Morgunblaðið - 14.12.2002, Side 42
LISTIR
42 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skólavörðustíg 15 • Sími 511 5656
Opið til kl. 22 alla daga til jóla
Sendum í póstkröfu
Atli Heimir Sveinsson -
Tíminn og vatnið -
2 cd. „Meistaraverk“.
B.J. Mbl. 7.12. 2002.
Jóhann Jóhannsson -
Englabörn
Gullfalleg strengjatónlist
úr samnefndu leikriti.
„...áhrifarík og býr yfir
mikilli fegurð“.
V.P. Mbl. 3.12. 2002.
Gott úrval af djassi, heimstónlist, rokki,
raftónlist, reggí og hljómplötum.
Öll íslenska jólaútgáfan
Mælum sérstaklega með tveimur diskum
sem hlutu tilnefningar til Íslensku
tónlistarverðlaunanna 2002.
Bjóðum tónlistarunnendur
velkomna í verslun okkar
Landsins mesta úrval af klassískri tónlist.
Hinn vinsæli útvarpsmaður Halldór Hauksson
veitir faglega ráðgjöf.
Á KJARVALSSTÖÐUM stendur
nú yfir sýning á verkum danska
listamannsins Martin Bigum. Sýn-
inguna nefnir hann „The Homecom-
ing, Or: The World According to
Art“, sem er eflaust tilvitnun í æv-
intýralega skáldsögu John Irving,
„The World According to Garp“. Á
sýningunni eru aðallega málverk, en
einnig er að finna ljósmyndir og einn
skúlptúr á vegg sem virkar reyndar
sem þrívíð mynd frekar en rýmis-
verk.
Bigum er nokkuð kunnur málari
af yngri kynslóð listamanna í Dan-
mörku. Þeir sem sáu Carnegie-sýn-
inguna í Gerðarsafni árið 2001 kunna
að muna eftir verkum hans á þeirri
sýningu, en þau verk eru einnig á
meðal myndanna á Kjarvalsstöðum.
Bigum er ekki menntaður í listahá-
skóla heldur kemur hann frá mynda-
sögukúltúr. Hann starfaði sem
teiknari hjá bandaríska myndasögu-
blaðinu MAD Magazine en fékk ekki
útrás fyrir listsköpun sína þar og hóf
þá að mála á eigin forsendum og
sýna í galleríum. Það er ekki óal-
gengt að listamenn með annan bak-
grunn en akademíska myndlistar-
menntun nái í gegn í listheiminum.
Nærtækt dæmi er landi Bigums, Per
Kirkeby, sem var jarðfræðingur áð-
ur en hann sneri sér að málverkinu
og hefur menntun hans vafalaust sitt
að segja um hvernig landslagið birt-
ist í verkum hans. Nýjasta dæmið er
Ron Mueck, einn af vinsælli mynd-
listarmönnum Breta í dag, en hann
lærði brúðugerð og gerði brúður fyr-
ir sjónvarpsþættina Sesamy street
áður en hann fór að fást við frjálsa
listsköpun. Þegar Bigum sneri sér að
myndlistinni fyrir um 10–15 árum
fór hann að velta fyrir sér stöðu
myndlistar eins og hann sjálfur upp-
lifði hana. Tók hann þá að tákngera
myndlistina í skopmyndafígúru sem
hann nefndi „Art“ og er þessi fígúra
ríkjandi í verkum hans fram til árs-
ins 2000. Art er klæddur grænum
kufli og ber ljá líkt og dauðinn hefur
verið túlkaður gegnum tíðina. Art er
þó skondinn útlits og virðist yfirleitt
vera í einhverjum vandræðum. Í
seinni myndunum er Art oft að
deyja. Hann er skotinn í bakið, fros-
inn eða liggur á dánarbeði á spítala-
stofu. Má túlka það sem upplifun
Bigum á myndlistinni en jafnframt
má líta svo á að Bigum sé að drepa
Art til að losa sig við hann úr mynd-
list sinni, sem hann svo gerði. Mynd-
irnar eru dökkar og umhverfi oft
drungalegt sem hefur kannski með
skandinavískan bakrunn lista-
mannsins að gera, sbr. muninn á
Bigum og kollegum hans frá meg-
inlandi Evrópu og Bandaríkjunum
sem leita á sambærileg mið. Jafnvel í
ljósmyndaröð sem hann tók í Tívolíi
Kaupmannahafnar kýs hann að sýna
okkur skemmtigarðinn þegar hann
er lokaður að vetri til. Bigum er á
þjóðlegum nótum í fleiri verkum en í
Tívolí ljósmyndaröðinni. Verkið
„Sjálfsmynd (sem H.C. Andersen:
Skugginn)“ er tilvitnun í þekkt æv-
intýri Andersen sem fjallar um
mann sem glatar skugga sínum. Þeir
hittast aftur mörgum árum síðar og
þá er skugginn orðinn einstaklingur.
Athyglisvert er að Bigum skuli finna
sjálfan sig í skugganum en ekki
manninum, þ.e. sá sem týnist og í leit
sinni að eiganda sínum finnur sjálfan
sig. Má tengja það við leitina sem á
sér stað í listsköpuninni og einnig við
yfirskrift sýningarinnar „The Home-
comin“ (Heimkoman), en „að koma
heim“ er gjarnan notað þegar mann-
eskja „finnur sjálfa sig“. Bigum
heldur áfram að vinna með „skugg-
ann“ í fleiri málverkum. Í verkinu
„Skugginn (með blómum)“ er hann
skylmingarkappi og í „Hunter & the
Hunted“ starir fjöldi af fólskulegum
skuggum á spegilmynd sína. Það síð-
arnefnda útfærir listamaðurinn bæði
í málverki og ljósmynd og verð ég að
segja að málverkið virkar mun
sterkara á mig en ljósmyndin.
Sem listmálari lætur Bigum efn-
istök ekki tala fyrir tilfinningar sínar
og upplifanir, heldur styðst hann við
teiknimyndastíl og notar frásagnar-
eiginleika mynda sérlega vel. Þrátt
fyrir myndasögustílinn byggjast
málverkin á persónulegri mynd-
sköpun sem þó stendur áhorfenda-
num opin og á sinn hátt getur hann
lesið í myndirnar og túlkað þær að
vild.
Myndasögur í málverki
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir
Safnið er opið daglega frá kl. 10–17. Sýn-
ingunni lýkur 5. janúar.
MÁLVERK, LJÓSMYNDIR OG SKÚLPTÚR
MARTIN BIGUM
Sjálfsmynd Bigum sem „Skugginn“
í ævintýri H.C. Andersen.
Jón B.K. Ransu
„FALL Íkarusar“ heitir sýning sem
nemendur við Listaháskóla Íslands
opna hjá Sævari Karli í Bankastræti
í dag, laugardag, kl. 16.
„Sýningin er þannig til komin að
nemendur við Listaháskólann hafa
verið á námskeiði hjá mér, sem heit-
ir „Fall Íkarusar“, segir Halldór
Björn Runólfsson lektor við skólann.
„Námskeiðið fjallar um það fyr-
irbæri í nútíma- og samtímalist, ef
til vill á það við um allar listir, að
stefnur koma fram með miklu og
hetjulegu offorsi, en mýkjast svo
jafnharðan upp og leita óðar á dýpt-
ina. Þannig er jafnan ýtt úr vör með
mikilli og bjartsýnni karlmennsku,
sem jafnharðan snýst upp í fágaða
djúpköfun þegar Íkarus missir flug-
ið, vængir hans bráðna, og hann
steypist óhjákvæmilega í hafið.
Margt bendir til að svona hafi list-
irnar alltaf artað sig frá dögum
Forn-Grikkja, eins og sjá má á þró-
un harmleiksins frá Æskilosi til Evr-
ipídesar.
Hugmyndina að sýningu áttu
nemendur mínir í Listaháskólanum,
á áðurnefndu námskeiði, „Fall Ík-
arusar“, sem jafnframt er heiti sýn-
ingarinnar, og eru þeir um 20 að
tölu, ef mig misminnir ekki. Þeir
hafa verið að kanna þessa þróun í
samtímanum, einkum hvernig þetta
snýr að kynjahugmyndunum, hinu
karlmannlega og kvenlega. Þar
virðist þetta koma berlega í ljós í því
að hörkuleg, karlmannleg framsetn-
ing hrindir úr vör nýjum stefnum,
en síðan tekur við mjúkleg, kvenleg,
og margslungin úrvinnsla, sem flyt-
ur næstu kynslóðum kyndilinn.“
Nemendurnir sýna hvers kyns
verk í sýningasal Sævars Karls en
jafnframt á öðrum stöðum í versl-
uninni. Flest verkin munum þó vera
málverk.
Sýningin stendur til 19. desem-
ber.
Karlmann-
leg gildi
hopa fyrir
hinum
kvenlegu
Svefn skynseminnar; verk eftir Elísabetu Olku.