Vísir - 03.11.1981, Blaðsíða 14

Vísir - 03.11.1981, Blaðsíða 14
i4 VÍSIR Tðluverö olía lekur úr Mávinum beðið eftir landátt til að kanna allar aðstæður ,,Þess hefur nokkuö gætt aö olla hafi lekiö út úr skipinu þar sem þaö liggur á strandstaö innst i firðinum ”, sagöi Kristján Magnússon sveitarstjóri I Vopna- firði i viðtali við Visi. Eins og kunnugt er strandaði flutningaskipið Mávur, sem er i eigu Pólarskipa, i Vopnafirði i upphafi októbermánaðar siðast- liðins. Allar tilraunir til að ná skipinu út til þessa hafa brugðist enda er aðstaða öll og sjávarföll mjög óhentug til þess. „Oliunnar hefur ekki gætt að ráði i fjöruborðinu hér i firðinum, en þó finnst greinilega lyktin af henni i fjörusandinum og þeim sjávargróðri sem þar hefur safn- ast fyrir. 1 fyrstu lak einhver olia úr oliugeymi sem var á þilfari skipsins en nú hefur hann verið fjarlægður úr skipinu upp i land. Enn er þó talið að einhver olia berist út i sjóinn úr vélarrúmi skipsins en hvað það er mikið er ekki vitað um”, sagði Kristján- „I bigerð er að senda kafara á staðinn þegar landátt kemur næst og mun hann kanna lekann og hversu mikill hann er, auk þess sem hann mun reyna að komast fyrir með einhverju móti”, sagði Kristján að lokum. Mávurinn, sem strandaði i Vopnafiröi eins og fyrr greinir var um 1400 lestir og i eigu Pólar- skipa. -SER Mávurinn strandaöur á Vopnafiröi. (Visism. Asg. Sig.) Blartur að koma heim (rá Capo Verde: Nýr Dátur verður sendur í staðinn „Meiningin er aö smiöa nýjan bát, um 100 tonna, og senda hann til Capo Verde,” sagöi Birgir Hermannsson i viötali viö Visi. Þróunarvinnustofnun Islands hefur haft með höndum fiskveiði- aðstoð við ibúa Capo Verde um nokkurt skeið og notað rann- sóknaskipið Bjart þar viö fiskleit og kennslu. Nú er meiningin aö sigla Bjarti heim til íslands, enda mun hann ekki henta vel, þar sem iiánn er orðinn um 16-17 ára gamall og litil eða engin aðstaða til viðhalds og viðgerða á Capo Verde. Samningurinn við ibúana þar er einnig útrunninn, og hefur ekki verið endurnýjaður enn, en Birgir bjóst við að gengið yrði frá þvi fyrir næstu áramót. Ákvörðun um smiði nýs skips hefur ekki verið tekin en Birgir taldi allar likur á að af smiðinni veröi. Hann sagði að tilgangurinn væri tvenns konar, annars vegar að hafa nýtt og traust skip á staðnum, sem þá þyrfti minna viðhald og i öðru lagi að kynna fiskimönnum þar syðra islenska skipasmiði með það i huga að selja þeim báta, sem smiðaðir eru hér. Birgir sagði að hringnóta- veiðar, eins og upphaflega var meiningin að stunda þarna, hefðu ekki gengið, vegna þess að fiskurinn, sem átti að veiða i nót, hefði ekki reynst vera fyrir hendi. Hinsvegar hefðu togveiðar á öðr- um tegundum gengið vel. —SV FLUGLEIÐIR FLUTTU 28 ÞÚSUNU PlLAGRÍMA Pilagrimaflugi B'lugleiða i ár er nú að ljúka. Tvær DC-8-63 flug- vélar voru i fluginu og um 90 B’lugleiðastarfsmenn tóku þátt i flutningunum. B’logið var milli staða i Alsir og Jedda i Saudi-- Arabiu. B’lutningar þessir voru framkvæmdir fyrir alsirska flug- félagið Air Algerie. Alls voru fluttir um 28 þús. pila- Tvær áttur fluttu pilagrimana. grimar i tveim önnum flugsins og farnar 110 flugferðir milli landa i sjálfu pilagrimafluginu. Að auki voru farnar áætlunarferðir fyrir alsirska flugfélagið milli Alsir og Evrópu. B’lugleiðastarfsmenn sem þátt tóku i siðari önn pilagrimsflugs- ins eru væntanlegir til Kaup- mannahafnar næsta miðviku- dagskvöld. bar verður gist um nóttina en komið til Keflavikur- flugvallar kl. 15:45 daginn eftir, fimmtudaginn 5. nóvember. Þriðjudagur 3. nóvember 1981 Fjölskyldan á Hóli: Auöur, Gisli og dóttir þeirra. Austurbæjarbíó: Útlaginn Leikstjóri og höfundur handrits: Agúst Guðmundsson Kvikmyndin byggð á Gísla sögu Súrssonar i samantekt Indriða G. Þorsteinssonar. Framleiðandi: Isfilm Stjórnandi kvikmyndatöku: Sigurður Sverrir Pálsson Höfundur leikmyndar: Jón Þórisson Aðalleikarar: Arnar Jónsson, Ragnheiður Steindórsdótt- ir/ Benedikt Sigurðarson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Svein- björn Matthíasson, Þráinn Karlsson, Helgi Skúlason, Bjarni Steingrimsson og Kristín Kristjánsdóttir. GIsli Súrsson, Auður kona hans og Ingjaldur i Hergilsey hafa löngum verið með ástsælustu persónum tslendingasagnanna og nú gefur þau að lita i kvikmvnd Agústs Guðmundssonar, Útlag- anum. Gisli er sek hetja og fylgir öllum reglum slikrar persónu, en útlaginn varð ævinlega hetja i bændaþjóöfélaginu. Þannig er Gislasaga Súrssonar hetjusaga og fylgir kvikmyndin titlaginn sögunni all nákvæmlega. Söguþráður Otlagans er ekki flókinn en allmargar persónur eru nefndar til sögunnar þegar i upphafi. Fjórir karimenn koma til skjalanna, bræöurnir Gisli og Þorkell Súrssynir og fóstbræður þeirra, Vésteinn og Þorgrimur goöi. Konur þeirra eru hins vegar örlagavaldarnir, þær Auður syst- ir Vésteins og kona Gisla, Asgerð- ur kona Þorkels og Þórdis systir þeirra Súrssona og kona Þor- grims. örlög þessa fólks ráðast svo af siðgæðiskröfum ættarþjóð- félagsins sem oft brutu I bága við lög og rétt. F jölsky Idutengsl og hefndarskylda. Upphafsatriði Útlagans er svardagi mannanna fjögurra sem hyggjast sverjast i fóstbræðra- lag. Þeir sverja, Gisli og Vésteinn annars vegar en Þorgrimur og Þorkell hinsvegar, en af frekari svardögum milli þeirra verður ekki vegna mótmæla Þorgrims. Þó Þorgrímur vilji ekki ganga i fóstbræöralag viö Véstein er allt kyrrt meö þeim félögum þar til Þorkell heyrir á tal Auöar og Asgeröar um löngu liðið ástar- samband Asgerðar og Vésteins. Það er fremur siðgæðiskrafan, sæmdin, en afbrýðisemin sem reka Þorkel og Þorgrim fóstbróð- ur hans til að hefna löngu liðinna og óljósra atburða á Vésteini. Eft- ir vig Vésteins er erfitt að leita sátta þar að enginn finnst tilræö- ismaðurinn en GIsli er knúinn til að hefna fóstbróður sins og mágs. Þegar hann hefur vegið Þorgrim sem engin sök hafði sannast á eru örlög hans sem skóggangsmanns ráðin. Upphaf Útlagans er ef til vill iviö þungt I vöfum vegna fjölda persóna sem þegar koma til sög- unnar og skipta máli fyrir fram- vindu hennar. Helstu persónur kvikmyndarinnar eru kynntar i byrjun með andlitsmynd og nafni en samt gæti vafist fyrir sumum aö átta sig fullkomlega á þvi hver er bróðir hvers og hver er gift hverjum, aö minnsta kosti svona fyrstu tuttugu mintltur sýningar- timans. Blóðugur örlagavefur Lestur Gisla sögu hjálpar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.