Tíminn Sunnudagsblað - 24.12.1967, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 24.12.1967, Blaðsíða 12
„Vzð byrjuðum. búskap í helii" Þegar ekið er frá Þingvöllum að Laugar- vatni liggur leiðin á einumi stað um sléttar flatir, á hægri hönd girtar í hálfhring af bröttu felli. Oft er einhver í bílnum, sem bendir upp að klettunum og segir: Þarna í helli bjó fólk ekki alls fyrir löngu. Og ferðalangarnir hrista höfuðin og undrast. í síðasta viðtali ársins heimsækjum við fyrrverandi íbúa hellisins, Indriða Guð- mundsson og Guðrúnu Kolbeinsdóttur. Meðfylgjandi myndir af þeim eru teknar árið 1908, tveimur árum áður en þau giftust og fluttu í svo óvenjuleg híbýli. Hellisdvöl- in var fyrsti áfangi fimmtíu og sjö ára sam- eiginlegrar Iífsbaráttu, fyrsta sporið úr fá- tækt til bjargálna. Nú lifa þau í friðsæld í húsi sínu í Reykja- vík. Guðrún prjónar eða saumar, milli þess sem hún les fyrir Indriða, sem farinn er að tapa sjón, en er hress og ræðinn. A sumrin fara þau í sumarbústað sinn í landi Hjálm- staða í Laugardal, ekki langt frá hellinum góða. — Ég fæddist sjöunda desem- ber 1885. Móðir mín var vinnu- fcona hjá systur sinni, átján ára og faðir minn var tuttugu og þriggja ára vinnupiltur á satna bæ, Haga í Gi'ímsnesi í þá tíð voru svona hjú, unglingar, sem urðu fyrir því að eiga krakka, af- ekaplega umkomulaus. Ef þau nutu ekki foreldra sinnu, voru þau í hreinum vandræðum með að kornast áfram En ljósmóðir mín var Gróa Jóns dóttir frá Hjálmsstöðufn í Laugar- dal, kona Guðmundr Pálssonar. Hún tók barnið af móður minni. Og ég var fluttur upp að Iljálms- stöðum, þriggja nátta, innan í gæruskinni, í grenjandi byl. Guðmundur, maður Gróu, hafði fcomið að sækja hana, og hún ef- laust gert það í gustukaskyni við móður mina að taka mig, Fólkið hennar var lítið hrifið af föður 1140 ftdlNN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.