Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 47
✝ Sigmundur Ósk-ar Magnússon
fæddist í Reykjavík
28. febrúar 1916.
Hann lést á heimili
sínu 29. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Magnús Pálsson frá
Gaddstöðum á
Rangárvöllum, f.
16.2. 1871, d. 27.11.
1964, og Ingibjörg
Helgadóttir frá
Arnarhóli í Flóa, f.
16.12. 1878, d. 1.1.
1958. Bræður Sig-
mundar eru Páll, f. 30.11. 1911,
d. 22.1. 1978, Sigmundur, f.
1914, d. 1916, og Ásgeir, f. 7.11.
1918. Einnig átti Sigmundur
þrjá hálfbræður, syni Ingibjarg-
ar móður hans og Guðmundar
Ámundasonar, þá Ámunda, Guð-
jón og Ingólf, þeir
eru allir látnir.
Sigmundur eign-
aðist einn son, Guð-
laug verkstjóra, f.
15.11. 1951, eigin-
kona hans er Hildi-
gunnur Friðjóns-
dóttir hjúkrun-
arfræðingur, f.
13.6. 1958. Þau eiga
tvo syni, Árna, f.
8.10. 1982, og
Guðna Hrafn, f.
26.4. 1993. Móðir
Guðlaugs var Krist-
jana Guðmunds-
dóttir, f. 11.5. 1913, d. 4.9. 1995.
Sigmundur vann alla tíð ýmsa
verkamannavinnu, lengst af hjá
Reykjavíkurborg.
Útför Sigmundar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Tengdafaðir minn Sigmundur er
látinn. Heilsunni hafði hrakað nú síð-
ustu mánuði, en það að hann skyldi
kveðja okkur nú kom okkur samt að
óvörum. Hann lést á Frakkastígnum
þar sem hann fæddist fyrir rúmlega
85 árum. Sigmundur var, eins og
þeir sem þekktu hann vissu, ekki fyr-
ir breytingar. Hann vildi hafa hlut-
ina í föstum skorðum og hafði sínar
ákveðnu skoðanir. Stundum fannst
honum við vera að ráðskast með sig
þá hnussaði í honum og hann sagði
„þetta er nú meiri vitleysan“.
Sigmundur var ekki fyrir að flíka
tilfinningum sínum, líklega ekki al-
inn upp við það. Hann vildi ekki vera
uppá aðra kominn og barlómur og
kvartanir heyrðust aldrei frá honum.
Eftir að hann settist í helgan stein
fór hann að fara í Sundhöllina á
hverjum morgni. Þar átti hann sinn
fasta vinahóp og þessar samveru-
stundir gáfu honum mikið. Mig lang-
ar að þakka þessum ágætu félögum
hans fyrir hjálpsemi þeirra þegar
heilsan fór að bila og leiðin í Sund-
höllina varð of langur göngutúr fyrir
heiðursmanninn. Mig langar líka að
þakka starfsfólki Þorrasels fyrir
elskulegheitin. Þar líkaði honum vel
að vera.
Við munum skrjáf í stórum
nammipoka – sem ekki gladdi nú
alltaf okkur foreldrana, brasað
lambalæri, Royal karamellubúðing,
stífbónuð gólfin á Frakkastígnum en
síðast en ekki síst munum við ljúfan
pabba og afa.
Haustfölva slær á hlíðarvangann rjóða,
hjartsláttur dvín, og liðin sumarganga.
Voðin er unnin, vafin upp í stranga.
Vefarinn hefur lokið sinni skyldu.
Næst mun sér annar nema þarna spildu.
(J.J.)
Við þökkum fyrir samfylgdina
þess fullviss að vel hefur verið tekið
á móti honum í nýjum heimkynnum.
Hildigunnur.
Þeir hverfa nú óðum á braut einn
af öðrum mennirnir sem hófu ævi-
starf sitt í byrjun síðustu aldar. Ég
gæti hér nefnt nokkra en læt hér
duga að minnast míns ágæta vinar
Sigmundar Óskars Magnússonar, í
daglegu tali nefndur Mundi. Hann
var einn af þeim sem sáu Reykjavík
breytast úr ofvöxnu þorpi í glæsilega
borg. Hann lifði það að aka hesta-
kerrum um strætin og seinna að sjá
glæsikerrur nútímans þeytast um
sömu götur. Hann ólst upp við það að
renna sér á sleða niður Frakkastíg-
inn sem nú væri óðs manns æði. Sá
Skólavörðuholtið breytast úr ófæru-
urðargrjóti í snyrtilegt útvistar-
svæði. Hann var vitni að breytingum
á kömrum í dýrindis klósett, tækni-
undrum síma, útvarps og sjónvarps
verða að veruleika og ég tala nú ekki
um nútíma þráðlausa tölvuvæðingu í
sömu greinum, ásamt öðrum fram-
farasporum bæði inná heimilum og í
atvinnu. Varð vitni að hersetu Breta
og síðar Bandaríkjamanna sem
breytti algerlega lífi fólksins til hins
betra í efnahagslegu tilliti. Sá rusla-
eða öskuhaugana við ströndina, þar
sem hann vann lengst af eða ,,Gull-
strönd Hoffmanns" breytast úr þefj-
andi ógeði í glæsibyggingu og fagurt
umhverfi.
Þvílíkar breytingar sem þessi
kynslóð er og varð vitni að á sér vart
líka í sögu okkar þjóðar. Og því er
ekki að undra þótt margir þeirra geti
varla fylgst með þeim hraðfara fram-
farasporum sem stigin hafa verið og
eru stigin enn í dag.
En þrátt fyrir öll þessi undur sem
skeð hafa á þeirra æviskeiði er svo
merkilegt með hann Munda minn að
hann æðraðist hvergi og hélt sínu
striki. Enda alinn upp við nægjusemi
og að vera sáttur við það sem lífið gaf
honum. Hann fæddist á Frakkastíg
17, ólst þar upp og eyddi þar ævinni
sinni, lifði þar og dó saddur lífdaga.
Alla ævi í sama húsi, þetta er ábyggi-
lega einsdæmi í henni Reykjavík.
Þótt húsið væri selt ofanaf honum
tvívegis fylgdi hann alltaf með, ég
segi nú ekki að hann hafi fylgt í
kaupunum. Enn eitt er víst að ára-
tuga leigusamningur við foreldra
hans og síðar hann var sama sem
óuppsegjanlegur meðan hann lifði.
Mundi var hvers manns hugljúfi og
þó hann gæti látið hvína í sér og sagt
sína meiningu þá var hlýtt hjarta
sem undir bjó. Hann hjúkraði for-
eldrum sínum í þeirra veikindum og
var þeim stoð og stytta. Hann sá al-
farið um heimili þeirra og eftir að
móðir hans missti heilsuna, hjúkraði
hann henni allt til dauðadags. Eftir
að hann var orðinn einn á loftinu
númer sautján, sá hann alfarið um
allt og naut ekki neinnar aðstoðar
hins opinbera, hvorki varðandi heim-
ilisaðstoð eða aðrar nauðþurftir, þótt
full ástæða hefði verið til.
Mundi giftist aldrei en eignaðist
einn son sem hefur af mikilli nær-
gætni litið með honum hin síðustu ár.
Mér er ofarlega í huga hvað hann tal-
aði oft um soninn Guðlaug og dásam-
aði hve vel hann hugsaði um sig og
nærgætinn hann væri og hjálpsam-
ur, einnig tengdadóttur sína, hana
Hildigunni, sem hann var afar hrif-
inn af og dýrkaði og drengina þeirra
tvo, þá Árna og Guðna Hrafn. Þau
sjá nú á eftir elskulegum föður og afa
sem bar hag þeirra fyrir brjósti í
hvert sinn sem minnst var á þau. Guð
styrki þau í sorg þeirra.
Seinustu ævidaga Munda var
hann í dagvist á Þorragötunni og átti
varla orð til að lýsa því hversu vel
væri búið að honum þar, bæði í mat
og öðru viðmóti. Ég náði að heim-
sækja hann þangað og heyrði hann
þá segja hversu ánægður hann var
með vistina. Hann hrósaði þar öllu,
bæði aðstöðunni og starfsfólkinu
sem hann bar mikla og djúpa virð-
ingu fyrir og sagðist sjaldan hafa lið-
ið eins vel og að dvelja þar á daginn.
Sundhöllina átti hann nánast sem
ástmey, sá hana rísa frá grunni og
var með þeim fyrstu sem nýttu sér
þá heilsulind og gerði alla ævi síðan.
Þar eignaðist hann góða félaga allt
frá fyrstu tíð sem sjá nú á eftir glað-
værum og hressilegum samferða-
manni sem mikill söknuður er að.
Enda var alltaf spurt klukkan hálf
sjö að morgni ef Mundi var ekki
mættur: Hvar er Mundi? Nú verða
menn sjálfir að kaupa sér í nefið,
hana nú.
Nú er Mundi allur og falla þá nið-
ur allar kaffiferðir eftir sund-
sprettinn niður á Granda og rökræð-
urnar um það hver ætti nú að borga.
Gekk umræðan stundum svo langt
að menntamálaráðherrann var
hvattur til að veita menningarstyrk í
þessar kaffiferðir, enda full ástæða
til þar sem umræðan var oft á háu
plani menningar. Þetta var fastur
punktur í tilverunni öll þau 15 ár sem
ég átti því láni að fagna að kynnast
þessum hressilega verkamanni
Reykjavíkur.
Við sundfélagar hans í Sundhöll
Reykjavíkur erum nú fátækari af
glaðværð og hressilegum uppákom-
um og söknum nú vinar í stað og
sendum ástvinum hans innilegar
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Hörður S. Óskarsson.
Sigmundi Magnússyni kynntist ég
á mörgum ánægjulegum samveru-
stundum eldsnemma á morgnana í
Sundhöll Reykjavíkur; var það oft
álíka hressandi og að fara upp á sól-
pallinn í norðangarra að skiptast á
orðum við hann og gantast um lands-
ins gagn og nauðsynjar. Sigmundur
sparaði ekki stóru orðin, ef svo bar
undir, og enginn átti neitt inni hjá
honum, en allt var gert í góðum anda
og sér til skemmtunar.
Traustari málsvara en Sigmund
átti Sjálfstæðisflokkurinn ekki í
hópnum og byggðist sú afstaða hans
á langri hollustu við flokkinn og þátt-
töku í starfi hans á sínum tíma innan
vébanda Óðins, málfundafélags sjálf-
stæðisverkamanna, sem var stofnað
29. mars 1938 af verkamönnum og
sjómönnum. Minntist Sigmundur oft
aðildar sinnar að því góða sjálfstæð-
isfélagi hér í Reykjavík og sagði frá
fundum, sem hann sótti þar.
Sigmundur bjó alla ævi í leiguhús-
næði við Frakkastíg og sagði mér
meðal annars frá kynnum sínum af
afa mínum og ömmu á Skólavörðu-
stíg 11a og matjurtagarði þeirra þar,
en aldrei fékk ég botn í það, hvort
hann hefði náð sér þar í rófu eða
næpu í óþökk ömmu minnar, Guð-
rúnar Pétursdóttur.
Þykir mér það ólíklegt, en hann
hafði stundum á orði, að hann hefði
farið sínu fram í æsku og á stuttri
skólagöngu sinni fyrst við Vatnsstíg
og síðan í Miðbæjarskólanum en
meðal þeirra, sem gengu þar í skóla
um líkt leyti, var dr. Gylfi Þ. Gísla-
son.
Sigmundur var kúskur. Hann
sótti einnig sjóinn og sigldi meðal
annars til Barcelona. Á stríðsárun-
um vann hann hjá Bretunum, síðar
varð hann vakt- og eftirlitsmaður á
öskuhaugunum á þeim slóðum, þar
sem nú er Eiðistorg og kunni marg-
ar sögur af Gullströndinni. Þá starf-
aði hann við það á vegum holræsa-
deildar borgarinnar að losa um
stíflur í skolpkerfi hennar. Ef
minnst var á einhvern góðborgara
við Sigmund brást ekki, að hann
sagði sögu af því, þegar hann var
kallaður á heimili hans til að hreinsa
klóakið eða dæla vatni úr kjallara
vegna þess, að flætt hefði. Hann lét
þess jafnframt oft getið, hvernig á
móti sér hefði verið tekið. Sögurnar
opnuðu sýn á lífið í Reykjavík, sem
blasir vissulega ekki við hverjum
sem er.
Sigmundur var jafnan kominn að
Sundhöllinni fyrir klukkan hálf sjö á
morgnana, þegar höllin er opnuð, og
var auðvelt að þekkja hann úr fjar-
lægð af alpahúfunni. Fyrir nokkrum
misserum fór heilsu Sigmundar að
hraka og síðustu skiptin, sem hann
kom í sund var það frekar af vilja en
mætti. Átti hann góða og umhyggju-
sama vini í hópnum, sem óku honum
heim og gerðu það, sem þeir máttu
til að létta honum sporin. Er Sig-
mundur kvaddur með söknuði og þá
ekki síst vegna glaðværðarinnar,
sem fylgdi honum. Færi ég syni hans
og fjölskyldu innilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Sigmundar
Magnússonar.
Björn Bjarnason.
SIGMUNDUR
ÓSKAR MAGNÚSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
7#
A83
5 &
94 &
(%! !(%!%*!
$ .
3&! ''$!
# 7 !! $$!
!4
# 7$(##
' 12 !
&
/ /
.3
#
. &
4 #
38
, 1<B
+
0 / # .
7
.&4 .4 4
!
' -2 '!3( $$!
"# !%!!-2 '!$(## .'!=$! $$!
% !!4-2 '!$(## C&++3 $
! -2 '!$(## 1 #3 !$1
$1 #-2 '!$(## ! %!$$!
'1 !12 !+
:
/ # /
3
4 .3.
4
%
5
$/ :D +
!!-2 '-2 !$(##
32 # $$!
! $(##
. $(##
$(##
=!$(##
!'12 '$(##
%!$$!
' =!3#(##
%!3#$!
3 2!!3#(##
$# !!3#$!
# !'(12 !1 !12 !'1 !1 !1 !+
2 3
4 .3.
4
,.,
.
5 )$ '
- ($+
0 /
7
' =! !! $(##
!! 7 !($$! 3 =!(3!$(##
! 7 !($$!
-2 ! 7 !($$!
!'#/!$
/ =! 7 !($(##
E . 7 !($$! (5(($(##
' =! 7 !($(## & -2 !$$!
' 12 !+