Alþýðublaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 12
Ilalþýöu- Iblaóið C'tgefandi Alþýöuflokkurinn FÖSTUDAGUR Ritstjórn Alþýöublaösins er aö Síöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö Hverfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarsimi 14900. 7. OKTOBER 1977 ________________________________________________________________________________________________________________________J Haustsýning FÍM ad Kjarvalsstödum — Guðmundur Benediktsson, myndhöggvari, sérstakur gestur sýningarinnar BSRB skipu- leggur vídtæka verkfallsvörzlu Sameiginlegur fund- ur stjórnar, samninga- nefndar og verkfalls- nefndar BSRB ákveður aiKskipuleggja viðtæka verkfallsvörzlu bæði á vegum bandalagsins svo og einstakra bandalagsf éla ga, Skipulag og yfirstjórn verði nánar ákvarðað af verkfallsnefnd BSRB. Hlutverk verkfallsvörzlunnar veröi að koma i veg fyrir verk- fallsbrot bæði af hálfu viðsemj- enda bandalagsins og annarra og að fylgjast með þvi að hvergi sé farið út fyrir löglegar ákvaröanir kjaradeilunefndar eða undanþáguheimildir verk- fallsnefndar. Samkvæmt lögum á kjara- deilunefnd að tryggja ,,aö hald- ið verði uppi nauösynlegri öryggisvörzlu og heilsugæzlu”. Hún skal ákveöa „hvaða ein- stakir menn skuli vinna I verk- falli”. 1 greinargerö með lagafrv. er þetta verksvið þ-engt ennþá meira, því að þar er einungis miðað við ,,að öryggi og heilsu fólksverði ekki stefnt I hættu”. BSRB telur allar undanþágur umfram þetta tilheyra samtök- unum en vill leggja áherzlu á, að góð samvinna takist milli BSRB og kjaradeilunefndar um lausn þessara mála og um mörkin i verkaskiptingunni þeirra á milli. Allar beiðnir um undanþágur þurfa aö berast skrifstofu BSRB skriflega, og munu þær af- greiddar á vegum verkfalls- nefndar bandalagsins að feng- inni umsögn bandalagsfélag- anna. Þórshöf n á Langanesi: Mikid byggt Á morgun laugardag verður opnuð á Kjarvals- stöðum Haustsýning Félags íslenzkra mynd- iistarmanna. Sýningin er mjög fjölbreytt og eru sýnd 123 myndlistaverk eftir fjörtíu og einn lista- mann. Af þeim eru tuttugu og tveir félagar í Félagi fs- lenzkra myndlistarmanna en nitján utanfélagsmenn og sýna nokkrir þeirra nú í fyrsta sinn á Haustsýning- unni. Mikið ber á litlum myndum sem fróðlegt er að bera við stærri verkin. A sýningunni eru myndvefnað- ur, keramik, glermyndir, grafik af ýmsu tagi, kritarmyndir, oliu- verk, vatnslitamyndir, mynd- verk gerö með blandaöri tækni, höggmyndir eöa skúlptúrverk auk annars konar hráefnis. Sérstakur gestur sýningarinnar verður Guðmundur Benediktsson myndhöggvari, og sýnir hann 11 verk gerð á árunum ’76 og '77* verkin eru öll úr eir og aö sögn Guðmundar hefur hann eingöngu unnið verk sin úr eir siðastliðin fimm ár. Guðmundur fæddist I Reykjavik árið 1920. Um þritugt gerðist hann nemandi Asmundar Sveinssonar i Myndlistarskólan- um, sem nú er til húsa viö Freyju- götu (Asmundarsal). Guðmundur gerðist félagi i Félagi islenzkra myndlistarmanna árið 1957 eða fyrir réttum tuttugu árum. Hann hefur alla tið unniö fyrir félag sitt, en auk þess starfað að sýn- ingarhaldi hjá Listaráði Kjar- valsstaða. Guðmundur hefur tek- iö þátt i fjölda myndlistarsýninga bæði hér heima og erlendis. Haustsýning FIM 1977 stendur frá 8.-23. október að Kjarvals- stöðum. Hún er opin virka daga frá kl. 16.00-22.00 nema laugar- daga og sunnudaga frá kl. 14.00- 22.00. Verð aðgöngumiða er kr. 400. —KIE — Hér er mikið byggt oghefur verið svo i sum- ar, sagði Bjarni Aðal- geirsson við Alþýðu- blaðið i gær. — Bæði eru einstaklingar að byggja, og einnig hefur sveitar- félagið verið að byggja þrjár leiguibúðir, auk þess sem verið er að byggja viðbótarhúsnæði við skólann. Þá hefur verið hafizt handa um byggingu fyrsta áfanga húss fyrir aldraða á Þórshöfn. Bjarni sagði, að leiguibúðimar væru 100 fermetrar aö stærð, rað- hús. Viðbótin við skólann ætti hins vegar i framtiðinni að verða eld- hús og bókasafn, en yrði fyrst i stað notað til að fullnægja þörf skólans fyrir aukið kennslurými. Byggð verða þrjú fjögurra ibúða hús á Þórshöfn fyrir aldr- aða. Hver Ibúð verður 45fermetr- ar og sameiginleg aðstaða fyrir ibúana að koma saman. HUsin verða á mörkum lóðar heilsu- gæzlustöðvarinnar og eru byggð sameiginlega af þrem hreppum, Þórshafnar-, Svalbarðs- og Sauðaneshrepps. — hm. Guömundur Benediktsson viö eitt verka sinna á sýningunni. AB mynd —KIE 2411 útlendingar búsettir á íslandi Um síöustu áramót voru búsettir hér á landi tvö þúsund f jögur hundruð og ellefu útlendingar, það er aðilar með ríkisborgara- rétt í öðru iandi, en ekki ís- lenzkan. Þar með voru ekki taldir starfsmenn er- lendra sendiráða. Fjölmennastir voru Danir, þvi þeir voru þá 789, þar með taldir Færeyingar, sem hér búa, en þeir eru að jafnaði nokkuð margir. Næst þeim koma Bandarikja- menn (423) en þar eru talin nokk- uö mörg börn, sem eru af islensku móðerni, en bandarisku faðerni. Norðmenn voru hér 227, Bretar 223 og V-Þjóðverjar 212. Alls voru þessir útlendingar frá fimmtiu og einu landi, sumir langt að komnir, þvi þrjátiu og sjö voru ástralskir, j“inn kin- verskur, einn Malaysiubúi, tvær konur frá Tanzaniu og einn frá Perú, svo eitthvað sé talið. Að sögn útlendingaeftirlitsins eru tölur þessar þó mjög óáreið- anlegar, þvi hreyfingar á þessum útlendingum eru miklar. — hv Enginn skipapóstur til Bandaríkjanna Vegna verkfalls hafnar- verkamanna í Bandaríkj- unum hefur afgreiðsla á skipspósti nú verið felld niður um óákveðinn tíma, að því er segir í tilkynningu frá bandarísku póststjórn- inni. Skipapóstur verður því ekki sendur héðan til Bandaríkjanna meðan verkfallið stendur yfir, en f lugpóstssendingar verða með eðlilegum hætti. Rætt við sveitarstjórann á Þingeyri: „Vid blædum fyrir hið einhæfa atvinnulif” — Hér hefur verið ágætt atvinnuástand að undanförnu og ekki fyrirsjáanlegt annað en það haldist áfram, nema eitthvað sérstakt komi til, sagði Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á Þingeyri, i samtali við blaðið i gær. Talsvert hefur verið um aðkomufólk i vinnu á Þingeyri i sumar, bæði i fiskvinnu og byggingarvinnu, og vantar alltaf fólk til starfa þar. 1 togari er á Þingeyri og nokkrir smærri bátar og hefur afli þeirra verið ágæt- ur. Sveitarfélagiö hefur staöið að byggingu þriggja leiguíbúöa á þessu ári og eru þær nú að mestu tilbúnar. Fáein Ibúðar- hús önnur eru i smiöum. Þá er verið að reisa nýtt skólahús á Þingeyri, en af öðrum opinber- um framkvæmdum nefndi sveitarstjórinn „þetta venju- lega sem allir eru að fást við”, þ.e. gatna- og holræsagerö. Einnig standa yfir hafnarfram- kvæmdir á staðnum og hefur verið geröur nýr viðlegukantur. Nokkur steypuvinna er enn eftir við höfnina, en einnig þarf aö dýpka höfnina meðfram nýja viölegukantinum. Heildarkostn- aöur viö hafnarframkvæmdirn- ar er talinn nema 104 milljónum krdna. Jónas Ólafsson kvaö hin bættu hafnarskilyrði, sem skap- ast á Þingeyri vegna þessa, vera vel þegna, en ekki bjóst hann við aö fjölgaði i flota Þing- eyringa á næstunni I framhaldi af þvi. Heimamenn myndu ekki ráöa við að vinna meiri afla, en nú þegar bærist á land, nema þvi aðeins að bæta við fólki. ,,Okkur vantar alltaf fólk” — Hingað vantar alltaf fólk i vinnu, sagði Jónas. Viö höfum fengið meira en nóg af þeim áróöri sem haldið er fram viöa um þessar mundir, að við úti á landi lifum I vellystingum á kostnað „þéttbýlisins fyrir sunnan”. Við lifum mannsæm- andi lifi hérna og hér eru yfir- leitt þokkalegar tekjur. Þénust- an á skuttogaranum er vissu- lega ágæt, en ekki er hægt að al- hæfa allt út frá henni. En þegar kemurað félagslegu hliöinni, þá stöndum við langt að baki t.d. Reykjavikursvæðinu og þvi er alltof oft gleymt, af einhver jum orsökum. — íbúum hérna fjölgar mjög hægt og má ef til vill segja að gæti þar vissrar stöðnunar. Al- varlegast er aö við missum allt- af unga fólkið frá okkur. Við blæðum fyrir hið einhæfa at- vinnulif sem er hér, eins og svo viða I hliðstæðum plássum, sagði sveitarstjórinn á Þingeyri að lokum. — ARH

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.