Vísir - 03.04.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 03.04.1971, Blaðsíða 1
Hundahald meðan hundarnir lifa 81. árg. ■— Laugardagur 3. apríl 1971. — 78. tbl. • Hafnfirzkir hundar skulu sam kvæmt úrskurði bæjarstjórnar og bæjarráðs aliir skrásettir verða fyrir 1. maí n.k. Eftir þann tíma verður ekkert undanfæri fyíir hundaeigendur að hafa hunda sína á skrá, láta þá ganga merkta með hálsbandi, og hiíta reyndar í öllu reglum, sem heil- brigðisfulltrúi bæjarins setur um hundahald. Enn er málið ekki svo langt kom ið, að reglur hafi orðið til, og heyr ist helzt á ráðamönnum, að erfitt verði 'að framfylgja samþykkt bæj arstjórnar, sem saman stendur að- allega af því ákvæði, að hundar þeir sem nú eru uppistandandi, skuli eiga sér tilverurétt í Hafnar Viðræður við EBE jákvæðar — Island vill friverzlunarsamning við Efnahagsbandalagið Viðræðum fulltrúa ís- lenzku ríkisstjórnarinnar við embættismannanefnd Efnahagsbandalagsins lauk svo í Brussel í gær, að Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri, forsvars- maður íslenzku fulltrú- anna, lýsti yfir ánægju með árangur þeirra. Eins og oft hefur komið fram, kemur ekki til mála, að ísland gerist fullgildur aöili að EBE við hugsanlega stækkun vegna sér- stöðu okkar. Embættismannanefnd in lýsti yfir skilningi á þessari sér stöðu okkar og jafnframt skilningi N Klukkurnar 29 voru afhentar í gær, en frá þeim munu sálmalög óma yfir borgina. Þegar ! hafa 8 lög verið valin. Klukknaspil - 29 bjöllur — afhent Hallgrímskirkju — leikur „Vist ertu Jesú kl. 12 daglega i framtiðinni ■ „Yfir íbúa þessarar borg ar munu í framtíðinni ber- ast daglega hljómar, sem geröir eru um Passíusálminn umkon- ungstign Jesú,“ sagði séra Ragn ar Fjalar í þakkarræðu, sem hann flutti í gær að viöstödd- um gefendum klukknaspilsins, er væntanlega veröur sett upp i Hallgrímskirkjuturni fyrir næstu hvitasunnu. • „Brátt fær þessi veglega Virkja sína rödd, sinn vold- uga hljóm, eftir langan vetur þagnar, því að yfir henni hafa aldrei klukkur hringt. — Kirkja án klukkna er eins og maöur án máls“. Klulkknaspiliö var afhent í gær, að viðstöddum flestum gef endum, forsvarsmönnum safn- aðarins og herra biskupi íslands. Benedikt Gröndal mælti fyrir hönd gefenda, þegar hann af- henti klu'kknaspilið Hallgríms- kirkju til eignar: „Klukknaspil þetta er þaö fyrsta sinnar tegundar hér á landi og sæmir vel til minning ar um okkar sálmaskáld. — í meira en 300 ár hafa sálmar Hallgríms Péturssonar hljómað í eyrum okkar. Klukknaspilið eru fátæklegar þakkir." í klufcknaspilinu eru 29 klukk ur eöa bjöllur, sem hver fyrir sig ómar einn tón og spanna þær því töluvert tónsvið (frá tvfstrikuðu c til ferstrikaðs f). Við spilið er raftengt tvöfalt hljómborð, sem leikið er á líkt og á píanó, eða sembal. — Au'k þess getur klukknaspilið leikið sjálfkrafa Iög, sem stenzluö hafa verið inn á plastband. Hafa átta lög þegar orðið fyrir valinu ti'l þessa. Eitt er „Víst ertu, Jesú, kóngur klár“, sem hl'jóma mun kl. 12 á hverjum degi. Hin lögin mun klukkuspil- ið leika á hátíöisdögum kirkj- unnar: Á sunnudögunum í að- ventu — „Nú kemur heimsins hjálparráð". Á jólunum — „Heiðra skulum vér herrann Krist“, Á sunnudögunum eftir þrettánda — „Um hann, sem ríkir himnum á“. Á páskunum — „í dauðans böndum Drottinn lá“. Á hvítasunnu — „Kom, skapari, heilagi andi“. Á sunnu- dögum eftir þrenningarhátíð — „Gefðu, að móðurmálið mitt.." Gefendur klukkuspilsins eru ýmsir einstaklingar og félög, en að verðmæti mun klukkuspilið nema um 1,2 milljón krónum. — GP á þeim erfiöleikum. sem þv'i væru samfara fyrir Island, ef tengsl þess væru slitin viö aðalviðskipta þjóðirnar. Þeir skilmálar, sem Island í raun og veru biður um hjá Efnahags- bandalaginu eru friverzlunarsamn ingur samibærilegur við þau kjör, sem við njótum nú hjá Fríverzlun arbandalagi Evrópu, EFTA — Embættisnefnd EBE getur þó ekki skorið úr um það, hvort slfkir skilmálar standj landinu til boða, enda voru vjðræðurnar nú í Bruss- el aðeins undirbúningur fyrir samn ingaviðræður í haust um sérsamn inga íslands við EBE og verður skýrsla um viðræöurnar núna send ráðherranefnd bandalagsins, sem er æðsta stjóm þess. Búizt er við því, að Efnahags- bandalagið vilji, að ísland geri í tollamálum sínum eitthvað til sam ræmingar við ytri tollamúra banda lagsins, en Efnahagsbandalagiö er sem kunnugt er fyrst og fremst tolla'bandalag með sameiginlegum ytri tollamúrum meðan Fríverzlun arbandalag Evrópu skiptir sérekki af ytri tollamúrum, heldur aðeins af tollfrelsi innan bandalagsins. Hinar raunverulegu samninga- viðræður hefjast í haust við Efna hagsbandalagið, þegar Island, Sví þjóð, Sviss, Finnland, Austurríki og Portúgal munu taka upp viðræður við það, hvert í s'inu lagi um stöðu fiína gagnvart bandalaginu. —VJ Sjóbirt- ingsveiðin hafin ■ ,,Veiðitíminn fyrir göngusil- ung er hafinn, byrjaði í gær, 1. april“, sagði Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri Vísi í gær. „Við höfum nú ekki frétt af neinni veiði ennbá, enda ekkí nema 1 dag ur liðinn af veiðitímabilinu, en þetta er sá tími sem silungur geng ur úr ám og vötnum til sjávar. Reyndar hefur verið hlýtt i vetur, og hugsanlegt að fiskurinn sé þeg- ar genginn út, en um það er ó- mögulegt að segja. Yfirleitt byrjar göngusilungs- veiði fyrst hér syðra, en færist síðan til annarra staða eftir því sem hlýnar,“ sagði veiðimálastjóri. „Það er erfitt að gefa upp hreinar aflatölur frá þessum veiðum undan farin ár, vegna þess hve menn stunda þessar veiðar óreglulega, skreppa kannski einn dag eða svo, og hirða lítið um skýrslugerð.“ Sjóbirtingur er yfirleitt það nafn, sem notað er yfir göngu- silung, þ. e. hér sunnanlands kall- ast göngu-urriði sjöbirtingur, en víða annars staðar á landinu kalla menn engan fisk sjóbirting nema göngu-bleikju. Sagði veiðimálastjóri, að algengt væri að menn notuðu páskarva tll göngusilungsveiða, en sem fyrr, færu þessar veiðar næstum alger- s lega eftir tíöarfarinu. —GG firði, svo lengi sem þeir lifa og svo lengi sem eigendur þeirra halda settar reglur. —GG Sumar stuttbuxur eiga að koma í tízku... nu Skátar hæfta við stuttbuxurnar — einmift núna • Skátar hafa í meira en 50 ár orðiö að 'þola stríöni gárunga fyrir að ganga í stuttbuxum vetur sem sumar. En einmittnú þegar stuttbuxurnar eru komn- ar í tízku, hefur forusta þessar ar alþjóðahreyfingar áfcveðið að söðla yfir — og nota síðbuxur við skátabúninginn. • Brezka skátahreyfingin hef ur tekið frumkvæðið og síð- buxnati'lskipunin hefur verið gefin úttil 600.000 félaga henn ar — en undir niðri kraumar mótþrói. • Þær fréttir hafa borizt, að búizt sé við því, að minnst 1500 tryggra stuttbuxnanotenda í Bretlandi muni gera uppsteyt, þótt þeir eigi yfir höfði sér aö veröa vikið úr hreyfingunni vegna óh'lýðni. —GP .. .en aðrar eiga hins vegar að hverfa. Vísir í vikulokin fylgir bladinu í dag til úskrifenda

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.