Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JANÚAR 2001 V IÐ sátum einn góðan veð- urdag á Kjarvalsstöðum og vorum að drekka kaffi og ræða málverkið – en við er- um báðar málarar. Svo barst það í tal að íslenska málverkið ætti 100 ára af- mæli núna um aldamótin en Þórarinn B. Þorláksson opnaði fyrstu mál- verkasýninguna í desember árið 1900. Við fórum að hugsa hvað við gætum gert til að halda upp á afmæli málverksins og þá kom þessi hugmynd bara eins og þruma úr heið- skíru lofti, næstum því fullmótuð. Okkur datt í hug að það væri tilvalið að fjalla um sófa- málverkið vegna þess að það er orðið ákveðið hugtak í íslenskri menningu,“ segir Anna Jóa þegar hún er spurð út í tildrög sýningarinnar sem hún og Ólöf Oddgeirsdóttir hafa sett upp í Hafnarhúsinu en yfirskrift hennar er ein- mitt Sófamálverkið. Með sófamálverkinu skírskota þær til þeirrar sterku hefðar á íslenskum heimilum að gera stofuna að miðpunkti heimilisins – og sófann með hinu hefðbundna málverki fyrir ofan að miðpunkti stofunnar. „Með því að taka fyrir sófamálverkið erum við að fjalla um meira en málverkið. Við erum að fjalla um þróun málaralistarinnar á síðustu öld, sem var öld mikilla breytinga á Íslandi og þannig er hægt að spegla margt í einu; þjóð- félagsbreytingarnar, þróun málverksins og viðhorf almennings til þess – án þess að vera að gera einhverja sérstaka úttekt á listasög- unni, það var ekki markmiðið,“ heldur Anna áfram. Gaman að sjá hvað málverkið skipar veglegan sess Þær stöllur fengu að fara með myndavél inn á fjölmörg íslensk heimili og taka myndir af stofusófanum og málverkinu fyrir ofan hann. Heimilin eru jafnólík og þau eru mörg, hefðbundin jafnt sem framúrstefnuleg, enda TVÆR SÝNINGAR OPNAÐAR Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR – HAFNARHÚSINU Í DAG LANDSLAGIÐ TEKIÐ MEÐ HEIM Í STOFU Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi kl. 16 í dag. MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓTTIR fór á fund þeirra Önnu Jóa og Ólafar Oddgeirs- dóttur, sem eru sýning- arstjórar á sýningunni Sófamálverkið, og Eiríks Þorlákssonar safnstjóra, sem sagði henni frá frönsku sýningunni Frásagnarmálverkið. Báðar standa sýning- arnar til 25. mars nk. Sýningarstjórarnir Anna Jóa og Ólöf Oddgeirsdóttir fóru með sófa upp í Öskjuhlíð og stilltu sér upp til myndatöku fyrir sýningarskrá, uppáklæddar sem fulltrúar 20. og 21. aldarinnar. Römmuðu svo inn Skarðsheiðina og hluta af borgarlandslaginu fyrir ofan sófann. Ljósmynd/Hanna Gunnarsdóttir LISTAMENNIRNIR sem eiga verk á sýning- unni Frásagnarmálverkið sem opnuð verður í sölum E og F í Hafnarhúsinu í dag eru Val- erio Adami, Peter Klasen, Jacques Monory, Hervé Télémaque, Bernard Rancillac og Erró. Á sýningunni eru rúmlega 40 verk en Listasafn Reykjavíkur setur hana upp í sam- vinnu við Villa Tamaris í Frakklandi, þar sem hún var opnuð í júní sl., og Listasafnið í Berg- en, þar sem hún var í haust. „Þessi hópur listmálara er búinn að vera í formlegu og óformlegu samneyti frá því snemma á sjöunda áratugnum þegar þeir uppgötva að þeir eru allir að vinna meira og minna í fígúratífu málverki á tíma þar sem afstraktmálverkið er hið ráðandi listform í málverkinu. Þannig að þeir eru að koma fram með algerlega nýja hluti á þessum tíma,“ segir Eiríkur Þorláksson safnstjóri og bætir við að sá þessara málara sem Íslend- ingar þekki best, Erró, birtist nú í breiðara listsögulegu samhengi en við höfum séð hér hingað til. Eiríkur segir hópinn hafa sýnt saman af og til á síðastliðnum fjórum áratug- um. „Hér var til dæmis lítil og mjög falleg sýning á grafíkverkum ýmissa úr hópnum í Galleríi Nýhöfn árið 1991. Þessi sýning núna er tilraun til að líta til þeirra og fylgja þeim örlítið eftir,“ segir hann. Á sýningunni í Hafnarhúsinu beinist kastljósið ekki ein- göngu að verkum frá upphafi tímabilsins heldur verður skoðað hvað listamennirnir hafa tekið sér fyrir hendur síðan og hvernig fígúratíf list þeirra hefur þróast allt fram undir þennan dag. Ekki hreyfing í hefðbundnum skilningi Í kynningu frá Listasafni Reykjavíkur seg- ir m.a. um myndefni, tækni og samnefnara listamannanna frönsku: „Í sköpunarferli Morgunblaðið/Jim Smart Bernard Rancillac: Chick Webb, 1997. FRÁSAGNAR- MÁLVERK FRÁ FRAKKLANDI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.