Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 74

Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 74
BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA EIGENDASKIPTIAÐ FRJÁLSRIVERSLUN Þetta tölublað Frjálsrar verslunar er hið síðasta sem kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins Fróða hf. Síðastliðið haust var blaðið selt til útgáfufyrir- tækisins Talnakönnun hf. sem tekur við rekstri þess frá og með áramótum. Frjáls verslun var fyrsta tímaritið sem fyrirtækið Frjálst framtak hf., forveri Fróða hf., gaf út og æ síðan hefur tímaritið komið reglulega út, oftast 10-12 sinnum á ári og lengst af hefur tímaritið haft þá sérstöðu í íslenskri útgáfu- flóru að vera eina sérritið um viðskiptamál á Is- landi. Rekstur Frjálsrar verslunar hefur löngum gengið vel. Tímaritið hefur átt tryggan kaupendahóp og lesendakannanir sýna að það er mikið lesið og not- að af fólki í viðskiptalífinu og í stjórnunarstöðum. Það er því ekki hægt að neita því að mikill tregi er því samfara að láta af útgáfu ritsins en eina ástæða þess að ákveðið var að selja það var sú að útgáfufyr- irtækið Fróði hf. þurfti að styrkja fjárhagsstöðu sína eftir erfiðan rekstur síðustu ára. Sagan sýnir, svo ekki verður um villst, að útgáfa tímarita á Islandi hefur ekki verið neinn dans á rósum um áratuga skeið. Til vitnis um það er sá mikli fjöldi tímarita sem hafa hafið útgáfu en dáið drottni sínum áður en þau komust almennilega á legg. „Barnadauði“ í þessari atvinnugrein hefur verið meiri en í flestum öðrum. Fyrir því eru að sjálfsögðu margar ástæður. Stundum hefur verið lagt af stað meira af kappi en forsjá, í öðrum tilvik- um hafa menn ekki staðist samkeppni við innflutt tímarit og í enn öðrum, og þeim raunar sennilega mörgum, hafa menn ekki haft nægjanlegt fjárhags- legt bolmagn til þess að lifa af þá mögru tíma sem koma með reglulegu millibili í íslensku efnahagslífi og hafa mikil áhrif á svo viðkvæman rekstur sem útgáfustarfsemin er. Mesta áfallið, sem tímaritaútgáfan og raunar öll útgáfustarfsemi í landinu hefur orðið fyrir á síðari tímum er að stjórnvöld skyldu ákveða að leggja virðisaukaskatt á þennan rekstur árinu 1993. Auð- vitað má alltaf segja sem svo að ekki séu rök fyrir því að undanþiggja útgáfustarfsemi slíkri skatt- heimtu meðan hún er lögð á lífsnauðsynjar. En það gleymdist einfaldlega að taka það með í reikninginn hver staða þessa atvinnurekstrar var þegar skattur- inn var lagður á og einnig að útgáfan hafði enga möguleika á því að velta skattinum út í verðlagið. Ef það hefði verið gert hefði verðmismunur á innlend- um og erlendum tímaritum einfaldlega orðið of mik- ill. Afleiðingar þessarar stjórnvaldsaðgerðar létu ekki á sér standa. Þau útgáfufyrirtæki, sem stóðu höllustum fæti, lögðu fljótlega upp laupana og flest- öll hin munu vera komin að fótum fram áður en langt um líður. Þessi skattheimta hefur þegar þýtt það að fjöldi fólks hefur misst atvinnu sína og mikið má vera ef útgáfa prentaðs máls á íslandi verður ekki orðin næsta fátækleg þegar fram líða stundir. Það er nefnilega staðreynd að útgáfa, hvort heldur er á blöðum, tímaritum eða bókum, lifir ekki á há- stemmdum lýsingum í tækifærisræðum stjóm- málamanna um að gildi þessara miðla fyrir íslenska tungu og menningu sé aldrei meira en nú. Það er miklu, miklu meira virði að stjórnmálamennirnir átti sig á því hver staða útgáfustarfseminnar er í raun og veru og grípi til raunhæfra aðgerða í stað orðanna. Eins og áður hefur komið fram hættir Fróði hf. útgáfu Frjálsrar verslunar með mikilli eftirsjá. Það er þó jákvætt að mjög traustur aðili tekur við rekstri tímaritsins, aðili sem hefur áhuga og bol- magn til þess að halda útgáfunni áfram, örugglega af þeirri reisn sem verið hefur yfir tímaritinu um langt skeið. Við þetta tækifæri er hinum nýja útgef- anda, Talnakönnun hf., og eiganda þess, Benedikt Jóhannssyni, óskað velfarnaðar og jafnframt er þökkuð mikil og langvarandi tryggð sem fjöldi kaup- enda og lesenda hefur haldið við tímaritið allan þann tíma sem Frjálst framtak hf. og Fróði hf. hafa gefið það út. 74
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.