Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT NASA, geimrannsóknastofnun Bandaríkjanna, hyggst senda á loft geimfar, Deep Impact, sem á að fljúga til móts við hala- stjörnuna Tempel 1. Í geim- farinu er lítil flaug sem á að rekast á halastjörnuna til að sprengja gíg á yfirborði henn- ar. Geimfarið á síðan að taka myndir af árekstrinum og afla gagna sem vonast er til að af- hjúpi leyndardóminn um inn- viði halastjarna. Er þetta í fyrsta skipti sem NASA sendir geimfar til að skyggnast inn í halastjörnu. Uppruni halastjarna er rak- inn til svæða í útjaðri sólkerf- isins. Þær eru taldar leifar af því efni sem ekki náði að safn- ast saman í stærri hnetti, reiki- stjörnur og tungl, þegar sól- kerfið myndaðist fyrir milljörðum ára. Geimvís- indamenn vona því að Deep Impact varpi ljósi á uppruna- legan efnivið sólkerfisins og gefi vísbendingar um hvernig það myndaðist. Áreksturinn kann einnig að varpa ljósi á afleiðingar þess að halastjarna rækist á jörð- ina. Gert er ráð fyrir því að ferð Deep Impact hefjist í dag, 12. janúar, og að geimfarið komi að halastjörnunni í júlí. Geim- farið sendir síðan litla flaug, svokallaða „árekstrarflaug“, inn á braut halastjörnunnar til að rekast á hana. Gert er ráð fyrir því að við áreksturinn myndist gígur á yfirborði hala- stjörnunnar, en erfitt er að áætla hversu stór hann verður. Vísindamennirnir telja að stærð hans verði að minnsta kosti á við einbýlishús og allt upp í stóran íþróttaleikvang. Dýpt hans er talin verða á við tveggja til fjórtán hæða hús. Í árekstrarflauginni, sem er með sjálfstýringu, er vél sem á að taka myndir af kjarna hala- stjörnunnar. Gert er ráð fyrir því að hún sendi frá sér síð- ustu myndirnar aðeins nokkr- um sekúndum fyrir árekst- urinn. Í Deep Impact eru einnig myndavélar og önnur rann- sóknartæki sem notuð verða til að fylgjast með árekstrinum. NASA hyggst ennfremur beina öflugustu stjörnusjónaukum sínum að halastjörnunni þegar áreksturinn verður. Þá vonast geimvísindamenn- irnir til þess að stjörnufræð- ingar og áhugamenn geti fylgst með áhrifum árekstr- arins með stórum og smáum stjörnusjónaukum. „Fyrsta flugeldasýning jarðarbúa í geimnum“ Búist er við að sólarljósið end- urspeglist í efninu sem þeytist frá halastjörnunni við árekst- urinn og vísindamennirnir telja að það verði tilkomumikil sýn. Stefnt er að því að árekst- urinn verði 4. júlí, á þjóðhátíð- ardegi Bandaríkjanna. „Þetta verður mjög spenn- andi leiðangur,“ sagði Rick Grammier, sem stjórnar geim- ferðinni. „Og við getum öll fylgst með því þegar hann nær hámarki með fyrstu flugelda- sýningunni sem jarðarbúar halda í geimnum.“  !"#$%&"'%() * &"+,%-'        /012)3451 6 7 -1 -8 9   #% -/ :   '".  #-%  ; 6 * - 70/*)11 6452)5< "/)43 =43;)/03 /'343,3;1 5>      <       ?;   &$         % 700@ 1A@)B* 3       > & &&#C (.  -  $  (  3       % .  . $        .&    $. .&    &    3)3);'"4 =  >&           950+;*45 D %- EF!  &  G     C .   =  - 3 %-   5>        =51< A  C     &# . > -- *      C  !  .  A51< A  &#  -- &$  & =51 ;  ;  );).      C 7 -1 -8C     $.  H  -   $  ( . * -    &$   *0A@0/ 4  $ .<    !C!  0    I  >  0* -    .  JFD =     .<  C         Skyggnst inn í hala- stjörnu í fyrsta skipti ’Geimvísindamennvona að Deep Impact varpi ljósi á uppruna- legan efnivið sólkerf- isins og gefi vísbend- ingar um hvernig það myndaðist.‘ AÐ MINNSTA kosti átta manns hafa látið lífið í skógareldum í Suður- Ástralíu. Óttast er að tala látinna hækki þar sem nokkurra er enn sakn- að og eldarnir ógna nokkrum bæjum, m.a. nálægt borginni Adelaide. Slökkviliðsmenn reyna hér að hefta útbreiðslu elds í grennd við Adelaide. Slökkvistarfið gekk mjög erfiðlega vegna hvassviðris. Hitinn í Suður-Ástralíu hefur verið allt að 44 gráður á Celsius og skógarnir eru mjög þurrir vegna margra ára þurrka. AP Skógareldar ógna bæjum í Ástralíu GEORGE W. Bush Bandaríkja- forseti tilnefndi Michael Chertoff, dómara áfrýjunarréttar, í embætti ráðherra heimavarna í gær. Chertoff, sem er fyrrverandi sak- sóknari, var yfirmaður glæpadeild- ar dómsmálaráðuneytisins frá 2001 til 2003 þar sem hann átti mikinn þátt í að móta viðbrögð Bandaríkja- stjórnar við hryðjuverkunum 11. september 2001. Eftir það var hann skipaður í stöðu dómara við áfrýj- unarrétt í New Jersey. Chertoff á að taka við af Tom Ridge sem var fyrsti ráðherra heimavarna í Bandaríkjunum. Bush tilnefndi upphaflega Bernard Kerik í embættið en hann dró sig til baka í desember eftir að upp komst að inn- flytjendayfirvöld höfðu gert at- hugasemdir vegna máls vinnukonu á heimili hans en hann sagði ekki frá því í fyrsta viðtalinu fyrir starfið. Konan var ekki með atvinnuleyfi í Banda- ríkjunum. Dómari tilnefndur sem ráðherra heimavarna Michael Chertoff Washington. AP. NORSKI herinn mun formlega taka við eftirliti í lofthelgi Litháens í dag, miðvikudag. Sem aðildarríki Atl- antshafsbandalagsins (NATO) án eigin loftvarna á Litháen tilkall til þess að bandalagið sjái því fyrir slíku eftirliti. Ivor Caplin, aðstoðarvarnarmála- ráðherra Bretlands, er í Litháen og mun fulltrúi norska hersins taka formlega við eftirlitshlutverkinu af honum. Bretar hafa haldið uppi þessu eftirliti í lofthelgi Litháen á undanliðnum mánuðum. Þeir hafa notað fjórar herþotur af gerðinni F-3 Tornado og hafa um 120 breskir hermenn og sérfræðingar fylgt þot- unum. Norðmenn hafa sent tvær þotur af gerðinni F-16 til Litháen. Þeim fylgja um 30 menn. Þar verða þot- urnar fram í mars en þá tekur ein- hver önnur aðildarþjóð NATO við eftirlitshlutverkinu. Danir sinntu þessu starfi fyrst í Litháen, þá Bret- ar og nú Norðmenn. Þoturnar eru gerðar út frá Zokniai-flugstöðinni. Auk Litháa njóta Eistlendingar og Lettar sams konar aðstoðar af hálfu aðildarríkja NATO þar eð þessar þjóðir ráða ekki yfir sjálf- stæðum loftvörnum. Þessu fyrir- komulagi var komið á í marsmánuði í fyrra þegar Eystrasaltsþjóðirnar þrjár gengu í Atlantshafsbandalag- ið. Norskar herþotur sendar til Litháens Vilníus. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.