Tíminn - 21.06.1977, Blaðsíða 1
Hátiðarsvipurinn á þessu fóiki leynir sér ekki þar sem það hvílir sig frá önn og áhyggjum
hversdagsins á sjálfan þjóðhátiðardag isiendinga, 17. júni. A slikum stundum eru það ekki sizt
börnin sem njóta góðs af, athyglin beinist fremur að þeirra hugðarefnum og það er svo gaman
að fara i bæinn með pabba og mömmu og horfa á fullorðið fólk finna upp á hinum ótrúlegustu
hlutum þvi til skemmtunar. — Timamynd: Gunnar. — KEJ
Orkubú
Vestfiarða
— Undirbúningsstofnfundur
haldinn í næsta mánuði
ATH-Reykjavik. — Iðnaðar-
ráðherra hefur boðað til fund-
ar með viðkomandi sveitar-
stjórnum um miðjan næsta
mánuð og verður það
undirbúningsstofnfundur um
Orkubú Vestfjarða, sagöi
Jóhann T. Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Vestfjarða, er Timinn
spurðist fyrir um framgang
þess máls. — En áður munu
sveitarstjórnarmenn koma
saman og ræöa málin, en ekk-
ert í tillögunum hefur breytzt,
frá þvi að þær voru kynntar á
sinum tima, þannig að gera
má ráð fyrir að tillögurnar
verði samþykktar.
Eins og flestum mun vera i
fersku minni, þá voru á
Alþingi samþykkt lög i fyrra
um orkubú á Vestfjörðum.
Þar var iðnaðarráðherra falið
að hafa forgöngu um að ganga
til samstarfs við sveitar-
stjórnir á Vestfjörðum. Mikið
hefur verið unnið að málinu
siðan, og m.a. gerðar tillögur
um yfirtöku á eignum og
skuldum Rafmagnsveitu
rikisins og sveitarfélaganna á
Vestfjörðum. Um er að ræða
Mjólkárvirkjun eitt og tvö,
Þverárvirkjun i Steingrims-
firði, Rauðhjallavirkjun i Bol-
ungarvik, disilrafstöövar og
dreifikerfi, en framangreint
er i eigu Rafmagnsveitna
rikis’ins. t eign sveitarfélag-
anna eru Rafmagnsveita Isa- _
fjarðar, Rafmagnsveita Pat-
reksfjarðarhrepps, Rafveita
Snæfjalla og Rafveita ögur-
og Reykjafjarðarhrepps. Þá
kemur hitaveita Suðureyrar-
hrepps einnig inn i dæmið, en
ekki einkaveita Jóns Fann-
bergs i Mjóafirði.
— Þaðeruheimamenn, sem
hafa haft áhuga á að þetta
mál næði fram að ganga,
sagði Jóhann, og gert er
ráö fyrir að haga þessum
málum með nokkuð öðrum
hætti, en almennt gerist.
Þarna er ekki bara um raf-
veitu að ræða, en orkubúið á
lika að reka hitaveitu
og kyndistöðvar. Þetta er
þvi fjölþættara verkefni en
nokkur svipaður aðili hefur
haft með höndum hér á ts-
landi. Það sem skiptir ef til
vill meginmál fyrir okkur eru
þau verkefni, sem orkubúið
kemur til með að takast á
hendur i framtiðinni, og vist er
að einn aðili getur betur átt við
þau, en ef fleiri væru um hit-
una. Svæði orkubúsins nær
yfir Vestfjarðarkjördæmið, en
einnig er nyrzti hluti Dala-
veitu tengdur við kerfið.
Þarna fáum við vissa sjálf-
stjórn i okkar málum og hver
veit, ef vel tekst til, að meiri
starfsemi verði flutt vestur.
Yfirvinnubanni aflýst
verkföllum frestað
gébé Reykjavik — Á fundi
sinum i gærkvöld, ákvaö að-
alsamninganefnd Alþýðu-
sambands islands, að aflýsa
yfirvinnubanni því, sem
staðið hefur sfðan 2. mai s.l.
Jafnframt æskti nefndin þess
að dagsve'rkföllum aðildar-
félaga ASÍ, er hefjazt áttu á
miðnætti s.l., verði aflýst af
verkalýðsfélögunum. Strax
snemma i gærkvöld höfðu
fjölmargar tilkynningar frá
verkalýðsfélögum viða um
tandið borizt þess efnis að
dagsverkfalli væri frestað og
fallið frá yfirvinnubanninu.
ið frá yfirvinnubanninu. Þá
Þá var ákv frestun á verk-
iöllum þeim er hefjast áttu á
morgun við hafnarvinnu og
flugafgreiðslu, og verður
þeim frestað til föstudagsins
24. júni. Frestun þessi var
viðurkennd af samtökum at-
vinnurekenda, án þess að til
nýrrar verkfallsboðunar
þurfi að koma.
Mikil spenna rfkir nú i
fundarsölum samninga-
nefnda á Hótel Loftleiðum,
þar sem fundir hafa staðið
iinnulitið undanfarna sólar-
hringa. A sunnudag og i
fyrrinótt var samið um sér-
kröfur nokkurra félaga,
þ.á.m. Félags verzlunar-
manna Hins isl. prentarafél.,
Félags leiðsögum anna
og nokkurra bílstjórafélaga.
Fundir stóðu til klukkan
fimm á mánudagsmorgun og
hófust að nýju kl. 13 i gær-
dag og stóðu enn þegar blað-
iðfór í prentun. Eftir þvi sem
næst verður komizt, er það
aðeins timaspursmáí hvenær
aoalsamningarnir verða
undirritaðir, og virðast
menn nokkuð bjartsýnir á að
það verði mjög fljótlega.
Enn er eftir að semja við
ýmis sérfélög, svo sem bók-
bindara, grafiska sveinafé-
lagið, verkalýðsfélagið Hörð
i Hvalfirði og siðast en ekki
sizt, byggingarmenn og raf-
virkja. Er jafnvel talið, að
tveir þeir siðastnefndu geti
komið til með að tefja samn-
ingagerðina eitthvað. Bygg-
ingarmenn vilja t.d. fá sömu
hækkun á grunnlaun i upp-
mælingu og aðrir fá á sin
grunnlaun. Þeir hafa gert
gagntilboð til atvinnurek-
enda, þar sem þeir lækka
fyrri kröfu sina, en ekki hef-
ur orðið samkomulag þar um
enn.
Iðnaðarmenn vilja halda
álögum sinum i hlutföllum,
sem i raun þýðir ekkert ann-
að en að þeir fá meiri hækk-
un í krónutölu en aðrir. Þessi
hlutföll voru enn óafgreidd
þegar siðast fréttist, en iðn-
aðarmenn voru á löngum
fundum i gærdag.
Um siðustu helgi gaf rikis-
stjórnin út yfirlýsingu um
t.d. skattamál, lifeyrissjóðs-
mál, og húsnæðismál. Helztu
breytingar eru þær, að 30%
skattaþrep bætist við skatt-
stigann og á það aö koma til
framkvæmda við álagningu
skatta nú, sem leiðir til
nokkurrar lækkunar skatta á
meðaltekjur.
Fjölmörg félög höföu þeg-
ar i gærkvöld fallið frá yfir-
vinnubanninu, svo og aflýst
dagsverkfallinu sem átti að
vera i dag. Fundir voru boö-
aðir i stjórnum og trúnaðar-
mannaráðum fleiri félaga i
gærkvöldi, þar sem ræða átti
frestun eða aflýsingu verk-
fallanna. Þau félög sem vit-
að var um, að þegar höföu
aflýst dagsverkfallinu og
samþykkt frestun á verkfalli
við hafnarvinnu og flugaf-
greiðslu, voru þessi: Iöja i
Reykjavik, Hlif i Hafnar-
firði, Dagsbrún Reykjavik,
Verkakvennafélögin Fram-
sókn og Framtiðin, svo og
nokkur félög úti á landi.
Rætt við sendiherra Búlgaríu - sjá bls. 1
mmm