mikið til þess að geta greint há-„classisk“ rit eftir
Moliére og Racine frá skáldritum þeim, sem fjalla um líf fiski-
manna og bændalýðsins á Bretagne og í Normandy. Norrænn
blær hvílir yfir hinu síðarnefnda.
Nú eiga ritstjóraskipti að verða við „Lögberg“. Þykir mér vænt
um. Ég hef gaman af að sjá Steina frænda. En hvort hann verður
lengi við stjórn á „Lögbergs“-snekkjunni, það er eftir að vita. Ég
vildi, að stjórnarbylting yrði líka hjá „Kringlu“. „Bergur“ fór þess á
leit við mig, að ég sendi sér „pistil“. En mér er illa við að kara mína
kálfa svo, að „klikku“-menn hneykslist ekki á þeim. Unítara-
málgagn brunar máské fram á völlinn áður en langt líður. Af því
ég er að mörgu leyti á þeirra bandi, þá ætti ég kannské að styðja
blað þeirra, ef veigur væri í mér. En svo er eftir að vita, hvað það
hefur á boðstólum.
Islenzkan hjarir nú að eins við skólann. „Manitoba College“,
presbýteriana-bækistöðin, reynir að koma henni fyrir kattarnef’. Hún
(ísl.) á engan að nema Wesley College hér í landi. Ef þessi tilraun
verður drepin niður, þá á ísl. ekki upreisnarvon við neinn skóla um
langan aldur.
Ég verð hér í bænum allt næsta sumar, og utanáskrift mín
verður 799 Ellice Ave., eða þá Husavick P.O.
Vinsamlegast,
Stephan Guttormsson.
799 Ellice Ave., Winnipeg,
Herra Stephan G. Stephansson, 5. jan., 1904.
Markerville, Alta.
Góði vin!
Kæra þökk fyrir sendinguna.
Ég hélt annars, að allir væru búnir að gefa mig upp á bátinn,
síðan ég kastaði teningunum. En nú sé ég, að það er ekki.