NT - 23.03.1985, Blaðsíða 5

NT - 23.03.1985, Blaðsíða 5
Laugardagur 23. mars 1985 5 Er þörf á kerfisbreytingu? Bandalag háskólamanna gengst fyrir ráðstefnu, ídagáHótel Loft- leiðum. Þar verður reynt að sýna fram á að með tilteknum breytingum í stjórnkerfinu og á verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga megi ná fram aukinni virkni með minni tilkostnaði. Ráðstefnunni verður skipt niður í fjóra hluta. Fyrst verður fjallað um skiptingu verkefna milli framkvæmdavalds, lög- gjafarvalds og dómsvalds. Framsögumenn þar um verða Magnús Pétursson, hagsýslu- stjóri, og Þór Vilhjálmsson, hæstaréttardómari. í öðrum hluta ráðstefnunnar verður fjallað um breytta verkefna- skiptingu milli ríkis, sveitarfé- laga og annarra aðila. Fram- sögumenn verða Logi Kristjáns- son, verkfræðingur, og Þórður Friðjónsson, hagfræðingur. í þriðja lagi verður fjallað um skipulagsbreytingar í stjórnar- ráðinu, frummælendur Eiríkur Tómasson lögfræðingurogJafet S. Ólafsson, viðskiptafræðing- ur. Fjórða umræðuefnið verður samskipti stjórnvalda við borg- arana og fjölmiðlana. Ráðstefnan hefst kl. 10.00 í ráðstefnusal Hótel Loftleiða með setningarræðu Gunnars G. Schram formanns BHM. Frjáls- ar umræður og fyrirspurnir verða að loknum hverjum þætti ráðstefnunnar, sent áætlað er aðljúkakl. 17.00. ■ Frá og með deginum í dag og fram yfir páska eiga listunn- endur kost á að kynna sér merkan þátt úr fínnskri myndlist, á Kjarvalsstöðum. Þar verður opnuð í dag sýning á verkum textíllistakonunnar Doru Jung, eins af helstu frumkvöðlum finnsks listiðnaðar á öldinni. Dora Jung lést árið 1980. Lisa Johansson Pape innan- hússarkitekt frá Finnlandi var náin vinkona listakonunnar og hún er stödd hér á landi til að annast uppsetningu verkanna. Hún sagði við blaðamann að Dora Jung hefði verið í fremstu röð þeirrar kynslóðar finnskra listamanna sem sameinaði list og fjöldaframleiðslu, sýndi fram á að list og listiðnaður ■ Lisa Johansson Pape sér um uppsetningu á sýningu vinkonu gætu haldist í hendur, en hin sinnar. NT-myiid:Ari. Sýning frægrar finnskrar textíllistakonu á Kjarvalsstöðum Listiðnaður getur verið háþróuð iist fræga finnska hönnun býr í dag mjög að starfi þessa fólks. Jo- hansson Pape lauk miklu lofs- orði á sýningaraðstöðuna á Kjarvalsstöðum sem hún sagði frábæra. Sýningin sem hingað kemur er farandsýning. Hún var fyrst sett upp í listiðnaðar- safninu í Helsingfors og kemur hingað gegnum Stokkhólm og Osló. Héðan fer sýningin til Gautaborgar. Sendiherra Finna á íslandi, Martin Isaksson, opnar sýning- una á Kjarvalsstöðum í dag og meðal gesta við opnunina verð- ur forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir. Orka úr innfluttu koksi ódýrari en íslenskt vatnsaf I ■ Komið hefur í Ijós að mun ódýrara er fyrir Steinullarverk- smiðjuna á Seyðisfirði að fram- leiða orku með innfluttu koksi heldur en að kaupa hana frá Rafveitu Sauðárkróks, sem fær orkuna frá RARIK og Lands- virkjun. Rafmagnið sem Steinullar- verksmiðjunni býðst frá Raf- veitu Sauðárkróks er á 75 mill kílóvattstundin en 25 mill ef notað er koks frá Evrópu. Til samanburðar má nefna að Ál- verið í Straumsvík borgar 12-13 mill fyrir kílóvattstundina. Aflþörf Steinullarverksmiðj- unnar er um tvö megavött sem er svipað og allur Sauðárkróks- bær notar í dag. Til að geta notað koksið verður að kaupa nýjan bræðsluofn en raf- bræðsluofninn, sem þegar er búið að kaupa, kostaði unt 20 milljónir. Að sögn Þorsteins Þorsteins- sonar, framkvæmdastjóra Steinullarverksmiðjunnar hf, er ekki spurning að koksið verði notað ef innlenda raforkan verður seld á því verði sem þeim er boðin hún í dag. en búið er að gera orkusölufyrir- tækjunum og iðnaðarráðherra grein fyrir þessu og stefnt er að viðræðum á næstunni. Það ætti því að skýrast fljótlega hvort flytja verður inn orku frá út- löndum fyrir Steinullarverk- smiðjuna á Sauðárkróki. Ráðgert er að byrja að prófa vélar verksmiðjunnr í júlí og hefja síðan framleiðsluna í ágúst. Reiknað er með að búið verði að framleiða um 700 tonn af steinull um næstu áramót. Tekinn með hass: Þrjátíu daga gæslu- varðhald ■ Tæplega þritugur Reykvíkingur hefur verið úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald eftir að á honum fundust 1,6 kðó af hassi á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins fyrr í vikunni. Smygl mannsins liggur Ijóst fyrir en gæsluvarð- haldsúrskurðinn er til þess að kanna hans feril frekar að sögn Arnars Jenssonar hjá fíkniefnalögreglu. Maðurinn hefurekki kom- ið áður við sögu fíkniefna- lögreglu. Ætlað er að hann hafi smyglað hassinu til sölu og hefði þá getað fengið fyrir það nær eina milljón króna á íslenskum markaði. Hassið var keypt í Amsterdam. Upp komst um smyglið þegar hasshundur fór að 'tösku einni sem verið var að flytja inn í flugstöðina í Keflavík. Var leitað á eiganda töskunnar og fannst eitrið þá á honum innan klæða. Taskan geymdi ekki hass en hefur verið notuð undir það ein- hvern tíma fy rr og þá tekið í sig hasslykt. Skólarnir 1.04 með 20 tima á viku, 1.05 með 25 tima á viku og 1.06 með 30 tima kennslu á viku, eru ætlaðir þeim sem vilja stunda almennt enskunám, eru ársskólar og hefjast námskeiðin eftirtalda daga á þessu ári: 31. mars, 14. og 28. apríl, 19. mai, 2., 16., 30. júní, 21. júli, 4. og 18. ágúst, 1 .,15. og 29. sept., 20. október, 3. og 17. nóvember og 1. des. Lágmarksdvöl er 3 vikur en hægt að framlengja um eins margar vikur og vill. Verð námskeiðanna miðað við gengi eins og það var 23. des. sl., er ryrir 3 vikur 1.04 kr. 31.701 — á 1.05 kr. 34.895 og fyrir 1.06 kr. 38.125. Hver aukavika kostar 1.04 kr. 6.230 — 1.05 kr. 7.301 og 1.06 kr. 8.171, og er þá reiknað með að flug, gisting á einkaheimilum með fæði svo sem að framan greinir, kennslu, tryggingum, læknisaðstoð en ekki flugvallarskattur sé innifalið í verði. Skoðunarferðir og þátttaka i iþróttum er skipulögð af skólanum og greidd aukalega og eru það ekki tilfinnanleg útgjöld. Við kennsluna er notuöfullkomin kennslutækni, upptaka kvikmynda, sýningarsjónvarps, vídeóo.fl. Kennd er viðurkennd almenn enska, enda skólarnir meölimir helstu skólasambanda Bretlands og viöurkenndur af breska menntamálaráðuneytinu. Aðrirskólareru meii sérhæföir og standaskemur. Við höfum handbæran bækling á ensku og islensku um skólana, einnig videó (VHS kerfi) sem við lánur, út, kvikrriyndir o.fl. og sendum hvert á land sem er. Allar upplýsingar um aðra skóla eru handbærar í skrifstofu okkar. Undanfarin 8 ár höfum við sent islendinga á öllum aldri til að læra ensku I Englandi hjá A.C.E.G. skólunum i Bournemouth á suðurströnd Englands um 2ja tima akstur i suðvestur frá London, frægur baðstrandarbær. Hægt er aö velja um fjölda námskeiða, sem flest ganga árið um kring, en einnig eru sumarskólar yfir hásumartím- ann. Yfirleitt er gist á einkaheimilum, en hægt að"fá gistingu á hótelum og heimavist. Á einkaheimilunum, sem valin eru hverju sinni úr stórum hópi heimila, fá nemendur einkaherbergi með baði og wc., eða aðgangi að slíku, og snæða morgunverð og kvöldverð með fjölskyldunum alla skóladaga, mánudaga til föstudaga, en að auki hádegisverð um helgar. Á heimilunum eru fleiri nemend- ur, þó aldrei fleiri en einn ísl. nemandi. Skólarnir byrja yfirleitt á mánudagsmorgnum og er þá flogið degi fyrr eða þá helgi með Flugleiðum til London, ekið með langferða- bifreiö til Bournemouth og nemendur vistaðir á heimilum sem þeim hefur verið úthlutaö áður. Á mánudagsmorgnum eru nemendur prófaðir (krossapróf) og þeim raðaö í deildir eftir getu hvers og eins þó þannig að engir tveir íslendingar lendi í sömu deild. LÆRIÐ ENSKU í ENGLANDI Anglo^ontinentáí FOfí ENGUSH !N CNGLAND PLÚS-LÁN: Til að auðvelda nemendum greiðslur viljum við minna á svokölluö plúslán bankanna, þ.e. nemandi leggur ákveðna upphæð inn mánaöarlega í lágmark 3 mánuöi og fær jafn- háa upphæð lánaða, sem greiöist síðan á næstu 3 mán- uöum eftir að komið er heim

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.