Fréttablaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 1. apríl 2003
■ MYNDLIST ■ MYNDLIST
43
kl. 3 m/isl. taliÁLFUR
kl. 5.20, 8 og 10.40 B i 14 áraMASTER & CO...
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.30
SÝND kl. 5.30, 8 og10.30
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
SÝND kl. 2, 5 og 9
SÍMI 553 2075
SÝND kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B i 14 ára
SÝND kl. 2, 4, 6 og 8SÝND kl. 2, 4, 6 og 8 B i 14 ára
FORSÝNING kl. 8 B i 16 ára
SÝND kl. 1.45 og 3.50 M/ÍSL TALI
SÝND kl. 6 M/ENSKU TALI
FORSÝNING kl. 3 og 5 M/ÍSL TALI
4 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
4 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Tilnefnd til óskarsverðlauna
sem besta teiknimyndin
Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna!
■ ■ LISTOPNANIR
11.00 Jón Laxdal Halldórsson
opnar sýningu í KUNSTRAUM WOHN-
RAUM, Ásabyggð 2, 600 Akureyri. Sýn-
ingin stendur til 25. apríl og eru allir vel-
komnir.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Capri-tríó leikur fyrir dansi í
Ásgarði, Glæsibæ.
23.00 Bjarni Tryggva spilar á
menningarkvöldi á litla rómantíska kaffi-
húsinu á Vitastíg sem heitir Cafe
Puccini.
■ ■ FYRIRLESTRAR
10.00
Biskup Íslands,
herra Karl Sig-
urbjörnsson,
flytur erindi um
kirkjuna og Evr-
ópusambandið
á fræðslu-
morgni í Hall-
grímskirkju.
15.00 Gunnar J. Árnason listheim-
spekingur flytur fyrirlestur um Ólaf Elí-
asson á sýningunni Frost Activity í Hafn-
arhúsinu.
■ ■ MESSUR
20.00 Gospelkór Árbæjarkirkju
verður í syngjandi sveiflu ásamt Snorra
Wium í léttmessu í Árbæjarkirkju.
■ ■ SÝNINGAR
Frá og með deginum í dag verður
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar í Laug-
arnesi aftur opið um helgar kl. 14–17. Í
safninu er sýningin „Listaverk Sigurjóns
Ólafssonar í alfaraleið“ sem sam-
anstendur af 14 frumdrögum og skiss-
um að opinberum listaverkum og ljós-
myndum af á þriðja tug listaverka í al-
faraleið. Að vanda verður kaffistofa
safnsins opin á sama tíma og safnið.
Listasafn Íslands hefur opnað
stærstu yfirlitssýningu á flúxusverkum
sem haldin hefur verið hérlendis. Jafn-
framt er í safninu sýning á verkum ís-
lenskra listamanna sem urðu fyrir áhrif-
um af flúxushreyfingunni.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Tveimur sýningum í Listasafni ASÍ
lýkur í dag. Í Ásmundarsal sýnir Rósa
Gísladóttir „Kyrralífsmyndir frá plastöld“,
og í Gryfju sýnir Margrétar M. Norð-
dahl „Annarra manna Staðaldur“.
Sýningu Rósu Sigrúnar Jónsdóttur í
Gallerí Hlemmi lýkur í dag. Hún sýnir
þar verk sitt „Um fegurðina“, sem vannt
til verðlauna í Svíþjóð sumarið 2003.
Þetta er jafnframt síðasta sýningin í sýn-
ingarsal gallerísins í Þverholti 1.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
UM FEGURÐINA
Verk Rósu Sigrúnar Jónsdóttur hefur verið
sýnt í Gallerí Hlemmi undanfarnar vikur.
Gallerí
Hlemmi
lokað
Þegar sýningu Rósu SigrúnarJónsdóttur lýkur nú í dag í
Gallerí Hlemmi, þá verða jafn-
framt mikil kaflaskil í rekstri
gallerísins, því sýningarsalnum
verður lokað. Í það minnsta í bili.
„Ég loka galleríinu en hætti
samt ekki starfsemi,“ segir Þóra
Þórisdóttir, sem hefur haldið úti
starfsemi Gallerís Hlemms allt
frá árinu 1999.
Rósa Sigrún Jónsdóttir hefur
undanfarnar vikur sýnt þar verk
sitt „Um fegurðina“, sem vann til
verðlauna í Svíþjóð síðastliðið
sumar.
„Hugsanlega opna ég aftur, en
það verður ekki nema ég hafi
fengið annaðhvort meira opinbert
fjármagn til rekstrarins eða ein-
hverja samstarfsaðila með mér. Í
millitíðinni ætla ég að einbeita
mér að því að sinna öðrum verk-
efnum gallerísins, sem maður
komst aldrei í,“ segir Þóra.
„Eitt af því er að vinna að
markaðsmálum. Vefsíðan hlem-
mur.is heldur líka áfram, og svo
ætla ég að vinna áfram að verk-
efnum úti í bæ.“ ■
Það er stöðugur straumur affólki á þessa sýningu,“ segir
Gunnar J. Árnason listheimspek-
ingur um sýningu Ólafs Elíasson-
ar í Hafnarhúsinu. Aðsóknin er
miklu meiri en venja er til um list-
sýningar hér á landi.
Gunnar segir þessa miklu að-
sókn einungis að hluta til skýrast
af þeirri athygli sem hann fékk á
alþjóðavísu á síðasta ári.
„Þetta eru mjög grípandi
verk sem allir geta eiginlega
fengið eitthvað út úr. Þau ná
greinilega til fólks strax og það
sér þau í fyrsta sinn, jafnvel til
fólks sem að öllu jöfnu hefur
engan sérstakan áhuga á mynd-
list.“
Í dag klukkan þrjú ætlar Gunn-
ar að halda fyrirlestur í Hafnar-
húsinu, þar sem sýning Ólafs
stendur yfir.
„Ég ætla að fara yfir feril hans
í helstu dráttum. Þótt verkin hans
séu kannski einföld í sniðum þá
sér maður fljótt, þegar maður fer
að fylgjast með hans verkum, að
það eru ansi spennandi hugmynd-
ir að baki. Hann er að fást við hug-
myndir um skynjun og gerir það á
mjög sérstakan og nýstárlegan
hátt. Hann veltir líka upp ýmis
konar hugmyndum um það hvers
konar myndir við gerum okkur af
náttúrunni.“
Gunnar ætlar líka að spá að-
eins í samstarf þeirra Ólafs og
Einars Þorsteins Ásgeirssonar
arkitekts, sem er áberandi í einu
herbergi sýningarinnar.
„Þeir búa báðir úti í Berlín og
vinna mjög náið saman. Einar
Þorsteinn er sérfræðingur í
ákveðnum tegundum bygginga,
eins og hvolfþökum, og hefur í því
samabandi rannsakað mikið ýmsa
rúmfræðilega strúktúra. Hann
hefur verið Ólafi til ráðgjafar um
þessa strúktúra, sem Ólafur hefur
svo notað í sínum verkum.“ ■
GUNNAR J. ÁRNASON Í MÓDELHERBERGINU
Gunnar fjallar um list Ólafs Elíassonar í fyrirlestri í Hafnarhúsinu í dag.
Grípandi
og spennandi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA