Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Forsætisráðuneyti, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands Stjórnsýslulög í áratug - áhrif þeirra og árangur Morgunverðarráðstefna á Grand Hótel 31. mars kl. 8.30-11.00. Fjallað verður um hvernig til hefur tekist um framkvæmd stjórnsýslulaganna og þróun íslenskrar stjórnsýslu og stjórn- sýsluréttar síðasta áratuginn. Hefur tekist að tryggja réttar- öryggi borgaranna í skiptum þeirra við stjórnvöld og gera stjórnsýsluna skilvirka og málsmeðferðina einfalda og hrað- virka? Ávarp: Davíð Oddsson forsætisráðherra. Tímar breytinga í stjórnsýslunni: Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis. Stjórnsýslulög í nútíð og framtíð: Páll Hreinsson prófessor við H.Í. Reynsla stjórnarráðsmanns af stjórnsýslulögum: Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri. Ráðstefnustjóri: Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri. Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangseyrir er kr. 3.000,- og er morgunverður innifalinn. Skráning fer fram með tölvupósti, msb@hi.is eða á veffanginu: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/stjornsyslulog_skraning Bretar fækka sendiráðum Unnið er að róttækum breyt- ingum innan bresku utanríkisþjón- ustunnar og meðal annars stefnt að því að fækka sendiráðunum. Kom þetta fram í Sunday Telegraph í gær. Þar sagði að í stað um 40 sendi- ráða ætti að koma einn maður með fartölvu og ekki endilega með sendi- herratign. Nefndi blaðið nokkur ríki í þessu sambandi, þar á meðal Ísland og Nýja-Sjáland, en John Howard Culver, sendiherra Bretlands hér á landi, sagði í viðtali við Morg- unblaðið að honum væri ekki kunn- ugt um nein áform um að leggja nið- ur sendiráðið hér. Samið um bónusgreiðslur Gengið hefur verið frá sam- komulagi milli starfsmanna og Im- pregilo við Kárahnjúka um bón- usgreiðslur. Reiknað er með að nýja bónuskerfið skili starfsmönnum al- mennt 12–14% launahækkun og allt að 20% við bestu aðstæður. Sharon ákærður? Fjölmiðlar í Ísrael sögðu í gær að Edna Arbel ríkissaksóknari hefði þá um daginn lagt til við dóms- málaráðherrann að Ariel Sharon forsætisráðherra yrði ákærður fyrir spillingu. Snýst málið um hugs- anlega mútuþægni meðal annars. Einn ráðherra í Ísraelsstjórn sagði í gær að Sharon yrði að segja af sér yrði hann ákærður og undir það tek- ur stjórnarandstaðan. Versnandi tannheilsa Endurgreiðslur Tryggingastofn- unar til foreldra vegna tannlækn- inga barna hafa lækkað verulega á undanförnum árum og vaxandi hóp- ur foreldra hefur ekki efni á að veita börnum sínum grundvallartann- læknaþjónustu, segir dr. Sigurður Rúnar Sæmundsson, barnatann- læknir og sérfræðingur í samfélags- tannlækningum. Sigurður segir að minnkandi kostnaðarþátttaka hins opinbera í vörnum gegn tann- skemmdum endurspeglist í versn- andi tannheilsu hjá mörgum börnum og tannheilsa þeirra fari æ meira eftir tekjum foreldranna. Markmið vegna útselsins Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, vill að stjórn- völd svari því hvernig þau ætli að bregðast við áskorun Norður- Atlantshafsspendýraráðsins, NAMMCO, um að Ísland setji skýr markmið um framtíð útselsstofnsins við Ísland. Á aðalfundi NAMMCO kom fram að útselsstofninn hér hefði farið minnkandi undanfarin tíu ár. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 41 Viðskipti 14 Bréf 38 Erlent 17 Dagbók 40/41 Listir 20/21 Leikhús 42 Umræðan 22/28 Fólk 42/45 Forystugrein 24 Bíó 42/45 Skoðun 20 Ljósvakar 46 Minningar 29/33 Veður 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FRIÐRIK Þór Guðmundsson, faðir eins þeirra sem létust af völdum flug- slyssins í Skerjafirði um verslunar- mannahelgina árið 2000, segir að samkomulag um að Codan, trygg- ingafélag Leiguflugs Ísleifs Ottesen, greiði erfingjum fórnarlambanna skaðabætur feli í sér viðurkenningu á ábyrgð flugfélagsins á slysinu. „Pen- ingarnir eru í sjálfu sér aukaatriði,“ segir hann, „en við túlkum þetta sem svo að menn hafi viðurkennt sína ábyrgð.“ Hann segir ennfremur sam- komulagið fela í sér siðferðilegan sig- ur fyrir ættingjana; þeir hafi ávallt haldið því fram að slysið mætti rekja til lögbrota sem framin voru í Banda- ríkjunum. Íslensk flug- og lögreglu- yfirvöld hafi á hinn bóginn ekki talið ástæðu til að kanna þann þátt málsins sérstaklega. Friðrik segir upphæð bótanna trúnaðarmál en telur augljóst að hún hefði verið lægri ef málið hefði aðeins verið rekið á Íslandi. Bæturnar, verða að sögn Friðriks, greiddar að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum, sem tryggingafélagið fór fram á, m.a. um að trúnaður verði um innihald sam- komulagsins. Refsivert athæfi í Bandaríkjunum Ættingjar farþeganna sem létust af völdum flugslyssins árið 2000 höfð- uðu mál fyrir bandarískum dómstól- um, tæpum tveimur árum eftir slysið, gegn Ísleifi Ottesen, eiganda leigu- flugs Ísleifs Ottesen, Þorleifi Júl- íussyni, eiganda vottunarfyrirtækis- ins Julie’s Aircraft Service, og fleirum sem komu að ferli vélarinnar þar í landi. Lögfræðistofa í Bandaríkjun- um tók að sér málareksturinn upp á að fá allt að helmingshlut í hugsanleg- um skaðabótum en ættingjarnir myndu engan kostnað bera. Ættingjarnir vildu með málshöfð- uninni leiða í ljós hvort refsivert at- hæfi hefði átt sér stað í Bandaríkj- unum varðandi feril flugvélarinnar. Þeir bentu m.a. á að Ísleifur hefði keypt vélina á uppboði í Bandaríkj- unum, gert hana þar upp, og viðhalds- stöðin Julie’s Aircraft í El Paso, í eigu Þorleifs Júlíussonar, hefði síðan vott- að lofthæfi vélarinnar. „Viðhaldsfyr- irtækið vottaði að þetta væri hin besta flugvél, að okkar mati gegn betri vit- und, og hleypti þar með þessum garmi til Íslands,“ segir Friðrik og bætir því við að yfirvöld hér á landi hafi tekið pappíra viðhaldsfyrirtækis- ins góða og gilda; þau hafi ekki einu sinni skoðað vélina. Aðalmeðferð í október Umrætt samkomulag er einungis við tryggingafélag Leiguflugs Ísleifs Ottesen og því mun aðalmeðferð í málinu gegn Þorleifi Júlíussyni fara fram í Bandaríkjunum í október næstkomandi. Friðrik bendir á að í báðum málunum hafi mótaðilar viljað fá málaferlin flutt til Íslands, en því hafi verið hafnað í Bandaríkjunum. „Það liggur því fyrir úrskurður dóm- ara fyrir vestan um lögmæti þess að flytja málið í Bandaríkjunum,“ út- skýrir hann. „Það komu m.ö.o. fram nógu sterkar vísbendingar um að skaðabótaskyldur gjörningur hafi átt sér stað í Bandaríkjunum.“ Friðrik segir að þegar þessi úr- skurður hafi legið ljós fyrir hafi lög- fræðingar Codan, og þar með Ísleifs Ottesen, gert erfingjum hinna látnu tilboð um skaðabætur, sem ná myndu til málaferla í báðum löndunum, þ.e. Bandaríkjanna og Íslands. „Og við ákváðum að taka því tilboði,“ segir hann. Friðrik segir að það sem eftir standi, þegar búið sé að greiða hlut lögfræðinga og annan málskostnað, skiptist jafnt í fimm hluta. „Ég legg áherslu á að aðstandend- ur og erfingjar allra farþeganna standa einhuga saman í þessu. Sú samstaða felur í sér að ekki verði dregið í dilka. Í það sem kemur til okkar er deilt með fimm. Jafnframt er dánarbú flugmannsins aðili að sam- komulaginu.“ Faðir eins þeirra sem létust í flugslysinu í Skerjafirði í ágúst 2000 Samkomulag siðferðilegur sigur fyrir ættingjana MORGUNBLAÐIÐ bauð áskrif- endum sínum í heimsókn á sýningu Ólafs Elíassonar í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu um helgina. Hátt í tvö þúsund áskrif- endur nýttu sér boðið og nutu sýn- ingarinnar. Einnig nutu þeir leið- sagnar starfsfólks um sýninguna. Ólöf Sigurðardóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Reykja- víkur, segir heimsóknina hafa verið afar vel heppnaða. „Við fengum að gera margt sem hefur verið boðið upp á á sýningartímabilinu í meira mæli en venjulega og náðum þann- ig til fleiri gesta. Meðal annars var í boði ratleikur fyrir fjölskyldur, í raun leiðsögn í formi ratleiks og mæltist það mjög vel fyrir,“ segir Ólöf og bætir við að sér hafi fundist það á gestum að þeir hafi haft mikla ánægju af uppákomunni. Einnig var opin listsmiðja allan daginn og gátu gestir og gangandi prófað að búa til hluti í anda Ólafs Elíassonar, meðal annars litlar kviksjár, en Ólafur leikur sér gjarn- an með ljós og blekkingar augans. Morgunblaðið/Jim Smart Áskrifendur Morgunblaðsins skoða spennandi listaverk í heimsókn á Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Vel heppnuð heimsókn RÍKI í Evrópusambandinu og á Evrópska efnahagssvæðinu munu taka í notkun samræmt heilsu- tryggingakort sem íbú- um landanna er ætlað að bera en kortið á að veita þeim sama rétt á læknisþjónustu hvar sem er innan sambands- ins og í EES-löndum. Íslensk stjórnvöld stefna að því að heilsukortin verði tekin upp hér á landi en óvíst er á þessari stundu hvenær af því get- ur orðið, skv. upplýsingum sem fengust hjá Davíð Á. Gunnarssyni, ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu. Þrettán lönd stefna að því að hefja dreifingu kortsins meðal íbúa sinna hinn 1. júní næstkomandi en aðildarlöndin geta tekið sér frest til loka ársins 2005 til að taka kortið í notkun. Heilsukortið leysir af hólmi svonefnt E-111 vottorð sem Tryggingastofnun hefur gefið út og veitir sjúkra- tryggðum einstakling- um á ferðalagi innan EES-svæðisins rétt á læknishjálp og lyfjum á sömu kjörum og íbúar viðkomandi lands njóta. Samkvæmt fréttum frá ESB í Brussel á kortið ekki að innihalda persónulegar heilsufars- upplýsingar s.s. um blóðflokk kort- hafa eða sjúkraskrárupplýsingar. Hins vegar geta lönd sem þegar hafa tekið upp kort með slíkum upplýsingum fellt það saman við evrópska heilsutryggingakortið í eitt kort. Heilsutryggingakortin verða auðkennd með einu sameiginlegu evrópsku tákni. Heilsutryggingakort ESB verða tekin upp á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.