Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 12. febrúar 2005 | 15 Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri: Flight of the Phoenix. Meet the Fockers The Aviator  (HJ) Sjóræningjar á Saltkráku Háskólabíó Meet the Fockers Million Dollar Baby The Aviator  (HJ) Alexander  (HJ) Ocean’s Twelve  (SV) Laugarásbíó Meet the Fockers The Aviator  (HJ) Sjóræningjar á Saltkráku Regnboginn Being Julia The Sea Inside Sideways  (SV) Finding Neverland  (SV) Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri White Noise Fríllinn Meet the Fockers Million Dollar Baby Alexander  (HJ) Team America World Police A series of unfortunate events  (SV) The Incredibles  (HL) Smárabíó Flight of the Phoenix. Assault on Presinct 13 Elektra  (SV) Í takt við tímann  (SV) Myndlist Anddyri Suðurlandsbrautar 4: Rafn Sigurbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Árbæjarsafn: Í hlutanna eðli – stefnumót lista og minja. Til 5. júní. Gallerí Banananas: Stein- grímur Eyfjörð - Undir lindi- trénu. Gallerí Dvergur: Efrat Zehavi – Fireland. Stendur til 13. febrúar Gallerí Humar eða frægð!: Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýnir myndbandsverk. Stendur til 18. febrúar. Gallerí i8: Finnur Arnar sýn- ir til 26. febr. Gallerí Sævars Karls: Sig- urður Örlygsson – Ættarmót fyrir hálfri öld. Gerðuberg: Þýska listakonan Rosemary Trockel sýnir til 27. febr. Sigríður Salvars- dóttir í Vigur sýnir listaverk úr mannshári í Boganum. Stendur til 13. mars. Grafíksafn Íslands: Rut Rebekka sýnir vatnslita- og olíumálverk. Hafnarborg: Rafmagn í 100 ár – sýning í tilefni af 100 ára afmæli fyrstu almenningsraf- veitunnar. Bjarni Sigur- björnsson og Haraldur Karls- son – Innsetning. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er mynd- höggvari febrúarmánaðar. Hallgrímskirkja: Jón Reyk- dal – 6 ný olíumálverk í forkirkju. Hólmaröst: Jón Ingi Sigur- mundsson – olíu- og vatns- litamyndir. Hrafnista Hafnarfirði: Tryggvi Ingvarsson, raf- virkjameistari og heimilis- maður á Hrafnistu, sýnir út- saum og málaða dúka í Menn- ingarsalnum á fyrstu hæð. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Sænskt listgler, þjóðargjöf. Iðntæknistofnun: Nýsköpun í ný sköpun. Átta listamenn úr Klink og Bank. Kaffi Espresso: Guðrún Egg- ertsdóttir – skúlptúrar og myndir. Kaffi Sólon: Óli G. Jóhanns- son sýnir óhlutbundin lista- verk. Stendur til 5. mars. Kubburinn – LHÍ: Þóra Gunnarsdóttir sýnir verk sín. Listasafn Akureyrar: Ashkan Sahihi – Stríðsmenn hjartans. Stendur til 6. mars. Listasafn ASÍ: Ólöf Nordal – anaegg. Ósk Vilhjálmsdóttir – Jákvæð eignamyndun – Nei- kvæð eignamyndun. Standa til 5. mars. Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930–1945. Rúrí – Archive – Endangered wa- ters. Listasafn Kópavogs – Gerð- arsafn: Árleg ljósmyndasýn- ing og verðlaunaveiting Blaðaljósmyndarafélags Ís- lands. Ragnar Axelsson – Framandi heimur. Listasafn Reykjanesbæjar: Kristín Gunnlaugsdóttir – Mátturinn og dýrðin, að eilífu. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Slunkaríki: Ívar Brynjólfsson – Bardagavellir. Suðsuðvestur, Reykjanesbæ: Magnús Pálsson sýnir inn- setningu. Thorvaldsen: Kristín Tryggvadóttir – Leikur að steinum. Til 19. feb. Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur: Sören Solsker Starbird – Er sálin sýnileg? Ljósmyndasýning. Þjóðminjasafnið: Hér stóð bær … og Átján vóru synir mínir í Álfheimum. – Ljós- myndasýningar. Leiklist Austurbær: Vodkakúrinn, lau. Borgarleikhúsið: Belgíska Kongó, lau., sun. Híbýli vind- anna, lau. Lína Langsokkur, sun. Saumastofan, 30 árum síðar, lau. Svik, sun. Iðnó: Tenórinn, sun. Íslenska óperan: Tosca, sun. Leikfélag Akureyrar: Ólí- ver!, lau, sun. Þjóðleikhúsið: Dýrin í Hálsa- skógi, sun. Edith Piaf, sun. Öxin og jörðin, lau. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Erró, Víðáttur. Þórður Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey Ólafs- dóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki blekkja þig. Brian Griffin – Áhrifavaldar. Til 27. febr. Listasafn Reykjavíkur, Kjar- valsstaðir: Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í Vestursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson – Markmið XI í miðrými. Kjar- val í Kjarvalssal. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Fyrir og eftir. Lýkur um helgina. Náttúrugripasafnið Hlemmi: Tuttugu og sex mynd- listarnemar sýna. Safn: Stephan Stephensen – AirCondition. Jóhann Jó- hannsson – Innsetning tengd tónverkinu Virðulegu forset- ar. Á hæðunum þremur eru að auki ýmis verk úr safn- eigninni, þ. á m. ný verk eftir Roni Horn, Pipilotti Rist og Karin Sander. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar. ÞAÐ verður að teljast löngu tíma- bært að haldin sé yfirgripsmikil yfirlitssýning á verkum Harðar Ágústssonar og gerð úttekt á áhrifum hans á íslenska listsenu. Þau eru víðtækari en marga grun- ar og skipar hann sess á meðal lykil-listamanna í íslenskri mynd- listarsögu. Það er þó ekki langt síðan að yngri kynslóðir þekktu vart til verka hans og er ég ekki frá því að Friðrik Þór Friðriksson eigi mikinn þátt í endurreisn Harðar í myndlistarumræðunni þegar hann valdi nokkur litbands- verk eftir listamanninn á sýningu í Gerðubergi, Þetta vil ég sjá, árið 1999. Tóku yngri listamenn og áhugamenn þá kipp og upp frá því hafa litbandsverk Harðar verið áberandi og eftirsótt í myndlist- arflórunni. Það er því vel við hæfi að löngu tímabær yfirlitssýningin á Kjarvalsstöðum skuli heita End- urreisnarmaður íslenskra sjón- mennta. Hörður hóf listferil sinn með nokkuð hefðbundnum hætti. Fíg- úratíf málverk og uppstillingar. Hann snýr sér svo að abstraktlist- inni á sjötta áratug síðustu aldar, lita- og formrannsóknir þar sem sjónrænt áreitið felst í óreiðu for- ma á myndfletinum. Prýðilegar myndir í sjálfu sér, en það eru vafalaust litbandsverkin sem veita honum sérstöðu í abstrakt- málverkinu á Íslandi. Þar felst sjónrænt áreitið í samspili litanna líkt og við þekkjum í oplist og lit- bandið nokkuð óhefðbundið efni til myndgerðar. Reyndar hafði Hol- lendingurinn Piet Mondrian þegar vakið alþjóðlega athygli fyrir lit- bandsverk. En þau voru ryþma- kennd og gerð undir áhrifum af bandarískri jazztónlist. Því er hins vegar ekki að neita að Hörður hefur sótt nokkuð stíft í myndmál og hugmyndafræði Mondrians og félaga hans í de stijl-hópnum sem/ og þýsku Bauhaus-listamannanna. Sterk tengsl við arkitektúr og hönnun skiptu listamönnum de stijl og Bauhaus miklu máli. En listamaðurinn starfaði við hönnun og var á meðal helstu athafna- manna í umræðu og gagnrýni um arkitektúr á Íslandi strax á 6 ára- tugnum. Í grunninn snýst þetta um hugmynd gestalt-fræðinnar að manneskja skynji hluti innan heildar sem de stijl og Bauhaus- menn byggðu mikið af sinni hug- myndafræði á. Málverk var þar af leiðandi ekki bara mynd á vegg aðskilin frá því rými sem vegg- urinn tilheyrði. Áhorfandi skynj- aði málverk sem hluta af rýminu og eðlilega tvinnast þá saman málverk, byggingarlist og hönnun. Eitt helsta baráttuefni Harðar varðandi húsagerðarlistina var varðveisla byggingararfsins. Sat listamaðurinn í ritstjórn arki- tektaritsins Birtings og skrifaði jafnframt um rannsóknir á bygg- ingarlist í önnur tímarit. Á Kjar- valsstöðum má sjá nokkur af Birt- ingarritunum með greinum og útlitshönnun eftir Hörð, auk end- urgervingateikninga á húsum og ljósmyndir sem fá mann til að hugsa til skrásetningaráráttu margra konseptlistamanna s.s. Ed Ruscha, Roni Horn og Dieter Roth, en sá síðastnefndi starfaði einmitt með Herði við hönnun. Ef einhver abstraktlistamanna okkar Íslendinga hefur haft áhrif á ís- lenska konseptlistamenn þá er það vafalaust Hörður. Litbandsverk og teikningar sem sýndar eru á Kjarvalsstöðum og spila saman líkt og myndrammar í teikni- myndasögu, sýna hreyfingu forma í fjórum myndum, eru t.d. ekki ólíkar vangaveltur og mínimal konseptlistamenn, Blinky Pal- ermo, Imi Knoebel, Kees Smits o.fl., voru að fást við um svipað leyti. Lendir Hörður einhvers staðar á milli hinna ljóðrænu ís- lensku abstraktsjónar og mínimal- ískrar konseptlistar. Stendur þá nokkuð sér á báti hérlendis. End- urreisn hans fyrir fáeinum árum var því afar velkomin og enn fremur gefur yfirlitssýningin ástæðu til að fagna. Litbands- verkin og margar teikningarnar eru sífersk þótt komin séu til ára sinna. Sýningin fræðandi og sýn- ingarskrá til sóma. Í raun ómiss- andi sýning fyrir íslenska listunn- endur. Sér á báti Jón B.K. Ransu Eitt af litbandsverkunum á yfirlitssýningu Harðar Ágústssonar í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum. MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Opið alla daga frá 10–17. Sýningu lýkur 24. apríl. Yfirlitssýning – Hörður Ágústsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.