Morgunblaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 203. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Af sál og
sælu
Áheyrnarpróf fyrir Motown-
sýningu í Broadway Fólk 44
Meistara-
kylfingar
Justin Rose ánægður með
Keilisvöllinn Íþróttir 38
Ísland í
heiðurssæti
Ljósmyndasýning um hafið í
Bretagne 8
BANDARÍSKI leikarinn og skemmtikraftur-
inn Bob Hope er látinn aðeins tveimur mán-
uðum eftir að hafa náð 100 ára aldri. Hope
lést í gær í svefni af völdum lungnabólgu og
var fjölskylda hans hjá honum er hann lést.
George Bush Bandaríkjaforseti vottaði
leikaranum virðingu sína í gær og þakkaði
honum þrotlaust starf í þágu margra kyn-
slóða bandarískra hermanna, sem m.a. leiddi
hann hingað til Íslands í nokkur skipti til að
skemmta varnarliðsmönnum, fyrst í septem-
ber 1943 og einnig um jólin 1955 sem varð til-
efni til sérstakrar myndafrásagnar í tímarit-
inu National Geographic.
„Bob Hope fékk okkur til að hlæja og létti
okkur lundina,“ sagði forsetinn. „Bob Hope
þjónaði þjóð sinni með því að fara á orrustu-
svæði til að skemmta þúsundum hermanna.“
Bob Hope fæddist á Englandi árið 1903 en
flutti með foreldrum sínum til Bandaríkjanna
aðeins fjögurra ára gamall. Hann var kvænt-
ur konu sinni Dolores Hope í 69 ár og eign-
uðust þau fjögur börn og fjögur barnabörn.
National Geographic
Joseph Smith, yfirmaður flutningadeildar
bandaríska hersins, kynnir Bob Hope fyrir
bandarískum varnarliðsmönnum á Keflavík-
urflugvelli um jólin 1955. Hope heldur á
hvalbeini sem varnarliðsmenn hér færðu
honum að gjöf.
Bob Hope
allur
Los Angeles. AFP.
Bob Hope/43
HUNDI sem býr með eiganda sínum í norður-
hluta Englands var nýverið boðið kreditkort til
eigin afnota og hefði hann nýtt sér boðið hefði
hann haft heimild til að nota kortið fyrir allt að
10.000 pund eða ríflega 1.240.000 íslenskar krón-
ur í hverjum mánuði.
Bréf sem stílað var á hundinn Monty barst inn
á heimili eiganda hans, Raymond Slater, og inni-
hélt bréfið umsóknareyðublað um kreditkort frá
Royal Bank of Scotland. Þannig bauðst Monty að
verða gullkortshafi hjá bankanum ásamt þeim
fríðindum sem því fylgir.
Talsmaður bankans sagði í gær að milli-
göngumaður sem sér um að afla bankanum nöfn
mögulegra kreditkortahafa hafi útvegað nafn
Montys. „Við höfum fjarlægt nafn hundsins úr
gagnasafni okkar og munum senda hr. Slater
gjafakörfu til að biðjast velvirðingar á þessu at-
viki,“ sagði talsmaðurinn.
Buðu hundi
kreditkort
Manchester. AFP.
ROBERTSON lávarður, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins, sagði að loknum fundi með
forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra á Þingvöllum í gær að hann
vonaði að lausn fyndist í viðræðum
Íslands og Bandaríkjanna um
framtíð varnarsamstarfsins.
Hann hefði rætt málið við
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta fyrr á árinu og myndi skýra
honum frá viðræðum sínum hér.
Robertson hélt áfram til Banda-
ríkjanna frá Íslandi síðdegis í gær
en hann var á leið til Sameinuðu
þjóðanna í New York.
„Við fylgjumst grannt með því
sem gerist í þessum tvíhliða við-
ræðum [Íslands og Bandaríkj-
anna] og hvort að á einhverjum
punkti geti bandalagið lagt sitt af
mörkum. Þá erum við auðvitað
reiðubúnir að aðstoða ef hægt er,“
sagði Robertson eftir fundinn í
gær.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði að farið hefði verið yfir
sjónarmið Íslendinga á fundinum
með Robertson en Íslendingar
væru ekki að biðja um eitt eða
neitt í því sambandi. Fram-
kvæmdastjóri NATO gæti hins
vegar gegnt því hlutverki að skýra
línur á milli aðila og útskýra fyrir
hvorum aðilanum sjónarmið hins
án þess að vera formlegur milli-
göngumaður.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði ljóst að málið yrði
einungis leyst í tvíhliða viðræðum
Íslands og Bandaríkjanna og þar
yrðu Bandaríkjamenn að sýna
meiri sveigjanleika. Hann væri
hins vegar vongóður um að það
gæti gerst og lausn fyndist. „Það
eru ákveðnar lágmarksvarnir sem
eru nauðsynlegar. Ef þær geta
verið tryggðar með einhverjum
öðrum hætti, erum við opnir fyrir
að ræða það en við höfum ekki séð
á þessu stigi neina lausn sem get-
ur komið í staðinn fyrir vélarnar
og þyrlurnar sem þeim fylgja,“
sagði utanríkisráðherra.
Robertson fundar með forsætisráðherra og utanríkisráðherra
NATO er reiðubúið til
að aðstoða ef hægt er
Ekki/24
ÞINGVELLIR skörtuðu sínu fegursta þegar
Robertson lávarður, framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, kom til kveðjufundar við þá
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra í ráðherrabústaðn-
um þar í gærdag.
Morgunblaðið/Kristinn
Góðra vina fundur
BREYTT veðurfar af mannavöldum
um allan heim er ekki minna gereyð-
ingarvopn en kjarnasprengjur og
efna- og lífefnavopn.
John Houghton, sem var einn lyk-
ilmaðurinn í veðurfarsnefnd Samein-
uðu þjóðanna, segir, að afleiðingar
aukins hita um allan heim væru svo
alvarlegar, að „ég hika ekki við að
lýsa þeim sem gereyðingarvopni“.
„Þetta vopn þekkir engin landa-
mæri, ekki fremur en hryðjuverkin,“
sagði Houghton. Hann sagði, að 562
skýstrókar hefðu herjað á Bandarík-
in í maí og valdið dauða 41 manns.
Verra væri þó ástandið víða í þróun-
arríkjunum. Houghton sagði, að
Bandaríkjamenn væru 5% jarðarbúa
en bæru ábyrgð á 25% mengunar-
innar, sem veldur gróðurhúsaáhrif-
unum. Bandaríkjastjórn neitaði samt
að horfast í augu við vandann og
hann kvaðst óttast, að breska stjórn-
in ætlaði að fara að hennar dæmi.
Mesta ger-
eyðingar-
vopnið?
London. AFP.
BANDARÍKJAHER tilkynnti
að tveir bandarískir hermenn
hefðu fallið í Írak í gær. Annar
hermaðurinn féll í árás sem gerð
var á bílalest í grennd við al-
Rashid-hverfið í Bagdad. Þrír
hermenn slösuðust einnig í árás-
inni en að sögn vitna köstuðu
árásarmennirnir handsprengju
á bílinn sem hermennirnir óku.
Tala bandarískra hermanna sem
fallið hafa í árásum í Írak frá því
Bandaríkjaforseti lýsti yfir
stríðslokum 1. maí sl. er nú kom-
in í 50.
Hinn hermaðurinn lést í
árekstri í suðurhluta Íraks.
Bandarískir hermenn fundu í
gær 40 jarðsprengjur, tugi
sprengjuvarpa og hundruð kílóa
af byssupúðri sem grafið hafði
verið í jörðu í Tíkrit, heimaborg
Saddams Husseins, fyrrum for-
seta Íraks. Vopnin fundust í yf-
irgefinni byggingu sem áður til-
heyrði Fedayeen-sveitum Sadd-
ams og sögðu hermennirnir að
vopnabirgðirnar hefðu getað
nægt skæruliðum til árása í heil-
an mánuð. Einn hermannanna
sem uppgötvuðu vopnin sagði að
fundurinn hefði „bjargað nokkr-
um mannslífum“.
Framkvæmdaráð Íraks, sem
skipað er 25 Írökum, hóf í gær að
velja í ríkisstjórn landsins. Að
loknum fundi ráðsins í gær sagði
einn fulltrúi framkvæmdaráðs-
ins, Shangul Sapuk, að búast
mætti við að forseti ráðsins yrði
tilnefndur í dag. Þá tilkynnti ráð-
ið um áform um nýtt fyrirkomu-
lag í rafmagnsmálum í Írak sem
gerir ráð fyrir að flestar borgir
landsins muni fá rafmagn í þrjá
klukkutíma í senn á þriggja stunda
fresti en auk þess gerir nýja áætl-
unin ráð fyrir að tryggja mikilvæg-
um stöðum á borð við sjúkrahús,
vatnsveitur, skolpstöðvar og olíu-
birgðastöðvar rafmagn allan sólar-
hringinn.
Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær
að 30 þjóðir hafi fallist á að leggja
aðgerðum sem miða að því að
koma á stöðugleika í Írak lið jafn-
vel þótt sérstakt umboð til þess fá-
ist ekki frá Sameinuðu þjóðunum
(SÞ) eins og sumar þjóðirnar höfðu
farið fram á.
Alls 50 bandarískir hermenn
eru fallnir í árásum í Írak
Tíkrit. Bagdad. AP. AFP.
Mikið magn vopna finnst í Tíkrit
30 þjóðir vinna að stöðugleika