Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 55
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 55 Kveðja frá Bridge- sambandi Íslands Það mun hafa verið á síðastliðnu hausti að ég kom einu sinni sem oftar í húsnæði Bridgesambands Íslands í Þönglabakka og var mér þá starsýnt á eldri og virðulegri mann. Ég kom honum ekki fyrir mig í fyrstu en þóttist kannast við hann frá fyrri tíð. Fas þessa manns og framkoma var látlaust, hann bar sig vel og bauð af sér mikinn þokka. Síðar þetta sama kvöld var ég kynntur fyrir honum og kom þá í ljós að þarna var kom- inn Hallur Símonarson. Kynnin gáfu mér tilefni til að rifja upp þá tíma er ég var að stíga mín fyrstu spor í bridgeíþróttinni, en þá var einmitt nafn Halls Sím- onarsonar eitt af goðsögnunum í bridgeheiminum. Á árunum 1958– 74 var vart haldið mót án þess að hann sigraði eða væri í toppbarátt- unni. Um hæfileika hans og árangur þarf ekki að fara mörgum orðum og nægir þar að nefna að hann var sex sinnum Íslandsmeistari í sveitakeppni og átti á sínum tíma fast sæti í landsliði Íslands. Hallur Símonarson var mikill keppnis- maður og það sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af lífi og sál. Ólíkt mörgum afreksmönnum bar hann ávallt virðingu fyrir and- stæðingum sínum jafnt sem mót- spilurum og sýndi þeim fyllstu kurteisi þegar þeir komu að spila- borðinu. Hann sýndi þeim hins vegar enga vægð þegar kom að sögnum og úrspili. Hallur hafði einstakt lag á að gera það mjúk- lega án nokkurs hávaða eða átaka. Fyrir utan það að spila vann hann ötullega að því að breiða út bridge með skrifum sínum. Hallur var blaðamaður alla sína tíð á löngum ferli og naut mikillar virð- ingar innan stéttarinnar. Hann skrifaði meðal annars reglulega um bridge í Tímann, Dagblaðið og DV. Á árunum 1957–59 gaf hann út bridgeblaðið „Bridge“ með félaga sínum, Agnari Jörgensen, og er á engan hallað þegar því er haldið fram að ritið hafi verið eitt það besta sem litið hefur dagsins ljós um bridge á Íslandi. Þeir sem þekktu til Halls, vita að þar er genginn drengur góður sem þekktur var fyrir ljúfmennsku og fágaða framkomu við spilaborð- ið. Aldrei heyrðist hann halla styggðaryrði að spilafélaga sínum og gilti þá einu hver sat á móti honum. Minning hans á lengi eftir að lifa í hugum íslenskra bridge- spilara. Þegar Hallur var farinn að spila keppnisbridge á ný rifjaðist upp fyrir mér það sem kínverski leið- toginn Deng Sjá Ping sagði eitt sinn: „Þegar kínverska þjóðin sá mig synda fullvissaði hún sig um að ég væri líkamlega heilbrigður en þegar hún sá mig spila bridge var hún þess fullviss að ég væri andlega heilbrigður.“ Ég vil fyrir hönd Bridgesambands Íslands senda eiginkonu og aðstandendum hennar okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðmundur Ágústsson, forseti. Vinur okkar á DV til margra ára, Hallur Símonarson, er látinn og sakna margir góðs vinar. Hér á DV og hjá forverum þess blaðs, Vísi og Dagblaðinu, starfaði Hallur í meira en þrjátíu ár, en þar áður á HALLUR SÍMONARSON ✝ Hallur Símonar-son fæddist í Reykjavík 16. ágúst 1927. Hann lést í Landspítalanum í Fossvogi miðviku- daginn 21. mars síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Dóm- kirkjunni 29. mars. Tímanum og Alþýðu- blaðinu og skilaði hálfrar aldar starfi við blaðamennsku. Störf Halls Símonarsonar á þeim vettvangi voru bæði mikil og góð. Það var 23. septem- ber 1969 sem Hallur Símonarson skrifaði fyrstu grein sína um ensku knattspyrnuna fyrir dagblaðið Vísi. Eftir það skrifaði hann árum saman vikulegar greinar um fótboltann í Englandi sem vöktu mikla athygli og voru víðlesnar. Þær greinar ásamt fleiru urðu til þess að hefja Vísi aftur til vegs og virðingar eftir slæmt gengi um langt árabil. Síðar tók Hallur að sér fleiri störf við blaðið og tók loks við starfi íþróttaritstjóra blaðsins vorið 1971. Haustið 1975 var Hallur í hópi þeirra manna sem fóru frá Vísi og stofnuðu Dagblaðið – DB. Þar reyndist Hallur ötull baráttumaður og glóðheitur í andanum. Við sam- runa Vísis og DB var Hallur áfram við stjórnvölinn á íþróttadeildinni hjá DV. Á níunda áratugnum tók DV upp það nýmæli að bjóða les- endum að hringja í Fréttaskot blaðsins, sjálfvirka símaupptöku eða beina línu til blaðamanns. Um þetta leyti skipti Hallur um starfs- vettvang, lauk glæsilegum ferli íþróttafréttamanns, og tók í fóstur þessa nýjung í fréttaöflun. Ljóst er að Hallur vann mikið og gott verk á þessum vettvangi. Auk þessa stýrði Hallur öflugri sveit fréttaritara blaðsins um land allt, tugum ágætismanna og -kvenna sem vaka yfir fréttunum fyrir DV. Ég get fullyrt að þegar ég sem þessar línur skrifa tók við af Halli fyrir hálfu öðru ári, þá tók ég við afar góðu búi. Og fréttarit- arar sáu eftir Halli þegar hann lauk störfum, kominn á áttræð- isaldurinn, án þess að það mætti á honum sjá. Þeir efndu til góðs fagnaðar og kvöddu með kurt og pí sinn yfirmann og kennara til margra ára. Hallur Símonarson var vinsæll maður á vinnustað, lipur og prúður í umgengni, enda þótt hann hefði vissulega ríka skaphöfn þegar á þurfti að halda. Hann var traustur starfsmaður og vann verkin skipu- lega og af miklu öryggi. Afköst hans í starfi voru mikil og gæðin eftir því, enda var Hallur vand- virkur svo af bar. Hallur bjó yfir áratuga langri reynslu í blaðamannsstarfinu og kunni öll töfrabrögðin í faginu. Þegar ég var að fyrst að fitla við blaðamennsku fyrir Þjóðviljann forðum daga, reyndist Hallur mér sannarlega vel. Hann reyndist óspar á hollráðin og ábendingar um það sem betur mætti fara þeg- ar fundum okkar bar saman í stúk- unni á íþróttavellinum. Hann var ótrúlega tillögugóður og lá ekki á hollráðunum. Góðir bridgespilarar sýna ekki spilin sem þeir hafa á hendi, en þarna hafði Hallur aðra siði, hann naut þess að uppfræða aðra. Hafa fleiri blaðamenn sagt þetta sama um Hall, hann gaf þeim góð ráð sem dugðu vel. Mér var það sannur heiður að taka við störfum Halls Símonar- sonar vinar míns þegar hann hvarf frá DV eftir langa og dygga þjón- ustu. Það er svo allt annað mál hvort mér tekst að komast nálægt árangri Halls, en ég reyni. Ég vil að leiðarlokum þakka Halli fyrir allt okkar samstarf fyrr og síðar. Ég sendi Stefaníu konu hans og af- komendum öllum djúpar samúðar- kveðjur. Veit ég að félagar mínir á ritstjórn DV munu allir sem einn taka undir framanrituð orð um okkar góða félaga. Jón Birgir Pétursson. Mig langar að minnast góðs vin- ar míns og vinnufélaga með nokkr- um orðum. Ég átti því láni að fagna að kynnast Halli Símonar- syni þegar ég kom til starfa á DV árið 1987. Með okkur tókust strax mikil og góð kynni, enda voru áhugamál okkar að flestu leyti sameiginleg. Íþróttir voru alla tíð í miklum metum hjá Halli og knatt- spyrna þar ofarlega á blaði. Hann var mikill eldhugi í þeim efnum og gaman að rökræða við hann um ís- lenska og erlenda knattspyrnu, var hafsjór af fróðleik í þeim efnum, enda starfaði hann í áraraðir sem íþróttafréttaritari. Fjölmargir af starfandi íþróttafréttariturum landsins njóta þess að hafa lært af vinnubrögðum Halls. Af honum lærðu þeir afkastamikil og vönduð vinnubrögð. Hallur var þannig gerður að hann hafði sérstakt lag á því að ná árangri í því sem hann tók sér fyr- ir hendur. Megináhugamál hans var ástundun bridgeíþróttarinnar og þar náði hann svo sannarlega árangri. Hann státar af aragrúa Íslandsmeistaratitla í faginu og var margsinnis í landsliði Íslands á Norðurlanda- og Evrópumótum. Hann ákvað að hvíla sig á spila- mennskunni á miðjum áttunda ára- tugnum, þegar hann tók virkan þátt í stofnun Dagblaðsins (DB). Hallur helgaði blaðinu alla krafta sína og starfaði á DB og síðar DV allt fram til ársins 2000. Það er til marks um hæfni Halls, að forráða- menn Frjálsrar fjölmiðlunar buðu honum að vinna áfram á blaðinu, löngu eftir að hann komst á aldur. Ástæðan var ekki hollusta gagn- vart Halli eftir áralanga þjónustu, heldur fyrst og fremst sú að þeir gátu vart án starfskrafta hans ver- ið. Hallur var alltaf boðinn og búinn að gefa góðar ráðleggingar í blaða- mennskunni og lærði ég, ekkert síður en aðrir starfsfélagar hans, mikið af samskiptunum við hann. Hann hafði einstakt lag á því að ná fram öllu því besta úr viðmæl- endum sínum. Það tókst honum á tiltölulega auðveldan máta með því að koma fram við alla viðmælendur sína af virðingu og annálaðri kurt- eisi, enda taldi Hallur það vera lykilinn að góðum samskiptum. Á síðari árum hafði Hallur gam- an af því að grípa í bridge og sýndi þá og sannaði að hann hafði engu gleymt. Greinilegt var að spila- mennskan á efri árum veitti hon- um mikla ánægju og hann hafði gaman af því að keppa með góðum árangri eftir langt hlé frá spila- mennsku. Eitt er víst að ég lærði mikið af samskiptunum við Hall Símonar- son. Kurteisi hans, bæði til vinnu og við spilaborðið, var til fyrir- myndar og aldrei upplifði ég það að sjá Hall skipta skapi. Ég á eftir að sakna mikið allra stundanna sem ég átti með góðum vini mínum og félaga. Ísak Örn Sigurðsson. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. 4   &   &  3   5 1 31    5     %      %      *,8*+,-+. .;;+ 5%   !   !(  2@) *  !  / &/   %  /!  !%*  %  <&% 5   /  %  ("*  %   (     !<  *  %     <& %  5%     (  % )  )    %   %     0 8 ; : .;; =  DC  ( &           &    !   !!" * 5%   ! 6 *    3 %   !  5%*   5!   %    *   * 1    %  *& 8 *   /  %  %  *   !*  %  /! /!   '  '" !'  '  '" ) ( )           $  /8,/)/9.80 "       6%          !!" =   ("  %  0  ("/"  E /"   /"   /" ) MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.