Lesbók Morgunblaðsins - 30.07.1978, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 30.07.1978, Blaðsíða 4
Um Borgarbókasafnid í Reykjavík. r nrmir m Eftir E/fu Björk Gunnarsdóttur, borgarbókavörð Bókasöfn eru að breytast úr útlánastöðvum í upplýsinga- uppeldis- og menningarstöðvar Almenninfísbókasafn Reykvík- in«a var stofnað samkvæmt sam- [jykkt bæjarstjórnar, sem gerð var 18. nóv. 1920 og hóf starfsemi sína á sumardaginn fyrsta 19. apríl 1923, það er því rúmlega hálfrar aldar gamalt. Það var nefnt Alþýðubókasafn Reykjavíkur. Safnið var fyrstu fimm árin til húsa að Skólavörðustíg 3 og bókakostur var 1000 bindi. Megin stofninn var bækur Bjarnhéðins Jónssonar járnsmiðs, sem safnið hafði fest kaup á 1922. Aðsókn var svo mikil, að fyrsta árið voru lánuð út 24.500 bindi. Hvert eintak fór því út tvisvar á mánuði og er það mikil nýting. Árið 1928 flutti safnið í rýmra húsnæði að Ingólfs- stræti 12, þar var því sagt upp húsnæðinu og varð að flytja það í skyndi árið 1952. Festi þá Reykja- víkurborg kaup á húseigninni Esjubergi við Þingholtsstræti 29a fyrir bókasafnshús. Þar var safnið opnað í byrjun árs 1954. Safnið hét Alþýðubókasafn Reykjavíkur til ársins 1936, en eftir það Bæjar- bókasafn Reykjavíkur til 1962, er nafni þess var breytt í núverandi horf. Starfsemin fer fram allvíða um borgina. Aðalsafnið starfar enn í Esjubergi. Auk útlánsdeildar er þar til húsa skrifstofa safnsins, flokkunar- og skráningardeild, plöstun og frágangur og fl. I lok ársins 1976 var lestrarsalurinn opnaður í nýjum húsakynnum í nágrenninu eða að Þingholtsstræti 27. Útibúin þrjú eru í Bústaða- hverfi, Sólheimum og Vesturbæ. Sólheimasafn er eina deild Borg- arbókasafns, sem hefur aðsetur í húsi sem reist er sem bókasafn. Bókabílar eru tveir og veita þeir bókaþjónustu í hverfum, sem eru of langt frá söfnunum svo og þar sem bókasöfn eru ennþá óreist. Bókabíll var fyrst tekinn í notkun hér í bæ árið 1969. Sérútlánadeild sér um bókaútlán til skipa, stofnana, vistheimila og fangelsa. Strax á öðru starfsári tók safnið að lána lítil bókasöfn í fiskiskipin, og var þá haft á orði, að Alþýðu- Seyju rná aö á síðustu árum hafi starfssviö orj þjónusta viö almenninysbókasöfn tekiö stakkaskiptum víöa um heim. Þau veita maryvísleya þjónustu oy fyriryreiöslu á ýmsum sviöum menninyarmála oy hafa á aö skipa menntuöu sérhæföu fólki til leiöbeininya. Unyir sem aldnir notfæra sér þessa þjónustu í æ ríkara mœli. Fólki til ylöyyvunar á því hverniy störfum Borgarbóka- safnsins í Reykjavík er háttaö oy hverniy þaö hefurfœrt út kvíarnar, fenyum viö leyfi Elfu Bjarkar Gunnarsdóttur boryarbókavaröar til aö birta þennan fyrirlestur um Boryarbókasafniö sem hún flutti i vorfyrir Rotary-félaga í Reykjavík. bókasafnið væri fyrsta almenn- ingsbókasafnið í heiminum til slíkra lána. Síðan hafa þessi bókalán til reykvískra skipa haldið stöðugt áfram. Starfsmaður deild- arinnar fer með bækur á staði þar sem aldraðir borgarar koma sam- an á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Talbókasafn fyrir blinda og sjónskerta er í uppbyggingu og mun ég víkja að því aftur síðar. Heimsendinga- þjónusta við fatlaða og aldraða í heimahúsum hófst fyrir fjórum árum síðan. Stjórn safnsins skipa fimm kjörnir fulltrúar kosnir af borgarstjórn. Starfsmenn eru nú 55, þar sem sumir eru í hluta úr starfi, jafngildir þetta 44 mönnum í fullu starfi. Bókaeign safnsins var um síðustu áramót 267.752 bækur. Útlán á árinu 1977 voru rúmlega ein milljón. Aðalsafn er opið 72 stundir í viku, aðrir staðir nokkuð skemur. Sögustundir fyrir börn á aldrinum 4 ára til 6 ára fara reglulega fram. I safninu er vísir að hljómlistar- deild með hlustun á staðnum. Nýlega var tekin upp sú ný- lunda, að hafa sérstaka upplýs- ingaþjónustu í útlánsdeild aðal- safnsins og í Bústaðasafni. Þarna er um að ræða starfsmann sem hefur það verkefni fyrst og fremst að aðstoða menn og leiðbeina þeim, sem koma í safnið. Mark- miðið er að slík þjónusta verði á hverjum útlánsstað. Nú er unnið að undirbúningi nýrra útibúa í úthverfum borgar- innar svo og að fyrsta áfanga nýs aðalsafnshúss, en þangað verður fyrst flutt aðsetur bókabílanna. í yfirlýsingu menningar- og fræðslustofnunar Sameinuðu þjóð- anna um almenningsbókasöfn seg- ir m.a.: Tilvitnun: „Almennings- bókasafnið er fram komið fyrir áhrif hinna nýju lýðræðishugsjóna og er það áþreifanlegur árangur af trú þeirra hugsjóna á það, að hin almenna menntun sé ávöxtur af starfi, sem varir ævina á enda. Þó að fyrsta stefnuskráratriði al- menningsbókasafnsins sé að full- nægja upplýsinga- og fræðsluþörf hinna fullorðnu, ber því einnig að vinna sem viðauki við skólana með því að örva og bæta lestraráhuga barna og unglinga og stuðla þannig að því, að þessir einstakl- ingar séu á fullorðinsárum færir um að nota bækur sér til gagns og ánægju. Þar sem almenningsbóka- safnið er lýðræðisleg stofnun rekin af almenningi og vegna almenn- ings, ber að stofna það og reka undir umsjón löglegra yfirvalda. Það skal rekið að mestu eða öllu leyti fyrir opinbert fé og vera frjálst til afnota öllum þegnum þjóðfélagsins án tillits til stöðu, trúar, stéttar eða kynþáttar. Fullkomið almenningsbókasafn skal hafa til afnota fyrir notendur sína: Bækur, bæklinga, tímarit, blöð, landabréf, myndir, kvik- myndir, nótur og hljóm- og talplötur, og ber því að veita leiðsögn um notkun þessara hluta. Almenningsbókasafn á að hlúa að og örva hjá börnum og unglingum, körlum og konum, viðleitni til

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.