Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Blaðsíða 12
Þeir menn eru til, sem slíkan kraft hafa og irtnri fum, iað undrum sætir; stomdum mætti halda að þeir gætu sprungið í loft upp eða jafnvei bráðnað. Þeir eru eldsálir. Hvaðan þeim kemur þessi knaiftur, er þó á huldu; kainnsiki toafai þeir betra rafkerfi en hinir. Maðurinn er víst rafmagn fyrir utan þessi liðlega níutíu prósent af vatni. En það er því líkast sem sjálf rafstöðin í mönn- um sé misgott tæki. Menn með eldsálir virðast hafa rafstöðvar, sem framleiða megavött; loftið i kringum þá titrar af orku. Aðrir eru búnir svo afkaisitalitiu og iþrieytitu aippairati, að rétt nórir á týruinmii. Geispinin er þeirra heízta lifsmark og allur verður lífsferillinn meira í ætt við mórauða keldu úti í mýri en fjörugan fjallalæk. Þau verða örlög flestra að gleymast eftir að hérvistardögum lýkur. En þar skilur enn með eldsálunum, að þær virðast halda áfram að lifa með manrai. SDlikir menn eru svo ijósliíiandi fyrir hugskotssjónum, að manni finnst þeir hljóti að vera á sínum stað í fullu fjöri, jafnvel þótt þeir séu dauðir fyrir löngu. Allir þekkja einhverja slíka menn. Þegar ég skoða hug minn, koma óðar nioikkrir og fcnýja á. Einn þeirra er Vaffi — Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson, blaðamaður; öðru nafni VSV eða Hannes á hominu. Ég kynntist Vaffa ekki fyrr en síðasta áratuginn í lífi hans og þeg- ar ég ek eftir Hringbrautinni, finnst mér, að hann hljóti að vera á sínum stað við ritvélina — og síimanin. — Nafni hans, Hannes Jónsson á Ásvallagötunni, var eldsál eins og Vaffi. Og þeir voru góðir kunn- iragjar. En Hanraes á ÁsvaiUiagötumni lifði ien'gur og hélt áfram að skrifa greinar í Lesbókina um æskudaga á Þóreyjarnúpi og höndlunina á Grett- isgötunni, eftir að Hannes á horninu hafði birt sinn síðasta pistil í Alþýðublaðinu. Hannes á Ás- vaillagötunni hélt gjaman á loft frændsemi sinni við Natan Ketilsson; hann var mikill trúmaður og spíritisti. Svo var að skilja á honum, að hann stæði í allnánu sambandi við gamla sálufélaga, þótt sálaðir væru. Einn þeirra var Vaffi. Svo sem ári eftir að Vaffi lézt, kom Hannes á Ásvalla- götunni með grein til birtingar sem oftar. Ekki man ég gjörla, hversvegna tal okkar beindist að þessum gamla baráttufélaga og kollega í blaða- mannastétt, en allt í einu segir Hannes eins og ekkert væri sjálfsagðara: „Hann kom til mín hann Vaffi í nótt.“ Ég varð víst eitthvað undr- andi og leit á Hannes, en sá, að honum var fúl- asta atvana. Hann bætti við: „Vaffi kemiuir oif.t til máin. Það er aillveg eiras og áðlur. Harain kom meira að segja beint til mín, þegar hann dó og var eitt- hvað svo einkennilegur. Svo ég sagði við hann: Láttu ekki svona Vaffi, þú ert dauður. Reyndu bara að átta þig á því. Og svo fór hann að jafna sig á því.“ Þetta sagði Hannes vinur okkar á Ásvallagötunni, eldsál og ágætur penni. Ég reyndi að láta ekki bera á, hvað mér þætti þetta ótrúlegt og spurði því sísona eins og maður spyr, þegar hægt er að fregna af gömlum kunningjum: „Og hvað er nú Vaffi að sýsla við núna?“ Það stóð ekki á svarinu hjá Hannesi: „Hann Vaffi, blessaður vertu, hann er önnum kafinn í verkalýðsmálunum og öllu þessu sama." Óskhyggja, hugsaði ég með mér. Og þó. Kannski Vaffi hafi enn ritvél og síma innan seilingar. Mér er minnisstætt, þegar hann náði sér á strik i stof- unni heima á Brávallagötu 50 og fór að segja okkur, sem yngri vorum, frá verkalýðsbaráttunni fyrr á árum. Til dæmis frá slagnum í Suðurgöt- unni og þegar þeir vörðu rússneska strákinn, sem Ólafur Friðriksson hafði komið með. Þá varð glampinn skær í augunum á Vaffa, þegar hann minntist þeirra gömlu góðu daga. En annars minn- ist ég ekki að hafa kynnzt manni á hans aldri með jafn unga sál. Mér fannst við jafnaldrar og þó hafa líklega skilið okkur þrjátíu ár. En þarna kom til fjörið og lifandi eða öllu heldur brenn- andi áhugi á sundurleitustu efnum. Þó var hon- um efst í huga aðstaða og líf þess fólks, sem minnst má sín í þjóðfélaginu. Eitt sinn höfðu góðir menn komið með stórt málverk og hengt það upp í stofunni hjá þeim ágætu hjónum, Bergþóru og Vaffa. Það var glæsi- lega málað portret af húsbóndanum sjálfum — og það hangir enn í stofunni á Brávallagötu 50. Jón Engilberts hafði málað þetta portret. Þar var Vaffi kominn ljóslifandi; hann geislaði af áhuga og á bakvið mátti greina einhverskon- ar þyrpingu manna. Mér finnst augljóst mál, að það hafi verið verkamenn í kröfugöngu eða á fundi. Myndin fyllti stofuna; mér fannst hún meistarastykki og sú skoðun hefur ekki breytzt. Ég spurðii Vaiffa: „Hvenær í ósköpuraum hefur þú setið fyrir hjá Jóni?“ „Ég hef alls ekki setið fyrir," sagði Vaffi, „en Jón iþékkir mig ifrá gamali tSÖ.“ Þedr voru frænd- ur, þremerarainigiair minnir miig, o<g ætrtaðir frá Eyr- anbaiklka. Einhverntíma síðar barst þetta í tal við Engil- berts. Gamli gráskeggur var hress að vanda. Hann sagði: „Nei, ég þurfti ekki að láta Vaffa sitja fyrir. Ég man hann alveg nákvæmlega." Og nú er Jón Engilberts genginn líka og bær- inn er til muna fátæklegri. Ég held án þess að ég viti það með vissu, að Jón Engilberts hafi verið einn, iþeirra’ .miainraai, siem urðu retfifi'tegri rraeð aldr- eld inum. Það var auk þess ævinlega hressandi and- blær í kringum Jón; eitthvað stórt, sem hafið var yfir smiásitóítlagiarai kryt og ötfiuradarraarat. Það er með Jón líkt og Vaffa, að mér finnst hann hljóti að vera á sínum stað; ég heyri enn hressilegan hláturinn og skellina í tréskónum, þeg ar hann kom niður stigann úr vinnustofunni. Jón var mikill selskapsmaður og hefði kunnað því vel að búa í skála um þjóðbraut þvera og hafa stór- kostlega risnu. Það fór í taugarnar á honum að hafa ekki myndarleg auraráð. En ekkert hefði verið fjær honum en öfund í garð þeirra málara, sem ef til vill seldu meira en hann. Margir viður- kenradiir og gaimaiiigrórair liistiaimienra — þó að minni karlar séu en Jón Engilberts — telja sig 0

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.