Morgunblaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Borgarveisla
Heimsferða í haust
fylgir blaðinu í dag
FRÁ því Lífeyrissjóður verslunar-
manna hóf kaup á erlendum hluta-
bréfum árið 1994 hefur raunávöxtun á
þessum eignum skilað sjóðnum 12,1%
neikvæðri ávöxtun. Tap er einnig á
erlendum fjárfestingum Lífeyris-
sjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs
Norðurlands.
Kaup íslenskra lífeyrissjóða á er-
lendum hlutabréfum, sem almennt
hófust um miðjan síðasta áratug, hafa
yfirleitt ekki enn skilað sjóðunum
ávinningi. Þvert á móti virðast þessar
fjárfestingar hafa valdið þeim veru-
legu tapi miðað við stöðuna í dag.
Þetta sést vel á ársreikningi Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna. Sjóðurinn
hóf að kaupa hlutabréf erlendis árið
1994. Í upphafi skilaði þessi fjárfest-
ing góðri ávöxtun, en síðustu ár hefur
ávöxtunin verið mjög slök. Árið 2001
var raunávöxtun sjóðsins af erlendum
hlutabréfum neikvæð um 11,8% og í
fyrra var hún neikvæð um 37,4%. Ár-
in 1994–2002 hefur þessi eign sjóðsins
skilað 12,1% neikvæðri ávöxtun.
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna, segir að
þessi niðurstaða endurspegli það sem
hafi verið að gerast á erlendum mörk-
uðum. „Þetta er stöðumæling. Von-
andi hækkar verðið á mörkuðunum í
framtíðinni og þá hefur það áhrif á
þessa fjárhæð. Það er ekki búið að
innleysa þetta tap.“
Svipuð útkoma er hjá Lífeyrissjóði
Norðurlands. Raunávöxtun á erlend-
um hlutabréfum sjóðsins var neikvæð
um 42,1%. Raunávöxtun á þessari
eign sjóðsins sl. fimm ár er neikvæð
um 8,3%.
Aðrir sjóðir hafa ekki birt árs-
skýrslur sínar, en Bjarni Brynjólfs-
son, framkvæmdastjóri Lífeyris-
sjóðsins Framsýnar, segir að ávöxtun
sjóðsins á erlendum hlutabréfum sé
neikvæð þegar horft er aftur til ársins
1997 þegar sjóðurinn hóf að kaupa er-
lend hlutabréf. Hann bendir á að Dow
Jones-vísitalan sé núna í svipuðu horfi
og hún var í árslok 1997. Nasdaq sé
hins vegar heldur lægri í dag en í árs-
lok 1997.
Lélega ávöxtun á erlendum eignum
lífeyrissjóðanna á síðasta ári má að
hluta til rekja til hækkunar á gengi
krónunnar. Fátt bendir til að sjóðirnir
eigi eftir að ná þessu tapi til baka á
allra næstu árum því flestir spá því að
gengi krónunnar verði áfram hátt á
næstu árum samhliða miklum fram-
kvæmdum innanlands og hækkandi
vöxtum.
Spá um lélega ávöxtun í ár
Í ársskýrslu Lífeyrissjóðs Norður-
lands er ekki lýst mikilli bjartsýni
varðandi ávöxtun á þessu ári. „Vænt-
ingar um hækkanir á þessu ári eru því
litlar og gæti svo farið að árið 2003
verði fjórða árið í röð með slakri
ávöxtun erlendra hlutabréfa.“
Bjarni Brynjólfsson segir að þótt
óvissu varðandi stríðið í Írak sé að
ljúka séu ýmis önnur vandamál sem
hafi áhrif á hlutabréfaverð. Hann seg-
ist þó ekki sjá fram á að verð hluta-
bréfa lækki hratt í ár líkt og þau
gerðu í fyrra. Ef markaðirnir haldi í
horfinu í ár skili erlend eign Fram-
sýnar jákvæðri niðurstöðu.
Tap á erlendum eignum Lífeyrissjóðs verslunarmanna
Raunávöxtun frá 1994
neikvæð um 12,1%
ÞJÓNUSTUKÖNNUN sem Starfs-
greinasambandið gerði á síðasta ári
leiddi í ljós að sjúkrasjóðir stéttar-
félaga greiða frá 840 krónum á dag
upp í 4.200 krónur. Sumir sjóðir
greiða dagpeninga í allt að 90 daga á
meðan aðrir greiða allt upp í 300
daga. Þessi munur endurspeglar
mismunandi fjárhagsstöðu sjóðanna.
Eignir öflugasta sjóðsins, sjúkra-
sjóðs Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, námu um síðustu ára-
mót tæplega 1,5 milljörðum króna.
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR,
sagði að innan félagsins væri að hefj-
ast umræða um að félagið gæfi eftir
hluta af kjarasamningsbundnum
veikindarétti félagsins gegn því að
vinnuveitendur féllust á að auka or-
lofsréttindi félagsmanna. Þetta yrði
vonandi innlegg VR í komandi kjara-
viðræður. Hann sagði að félagið gæti
gert þessa breytingu vegna þess að
sjúkrasjóður VR væri fjárhagslega
sterkur. Breytingin myndi ekki leiða
til neinna breytinga á greiðslum til
fólks sem hefði veikst.
Mikill munur á rétt-
indum sjúkrasjóðanna
Greiða 840
til 4.200 kr.
í sjúkra-
dagpeninga
Mikill munur/11
Morgunblaðið/RAX
TVÆR konur stunda nú nám við
Stýrimannaskólann í Reykjavík og
mun önnur ljúka fyrsta stigs prófi
í vor. Frá upphafi skólans hefur
ein kona útskrifazt af öðru stigi,
fjórar af því þriðja en aðeins ein
hefur lokið fjórða stiginu, skip-
herrastiginu svokallaða.
Aðeins þrjár konur hafa lokið
fjórða stigs námi frá Vélskólanum,
sú fyrsta 1978 og sú síðasta 2001.
Það er ekki algengt að konur
afli sér menntunar til stjórnunar-
starfa á sjó, en tvær ungar stúlkur
eru nú að nýta sér þá menntun
sína. Önnur, Ragnheiður Svein-
þórsdóttir, hefur verið stýrimaður
á fiskiskipum í vetur. Hin, Þórunn
Ágústa Þórsdóttir, hefur nýtt sér
sína menntun í virkjunum og hefur
verið vélavörður á sjó, en nemur
nú véltæknifræði í Tækniháskóla
Íslands.
Þær Þórunn og Ragnheiður
segjast í samtali við Morgunblaðið
hafa orðið varar við fordóma í garð
kvenna sem stundi sjóinn og að
sumir karlmenn neiti bókstaflega
að vinna með konum.
„Margir eru hræddir við að hafa
konur um borð, sérstaklega í
löngum veiðiferðum. Þar getur
einangrunin orðið mikil og sumir
eru hræddir við afleiðingar þess,
án þess þó að tilgreina sérstaklega
hverjar þær ættu að vera. Það hef-
ur heyrst að eiginkonur sjómanna
hafi sett sig upp á móti því að út-
gerðir ráði konur á skip sín,“ segja
þær.
Verða
varar við
fordóma
Kalla mig/B6
„VIÐ reyndum að færa okkur eins
langt frá brennandi flakinu og við
gátum og lágum í snjónum um 10
metrum frá flakinu og biðum björg-
unar, líklega í eina og hálfa klukku-
stund. Ég minnist þess aðallega hvað
það var kalt á meðan við biðum,
enda skulfum við báðir af kulda.“
Þetta segir Unnsteinn Örn Elvars-
son, tvítugur flugnemi og annar
tveggja flugmanna sem lifðu af flug-
slysið í Hvalfirði föstudagskvöldið
28. mars. Lá hann á sjúkrahúsi til 7.
apríl og er nú að jafna sig heima við.
Hann hefur stundað flugnám í þrjá
vetur samhliða námi í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ og stefnir að
stúdentsútskrift frá FG í vor.
Unnsteinn var ásamt prófdómara
í tveggja sæta Cessnu 152 sem brot-
lenti í Miðfellsmúla í Hvalfirði.
Léttir að sjá bóndann nálgast
„Ég kann að hafa rotast í brot-
lendingunni, enda man ég ekki eftir
mér fyrr en félagi minn var að
hjálpa mér út úr flakinu. Hann hjálp-
aði mér mjög mikið og hélt á mér
hita, þrátt fyrir að hann væri tölu-
vert slasaður sjálfur. Það hefði verið
slæmt að vera án hans. Hugsunin um
það hvort einhver kæmi okkur til
bjargar var einnig ofarlega í huga
okkar þar sem við lágum hjá flakinu
og þar kom að bóndinn [Jón Val-
garðsson á Eystra-Miðfelli] kom til
okkar. Við efuðumst reyndar aldrei
um að einhver kæmi okkur til bjarg-
ar og að vissu leyti vorum við heppn-
ir að það skyldi kvikna í vélinni, því
eldbjarminn sást langt að. Okkur
létti mjög mikið við að sjá bóndann
nálgast á jeppanum. Hann hjálpaði
mér síðan að bílnum og einnig komu
tvær konur úr nálægum bústað með
teppi.“
Í slysinu ristarbrotnaði Unnsteinn
og hlaut 2. stigs bruna á annarri
hendinni, auk bruna á höfði og
vinstra fæti. Þá þurti að sauma 7
spor í skurð ofan við hægra auga og
16 spor að auki í annan fótinn. Að-
spurður segist Unnsteinn hafa gert
sér nokkra grein fyrir meiðslum sín-
um rétt eftir slysið. „Ég gat mér þess
til að ég hefði fótbrotnað og kenndi
nokkuð til í fætinum, en þó var það
léttvægt miðað við kuldann.“
Unnsteinn vill koma á framfæri
þökkum til Jóns Valgarðssonar,
starfsfólks Landspítalans, prófdóm-
ara síns og allra sem hjálpuðu til við
björgunina.
Unnsteinn Örn Elvarsson flugnemi sem komst lífs af úr flugslysinu í Hvalfirði
Erfitt að bíða í kuldanum
Morgunblaðið/Golli
Unnsteinn Örn Elvarsson flugnemi
er á batavegi og ætlar að halda
áfram flugnámi er heilsan leyfir.
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út
á páskadag, sunnudaginn 20. apríl.
Fréttaþjónusta verður að venju á
fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is,
alla páskahelgina. Hægt verður að
koma ábendingum um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is eða í síma
861-7970. Á fréttavefnum er einnig
að finna minnisblað lesenda og upp-
lýsingar um kirkjustarf.
Fréttaþjónusta
um páska
MARGIR hafa ákveðið að leggja
land undir fót um páskahelgina
enda verður hún æ vinsælli sem
ferðahelgi meðal landsmanna.
Hvort sem leggja á í langferð eða
einfaldlega bregða sér upp í sum-
arbústað finnst mörgum tilheyra að
stoppa í sjoppu á leiðinni og fá sér
eina með öllu. Þetta fólk hafði gert
hlé á ferð sinni og var að gæða sér á
pylsum í Borgarnesi þegar ljós-
myndara bar að garði en ekki
fylgdi sögunni hvert ferðinni var
heitið.
Ferðahelgi
framundan