Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 08.06.1995, Blaðsíða 6
B5 ed felldasta frétt uilfmnai1 ÞJÓÐ- REMBA í ÖLÆÐI Annað eins bull hefur ekki birst á síðum Morg- unblaðsins og bullið í Sig- mundi Ó. Steinarssyni eftir jafnteflið við Svíþjóð. Á annað þúsund Islend- inga voru á vellinum, en hafa varla verið háværir, því þegar við skoruðum varð þögn eins og á sum- arkvöldi í Ásbyrgi, þögn sem Sigmundur vildi mynda sem fréttamynd ársins. Island er ekki lítið, segir hann, en vill ekki lýsa leiknum náið því þá myndi hann skrifa ævi- sögu. Víkingar sögueyj- unnar hömruðu sænska stálið og sænsku stjörn- urnar voru stjörnuljós. Á vellinum voru jafningjar en víkingarnir höfðu Svía í heljargreipum og kvöldu þá eins og veiðimaður sem rennur fyrir stórlax í Elliðaánum. Allt var þetta svo vini hans Ásgeiri Elías- syni að þakka, sem er með húfuna, en Sigmund- ur vill taka hana ofan. Þessi sami Ásgeir segir um leikinn að hann sé ánægður með úrslitin en ekki leikinn. Líklega upplifa flestir þennan leik á svipaðan hátt og Ásgeir en Sig- mundur hefur líklega ekki gert sér grein fyrir að leik- urinn varsýndur í beinni útsendingu. Áður gátu Búbbi og aðrir snillingar sagt frá eigin frægðar- verkum í útlöndum og enginn til frásagnar nema þeir. En nú sáu allir leik- inn sem Sigmundur orti þetta undarlega og ógeð- fellda Ijóð um. Ef maðurinn hefur ekki verið drukkinn er hann í vondum málum. Verökönnun Samkeppnisstofnunar á drykkjarföngum veitingahúsanna lang ódývast Marhaba dýrast. ékki „Ég held það geti ékki verið að við séum dýrastir," segir Aladin, eigandi Marhaba við Rauðarárstíg 37, þar sem dýrast er að drekka samkvæmt nýrri verðkönnun Samkeppnisstofnunar. Þótt Aladin sé vantrúaður á niðurstöðu Sam- keppnisstofnunar verður hann að bíta í það súra epli að hans staður er áberandi dýrasti staður bæjar- ins þegar kemur að drykkjunum. Fulltrúar Samkeppnisstofnunar könnuðu verð áfengra drykkja og gosdrykkja á 120 veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu og í ljós kom að verðmunur á drykkjar- föngum er oft sláandi milli staða. PÖSTURINN tók sig til og raðaði stöðunum upp eftir verði, hagsýn- um drykkjumönnum til hægðar- auka. Niðurröðun blaðsins er þannig gerð að lægsta verð á hverjum drykk er haft til grund- vallar og prósentufrávik frá þeirri tölu reiknað út. í ljós kom að Café Jensen við Ármúla er ódýrcistur allra með aðeins 8 prósenta hærra verð að jafnaði á sínum veigum en þær gerast ódýrastar í bænum. Dýrastur var hins vegar Marhaba en drykkjarföngin þar voru að meðaltali 78 prósent dýrari en þau fást ódýrust. Niðurstöður verðkönnunarinn- ar eru einnig athyglisverðar að ýmsu öðru leyti. Þannig eru til dæmis 44 veitingastaðir á Stór- Reykjavíkursvæðinu með dýrari drykki en Hótel Holt, sem hefur löngum verið talið til bestu veit- ingastaða bæjarins. Þeirra á með- al má nefna Pizza 67 við Tryggva- götu, Duus-hús í Fischersundi og Grillhúsið Tryggvagötu. Aladin, eigcmdi Marhaba, segir að þjónusta og ýmislegt meðlæti geti valdi mismunandi verði drykkja milli veitingcistaða. „Þeir sem panta til dæmis tvö- faldan vodka í gos hjá mér fá salt- hnetur og gulrætur með, og þeir sem panta Grand Marnier fá kaffi með því og After Eight-súkkulaði. Ég held að þetta sé ekki víða svona.“ Ásbjörn Jensen, eigandi Café Jensen, Ármúla 7, var að vonum lukkulegur með niðurstöðu könn- unarinnar, en sagði þó að þetta hefði ekki komið sér á óvart. Að- spurður sagði hann galdurinn á bakvið þetta ekki flókinn. „Þetta verð er búið að vera hjá okkur í fimm ár. Það er mikið til sömu gestirnir sem sækir staðinn. Ég er kannski ekki með marga gesti en þetta er fólk sem er að stíla inn á magn, það er að segja fólk sem drekkur mikið. Kostnað- urinn er líka í algjöru lágmarki hjá mér. Staðurinn er skuldlaus, ég er ekki með lifandi tónlist, svo aug- lýsi ég ekki, heldur hefur orðspor- ið bara spurst út. Eini kostnaður- inn svo til er hráefniskaup og ég hef þá reglu að ef ég kaupi eitt- hvað á hundraðkall þá sel ég það á tvöhundruð- kall.“ Ásbjörn segir íti að það sé vissu- lega erfitt að hafa álagninguna ekki hærri en hann hafi hald- Reykjavík með ið staðnum hluta af þe.m drykkjum sem gangandi á konnunin naði til. Þeir voru: ^ gosdrykkur, tvöfaldur vodki í ^ . , ? ók, einfaldur Bailey's, einfaldur hygg' ekki a Grand Marnier, Irish Coffee og breytingar. ■ nokkrar gerðir flöskubjórs. Debet „Kristján er dugnaðarmaður, ákveðinn og fylg- inn sér,“ segir Elías Hergeirsson, spilafélagi Krist- jáns og gamall skólafélagi. „í mínum huga er Kristján mjög heiðarlegur maður og sjálfum sér samkvæmur í því sem hann tekur sér fyrir hend- ur. Hans lífsstarf hefur verið í aðalatvinnugrein landsins, útgerðinni, og það hafa fáir staðið sig jafnvel í þeim málum," segir Guðmundur H. Guð- mundsson, sem situr í bankaráði íslandsbanka með Kristjáni. „Ég hef lítið annað en gott um Kristján að segja, hann er duglegur og hinn ljúfasti mað- ur þótt annað kunni stundum að virðast. Ég er oft ósammála Kristjáni hvað varðar sjávarút- vegsmál en samstarf okkar hefur alltaf verið gott. Hann er harður á sínu og tel ég j}að kost þótt það hafi ekki alltaf hentað mér,“ segir Har- aldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðnaðarins. „Hann hlýtur að fá hól hjá mér fyrir að vera ein- stakur hagsmunagæslumaður fyrir þá sem hann telur greinilega að vert sé að berjast fyrir. Krist- ján leynir á sér sem húmoristi," segir Arthur Bogason, formaður smábátaeigenda. q-M- æai#.á HRÆODYRT Café Jensen, Ármúla 7, R. 7,69% MJOG ODYRT Jakkar og brauð, Skeifunni 7, R. 11,90% Pitan, Skipholti 50, R. 13,17% Hrói Höttur, Hringbraut 119, R. 14,39% Adam, Ármúla 34, R. 17,87% Vitabar, Bergþórugötu 21, R. 19,40% Hanastél, Nýbýlavegi 22, K. 19,60% Rauða Ijónið, Eiðistorgi, Seltjn. 24,79% American Style, Skipholti 70, R. 25,49% Árbæjarhöllin, Hraunbæ 102, R. 25,76% Asía, Laugavegi 10, R. 26,64% Kína Húsið, Lækjargötu 8, R. 27,70% Kínahofið, Nýbýlavegi 20, K. 28,06% Kabarett, Austurstræti 4, R. 29,13% Árberg, Ármúla 21, R. 29,41% Carpe Diem, Rauðarárstíg 18, R. 29,88% MILLIVERÐ Ölver, Álfheimum 74, R. 30,15% Sjanghæ, Laugavegi 28b, R. 30,86% Hrói Höttur, Hjallahrauni 13, H. 31,23% Siam, Skólavörðustig 22, R. 31,51% Pizza Hut, Suðurlandsbraut 2, R. 32,04% Boginn, Fjarðargötu 13-15, H. 33,02% Feiti dvergurinn, Höfðabakka 1, R. 33,19% Gafl-lnn, Dalshrauni 13, H. 33,19% Tveir vinir og annar í frii, Laugavegi 45, R. 33,21% Madonna, Rauðarárstíg 27-29, R. 33,96% Indókína, Laugavegi 19, R. 35,42% Næturgalinn, Smiðjuvegi 14, K. 35,80% Pizza 67, Nethyl 2, R. 36,15% Pattaya, Strandgötu 30, H. 36,36% Lauga-Ás, Laugarásvegi 1, R. 36,50% Askur, Suðurlandsbraut 4, R. 36,50% Keisarinn, Laugavegi 116, R. 36,62% Mamma Rosa, Hamraborg 11, K. 36,70% Hlaðvarpinn, Vesturgötu 3b, R. 36,84% Ölkjallarinn, Pósthússtræti 17, R. 36,96% Steikhús Harðar, Laugavegi 32, R. 37,25% Kaffi Míianó, Faxafeni 11, R. 37,47% Royal Café, Strandgötu 28, H. 37,63% Pizzahúsið, Grensásvegi 10, R. 37,71% Esja, Suðurlandsbraut 2, R. 38,62% Hornið, Hafnarstræti 15, R. 38,77% Naustkjallarinn, Vesturgötu 6-8, R. 38,84% Kaffi Austurstræti, Austurstræti 6, R. 39,53% Verdi, Suðurlandsbraut 14, R. 39,78% Glaumbar h.f., Tryggvagötu 20, R. 39,81% FREMUR DYRT Grandrokk, Klapparstíg 30, R. 40,30% Bíóbarinn (Siberia), Klapparstig 26, R. 40,30% Café ísland, Ármúla 9, R. 41,23% Hótel Reykjavík, Rauðarárstíg 37, R. 41,49% Sexbaujan og Koníaksstofan, Eiðistorgi, S. 41,65% Café au lait, Hafnarstræti 11, R. 42,28% Hafnarkráin, Hafnarstræti 9, R. 42,43% Banthai, Laugavegi 130, R. 42,86% Tilveran, Linnetstíg 1, H. 42,98% Svarta kaffið, Laugavegi 54, R. 43,29% Hótel Óðinsvé, Þórsgötu 1, R. 43,55% Solon fslandus, Bankastræti 7a, R. 43,77% Potturinn og pannan, Brautarholti 22, R. 44,00% Mónakó, Laugavegi 78,1 Hótel Saga, Skrúður, R. Me Nam Kwai Restaurarnt, Laugavegi 11, R. Kringlukráin, Borgarkringlunni, R. Þrír Frakkar hjá Úlfari, Baldursg. 14, R. Listakaffi, Engjateigi 17-19, R. Café Kim, Rauðarárstíg 37, R. Samurai, Ingólfsstræti 1a, R. Pizza 67, Reykjavíkurvegi 60, H. Seiið, Laugavegi 72, R. Blúsbarinn, Laugavegi 73, R. Hard Rock Café, Kringlunni, R. Hótel Loftleiðir, Reykjavíkurflugv., R. Kaffibarinn, Bergstaðastræti 1, R. Kaffi list, Klapparstíg 26, R. Ari í Ögri, Ingólfsstræti 3, R. Hótel Holt, Bergstaðastræti 37, R. Súfistinn, Strandgötu 9, H. Kaffi París, Austurstræti 14, R. Veitingahúsið 22, Laugavegi 22, R. Singapore, Reykjavíkurvegi 68, H. Kofi Tómasar frænda, Laugavegi 2, R. Veitingahúsið við Tjörnina, Templaras. 3, R. Argentína, Barónsstíg 11 a, R. 44,81% 45,03% 45,28% 45,32% 45,38% 45,76% 45,83% 46,17% 46,27% 46,40% 46,84% 47,74% 48,06% 48,15% 48,39% 48,40% 48,57% 48,57% 48,64% 48,64% 48,76% 48,82% 48,88% 49,26% Grillhúsið, Tryggvagötu 20, R. 50,25% Við Lækinn, Lækjargötu 4, R. 50,42% Jazzbarinn, Lækjargötu 2, R. 50,54% Candilejas Restaurant, Laugav. 73, R. 51,11% Austur-lndia félagið, Hverfisg. 56, R. 51,86% Kínamúrinn, Laugavegi 126, R. 52,24% Hótel Saga, Grillið og Mimisbar, R. 53,46% Caruso, Þingholtsstræti 1, R. 53,78% Humarhúsið, Amtmannsstíg 1, R. 53,94% Fógetinn, Aðalstræti 10, R. 54,43% Duus-hús, Aðalstræti 4, R. 54,60% Perlan, Öskjuhlíð, R. 55,14% Amma Lú, Kringlunni 4, R. 55,39% Gaukur á Stöng, Tryggvagötu 22, R. 56,83% Café Amsterdam, Hafnarstræti 5, R. 56,96% Lækjarbrekka, Bankastræti 2, R. 57,42% Gullni haninn, Laugavegi 178, R. 57,61% Café Bóhem, Vitastíg 3, R. 58,21% Déja-Vu, Þingholtsstræti 2, R. 58,21% L.A. Café, Laugavegi 45, R. 58,52% Óperudraugurinn, Lækjargötu 2, R. 59,47% La Primavera, Húsi verslunarinnar, R. 59,56% l'll I ■ 11 ■ Café Ópera, Lækjargötu 2, R. 60,20% A. Hansen, Vesturgötu 4, H. 60,60% Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2, R. 60,60% Fjörukráin, Strandgötu 55, H. 61,01% Italía, Laugavegi 11, R. 61,79% Leikhúskjallarinn, Hverfisgötu 19, R. 61,99% Jónatan Livingstone Mávur, Tryggvag. 4, R. 62,23% Skólabrú, Skólabrú 1, R. 62,56% Hótel island, Ármúla 9, R. 65,76% Pizza 67, Tryggvagötu 26, R. 65,97% Pasta Basta, Klapparstíg 38, R. 66,15% Grand Hótel Reykjavik, Sigtúni 38, R. 66,76% Hótel Borg, Pósthússtræti 11, R. 66,78% Naustið, Vesturgötu 6-8, R. 67,59% RANDYRT Marhaba, Rauðarárstíg 37, R. 77,68% Kredit Mér gengur nú ekki vel að finna eitthvað nei- kvætt til hjá Kristjáni. Hann á það þó til að vera þrasgjarn og hefur gaman af að rökræða hlutina út í hróa," segir Elías Hergeirsson, spilafélagi Kristjáns og gamall skólaféiagi. „Hann er stund- um full stífur með sínar skoðanir og stafar það ef- laust af ríkri réttlætiskennd," segir Guðmundur H. Guðmundsson sem situr í bankaráði ís- landsbanka með Kristjáni. „Ég þekki engar nei- kvæðar hliðar á Kristjáni. Sumum kann að finnast hann of grimmur en ég segi að hann sé hinn Ijú- fasti maður," segir Haraldur Sumarliðason, for- maður Samtaka iðnaðarins. „Mér finnst hann hafa skilið útundan stóran hluta umbjóðenda sinna, eigendur vertíðarbáta og minni skipa, sem hafa orðið illa úti í viðureign með kvóta. Kristján hefur þann leiða vana að slíta öllum fundum sem hann mætir á á undan fundarstjóra," segir Arthur Bogason, formaður smábátaeigenda. - Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ Brösuglega hefur gengið að ná sáttum í sjómannadeilunni. Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, hefur setið sáttafundi sem ítrekað hafa siglt í strand.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.