Morgunblaðið - 26.10.2004, Page 40

Morgunblaðið - 26.10.2004, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Nýjasti stórsmellurinn frá framleiðendum Shrek. Toppmyndin í USA í dag. j ll l . . Kvikmyndir.is  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. Rás 2 Tom Hanks NÆSLAND LEIKSTJÓRN FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON Sýnd kl. 8. M.M.J. Kvikmyndir.com  H.J. Mbl.  Ó.Ö.H. DV  „Wimbledon er því úrvals mynd, hugljúf og gamansöm, og ætti að létta lundina hjá bíógestum í skammdeginu." M.M.J. kvikmyndir.com Catherine Zeta Jones Sýnd kl. 8 og 10.05. Sýnd kl. 6 og 10.15.Sýnd kl. 6. Ísl tal. / kl. 6 og 8. enskt tal. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Shall we Dance? Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon Taktu sporið út úr hverdagsleikanum! ÁLFABAKKI kl. 4 og 6. Ísl tal./ kl. 4, 6, 8 og 10.10. Enskt tal. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8 OG 10.15. Ó.H.T. Rás 2 Sýnd kl. 8 og 10. Mynd eftir Börk Gunnarsson Shall we Dance? ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.45, 8 og 10.15 KRINGLAN kl. 8.15. B.i.14 ára KRINGLAN Sýnd kl. 6. KEFLAVÍK kl. 8. KRINGLAN kl. 10.15 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal. Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon Taktu sporið út úr hverdagsleikanum! H.L. Mbl.   Ó.H.T. DV Kvikmyndir.is V G . D V     LITLA KVIKMYNDAHÁTÍÐIN The Corporation sýnd kl. 10. The Yes Men sýnd kl. 6. TVÆR VINSÆLUSTU MYNDIRNAR SÝNDAR ÁFRAM TILKYNNT var um tilnefningar til Edduverðlaunanna í gær en verð- launaafhendingin fer fram 14. nóv- ember í Nordica Hotel og mun Sjónvarpið senda beint út frá hátíð- inni. Kvikmyndin Kaldaljós, eftir Hilmar Oddsson, fékk átta tilnefn- ingar til Edduverðlaunanna en til- nefningarnar voru birtar í dag. Kaldaljós keppir m.a. um verðlaun- in fyrir bíómynd ársins ásamt Dís, eftir Silju Hauksdóttur, og Næs- landi, eftir Friðrik Þór Friðriksson. Páll Steingrímsson, kvikmynda- gerðarmaður, fær heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar. Að sögn Kristínar Atladóttur, formanns akademíunnar, voru góð- ar heimildar- og stuttmyndir dálítið einkennandi fyrir síðasta ár. „Það komu út margar og góðar myndir á því sviði á síðasta ári,“ segir hún. „Það virðist vera komin ný vídd í íslenska kvikmyndagerð. Myndirnar eru sýndar í almennum kvikmyndahússýningum og eru farnar að slá aðsóknarmet. Þetta þykir okkur jákvætt.“ Sjö valnefndir fagmanna stóðu að tilnefningunum, en þetta er í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt. Segir Kristín að hátíðin hafi vaxið að styrk jafnt og þétt á líftíma sín- um. „Ég held að fólk finni fyrir því að það er faglega að þessu staðið okk- ar megin. Það ýtir undir skilvirkni hátíðarinnar. Viðurkenningar- stimpill á það sem vel er gert í þessu fagi skiptir fólk máli og er hvetjandi og það er fyrst og fremst það sem hátíðin snýst um.“ Kosningar til Edduverðlauna fara fram hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands dagana 8.–12. nóvember. Kosningarétt hafa meðlimir Ís- lensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar og er vægi þeirra 70%. Kosningar með þátttöku al- mennings fara fram á www.visir.is og er vægi almennings 30%. Kvikmyndir | Edduverðlaunin 2004                ! "  ! "  #$ %$      & # !  % ' ( %$  ) # $ *  !   +!%$ %$    ! ",  -! %$. $ #  /01  23   ! "     , -  . /01 0   2    30 4 5     /5 601      .30 0   7 - 0  7 4 57    8 0  /0   5   9  8 :9  -   0  ;4 9 <0  =  .  !"# $ <>%;?  -  % & ' ()#    *$  +  $ 6    & , & $ @       -  &  $ 8 /0 .      A- . /  3   - . / B0  .  % (   . 0,  ( C 7 . 1  (  . 5. 2 ) 301. 3    D: D: . 4$ $ $ 2.  : 0 . , &%  E . /  1 .    & F8        7  0     5 $ G   6 * 6  $ .   7  ,8  D0 "  & $ 8    +   $ 8 4   $ 8:   *$    $$& 1 3 '  $ H . 5    9 : !  $ D    ;  +  &  G -  , , .,  $ 5 9IF:8 9   <+  ,8+  $= ,8 # $ 9    I.19   <& , & $ 3  4 ID8D9   <& '& $ A- 8 &   . &$&   % #  .>   ? #    $& #%  Kaldaljós með átta tilnefningar Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson fær átta tilnefningar til Edduverð- launanna í ár. Hér er Ingvar Sig- urðsson í hlutverki sínu. ÞRÍR erlendir miðlar hafa nú birt umsagnir um Iceland Airwaves- hátíðina sem lauk á sunnudaginn. Um er að ræða danska tónlist- argötublaðið Gaffa, vefmiðilinn virtualfestivals.com sem sérhæfir sig í umfjöllun um tónlistarhátíðir og svo vefmiðilinn Drowned in Sound (www.drownedinsound.com). Allar eru þessar umsagnir í dag- bókarstíl, þ.e. blaðamennirnir eða rýnarnir lýsa rölti sínu á milli tón- leikastaða. Allir eru þeir sáttir og lýsa Íslandi sem miklum furðu- og gleðistað, eins og lenska er hjá er- lendum tónlistarblaðamönnum hvað Ísland varðar. Umfjöllun Drowned in Sound er yfirgripsmikil og tekur yfir fimmtudag, föstudag og laug- ardag í þremur mismunandi grein- um. Gareth Dobson heitir rýnirinn og hrósar hann Úlpu í hástert á fimmtudeginum, segir þá besta ís- lenska band kvöldsins og minnist líka á Brúðarbandið, Cell 7 og Ensími m.a. Kvöldið eftir eru það Skátar sem heilla hann upp úr skón- um á Grand Rokk. Skakkamanage og Mínus eru þar einnig í góðu bók- inni. Á laugardeginum eru Reykja- vík! og Trabant hins vegar málið. Umfjöllunn virtualfestivals.com er viðlíka að vöxtum. Brúðarbandið og Slow Blow eru tekin sérstaklega út á fimmtudeginum og Mínus er það sem heillar daginn eftir. Á laugardeginum er minnst á Maus, Leaves og Trabant en annars fer mesta púðrið í að tala um erlendu lista- mennina. Gaffa er vandað tón- listarblað sem dreift er frítt um Kaupmanna- höfn og tóku útsendarar þess hátíðina trausta- tökum. Michael nokkur Jensen sér um skrifin að mestu og er einkar akademískur í skrifum. Hann klórar sér í hausnum yfir Geir Harðar (sem lék á miðvikudegi í NASA) og segir hann ekki uppfylla þær væntingar sem gerðar séu til íslenskrar tónlist- ar í dag, þ.e. að hún sé frumleg og fersk. Hrifnari var hann af Þóri og KK og segir KK undir áhrifum frá Sting (!?). Slow Blow vöktu athygli hjá Jensen á fimmtudeginum, svo og Brúðarbandið. Annar penni, Hanne Krage Carlsen, var þá einnig á vappi á fimmtudeginum, og er einkar hrif- in af Jan Mayen og Ensími og einnig Úlpu, sem hún líkir við hina dönsku Mew. Jensen er svo mættur aftur á föstudeginum og spáir mikið í Tend- erfoot og Mínus. Hanne Krage Carl- sen ritar þá og föstudags/laug- ardagsgrein og er mikið hrifin af Hjálmum, Mugison og Haltri hóru. Jensen eyðir svo allri laugardags- greininni í Mugison, sem hann lýkur miklu lofsorði á. Á hann vart til orð yfir snilldina. Jensen ritar svo sérstakan eft- irmála um hátíðina þar sem hann veltir fyrir sér kostum og göllum hennar þetta árið. Morgunblaðið/Árni Torfason Maus var ein þeirra sveita sem hafði ofan fyrir erlendum rokkblaðamönnum á Airwaves. Airwaves | Erlend umfjöllun Svala Ísland www.gaffa.dk www.drownedinsound.com www.virtualfestivals.com BRASILÍSKI söngvarinn Gilberto Gil og þýski óperu- söngvarinn Dietrich Fischer- Dieskau hljóta Polar- tónlistarverð- launin í Sví- þjóð að þessu sinni. Stig Ander- son, umboðs- maður hljóm- sveitarinnar ABBA, stofn- aði til þessara verðlauna ár- ið 1989 með stuðningi sænsku tónlistar- akademíunnar. Gil, sem einnig er menning- armálaráðherra Brasilíu, og Fischer-Dieskau fá hvor um sig 1 milljón sænskra króna. Búist er við að þeir komi til Svíþjóðar og taki við verð- laununum úr hendi Karls Gústafs Svíakonungs í maí á næsta ári. Verðlaununum er venjulega skipt á milli popptónlistar- manna og klassískra tónlist- armanna. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Paul McCartney, Isaac Stern, Bruce Springsteen, Pierre Boulez og Quincy Jon- es. Polar-verðlauna- hafar útnefndir Gilberto Gil og Fischer- Dieskau Gilberto Gil

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.