Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.02.2005, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING MARKMIÐ er orð sem ég stend sjálfa mig oft að því að nota í skrifum mínum. Hver eru markmið lista- mannsins? Að mínu mati eru mark- mið mikilvæg í listinni sem annars staðar en svo getur verið ágætt þeg- ar hrist er aðeins upp í manni eins og þeir félagarnir Helgi og Pétur gera með sýningu sinni á Kjarvalsstöðum, Markmið XI, en þar ná þeir að vekja upp spurningar um þessa orðnotkun og þá hugsun sem henni fylgir. Titill- inn er afar skemmtilega við hæfi, hugsanlega eru listamennirnir ein- mitt að gagnrýna þetta markmiða- æði, hina beinu braut frá A–Ö, frá upphafi til endis, frá engu í eitthvað, braut framfara, þróunar o.s.frv. sem samfélagið beinir okkur öllum inn á og ég hef sjálf bergmálað í skrifum mínum um myndlist. Helgi og Pétur hafa þróað hug- mynd sína sem þeir nefna Markmið í nokkur ár og sýnt afraksturinn. Efni- viður þeirra í sýningum þessum hef- ur jafnan tengst því sem viðtekið er að kalla strákaheim, þó tæpast sé reyndin sú í raun og kemur þar fram enn ein viðleitni umhverfisins til að steypa alla í sama mót, eða hvenær ætli litla dóttir mín á öðru ári hætti með bíla- og gröfudellu sína? Á leik- skólanum þar sem strákarnir einoka bílakassann? Það er önnur saga en þó ein hliðin á sýningu þeirra félaga. Kannski er spurning hvort að þeir takmarki túlkun verka sinna að ein- hverju leyti með áherslunni á „strákaheiminn“? Sýningin Markmið XI fjallar um bíla og tæki eins og fleiri sýningar Markmiðs og nær hér að tengjast umhverfi sínu úti og inni á áreynslulausan hátt, hinir arkitekt- ónísku eiginleikar gangsins á Kjar- valsstöðum sem millibilsástand, eru í afar góðu samræmi við verkin sem sýnd eru. Hver markmið þeirra félaganna eru með bílabrölti sínu er síðan eng- an veginn ljóst og gera þeir áhorf- andanum þannig greinilegt að verk þeirra snúast ekki um raunheim bílanna eða tækjanna heldur nota þeir þessa hluti sem tákn og leika sér með það sem í þeim býr. Karl- mennskuímynd bíladellugauranna, gerðu-það-sjálfur-menninguna, keppnisandann sem fylgir listum e.t.v. jafn mikið og íþróttum að ógleymdu hinu eilífa bardúsi lista- mannsins og leit hans að áhrifaríkara formi, lit eða línu. Framsetning verk- anna virkar vel í aflöngu rýminu, áhorfandinn gengur inn í verkið og lýkur göngu sinni við myndböndin sem eru ómissandi hluti af sýning- unni, ljá henni líf og gæða hana þeim húmor og leik sem að baki býr, leik sem líkt og frjáls leikur barna er eng- inn barnaleikur því hvað er hlut- verkaleikur, bílaleikur eða mömmó nema endurspeglun á alvöru lífsins í margbreytilegum myndum. Markmið XI sýnir að Helgi og Pét- ur hafa náð langt í að setja fram hug- myndir sínar, finna sér myndmál og efnivið við hæfi, þeir hafa náð að þróa hugmynd sína nægilega langt frá strákahúmornum sem var ofarlega á baugi í upphafi yfir í að ná valdi á sjálfsköpuðu tungumáli sem nær að tengja list þeirra raunveruleikanum um leið og verk þeirra standa sjálf sem spurning um markmið og eðli listarinnar og sköpunarinnar. Þannig ná þeir að láta bílana sem hér standa sýnilegir fyrir utan gluggana verða sjálfsagðan hluta af verkinu en um leið gædda ósýnilegu afli listarinnar, bíll verður hugverk. Sýningin dansar þannig afar skemmtilega á mörkum raunveruleikans og listarinnar, áhorfandinn gleymir að hann er að horfa á listaverk en á næsta augna- bliki spyr hann sig, hvað sé ég? Og þá er takmarkinu náð … Bíll verður hugverk MYNDLIST Kjarvalsstaðir Til 24. apríl. Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga nema mánudaga frá k. 11–17. Markmið XI, blönduð tækni, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, Pétur Örn Friðriksson Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Jim Smart „Markmið XI sýnir að Helgi og Pétur hafa náð langt í að setja fram hugmyndir sínar.“ Segðu mér allt er heiti á nýju leikriti eftirKristínu Ómarsdóttur sem verður frum-sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20. Leikritið segir frá hinni tólf ára gömlu Guðrúnu sem er í hjólastól og þarf stund- um að flýja á vit draumaheimsins þegar for- eldrar hennar og lífið sjálft verður yfirþyrm- andi. Í draumaheimi hennar er til staðar hið fullkomna par, Barbí og Mark, sem við nánari eftirgrennslan reynast ef til vill önnur en þau sýndust í fyrstu. Það er í höndum Auðar Bjarnadóttur leik- stjóra að gæða leikverk Kristínar lífi, en heima- tökin eru nokkuð hæg fyrir hana þar sem hún leikstýrði öðru verki eftir Kristínu, Ástarsögu 3, þegar það var sett upp í Borgarleikhúsinu fyrir nokkrum árum. „Það var mjög skemmtileg reynsla, líkt og núna,“ segir Auður í samtali við Morgunblaðið. „Þessi sýning hefur reyndar ver- ið lengi í deiglunni, í um það bil tvö ár, og því var meira að segja varpað fram um daginn hvort ekki væri réttara að hún héti Segðu mér það seinna! En nú er hún að fara á fjalirnar og það er mjög gaman.“ Flúið á vit draumaheims Auður segir það forréttindi að hafa höfundinn í slíkri nálægð sem raunin er þegar samtíma- leikskáld eiga í hlut, þar sem auðvelt sé að skiptast á hugmyndum og skoðunum. „Það er líka gaman að takast á við nýtt verk, sem enginn hefur fengist við áður. Og svo finnur maður strax þegar verk liggur vel við, eins og þetta verk Kristínar gerir. Hún er djarfur penni og þrælskemmtileg, og ofsalega flink að skrifa samtöl,“ segir hún og varpar um leið fram lýs- ingarorðunum ljóðræn og fyndin sem hún segir lýsa stíl Kristínar vel. „Í verki hennar er því margslungin áskorun til að takast á við sem leikstjóri.“ Dagdraumar aðalsöguhetju leikritsins, Guð- rúnar, sem fara nokkuð úr böndunum þegar á líður, eru nokkuð sem flestir kannast við og að mati Auðar er þetta skemmtileg hugmynd hjá Kristínu sem hægt hefði verið að útfæra á ýmsa vegu. „Í raun hefði ég viljað auglýsa eftir sögum frá fólki um dagdrauma þess, til undirbúnings sýningarinnar. Því öll hefur okkur dreymt dag- drauma. Hvenær erum við föst í hugmyndum okkar, um sjálf okkur, um aðra? Erum við í raun og veru alltaf í raunveruleikanum?“ segir Auður og lýsir einni lýsingu sem hún varð sér úti um: Þá sótti söngvarinn Cliff Richards stúlk- una og fór með hana til New York á hverju kvöldi. „Hjónin Mark og Barbí eru drauma- heimur Guðrúnar í leikritunum, og virðast vera þessar góðu fyrirmyndir. En á endanum fara draumarnir líka að flækjast fyrir Guðrúnu.“ Hún segir verkið bæði fyndið og skemmtilegt, en segist jafnframt vonast til að ná fram drama- tíkinni sem hún segir vissulega einnig til staðar í verkinu. Leikritið veltir líka upp ýmsum mjög þörfum spurningum að mati Auðar, meðal ann- ars um kynlíf. „Kynlíf og unglingar er nokkuð sem við foreldrar stöndum vissulega frammi fyrir í dag sem vandamál. Að því leyti er þetta mjög aktúelt efni sem Kristín tekur á; hvar eru mörkin og erum við að missa sjónar á þeim, og þar fram eftir götum,“ segir hún. Auður lýsir yfir ánægju með annað sam- starfsfólk sitt í sýningunni, leikara og alla þá sem koma að umgjörð sýningarinnar svo sem búningum, leikmynd, lýsingu og hljóðmynd. Það er Álfrún Örnólfsdóttir sem stígur sín fyrstu skref á sviði Leikfélags Reykjavíkur í hlutverki Guðrúnar. „Ég kenndi Álfrúnu ballett fyrir tíu árum og hún er mikill proffi þó að hún sé ung, og fjölhæf. Leikararnir allir eru raunar mjög fínir í sínum hlutverkum,“ segir hún og bætir við að vinnan öll við sýninguna hafi verið mjög skemmtileg. Það kemur kannski ekki á óvart að stór hluti af undirbúningi sýning- arinnar fór fram í gegnum hreina líkamstján- ingu, því bakgrunnur Auðar er í ballett og hún kennir þar fyrir utan jóga. „Við höfum dansað, gert jóga, farið í leiki og notuðum hreyfingu yf- irleitt mjög mikið á ferlinu til að ná fram réttu stemningunni. Það er líka mikil hreyfing í sýn- ingunni sjálfri, enda er Kristín þannig að hún býður upp á svo fjölbreytta möguleika – að búa til einskonar fantasíuheim í raun, þó að hún sjálf kalli þetta sósíalrealisma!“ Leikur er líkamlegur Auður hefur unnið við leiksýningar síðan árið 1987, fyrst sem aðstoðarleikstjóri og leikstjóri hreyfinga, en síðan sem leikstjóri. Auk eins árs af leikstjórnarnámi í Bretalandi hefur hún auð- vitað mikla reynslu í farteskinu úr ballettinum, við uppsetningu slíkra sýninga. „Í raun er þetta allt svipað, að setja upp ballettsýningu, leiksýn- ingu og óperusýningu. Það er bara spurning í hvaða átt það stækkar,“ segir hún. „En það var gaman að fara úr dansinum og kynnast fjöl- breyttari heimi fólks; eldra fólks, ekki bara ungra dansara. Mér finnst líka mjög gaman að vinna með texta, þó að reynsla mín byggist að miklu leyti á dansi. En góður leikur er alltaf lík- amlegur að mínu mati, hvort sem leikarinn er meðvitaður um það eða það er honum eðlislægt. Þannig að það getur verið að nálgun mín sé önn- ur fyrir leikarana en þeir eru vanir.“ Hún segist hlakka til að sjá verkiðloksins á sviði, enda hefur sýningin lengi átt stað í huga hennar. „Henni hefur verið frestað svo oft að við höfum enga afsökun fyrir því að gera ekki okkar besta,“ segir hún og hlær. „En þetta er svo skemmtilega aktúelt verk, bæði fyrir ungt fólk og ekki síður fyrir foreldra þess. Þar er velt upp áhugaverðum spurningum fyrir okkur öll sem erum í kringum börn og unglinga: Hvað set ég fram fyrir barnið mitt og hvar eru mörkin? Hvað er ofbeldi og hvað er ekki ofbeldi?“ Leikhús | Segðu mér allt eftir Kristínu Ómarsdóttur frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins Áleitnum spurningum velt upp Morgunblaðið/Þorkell Í sýningunni er velt upp áhugaverðum spurningum um ýmislegt sem brennur á foreldrum. Morgunblaðið/Þorkell Auður Bjarnadóttir leikstjóri segir Segðu mér allt fyndið verk en þó með alvarlegum undirtón. Eftir: Kristínu Ómarsdóttur Leikendur: Álfrún Örnólfsdóttir, Marta Nordal, Ellert A. Ingimundarson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Þór Tulinius. Lýsing: Kári Gíslason. Tónlist: Hákon Leifsson. Leikmynd og búningar: Rebekka A. Ingimundardóttir. Leikstjórn: Auður Bjarnadóttir. Segðu mér allt ingamaria@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.