Alþýðublaðið - 20.08.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 20.08.1987, Blaðsíða 1
MÞY9UBUBIB Fimmtudagur 20. ágúst 1987 157. tbl. 68. árg. FLUGSTÖÐVARHN EYKSLIN U ÓSVARAÐ „Það sem byggingarnefnd og aðrir forsvarsmenn flugstöðvar- byggingar þurfa að skýra er, að það lágu ekki fyrir frá byggingarnefnd- inni í lok síðasta árs upplýsingar eða beiðni um fjárþörf varðandi ís- lenska hlutann upp á alls 1,2 mill- jarð króna í stað 520 milljóna sem lánsfjárlög gerðu ráð fyrir,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra í samtali við Alþýðu- blaðið í gær. Byggingarnefndarmenn héldu blaðamannafund þar sem fram kom að þeir telja fullyðringar rang- ar um að byggingarkostnaður vegna flugstöðvarinnar hafi farið einn milljarð fram úr kostnaðar- áætlun. Fram hefur komið að fjár- málaráðherra hefur beðið Ríkis- endurskoðun að fara yfir fjármál byggingarinnar svo og kanna hver beri ábyrgðina á þessum mikla kostnaðarauka. Byggingarnefndar- menn telja að kostnaðurinn sé í samræmi við áætlun, en misskiln- ingurinn byggist á því að horft sé framhjá gengistapi og verðlagsfor- sendum. Að mati byggingarnefnd- arinnar kostar byggingin „bara“ Ríkið vill kaupa Sambandshúsið Á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag lagði fjármálaráðherra fram til kynningar hugmyndir um kaup á húseignum SÍS á Sölvhólsgötu og Lindargötu, ásamt eignar og leigu- lóðum. Heildarfermetrafjöldi er 5500 fermetrar. Að fengnu sam- þykki ríkisstjórnarinnar lagði fjár- málaráðherra síðan fram formlegt kauptilboð. „Ríkið ver háum fjárhæðum til þess að leigja undir ráðuneyti og aðrar stofnanir. I mörgum tilfellum er um að ræða leigu sem greiðir upp byggingarkostnað á 7—10 árúm. Ohagræðið og kostnaður er því mikill,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson fjármálaráðherra aðspurð- ur um tilgang kaupanna. Frá því í apríl þangað til nú hafa borist á borð í fjármálaráðuneytinu beiðnir um rúmlega 900 milljóna króna umframfjármagn. — „Svo segja þeir að málið þarfnist engrar skýringar“, segir fjármálaráðherra. 250 milljónum krónum meira, sem stafi eingöngu af óhjákvæmilegum breytingum á fyrri kostnaðaráætl- un, svo sem fjölgun landgöngu- brúa, snjóbræðslu og stækkun kjallara ásamt ákvörðun um list- skreytingar utanhúss. í áætlun byggingarnefndar um fjárþörf á árinu 1987, sem nefndin lagði fram við gerð lánsfjárlaga, var fallist á beiðni upp á 520 milljónir króna og að sögn Jóns Baldvins fullyrti nefndin að fjármagnið dygði til að taka flugstöðina í notkun í aprílmánuði. Þegar staða ríkisfjármála var síðan endurmetin í byrjun maí ’87, þá berast þær upp- lýsingar frá byggingarnefnd að við- bótarfjárþörf geti numið allt að 700 milljónum króna. Þá var bygging- arnefndin komin í algjört greiðslu- þrot, og að hálfu fjármálaráðuneyt- is, til að leysa málið, var byggingar- nefndinni veitt heimild til þess að taka innlent lán að upphæð 480 milljónir króna. Þetta fé þurfti til að greiða bindandi verksamning það sem eftir væri ársins. „M.ö.o. þarfnast það ákveðinnar skýringar hvers vegna upplýsingar um svona stóraukna fjárþörf berast fjármála- ráðuneytinu og fjármála- og hag- sýslustofnun eftir dúk og disk og koma þeim gjörsamlega á óvart miðað við fullyrðingar aðstand- enda byggingarinnar um að þessi áætlun væri raunsæ vönduð og mundi standast," sagði Jón Baldvin. Við fjárlagagerð ’88 hafa síðan, að sögn fjármálaráðherra, verið lagðar fram beiðnir um viðbótar- framkvæmdir upp á 250 milljónir. „Þannig að frá því i apríl þangað til nú hafa birst á borðum þessa ráðu- neytis frá þessum aðilum, beiðnir um aukafjármagn til þessa við- fangsefnis upp á rúmar 900 miljón- „Ef þetta var loftræstikerfiö, hvaó þá um annaö og hver ber ábyrgö- ina?“ spyr Jón Baldvin Hannibals- son fjármálaráöherra. ir króna. Svo segja þessir menn að það þarfnist engrar skýringar," sagði fjármálaráðherra og bætti því við að hann ætlaði ekki að leggja fyrirfram mat á þær skýringar sem byggingarnefnd leggur fram um orsakir umframkostnaðar upp á „bara“ 250 nrilljónir króna. Ráð- herra sagðist eingöngu hafa óskað eftir því að hlutlaus aðili, Ríkisend- urskoðun, færi ofan í saumana á málinu og upplýsti af hverju þessi umframkostnaður stafar. Um það sem vekti aðallega spurningar í málinu sagði Jón Baldvin m.a.: „Hvers vegna var ekki gerð grein fyrir viðbótarfjárþörf vegna verð- lagsbreytinga innanlands og gengis- þróunar fyrr en allt í einu á tímabil- inu apríl—júlí. Hvers vegna gerist þetta þrátt fyrir rökstudda beiðni um 520 milljónir á lánsfjárlöguni, sem sagt var að mundi standast? Hvað var nýtt t.d. er varðar verð- lagsþróun og gengisþróun? Þeir tala einnig um viðbótarverk- efni sem hafi verið ákveðið af bygg- ingarnefndinni að gera umfram áætlanir og nreta það upp á „bara“ 250 milljónir. Hvers vegna var þá ekki jafnframt tryggt fjármagn? Voru þetta bara smápeningar? Var þetta bara fjármagnað í gegnum yf- irdrátt? Hver átti að borga. Það má einnig spyrja sig hvernig byggingarnefndin fjármagnaði um- framfjárþörfina á byggingar- tímanum. Ég vil því fá að vita hve mikið af þessu megi rekja til hröðunar bygg- ingarinnar umfram getu og hvað ntegi rekja mikið til hönnunar- mistaka. Eg nefni dæmi: Ég kom á fjölmennan vinnustað fyrir kosn- ingar til fyrirtækis sem hafði hann- að loftræstikerfið. Mér var sýndur þar í horni haugur af teikningum sem var ónýtur. — Ef þetta var loft- ræstikerfið, hvað þá um annað og hver er ábyrgur?“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra. Húsnæðiskaupendur í greiðsluerfiðleikum: Þurfa 400 - 500 millj. — samkvæmt könnun Ráðgjafarstöövar Húsnæðisstofnunar. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur kynnt fjármálaráðherra og ríkisstjórn niðurstöðurnar og lagt til að ráðstafanir verði gerðar sem allra fyrst. Ráðgjafarstöð Húsnæðisstofn- unar rikisins telur að áætluö heild- arfjárhæð til þess að leysa vanda þeirra sem nú eiga í greiðsluerfið- ieikum vegna húsnæðiskaupa sé um 400—500 milljónir króna. Fé- lagsmálaráðherra hefur kynnt nið- urstöðurnar fyrir fjármálaráðherra Sambandshúsiö við Sölvhólsgötu. A-mynd/Róbert. og ríkisstjórn og jafnframt lagt til að ráðstafanir verði gerðar til að þessar skuldbreytingar geti sem fyrst átt sér stað. Félagsmálaráðherra mun siðan í samráði við viðskiptaráðherra leita eftir viðræðum við lánastofnanir um skuldbreytingu skammtímalána í samræmi við ákvæði í stjórnar- sáttmála þar að lútandi. Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur félags- málaráðherra er brýnt að þeir sem lent hafa í greiðsluerfiðleikum og rétt eiga til skuldbreytinga fái vitneskju um það hið allra fyrsta hvenær ráðstafanir koma til fram- kvæmda. Það var að beiðni félagsmálaráð- herra sem Ráðgjafarstöðin tók saman yfirlit um þá húsnæðiskaup- endur sem lent hafa í greiðsluerfið- leikum. Auk þess hefur stöðin áætl- að stærð vandans, sem áður segir, og Iagt mat á leiðir. í úttektinni var meðal annars skoðaður sérstaklega vandi „mis- gengishópsins" svokallaða. Árið 1983 var mikið misgengi lánskjara og launa og lentu margir íbúða- kaupendur í vandræðum vegna þessa. Frá upphafi til loka árs ’83 hækkaði lánskjaravísitala um tæp- lega 19% umfram laun. Um mitt ár 1986 hafði munurinn lagast nokk- uð. Lánskjaravísitalan hafði þá hækkað um 10,5% umfram al- menna launaþróun. Af umsóknum sem bárust 1986 vegna greiðsluerf- iðleika komu samkvæmt úttektinni um 44% frá misgengishópnum. Að mati Ráðgjafarstöðvarinnar stafar vandi misgengishópsins í flestum tilfellum af misgengi láns- kjara og kaupgjalds. Þó kemur fram í athugasemdum stöðvarinnar að ýmsir úr hópnum hefðu lent í greiðsluerfiðleikum þó svo að mis- gengi hefði ekki komið fram. Til jafnaðar voru skuldir þessara umsækjenda 2 millj. krónur á nú- verandi verðlagi. Þar af voru 80% skuldanna, 1.600.000 langtíma- skuldir en 20% eða 400.000 krónur skammtímaskuldir. Langtíma- skuldir eru talin þau lán sem veitt eru til 10 ára eða lengri tíma. Sam- kvæmt þessu er niðurstaða Ráð- gjafastöðvar Húsnæðisstofnunar að samanlagðar skuldir misgengis- hópsins sem aðstoðar þurfi nemi 400 milljónum króna. Um 47% umsókna sem bárust 1986 vegna greiðsluerfiðleika komu frá fólki sem keypti eignir sínar 1984 og síðar. Vandi þess hóps staf- ar ekki af víxlgengi lánskjara og Iauna. Að mati Ráðgjafarstöðvar nema samanlagðar skammtíma- skuldir þeirra sem lentu í greiðslu- erfiðleikum 1984 og síðar milljón- um króna. í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar er gert ráð fyrir, að fólki sem hefur lent í greiðsluerfiðleikum undanfarin ár verði gefin kostur á endurfjármögnun slíkra lána með vaxtakjörum húsnæðislánakerfis- ins og hluta af ráðstöfunarfé Hús- næðisstofnunar verði því varið í þessu skyni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.