Pressan - 19.11.1992, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
9
Hlöðver og Árni búa í þessu húsi við Álfaskeið 4
í Hafnarfirði. Unglingspiltar hafa oft sést valsa
þar út og inn. Hlöðver Sindri er vaktmaður
skipa í Hafnarfjarðarhöfn. Heimildir
PRESSUNNAR herma að lögreglumenn
í eftirliti hafi oft bægt unglingspiltum
frá höfninni þegar vitað var að
Hlöðver væri á vakt.
Bræður kærðir fyrir misnotkun á unglingspilti:
ÁRANGURSLAUST REYNT
AD HANKA ÞA UM ÁRABIL
Tveir bræður í Hafnarfirði,
Hlöðver Sindri Aðalsteinsson 51
árs og Árni Aðalsteinsson 46 ára,
hafa verið kærðir fyrir meinta
kynferðislega misnotkun á fimm-
tán ára dreng. Það var móðir
drengsins sem kærði, en drengur-
inn er andlega vanheill í kjölfar
slyss. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem þeir bræður eru sakaðir um
kynferðisafbrot og önnur afbrot
gagnvart unglingum og eru heim-
ildamenn PRESSUNNAR á einu
máli um að grunsemdir gagnvart
þeim hafi verið uppi um margra
ára skeið, einkum þó gagnvart
Hlöðveri. Bæði lögregla og félags-
málayfirvöld í Hafnarfirði hafa
fylgst með þeim bræðrum í gegn-
um tíðina, en hingað til hefur ekk-
ert alvarlegra sannast á þá en að
þeir hafi keypt áfengi fyrir ung-
linga. Fyrir það hafa þeir verið
sektaðir.
„GÖTUV1TAR“ ÚTIDEILD-
ARINNAR MEÐ AUGUN Á
BRÆÐRUNUM
Hlöðver Sindri og Árni eru bú-
settir í Álfaskeiði 4 í Hafnarfirði.
Hlöðver hefur starfað sem vakt-
maður í skipum í Hafnarfjarðar-
höfn, en Árni er öryrki og óvirkur
alkóhólisti. Eru menn sammála
um að í meintum afbrotum þeirra
gagnvart unglingum hafi Hlöðver
verið „prímus mótor“ þeirra
bræðra. Er talið ljóst að talsverður
hópur unglingsdrengja hafi lagt
leið sína á heimili þeirra við Álfa-
skeið og um borð í skip við Hafn-
arfjarðarhöfn.
Augu manna beindust fyrst að
Hlöðveri Sindra fyrir um tuttugu
árum, er hann var sterklega grun-
aður um að hafa borgað unglings-
drengjum fyrir að hafa við sig
kynferðismök, þó án samræðis.
Engin kæra var þó lögð fram
vegna þessa. Heimildarmenn
blaðsins voru á einu máli um að í
mörg ár hefðu foreldrar varað
börn sín við þvl að umgangast þá
bræður og lögreglan fylgst með
þeim. Þá hefur PRESSAN heim-
ildir fyrir því að útideildin í Hafn-
arfirði, hinir svokölluðu „götuvit-
ar“, hafi gefið þeim bræðrum
gaum og varað unglinga við þeim.
Á síðustu árum hafa lögreglu-
menn verið sérstaklega á varð-
bergi við höfnina og iðulega bægt
drengjum frá, sem þar hafa verið á
ferð.
RÚMLEGA ÁRSGAMALLI
KÆRU HEFUR EKKIVERIÐ
LOKAÐ
Orðrómurinn um þá bræður
komst á ný á flug fyrir nokkrum
árum, einkum hvað Hlöðver varð-
ar. Ekkert tókst þó að sanna á þá,
fyrir utan að þeir viðurkenndu að
hafa keypt áfengi fyrir unglinga.
Þar að auki eru þeir bræður grun-
aðir um að hafa veitt unglingum
vín, sælgæti og peninga og sýnt
þeim klámmyndir á heimili sínu
og um borð í skipum.
Fyrir einu og hálfu ári gerðist
það síðan að Barnaverndarnefnd
Hafnarfjarðar kærði Hlöðver fyrir
kynferðislega misnotkun, en ekki
tókst að upplýsa málið nægilega
til að senda það til ríkissaksókn-
ara. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins telst málinu þó ólokið.
Nýjasta kæran barst um miðjan
október frá móður fimmtán ára
pilts, sem ekki hefur fulla andlega
heilsu vegna slyss sem hann lenti
í. Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum PRESSUNNAR opnaði
pilturinn sig eftir að hafa horft á
þáttinn „Þögnin rofin" á Stöð tvö,
sem sýndur var fimmtudaginn 8.
október.
I kæru móðurinnar kemur
fram ásökun á hendur þeim
bræðrum unt að hafa gengið alla
leið í kynferðislegri misnotkun á
syni sínum; haft við hann sam-
ræði og það nokkrum sinnum á
rúmu ári.
VONAST TIL AÐ FLEIRI
KÆRUR BERIST RLR
Heimildarmenn blaðsins segja
sönnunarbyrði erfiða í þessu ein-
staka máli þar sem vitni séu ekki
fyrir hendi og ekki möguleiki á
læknisfræðilegum gögnum, þar
eð kæran kom ekki beint í kjölfar
misnotkunar.
Þetta er ekki nýtt vandamál í
málum sem þessum. Oftast
standa orð kæranda gegn orðum
kærða, sjaldnast er um vitni að
ræða eða möguleiki á áverkavott-
orðum. I’ þessu nýjasta máli neita
bræðurnir öllum sökum eins og í
fyrri tilvikum. það þykir ekki
hjálpa til varðandi nýjustu kær-
una að drengurinn er andlega
skertur og hugsanlegt að það dugi
til að drepa málið. Það er því sam-
kvæmt heimildum blaðsins helsta
von RLR að fleiri kærur komi
fram undir rannsókninni.
Menn eru á einu máli um að
talsverður hópur unglinga hafi
leitað til bræðranna, þó einkum til
Hlöðvers. Ekki er þó talin ástæða
til að ætla að allir hafi þeir verið
misnotaðir kynferðislega, heldur
hafi Hlöðver í því sambandi sigtað
þá út sem veikastir voru fyrir.
Drengir sem lent hafa í lögregl-
unni hafa oftlega verið spurðir að
því hversu vel þeir þekki til bræðr-
anna og hvort þeir hafi haft ein-
hver samskipti við þá. Lítið hefur
verið um svör og sumir drengj-
anna hafa farið undan í flæmingi
og ekkert viljað um málið tala.
SAKAR LÖGREGLUNA UM
AÐ LEGGJA SIG í EINELTI
Móðirin, sem kærði bræðurna í
síðasta mánuði, hefur það opin-
berlega eftir syni sínum að þeir
hafi bundið fyrir augun á honum
og látið hann gera „alls konar ljóta
hluti“ og hafi hann orðið mjög
hræddur. Þeir hafi hins vegar sagt
honum að þeir væru að kenna
honum á kynlífið. Sem fyrr segir
eru bræðurnir sakaðir um að hafa
átt samræði við hinn andlega van-
heila pilt.
Viðleitni lögreglunnar til að
fylgjast með þeim bræðrum hefur
á stundum verið talsverð og hefur
Hlöðver m.a. kvartað undan lög-
reglunni og ásakað hana um að
leggja sig í einelti. Heimildar-
mönnum blaðsins bar ekki saman
um hvort þar hefði verið um al-
menna umkvörtun að ræða eða
bein kæra hafi verið lögð fram.
Friðrik PórGuðmundsson
og Haraidur Jónsson
Hafnfirsk lögreglu-
og félagsmálayfir-
völd hafa lengi
fylgst með bræðr-
unum Hlöðveri
Sindra og Árna Að-
alsteinssonum og
varað unglingspilta
við þeim. Þeir eru
grunaðir um að
hafa um árabil mis-
notað fjölda pilta
kynferðislega og
veitt unglingum
peninga, áfengi,
tóbak og sælgæti á
heimili sínu og um
borð í skipum við
Hafnarfjarðarhöfn.