Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 53 ✝ Ebeneser Þórar-insson fæddist í Fagrahvammi í Skut- ulsfirði 27. ágúst 1931. Hann lést á heimili sínu á Ísafirði 9. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðrún Krist- jana Ebenesersdótt- ir, f. á Látrum í Mjóa- firði 2. desember 1910, d. 29. ágúst 1932, og Þórarinn Sigurður Jóhannes- son, f. í Bolungarvík 17. febrúar 1903, d. 4. maí 1973. Ebeneser missti móður sína rétt árs gamall og fór þá í fóst- ur í Neðri-Tungu til hjónanna Kristínar Hagalínsdóttur, f. 18. júlí 1883, d. apríl 1947 og Halldórs Jónssonar, f. 27. október 1883, d. 6. október 1951. Fyrir áttu þau hjón tvo syni Sigurjón Hagalín, f. 24. febrúar 1912, d. 3. júlí 1983, Bjarna, f. 1. júlí 1913, d. 9. júní 1991 og fósturdótturina Soffíu Magnús- dóttir, f. 11. febrúar 1927. Ebenes- er átti einn bróður, Guðjón Kristján Þórarinsson, f. 13. júlí 1932, d. 1996. Guðjón fór í fóstur til föður- systur sinnar. Ebeneser kvæntist 4. júlí 1953 eftirlifandi eiginkonu sinni Ólafíu Elísabetu Agnarsdóttur, f. á Skóg- um í Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði Vegna áhrifa frá fósturbræðrum hans fór Ebeneser snemma að stunda skíði. Hann byrjaði fljótlega að taka þátt í héraðsmótum og síð- ar að keppa á landsmótum. Hann iðkaði og keppti í ýmsum greinum skíðaíþróttar, göngu, stökki, bruni og svigi. Hann keppti í skíðagöngu á Ólympíuleikunum í Ósló 1952, og var það fyrsta skíðagöngulið sem keppti fyrir hönd Íslands á Ólymp- íuleikum. Í framhaldi af því tók hann þátt í Vasagöngunni sama ár, ásamt nokkrum félögum sínum. Hann vann við almenn sveitarstörf fram að tvítugu á heimili fósturfor- eldra sinna. Hann gerðist leigubíl- stjóri 1953 og stundaði það til 1956, bæði á Ísafirði og í Keflavík. Á vor- dögum 1956 stofnuðu Ebeneser og Gunnar Pétursson saman fyrirtæk- ið Gunnar og Ebeneser. Í fyrstu var keypt jarðýta, en síðar ráku þeir aðrar jarðvinnuvélar og áttu þátt í að leggja ýmsa vegi á Vestfjörðum. Þeir hófu fyrstir vörurflutninga á landi til Ísafjarðar árið 1959, um leið og landleiðin opnaðist til Ísa- fjarðar. Síðar komu til samstarfs við þá, bræðurnir Björn og Guð- mundur Finnbogasynir. Þeir ráku vöruflutninga til 1980 og vinnu- véla- og verktakavinnu til ársins 1985. Jafnframt önnuðust þeir mjólkurflutninga fyrir Mjólkur- samlag Ísafjarðar í rúm 30 ár. Árið 1985 hóf Ebeneser eigin rekstur með jarðýtu sem hann stundaði að endadægri. Ebeneser var félagi í Odfellow stúkunni Gesti á Ísafirði. Ebeneser verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. 6. maí 1932. Þau eiga sjö börn, þau eru: 1) Agnar, f. 17. maí 1953. Hann á fimm börn og fjögur barnabörn. Maki Margrét Lilja Pétursdóttir, f. 22. nóv- ember 1964, þau eiga ekkert barn saman en Margrét á tvö börn fyr- ir. 2) Halldór, f. 4. októ- ber 1954, maki Ásgerð- ur Kristjánsdóttir, f. 2. október 1955, þau eiga þrjú börn. 3) Kristinn Guðni, f. 13. ágúst 1956, maki Margrét Bjarndís Jensdóttir, f. 25. janúar 1959. Þau eiga þrjú börn. Kristinn á eina dóttur fyrir og tvö barna- börn. 4) Guðrún Sólveig, f. 6. nóv- ember 1959, maki Þorgeir Guð- björnsson, f. 28. maí 1957, þau eiga tvo syni og fyrir á hún tvo syni. Þorgeir á tvö börn fyrir. 5) Þur- íður, f. 2. desember1962, maki Magnús Snorrason, f. 15. janúar 1957, þau eiga tvö börn. 6) Auður Kristín, f. 17. maí 1969, maki Einar Þór Karlsson, f. 22. október 1969, þau eiga tvö börn. 7) Ósk Ingibjörg, f. 17. maí 1969. Ebeneser á dótt- urina Jóhönnu, f. 11. júní 1968, maki Arthur Páll Þorsteinsson, f. 26. nóvember 1962. Þau eiga fjögur börn. Jóhanna á eina dóttur fyrir og eitt barnabarn. Elskulegur faðir okkar er látinn. Það er erfitt að vita til þess að maður sem hefur alla tíð verið við hesta- heilsu skuli fara svo snögglega sem raun bar vitni. En minningarnar streyma fram um ljúfan og einstak- lega góðan pabba. Við vorum ekki há- ar í loftinu þegar fórum að sækjast eftir því að fara með honum í vinnuna, enda um mjög skemmtilega og spenn- andi vinnu að ræða; að keyra mjólk- urbílinn um sveitir Vestfjarða! Og við fengum að sitja í fanginu á honum til skiptis og „hjálpa“ til við aksturinn. Það lýsir hógværð pabba að það var ekki fyrr en þegar við sjálfar byrj- uðum að æfa og keppa á gönguskíð- um að við gerðum okkur grein fyrir afrekum hans á því sviði. Um marg- faldan meistara var að ræða og topp- urinn var þátttaka hans á Olympíu- leikunum í Ósló 1952. Hann var okkur góð fyrirmynd og lagði mikla áherslu á að keppni væri ávallt leikur. Hann studdi við bakið á okkur en án alls þrýstings. Við bros- um þegar við minnumst orðatiltækis hans þegar hann hvatti okkur í keppnum: „hlauptu eins og tófa!“ Þegar við vorum, til þess að gera, nýbyrjaðar að keppa á gönguskíðum bauðst okkur að fara á Andrésar And- ar-leikana. Það kom í hlut pabba að vera einn af fararstjórunum, okkur reyndar til mikillar skelfingar þar sem nú sáum við fram á að geta ekk- ert pælt í öllum sætu strákunum á Akureyri. En það var nú öðru nær en að við værum undir einhverju sér- stöku eftirliti og höfðum við orð á því hversu notarlegt það væri að hafa pabba með okkur. Í lokin langar okkur að fara með morgun- og kvöldbæn sem pabbi og mamma kenndu okkur: Nú er ég klæddur og komin á ról , Kristur Jesús veri mitt skjól, í guðsóttanum gefðu mér, að ganga í dag, svo líki þér. (Höf. ók.) Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Auður og Ósk. Rétt í þessu flaug lítill fugl við gluggann minn og mér varð hugsað til þess hvort þú hefðir vængi og gætir séð mig hér dapra með tárvot augu. Þú varst orðinn gamall og búinn að eiga góða ævi og ég veit að þú ert á góðum stað þar sem þér líður vel. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Við áttum svo stutt en góð kynni og ég kemst ekki hjá því að finna til sjálfsvorkunnar þegar ég hugsa til þeirra stunda sem ég ætlaði að eiga með þér á næstu árum. Aldrei hvarfl- aði það að mér að þau gætu svo snögglega verið tekin frá mér. Elsku Beta, hugur okkar er hjá þér. Elsku pabbi, ég græt það sem ég missti, en gleðst yfir því sem ég fékk og tækifærinu til að kynnast þér og þinni góðu fjölskyldu. Bros þitt og hlýju augun munu hughreysta mig þegar ég hugsa til þín. Þín dóttir, Jóhanna. Afi minn var mjög skemmtilegur maður. Þegar hann hringdi heim þá spurði hann um „Brynku“ sína, en það var það sem hann kallaði mig oft. Meira að segja þegar ég skoðaði símabókina hans í GSM-símanum hans þá stóð þetta uppnefni þar, sem mér finnst mjög vænt um. Mér þótti rosalega vænt um afa og það var það versta í heimi að vita að væri látinn. Hann á alltaf eftir að vera í hjarta mínu. Guð og góðir englar geymi hann. Brynhildur Ósk (Brynka). Ebbi afi, nú er hann kominn til guðs. Nú fáum við aldrei að sjá hann aftur. Hann var góður. Ég sakna þín og ég veit að þú dóst og mér finnst ekki gott að þú dóst og mér þykir vænt um þig. Nú veit ég að þú ert hjá Guði og mér þykir vænt um þig. Ég veit að Eyjólfi finnst það líka. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pétursson.) Með þessum orðum kveðjum við Ebba afa á Ísafirði. Einar Þór Karlsson, Arnaldur Karl Einarsson og Eyjólfur Jóhann Einarsson. Elsku afi, mér sárnar að þú sért farinn. Mér sárnar að vita að ég get ekki hitt þig og deilt með þér svo mörgu sem mig hefði langað til að gera. Leyfa Emilíu að kynnast þér, hvað þú varst yndislegur maður, afi og langafi. En það sem hjálpar mér er að ég veit að þú fylgist með okkur frá Guði, og ég segi henni hversu yndislegan langafa hún átti og á, því þú munt lifa í hjarta okkar. Við elskum þig. Ég vil ekki kveðja þig svo ég segi bara að við sjáumst seinna. Þínar Tinna og Emilía Birta. Mig setti hljóðan þegar Veiga hringdi í mig í hádeginu á sunnudag- inn var og sagði mér að hann Ebbi vinur minn væri dáinn, ég hafði átt gott samtal við hann kvöldið áður og var hann hress að vanda. Að vísu hafði hann verið á sjúkrahúsi um tíma en beið nú eftir frekari rannsókn. Mér er bæði ljúft og skylt að setja á blað nokkur kveðjuorð um látinn vin og félaga frá því ég man fyrst eftir mér. Ebeneser Þórarinsson, eða Ebbi í Tungu, eins og hann var oftast nefnd- ur fæddist í Fagrahvammi í Skutuls- firði og bjó hér í firðinum alla tíð. Þór- arinn faðir hans og móðir mín voru fóstursystkin, þannig að mjög mikil tengsl urðu strax milli okkar á mörg- um sviðum. Ebbi missti móður sína þegar hann var árs gamall og var þá tekinn í fóstur hjá þeim heiðurshjón- um Halldóri og Kristínu í Neðri- Tungu og er hann þar til fullorðins- ára. Það voru mikil forréttindi að fá að kynnast því myndarheimili sem Tunga var, bæði heimilisbrag og um- gengni við menn og málleysingja. Ég var svo heppinn að fá að vera mjólk- urpóstur í Tungu í þrjú sumur, og þá kynntumst við Ebbi enn frekar í leik og starfi. Þessi sumur voru mjög lærdóms- rík, ekki síst fyrir að njóta leiðsagnar Tungubræðra Sigurjóns og Bjarna, það mótaði unglinga sem oft voru margir í Tungu á sumrin. Eitt af því sem var fastur liður í Tungu var að hlýða á messu í útvarp- inu á sunnudögum, þar urðu allir að mæta og allir fengu sálmabækur og sungu með eftir getu. Þetta eru ógleymanlegar stundir. Tungubræður voru miklir áhuga- menn um íþróttir, og lengi í forustu- sveit á því sviði, sérstaklega var það skíðaíþróttin þótt aðrar greinar fylgdu með eins og glíma og frjálsar. Má segja að Tunga hafi verið mið- stöð skíðaiðkunar, sérstaklega göngu í áratugi. Það var því eðlilegt að Ebbi yrði snemma liðtækur skíðamaður og varð einn af fremstu göngumönnum landsins um skeið. Hann varð Ís- landsmeistari í göngu og boðgöngu mörgum sinnum. Hann var ásamt undirrituðum og Oddi Péturssyni val- inn til þátttöku á Ólympíuleikum í Ósló árið 1952 auk þriggja Þingey- inga. Eftir leikana var honum og und- irrituðum ásamt þeim Ívari Stefáns- syni og Sigurjóni Halldórssyni boðin þátttaka í Vasagöngunni í Svíþjóð og voru það fyrstu Íslendingarnir sem þar tóku þátt. Þar stóð Ebbi sig best Íslendinganna. Í sömu ferð keppti hann í 50 km göngu á Holmenkollen við alla bestu Svía, Norðmenn og Finna og varð Ebbi númer 27 í mark. Þetta tel ég tvímælalaust vera besta árangur sem nokkur íslenskur göngumaður hefur náð. Margar fleiri keppnisferðir fórum við saman með góðum árangri en ferðirnar á Ól. og Vasa 1952 standa langt uppúr í minn- ingunni. Samleið okkar Ebba hélt áfram á öðrum vettvangi, árið 1956 keyptum við saman 18 tn jarðýtu og hófum rekstur vinnuvéla. Síðan hófum við vöruflutninga milli Ísafjarðar og Reykjavíkur fyrstir manna haustið 1959 og stofnuðum ásamt þeim Birni og Guðmundi Finnbogasonum fyrir- tækin Gunnar og Ebeneser h/f og Jarðýtur h/f árið 1963. Við stóðum í þessum rekstri fram á níunda áratug- inn. Ebbi var afbragðs ýtustjóri og sögðu sumir að það væri engu líkara en hann hefði fæðst með ýtu í hönd- unum, hann gæti gert veg úr öllu og borið ofan í um leið. Það fer ekki á milli mála að í svona rekstri skiptast á skin og skúrir en aldrei gaf svo mikið á að ekki væri hægt að ná landi og átti Ebbi ekki minnstan þátt í því. Ebbi fór ekki langt til að ná sér í lífsförunaut, því Beta átti heima hinum megin við ána á Selja- landsbúinu. Ekki minnkuðu sam- skipti okkar eftir að þær kynntust hún Beta og Sigga mín því þær voru miklar vinkonur alla tíð og tókst mikil vinátta milla barna okkar og heimila sem hefur haldist alla tíð. Við Ebbi gengum báðir til liðs við stúkuna no. 6. Gest IOOF og störfuðum þar sam- an í rúm 20 ár, hann var virkur félagi í stúkustarfinu enda þannig gerður að hugur hans féll vel að starfi stúkunn- ar. Ef ég væri spurður að því hvernig maður Ebbi væri, þá á ég aðeins eitt orð í mínum huga, hann var valmenni sem ekki mátti vamm sitt vita. Ég veit að Ebbi er kominn á annað tilverustig sem ég veit að hann trúði á, því kveð ég hann um sinn og trúi að honum líði vel. Að lokum þakka ég honum órofa ævilanga vináttu og tryggð og bið Betu og fjölskyldunni allri guðs bless- unar. Far þú í friði kæri vinur Gunnar Pétursson. Hann getur verið þungur penninn þegar maður ætlar að minnast góðs vinar til margra ára. Ef ætti að lýsa Ebeneser, eða Ebba eins og hann var venjulega kallaður, þá væri trygg- lyndur, góðviljaður öðlingur réttu orðin. Við undirrituð vorum lánsöm þegar við hófum búskap, þá áttu þau heima í næsta húsi. Þótt skipt hafi verið um bústaði hefur aldrei verið lengra en fimm mínútur á milli, og varla liðið vikan svo ekki væri haft samband, enda krakkarnir okkar á sama aldri. Það verður ekki annað sagt en að það eru forréttindi að kynnast svona fólki eins og Ebba og hans konu, Elísabetu, og eiga þau að vinum í áratugi. Þó að það kæmu bæði skin og skúrir hafa þau alltaf verið sömu höfðingjarnir. Ebeneser missti móður sína mjög ungur og var komið í fóstur hjá Hall- dóri og Kristínu í Tungu í Skutuls- firði. Þar ólst hann upp í góðu atlæti með fóstursystur og tveimur fóstur- bræðrum, sonum Halldórs og Krist- ínar, miklum skíðagörpum sem Ebbi tók sér til fyrirmyndar. Hann var um árabil fremstur og með þem fremstu í mörgum greinum skíðaíþrótta og náði þeim árangri sem alla íþrótta- menn dreymir um að taka þátt í ólympíuleikum (1952). Eftir venjulega skólagöngu þess tíma hefur Ebeneser lengst af verið sjálfstæður atvinnurekandi, aðallega með flutningabíla og þungavinnuvél- ar ásamt félaga sínum, Gunnari Pét- urssyni. Fyrir um tveim vikum veikt- ist Ebbi og var fluttur á sjúkrahús. Eftir stutta legu virtist hann á bata- vegi og var komin heim þegar kallið kom skyndilega og ekkert varð við ráðið. Góður drengur var fallinn frá allt of snemma. Far þú í friði, góði vinur. Þökkum allar góðu stundirnar. Inni- legar samúðarkveðjur til fjölskyld- unnar. Agnes og Karl Aspelund. EBENESER ÞÓRARINSSON Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUNNLAUGUR JÓNASSON, Hæðargötu 5, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtu- daginn 13. febrúar. Anna Þórðardóttir, Laufey Gunnlaugsdóttir, Sigurður Jensson, Sveinbjörg Gunnlaugsdóttir, Friðbjörn Júlíusson, Bylgja Gunnlaugsdóttir, Sverrir H. Geirmundsson, Borgar Már Gunnlaugsson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, RAGNHILDUR VALGERÐUR JOHNSDÓTTIR, Sæviðarsundi 90, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að kvöldi fimmtudagsins 13. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Sigurjón Jónsson Bláfeld, Karen Kristjánsdóttir, Guðmundur Hafsteinsson, John Snorri Sigurjónsson, Jónína Björnsdóttir, Kristín Sigurjónsdóttir, Hildur, Kristján og Halla Karen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.