Pressan - 05.08.1993, Blaðsíða 7

Pressan - 05.08.1993, Blaðsíða 7
NEI ÞYÐIR NEI OG NAUÐGUN E R G l /E P U R Fimmtudagurinn 5. ágúst 1993 PRESSAN 7 Óhugnanlegur glæpaferill Björgvins Þórs Ríkharðssonar Endirteknan Irnttafengnap nauöganir Það vakti mikinn óhug þegar fangarnir þrír struku frá Litla- Hrauni. Allir hafa þeir tengst auðg- unar- og fiknieíhabrotum en þó er ekki talið að þeir hafi þekkst áður en leiðir þeirra lágu saman á Litla- Hrauni. Hans Emir Viðarsson er frá Þorlákshöfn og er einungis 18 ára gamall. Hann á þó langan af- brotaferil að baki. Hörður Karlsson verður þrítugur á næsta ári og hefur einnig lengi tengst auðgunar- og fikniefnabrotum. Þá var hann tek- inn fyrir milljóna króna skartgripa- þjófnað ásamt tveimur félögum sín- um. Með honum þar var meðal annars Sigbjöm Gunnar Utley sem strauk á dögunum en fannst eftir hálfan mánuð. Vopnuð rán, nauðganir og fjársvik Björgvin Þór Ríkharðsson er óumdeilt hættulegastur þremenn- inganna. Hinn 7. maí 1993 var hann dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir líkamsárás og nauðgunartilraun, tvær nauðganir, vopnað rán á sól- baðsstofu, fjögur fjársvikamál og ölvunarakstur. Áður hafði hann 11 sinnum verið dæmdur fyrir hin ýmsu brot. í dóminum ffá því í vor segir að 23. maí 1992 hafi Björgvin Þór farið ásamt stúlku í heimahús hennar. Eftir nokkra stund fer hún að sofa og heyrir hann skella útidyrahurð- inni. Síðan vaknar hún við að Björgvin er að rista utan af henni sokkabuxurnar með stórum búr- hníf og ætlar að nauðga henni. Þeg- ar hún öskrar tekur Björgvin hana svo hörkulegu hálstaki að stúlkan missir meðvitund. Þegar hún rank- ar við sér fær hún Björgvin með blíðmælgi og dónatali til þess að geyma samfarir þar til um um kvöldið en kærði málið tO lögregl- unnar í millitíðinni. Björgvin bar við mikilli amfetamínneyslu og sagði stúlkuna hafa verið ásdeitna við sig. Stúlkan segir að eftir þennan atburð hafi Björgvin ofsótt sig á veitingahúsum. í dóminum segir að minnstu hafi munað að stúlkan hafi hlotið heilaskaða eða dauða vegna áverkanna og hafi hlotið verulegar andlegar þjáningar. Konunni var dæmd hálf milljón króna í miska- bætur. Hrottaleg nauögun á Ak- ureyri Hinn 16. júlí sama ár nauðgaði hann konu á hrottalegan hátt á Ak- ureyri. Þá braust Björgvin Þór inn í hús hjá móður og tveimur ungum börnum. I dóminum kemur fram að þar hafi Björgvin afklætt sig, far- ið í lopapeysu konunnar og sveipað um sig klæði til þess að þekkjast ekki. Síðan vakti hann konuna, hót- aði henni með hnífi og sagðist drepa börnin hennar ef hún léti ekki að vilja hans. Síðan dró hann konuna inn í þvottahús, nauðgaði henni og fékk sáðlát í munn hennar og skipaði henni að kyngja því. Þá beit hann hana í geirvörtur, höku og háls, neyddi hana til þess að ffóa sér og reyndi að troða hálfslítra plastflösku upp í fæðingarveg henn- ar. Þá laug hann því að félagi sinn væri hjá börnum hennar og sá mundi drepa þau ef hún léti ekki að vilja hans. Sá aðili mundi jafhffamt nauðga henni síðar. Að lokum var konan bundin á höndurn og fótum og lopapeysunni vafið um höfuðið. Er hún kvartaði um að hún væri að kafna, sagði hann það engu skipta og fór. I dóminum segir að fram- koma Björgvins hafi verið „með eindæmum fólskuleg og auðmýkj- MÆTIÐ SNEMMA OG GEfí/Ð REIFARAKAUP! Póstsendum um land allt. Ká l „ot' 1 MAÐURINN HÓLAGARÐI S í mi 7 5 0 2 0 HANS ERNIR VlÐARSSON Hefur tengst fikniefnabrotum og fengið dóma fyrír fjársvik, þjófnað og skjalafals. HÖRÐUR KARLSSON Auðgunarbrot ogfíkniefnamisferli ásamt milljóna króna skart- grípaþjófnaði. andi og fallin til að vekja henni mik- inn ótta um líf og heilsu sína og barna sinna.“ Konunni var dæmd 1,5 milljón króna í miskabætur. Nauögun og vopnaö rán Þriðja nauðgunarmálið átti sér stað hinn 6. september að heimili Björgvins Þórs að Miðvangi 41 í Hafharfirði. Þau höfðu hist á Gauki á Stöng um kvöldið og ætlað að hitta sameiginlegan kunningja þeirra um nóttina. Við yfirheyrslur sagðist stúlkan hafa drukkið fremur lítið og telur að einhver efni hafi verið sett í drykk sinn. Um nóttina sofnar hún í íbúð Björgvins og vaknar við að hann er að nauðga henni. Hún segist hafa barist á móti en Björgvin hafi sagt að „hún vildi þetta víst“ og „henni þætti þetta víst gott.“ Síðan segir hún að hann hafi háft samfarir við hana í endaþarm. Eftir þetta tókst henni að komast út og kæra nauðgunina. Björgvin segir að þau hafi haft eðlilegar samfarir fyrst en síðan hefði hann þvingað hana til samræðis, þó ekki meira en „þurfi að beita stúlkur sem eru treg- ar í upphafi en gefi sig eftir smáeft- irgangsmuni." Sekt Björgvins þótti fúllsönnuð eins og í hinum tilvikunum. Að auki var Björgvin Þór dæmd- ur fyrir vopnað rán á Sólbaðsstof- unni við Laugaveg 99 þar sem hann stökk nakinn að Ragnheiði B. Guð- jónsdóttur, sem þar starfaði og ógnaði henni með stórum hníf og hótaði að drepa hana. Hann sagðist engu hafa að tapa því lögreglan væri á eftir honum og að hann ætti fjöl- marga dóma yfir höfði sér. Eftir að hafa tæmt peningahirslur staðarins fór hann og fannst síðar um daginn á Hótel íslandi í mikilli amfetamín- vímu. Þá hlaut hann nokkra dóma fýrir fjársvik og ölvunarakstur. Faðirinn og Björgvin nauöguöu systur hans Systir Björgvins kærði föður þeirra, sem hefur starfað mikið sem lögreglumaður, og Björgvin Þór fyr- ir kynferðislega misnotkun til margra ára. I kærunni kom fram að BJÖRGVIN ÞÓR RÍKHARÐSSON Stórhættulegur glæpamaður sem hefur nauðgað frá tvítugsaldri, fyrst systur sinni og síðar konum sem hann ógnar með hnífi og hótar Iffláti. Á að baki vopn- að rán og fjölmörg auðgunarbrot auk fíkniefnamisferlis. faðir þeirra hefði byrjað að káfa á henni þegar hún var fjögurra ára, var með fingur sína í kynfærum hennar og lét hana káfa á kynfærum sínum. Kossarnir voru „blautir“. Fyrstu samfarirnar áttu sér stað þegar hún var sjö ára og sonurinn, Björgvin Þór, hafði fyrst samfarir við hana þegar hún var þrettán ára og Björgvin 21 árs. Þeir gáfu henni peninga, vín og fíkniefni fyrir greið- ana. Þá tók Björgvin Þór af henni nektarmyndir. I opnu bréfi Drífu Kristjánsdóttur, forstöðukonu meðferðarheimilisins á Torfa- stöðum, kemur fram að „málið hafi verið kært til Rannsóknar- lögreglu ríkisins en þar fékk það mjög skrýtna meðferð, lélega rannsókn og hæga afgreiðslu.“ Þaðan fór málið tíl Ríkissak- sóknara sem endursendi það til RLR með kröfu um frekari rannsókn. Drífa gagnrýnir harðlega allar yfirheyrslur yfir stúlkunni og segir að lögreglan sé ekki starfi sínu vaxin, enda sé þar ríkjandi mjög sterkur karlamórall. Að lokum komst saksóknari að þeirri niðurstöðu að fella bæri mál- ið niður. Ofbeldi og auðgunarbrot frá barnæsku Björgvin hefur búið í Reykjavík nema á milli 6 og 12 ára aldurs er hann var á Seyðisfirði. Sjálfúr segist hann hafa þurft að þola mikið of- beldi í bernsku og fór fljótt að beita ofbeldi sjálfúr. Sambýliskonur hans hafa oft þurft að leita á slysavarðs- stofu eða Kvennathvarfið undan honum. Hann byrjaði barn að aldri að hnupla og braust fyrst inn 12 ára gamall. Foreldrarnir slitu samvist- um og hann hefúr ekkert samband við móður sína. Hann var í sveit á sumrin í Þykkvabænum til 16 ára aldurs og lauk grunnskólanámi í fangelsi. Vinnu hefúr hann stundað óreglulega og búið með 4 eða 5 stúlkum, yfirleitt stutt. Drykkju hóf hann 13 ára og hefur jafnframt not- að kannabis og amfetamín í miklu magni. Frá 1987 hefur hann 11 sinnum verið dæmdur fýrir þjófn- að, fjársvik og skjalafals, oft allt þetta í hvert skiptí. Hann hefúr nú verið dæmdur í 10 ára fangelsi en fær líklega, eins og félagar hans, aukarefsingu þar sem flóttinn var skipulagður.____________________ PálmlJónasson 20-70% AFSLÁTTUR! ÍÞRÓTTAGALLAR, ÍÞRÓTTASKÓR, BOLIR, SUNDFATNAÐUR, ÚLPUR, SKIÐAGALLAR, KULDASKÓR OG MARGT FLEIRA

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.