Nýja dagblaðið - 23.09.1934, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 23.09.1934, Blaðsíða 1
Yerkfallinu í Bandaríkiunum Aðalsláturtíð er byrjuð lauk í gærkvöldi Kjötrerðið lækkar á morgun Kröfuganga úr verkfallinu mikla í Bandaríkjunum. Ástandið var orðið ægilegt. Fjöldi manna bjóst við borg- arastyrjöld, og herlið ríkisins stóð viðbúið, En í gærkveldi tókst Roosevelt að koma á sáttum. Vinna hefst á morgun Málverkasyning Jóns Engilberts London kl. 17,00 22/9. FÚ. í Bandaríkjunum hafa all- miklar vonir vakizt hjá mönn- um um lausn í verkfallsdeil- unum, vegna áskorunar þeirr- ar, er Roosevelt forseti sendi báðum málsaðilum þar að lút- andi í gærkvöldi. Forseti sam- bands iðjurekenda í silkiiðn- aði hefir lýst yfir því, að í þeirri grein væru iðjurekendur fúsir til þess að verða við óskum forsetans, um að taka aftur verkamennina, án ' tillits til afstöðu þeirra í verkfall- inu. Forsetar baðmullar- og nllariðjurekenda hafa enn ekk- ert látið frá sér heyra, en það er búist við, að félög þeirra taki ákvörðun um þetta á fundi, sem haldixm verður í Washington í kvöld. London kl. 20,00 22/9. FÚ. VERKFALLINU 1 BANDA- RlKJUNUM ER LOKH). Leiðtogar verklýðsfélaganna hafa boðið að verkfallinu skyldi hætt og verkaméim taka til vinnu sinnar aftur á mánu- dag. í opinberri tilkynningu segir Gorman, leiðtogi verk- fallsnefndarinnar, á þessa leið: „Vé^ höfum sigrað í öllu því er máli skiftir og unnt var að koma fram með verkfalli. Vér höfum rifið í tætlur allt hið rangláta N. R. A. fyrirkomu- Hinn efnilegi Hstmálari, Jón Engilberts, heldur þessa dag- ana sýningu í Oddfellowhúsinu uppi. Myndir hans eru frísklegar og djarflegar og einnig ein- kenndar af fallegri litasamstill- ingu. Jón er auðsjáanlega orð- inn mikill „koloristi“. Til þess að finna orðum mínum stað skal ég nefna t. d. mynd nr. 11 ..Vetur í Höfn“. Eins og nafnið bendir til er myndin frá Höfn að vetrarlagi. Lengst í baksýn sést yfir þvera mynd- ina hluti af hverfi einu við höfnina. Nær kemur svo hafn- arbakki og Hggur eitt skip við hann. Og fremst sjáum við lag, og lyft fargi af herðum allra verkamanna, jafnframt því, sem vér höfum losað sjálfa oss undan okinu“. Verkfallið stóð í 3 vikur. 15 manns voru drepnir, og yfir 200 særðir í óeirðum þeim er urðu í sambandi við það. 15 hersveitir voru kallaðar á vett- vang í sambandi við verkfall- ið. nokkrar persónur. — Það er auðséð, að þama hefir kunn- áttumaður vebið að verki. — Við tökum sérstaklega eftir á framsviði myndarinnar drengn- um með ljósa hárið og konunni í bláa búningnum og sömu- leiðis eftir litunum á búning- um þeirra axmara persóna, er þama sjást. Þegar málarinn í veruleikanum sá þessar per- sónur hefir Utagleði hans sjálfsagt verið vakin af búnaði þeixra. Og með því að hafa brúnan Ht í baksýn myndar- innar og gráan lit á hafnai’- bakkanum hefir hann, sjálf- sagt vitandi vits, lagt meixi áherzlu á persónumar á fram- sviði myndarinnar og látið okk- ur sjá með sér það, sem aðal- lega vakti athygli hans á þeim. — Við skulum svo ekki að sinni halda lengra inn í laun- helgar nútímamálaralistar. — En þó get ég ekki stillt mig um að nefna eina mýnd í við- bót, nr. 28, ÞingvaUavatn. Þar haldast nálægð og fjarlægð, ljós og skuggi í hendur til að Framh. á 4. síðu. Aðalhaustslátrunin hjá Slát- urfélagi Suðurlands byrjaði á fimmtudaginn var. Blaðið átti í gær tal við Helga Bergs, forstjóra fé- lagsins og spurðist fyrir um, hvað mörgu fé myndi verða slátrað hjá félaginu í haust. — Haustslátrunin nú, segir Helgi, verður mun minni en í fyrra og eftir því, sem áætlað hefir verið, Ve- minni en þá. Ástæðan til þess Hggur í því, að vanhöld voru á ung- lömbum í vor og heyfengur manna hér sunnanlands yfir- leitt góður. Hér í Reykjavík verður slátr- að 12—1400 fjár á dag meðan aðalslátrunin stendur yfir. Fé- lagið tekur einnig fó til slátr- unar á Akranesi og í Hafnar- firði. I fyi*ra var slátrað á vegum Sláturfélagsins á þessum stöð- um uin 50 þús. fjár og er sum- arslátrunin þá talin með, Dilkar hér sunnanlands munu yfirleitt vænni en i fyrra. Noi'ðanlands mun slátrun nú víðast byrjuð eða um það leyti að byrja. Eftir þeim fréttum, sem | blaðið hefir haft mun verða sláti-að þar yfirleitt fleira fé en á síðastliðnu hausti og má rekja það til hinna miklu ó- þurka, sem voru þar í sumar. Á morgun lækkar kjötverð- i ið. Sbr. augl. verðlagsnefndar hér í blaðinu í dag. Hijómleikar Arnoids Fðldesy i gœrkveidi. Það hefir verið haft á orði hvað þeir væru ótrúlega marg- ir „heimsfrægir“ Hstameim- irnir, sem hér hafa komið. Og sú heimsfrægð hefir Hka oft mátt vera iiman gæsalappa, — og komist þar vel fyrir. — En samt er það nú svo, að hér er heimsfrægur maður á ferð- inni, — þar sem er ceUo-snill- inguriim Amold Földesy, — og það án allra gæsalappa. — Maður, sem náð hefir dásam- legu valdi yfir hinu dásamleg- asta hijóðfæri sem til er. Mað- ur, sem undanfarin tuttugu ár hefir heillað þúsundir á- . heyrenda með leik sínum, og einn hinna fáu, sem alHr eru sammála um, að sé sannkall- aður listamaður. — Hr. Föl- desy hefir haldið hér tvo hljómleika og þann síðari í gærkvöldi í Gamla Bíó. — En sorglegt er að sjá — eins og í gær — hálftómt hús á svona hljómleikum, þegar maður hugsar til þess, að hér hafa allskonar loddarar og harmön- iku-„virtuosar“ troðfyllt hús kvöld eftir kvöld. Og hvað veldur sHku fyrirbrigði ? Eru Reykvíkingar á því þroskastigi að þeir fái ekki notið góðrar listar? Eða er það þetta gamla íslenzka sinnuleysi, þar sem þarf básúnur og herlúðra til að rífa upp hlustimar? Það er stórviðburður að hlusta á leik hr. Földesy — slíkur, sem heimaalningum veitist sjaldan á æfinni. Es. Ægilegt námuslys London kl. 16 22/9. FÚ. ógurlegt námuslys hefir orðið í nágrenni við Wrexham í norður Wales. Snemma í morgun varð sprenging í nám- unni, og kom þegar upp eldur á eftir sprengingunni. Áf þeim 400 mönnum, sem í námunni voru, tókst að koma 200 heilu og höldnu upp á yfirborð jarðar, en útlitið er talið afar- alvarlegt fyri r þá, sem eftir eru. Litlu eftir að björgunar- starfið byrjaði, var komið m'eð 6 lík upp úr námunni. Yfir 100 manns eru króaðir af eldi í námugöngum einum, um mílu vegar enslca frá námuopinu. Hver einasti maður í nágrenn- inu, sem vettlingi getur valdið, hefir tekið þátt í björgunar- starfinu, frá því er það hófst, og allt hugsanlegt hefir verið gert, til þess að koma hinum innilokuðu mönnum til hjáþr- ar. Þrír af þeim, sem þátt hafa tekið í björguninni, eru þegar dánir. Eldurinn geysar niðri í námunni í göngum sem eru yfir 1000 ensk fet á lengd. Umskipun milli flugvéla I lofti 4 menn bfða bana London kl. 17 22/9. FÚ. Sir Alan Kobham lagði af stað í dag frá Englandi í lang- flug til Indlands við annan mann. Hefir hann 1 hyggju, að taka viðbótar eldsneyti í lofti, Framh. á 4. aíðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.